Austurland - 01.06.1956, Side 1
...............-............
6. árgangur.
Neskaupstað, 1. júní 1956.
Sjómannadagurin
Hinn árlegi hátíðisdagur sjó-
manna — sjómannadagurinn — er
á sunnudaginn kemur. Þann dag
heiðrar þjóðin sjómenn sína og
þakkar þeim þeirra þjóðnýtu störf.
Sjómannadagurinn hefur jafnan
verið öðrum þræði slysavarnardag-
ur- Þá hafa verið sýnd ýmiskonar
björgunartæki og björgunarað-
ferðir og sá eða þeir, sem talið er
að unnið hafa mest björgunaraf-
rek á liðnu ári, hljóta sérstaka við-
urkenningu. Þá hefur sund jafnan
verið veigamikill liður á dagskrá
sjómannadagsins, en almenn sund-
kunnátta er mjög þýðingarmikil
fyrir björgun úr sjó og vötnum.
Hér verður sögð lítil saga um
björgun barns úr sjó. Saga þessi
gerðist hér í bænum fyrir fáum
vikum. Hún sýnir Ijóslega hve
mikilsvert það er, að fólk læri
b'fgun úr dauðadái og haldi þeirri
kunnáttu við. Gamall sjómaður,
Jakob Jakobsson, skipstjóri, sem
er hátt á sjötugsaldri og kann
bfgun úr dauðadái, hefur vafa-
laust bjargað lífi lítils drengs með
því að beita við hann þessari kunn-
áttu sinni. Þó læknir hafi komið
mjög fljótt á vettvang, er mjög
b'klegt að lífgunartilraunir Jakobs
bafi ráðið úrslitum um það, að lífi
brengsins varð bjargað. Af þessu
wá drpga þá ályktun, að mjög er
þýðingarmikið að allur almenning.
Ur læri lífgun úr dauðadái og ætti
að taka hana upp sem skyldu-
námsgrein í skólum jafnhliða
sundinu.
Sagan eins og hún er sögð hér á
eftir er byggð á frásögn Jakobs
°g verður að nægja sem framlag
blaðsins á hátíðisdegi sjómanna að
þessu sinni.
Þriðjudaginn 24. apríl 1956
Var gott veður, logn og sléttur
sjór. Sjávarhiti var þó ekki meiri
en 2 stig.
Allmörg börn voru að leik í góð-
viðrinu fyrri hluta dagsins fyrir
innan olíuport Shell. Meðal þeirra
var þriggja ára drengur, Magnús
Sveinþórsson á Tröllanesi. Hverfur
hann frá hópnum án þess að börn-
in verði þess vör. En þegar þau
sakna hans, sennilega brátt eftir
að hann hverfur, sjá þau hann
hvergi. Þegar þau fara að svipast
um eftir Magnúsi litla, sjá þau
hann fljóta í sjóskorpunni við
Shellbryggjuna og er óvíst hve
lengi hann hefur legið í sjónum, en
líklega hefur það ekki verið lengi.
Hafði hann fallið í sjóinn af
bryggjuhausnum. Börnin hrópuðu
strax að drengurinn hefði fallið í
sjóinn.
Jakob Jakobsson var, þegar
þetta skeði, að mála hús sitt, sem
er þarna skammt frá og verður
strax var við hvað var að gerast.
Sigríður Grétarsdóttir frá
Reykjavík, 14 ára nemandi í gagn.
fræðaskólanum, hafði setið við
glugga á húsi rétt hjá slysstaðn-
um og var að lesa undir próf.
Sigríður hafði einnig orðið vör
við slysið og hleypur niður á
bryggjuna. Við bryggjuna lá lítill
trillubátur og var hann einnig
I bundinn í næstu bryggju fyrir ut-
an, bryggju Jakobs Jakobssonar.
Drengurinn flaut skammt frá
bátnum.
Jakob þreif hníf og hraðar sér
niður á bryggju sína og sker á
bandið. Rann þá báturinn að hinni
bryggjunni og komst Sigríður of-
an í hann. Jakob hraðaði sér sem
hann gat inn á Shellbryggju. Þeg-
ar hann kom þangað, hafði Sigríð-
ur náð í drenginn og var að enda
við að innbyrða hann þegar Jakob
kom niður í bátinn.
Drengurinn var í algerðu
dauðadái þegar hann náðist og
hóf Jakob strax lífgunartilraunir
um borð í bátnum. Eftir nokkrar
tilraunir varð vart við lífsmark
með drengnum, hljóð og andköf.
Taldi Jakob hann þá lífgaðan og
rétti hann upp á bryggjuna í
skyndi og þó það tæki aðeins ör-
stutta stund, virtist Magnús hætt-
ur að anda þegar hann kom upp
á bryggjuna. Hóf Jakob þá tafar-
laust lífgunartilraunir sínar að
nýju og innan skamms tók Magn-
ús aftur að anda. Tók Jakob hann
G-lislinn
Landskjörstjórn hefur úrskurðað, að listi Alþýðubanda-
lagsins skuli vera G-listi. Kjósendur Alþýðubandalagsins í Rvík
og tvímenningskjördæmunum, þar á meðal Suður-Múlasýslu og
Norður-Múlasýslu, setja x fyrir framan G, ef þeir greiða at-
kvæði á kjördegi, en greiði þeir atkvæði utan kjörfundar skrifa
þeir bókstafinn G og annað ekki á kjörseðilinn.
í einmenningskjördæmum setja kjósendur Alþýðubanda-
lagsins, kjósi þeir á kjördegi, x fyrir framan nafn frambjóð-
andans í lijördæminu, t. d. á Se- ðisfirði fyrir framan nafn Sig-.
ríðar Hannesdóttur á kjörseðlinuin, en kjósi þsir utan kjör-
fundar skrifa þeir nafn frambjóðandans á kjörseðilinn, á Seyð-
isfirði nafn Sigríðar Hannesdóttur.
Munið að kjósa áður en þið farið að heiman. Kjósið fram-
bjóðendur Alþýðubandalagsins! — Kjósið G-listann!
18. töiublað.
þá í fang sér, lét andlitið vita
niður og hélt höfðinu nokkru
lægra en búknum, hljóp með hann
heim til sín og kom þá héraðs-
læknirinn Þorsteinn Árnason í
sama mund og meðhöndlaði dreng-
inn.
Magnús litli var í nokkra daga
að jafna sig, en kvöldið, sem þetta
skeði, var hann með 39 stiga hita.
Þess skal getið, að blaðið hefur
spurt læknirinn að því, hvort lífg-
unartilraunir Jakobs muni hafa
ráðið úrslitum um líf barnsins og
telur hann að svo hafi verið.
Þessi litla saga ætti að verða.
mönnum hvatning til að læra lífg-
un úr dauðadái. Enginn veit hve-
nær hann stendur frammi fyrir
þeirri staðreynd, að meðbróðir
hans á líf sitt undir því, að hann
kunni lífgun. Þeim manni mun
ekki rótt innanbrjósts, sem stend-
ur ráðalaus yfir manni í dauðadái
og kann engin ráð til að rétta hon-
um hjálparhönd aðeins vegna þess
að hann vanrækti að verja nokkr-
um stundum lífs síns til að læra
lífgunaraðferðir.
Vetti vel fagnað
Togarinn Vöttur kom til heima-
hafnar sinnar, Fáskrúðsfjarðar,
24. maí og var þar vel fagnað.
Togarinn fór í fyrstu veiðiför sína
eftir eigendaskiptin héðan úr bæn-
um, þar sem hann hafði tekið ís, í
fyrradag.
Skipstjóri á Vetti er Steinn
Jónsson, sem undanfarið hefur
verið stýrimaður á Austfirðingi,
fyrsti stýrimaður Steindór Árna-
son, Neskaupstað og fyrsti vél-
stjóri Stefán Jónsson, Hafnarfirði.
Á skipinu eru eingöngu íslend-
ingar og munu ekki margir tog-
arar nú með alíslenzka áhöfn.
Austurland óskar eigendum
Vattar til hamingju með skipið og
væntir að þær björtu vonir, sem
bundnar eru við rekstur skipsins,
megi rætast.
Lisii Alþýðubandalagsins er G-lisii
y
..... -