Austurland - 21.07.1956, Qupperneq 3
Neskaupstað, 21. júlí 1956.
AUSTURLAND
3
Þörf ítarlegrar rannsóknar á
orsökum rðskursar 6 Jafnvœgi
í byggð landsins
Á undanförnum árum hefur
verið rætt og ritað um þá öfug-
þróun, að fólkið í landinu safnast
í æ ríkari mæli saman í einum
landshluta, það er byggðinni um-
hverfis Faxaflóa. Á sama tíma
fækkar fólki í öðrum landshlutum
jafnt og þétt og liggur víða við
landauðn. Dæmi eru þess, að heil-
ir hreppar hafi farið í eyði og í
sumum hreppum eru aðeins örfáir
bæir byggðir þar sem áður voru
margir bæir.
Ástæður þessa öfugstreymis eru
tvímælalaust margar, en engin
rannsókn hefur farið fram á or-
sökunum og engar skipulagðar
r'.cs'afanir gerðar til að spyrna
gegn broddunum. Alþingi skipaði
að vísu tveggja manna nefnd, tvo
G'sla, sinn úr hvorum stjórnar-
flokki, til að íhuga málið en tillög-
ur þeirra voru það lítilfjörlegar
cg gagnslausar, að furðu sætir.
Ful: ástæða er til, að hæfir m;nn
verði látnir gera hlutlausa og ítar-
lega rannsókn á orsökum og eðli
þessara flutninga. Fyrr en slík
rannsókn ehfur farið fram er lítil
von til þess að gagnlegar tillögur
til úrbóta komi fram.
Hingað til hefur mest verið ein-
blínt á hina efnahags’egu orsakir
fólksflutninganna. Og víst er um
það, að samansöfnun fjármagnsins
í Reykjavík og nágrenni á mjög
mikinn og ef til vill mestan þátt
í fólksstraumnum þangað suður.
Á því verður ekki ráðin bót, nema
með því að dreifa fjármagninu
meira, koma á fót nýjum atvinnu-
tækjum úti um land og bæta að-
stöðu dreifbýlisins, bæði sveitar-
félaga og einstaklinga, til að efla
atvinnulífið. Víða þarf að auka og
bæta skipastólinn, annars staðar
þarf að koma á fót verksmiðjum
o. s. frv. — Einnig mætti benda á
að full þörf væri, að hætta að
nota Reykjavík sem hafnarborg og
verzlunarmiðstöð fyrir allt landið,
en í gegnum utanríkisviðskiptin
hefur Reykjavík aðstöðu, sem
miskunnarlaust er notuð til að
skattleggja allt landið.
Um dreifingu fjármagnsins og
efnahagslegt misrétti byggðarlag-
anna mætti skrifa langt mál, en
verður ekki gert að sinni.
En það er fleira, sem hér kem-
ur til greina.
Orsakir öfugþróunarinnar eru
ekki einungis fjárhagslegar, held-
nr og félagslegar og mín skoðun
er sú, að félags'egar orsakir eigi
enn ríkari' þátt í hinum óheilla-
vænlega fólksflutningi en efna-
hagslegar.
Án undangenginnar rannsóknar
er ekki unnt að gera sér grein
fyrir því, hvaða félagslegar ráð-
stafanir þarf að gera til að stemma
stigu fyrir áframhaldandi fólks-
straumi til Suourlands. En í hverju
byggðarlagi þarf að gera ráðstaf-
anir til þess að ungt fólk geti
heima fyrir fengið sem flest af
því sem það sækist eftir í Reykja-
vík, Það þarf að efla íþróttahreyf^
inguna og búa henni viðunandi
ytri starfsskilyrði með byggingu
íþróttamannvirkja. Það þarf að
gera ráðstafanir ti'l að glæða leik-
listarstarfsemi og tónlistarstarf-
semi. Og það þarf að bæta stórlega
skilyrði æskulýðsins til að afla sér
eins víðtækrar bóklegrar- og verk-
legrar menntunar heima fyrir og
tök eru á.
Hér er aðeins á fátt eitt drepið.
En eigi að vinna skipulega að
þessum málum, verður að grafast
nákvæmlega fyrir orsakir meins-
ins. Þar dugar ekkert kák.
Þjóðarhei’l krefst þess, að þessi
óheillavænlega þróun verði stöðv-
uð. Fyrsta sporið er að gera sér
grein fyrir hinum raunverulegu or-
sökum, hið næsta að gera raun-
hæfar ráðstafanir til úrbóta.
Nýr bátur til Seyð-
isfjarðar
Áður hefur verið frá því sagt
hér í blaðinu, að Aðalbjörn Har-
aldsson á Seyðisfirði ætti bát í
smíðum í Skipasmíðastöð Nóa
Kristjánssonar á Akureyri.
Bátur þessi kom til Seyðisfjarð-
ar s. 1. sunnudag. Hann er 9 lestir
að stærð með 44 hestafla Kelviin-
díselvél og kostaði um 220 þús. kr.
NorSfjorSorhló
I Sjö svört brjósthöld j
: Sprenghlægileg sænsk gam- ■
I anmynd.
| Sýnd sunnudag kl. 5 fyrir börn. ■
IGullnir dí aumar !
Amerísk músíkmynd í litum |
frá 20th Century Fox.
Aðalhlutverk:
j Mitzí Gaynor
Dale Robertson :
■
t Dennis Day
! * James Borton.
■ ■
5 ■
Sýnd sunnudag kl. 9.
Til sölu I
■
■
■
Sundurdregið barnarúm, sem |
nýtt, til sölu. — Tækifærisverð. •
Halldór Haraldsson.
Almenna bókafélagið |
Félagsbækurnar eru nú komnar, ásamt úrvali smásagna i
eftir Þóri Bergsson.
Er félagsmönnum gefinn kostur á að eágnast bókina í rexin- |
bandi á kr. 45.00,
■
Unnið er að dreifingu bókanna, en þeir sem ekki hafa þeg- i
ar fengið þær, mega sækja þær til undirritaðs.
Góðar bækur eru meífé.
■
Gerizt meðlimir A. B. :
■
■
■
Umboðsmaður
Jakob H. Hermannsson.
Útihús
Hjálmars Ólafssonar, Ekru, öll eða sérstök, eru til sölu, svo
■
j og túnblettír.
F. h. erfingja
Guðm. S|gfússon.
Konur, athugid
Kvennatímar verða framvegis á þriðjudögum og fimmtu-
dögum frá kl. 4—5 e. h.
Sundlaugin.
Hvað á skipið að heita?
Togarakaupanefnd Neskaupstaðar hefur ákveðið að óska
eftir uppástungum um nafn á hinn nýja togara Neskaupstaðar
án þess þó að skuldbinda sig til að taka nokkra slíka uppá-
stungu til greina.
Berist einhver uppástunga, sem farið verður eftir, verður
þeim, er tillöguna gerði, veitt 500 króna verðlaun. Hafi fleiri
en einn stungið upp á því nafni, ræður hlutkesti hver verðlaun
hlýtur. f~..
Skriflegum uppástungum skal skilað á bæjarskrifstofuna
fyrir kl. 4 e. h. miðvikudaginn 24. júlí n. k.
Togarakaupanefnd.
Matvörubúðin
Kjötfars á 16.50 Saltkjötshakk
Léttsaltað folaldakjöt Ýsuhakk
| Pöntunarfélag alþýðu, Neskaupstað I