Austurland - 28.07.1956, Síða 2
2
AU9TURLAND
Neskaupstað, 28. júlí 1956.
Ferðaþællir frá
Sovélríkj unum
Frásögn Sigurðar Hinrikssonar
Stalíngrad
Við komum til Stalingrad flug-
leiðis frá Moskva árdegis 8. maí.
Borgin stendur á vesturbakka
Volgu og tekur yfir 60 km af
strandlengjunni. íbúatala er nú
um 450 þús., en var fyrir stríð um
500 þús.
Eins og kunnugt er, var ein
grimmasta og örla garíkasta or-
usta styrjaldarinnar háð í StaUn-
grad og ber hún enn merki þeirra
átaka, bæði hús og eins landið
sjálft. Okkur var sýnd kvikmynd
af borginni eins og hún var fyrir
orustuna og eftir, Var hún mjög
fögur og glæsíleg fyrir stríð, en
Ansínrland
Ritstjóri: Bjarni Þórðarson.
Kemur út einu sinni í viku.
Lausasala kr. 2.00.
Árgangurinn kostar kr. 60.00.
Gjalddagi 1. apríl.
NESPRENT H-P
Stefiia Alþýðubanda-
lagsins sigraði
ö o
Alþýðubandalagið var stofnað
að frumkvæði Alþýðusambands Is-
lands í þeim tilgangi, að vinna að
stjórnmálalegri einingu alþýðunn-
ar. Ekki tókst þó að skapa fyrir
kosningar þá einingu vinstri
manna, sem til var ætlazt og gengu
þeir í mörgum fylkingum til
kosninganna.
En mjög er líklegt, að stofnun
Alþýðubandalagsins sé upphaf
mikilla tíðinda í íslenzkum stjórn-
málalífi, að það tákni að innan
skamms sameinist framfarasinnað
fólk í eina volduga fylkingu, sem
verður þess umkomin að taka
stjórn landsins á öllum sviðum í
sínar hendur, og sem beitir völd-
unum til að skapa íslenzkri alþýðu
og þar með íslenzku pjóðinni bjarta
og glæsilega framtíð.
Það var myndun slíkrar þjóðar-
einingar sem fyrir Alþýðusamband
inu vakti þegar það reyndi að
koma á sem víðtækustu samstarfi
vinstri manna við kosningarnar í
vor.
Þegar upp var gert að kosning-
um loknum, kom í ljós að Alþýðu-
bandalagið hafði mest fylgi allra
andstöðuflokka íhaldsins. Þannig
hafði íslenzk alþýða lýst sig sam-
þykka einingartilraununum. En þó
er engum efa bundið, að miklu
fleiri hefðu fylkt sér undir merki
Alþýðubandalagsins, ef þeir hefðu
ekki trúað bábiljunni um, að það
væri ósamstarfshæft. Þá firru er
nú verið að hrekja og það mun
sýna sig, að mjög er gott og auð-
velt að vinna með Alþýðubanda-
laginu að málum þeim, er til heilla
horfa íslenzkri þjóð.
I kosni'ngabaráttunni lagði Al-
þýðubandalagið áherzlu á, að það
óskaði vinstri stjórnar eftir kosn-
ingar, stjórnar Alþýðubandalags-
ins, Alþýðuflokksins og Framsókn.
arflokksins sem í samráði við sam.
tök alþýðunnar í landinu leysti að-
steðjandi vandamál og gengist
fyrir alhliða uppbyggingu atvinnu-
lífsins.
Þessi stjórn er nú orðin að veru-
leika. Þar með hefur stefna Al-
þýðubandalagsins sigrað.
Kosningaúrslitin í Suður-Múla-
sýslu hafa án efa mjög stutt að
myndun vinstri stjórnar og þann-
ig haft stórpólitíska þýðingu.
Hlutur Sunnmýlinga í hinni nýju
stjórn er eins stór og veri'ð getur,
rústir einar með uppistandandi
hiisum á stangli að orustunni lok-,
inni. Geysimikið endurreisnarstarf
hefur verið unnið í borginni.
Don-Vol ga-skipaskurð-
urínn
Millí stórfljótanna Volgu og Don
hefur verið grafinn mikill skipa-
skurður. Lengd hans er 101 km
og var verkinu lokið 1952 og hafði
tekið 31/2. ár. Við sáum kvikmynd,
sem sýndi vinnu við skurðinn og
voru þar notaðar risavaxnar
skurðgröfur. 1 skurðinum eru
skipastigar 10 talsihs að mig minn-
ir. Við sigldum aðeins inn í skipa-
skurðinn, sem er mikið mannvirki
og fagurt. Við mynni hans stend-
ur risavaxin stytta af Stalín.
Dráttarvélaverksmiðja
Stærsta iðjuverið í Stalíngrad er
dráttarvélaverksmiðja þar sem urn
70 þúsundir manna vinna. Þessa
stórkostlegu verksmiðju skoðuðum
við. I verksmiðjunni vihna margar
konur og sá ég þær starfa við
rennibekki og hverskonar vélar.
Tilheyrandí verksmiðjunni eru
vöggustofur, bamaheimili og
menningarhöll. Barnaheimilið var
mjög vel útbúið og leikföng fjöl-
breytt. En því veitti ég athygli',
að ekkert þeirra minnti á stríð.
Slík leikföng sá ég heldur ekki á
öðrum barnaheimilum, sem við
heimsóttum, né heldur í leikfanga.
búðum. Stofnanir sem þessar
munu yfirleitt vera starfræktar í
sambandi við verksmiðjur í Sovét-
ríkjunum* Heimilum þessum er
stjórnað af konum og konur ein-
ar munu starfa þar.
Við ræddum við verkafólk,
þar sem báðir þingmenn þeirra
gegna þýðingarmiklum störfum í
stjórninni. Ætti ekki að vera mikil
hætta á, að hlutur Sunnmýlinga
verði fyrir borð borinn.
konur og karla, í verksmiðjunni
og spurðum um launakjör þess,
vinnutíma og fleirá. Taldi það, að
meðallaun í verksmiðjunni væru
900—1000 rúblur á mánuði.
Verksmiðjan sjálf á íbúðarhús
í grenndinni og eru þau leigð
starfsfólkinu. Einn verkamaður,
sem við töluðum við, kvaðst greiða
42 rúblur á mánuði fyrir íbúð sína
með ljósi og hita. Taldi hann þetta
almenn húsnæðiskjör starfsfólks-
ins. Daglegur vinnutími er 8
stundir.
1 verksmiðjunni er framreiddur
matur einu sinni á hverri vakt, og
getur hver sem óskar keypt þar
ágæta máltíð fyrir 3 rúblur.
Raforkuver í smíðum.
Við Volgu er í smíðum mikið
raforkuver, sem framleiða á raf-
magn fyrir Stalíngrad. Orkufram-
leiðslan á að verða 2 millj. kw. —
Þótti mér mikið til vinnubragða og
vinnutilhögunar koma.
Sigling á Volgu-Astrakan
Kvöldið 9. maí lögðum við upp
frá Stalíngrad niður eftir Volgu
og var förinni heitið til borgarinn-
ar Astrakan. Ferðuðumst við með
stóru farþegaskipi' Hafði það við-
komu á allmörgum stöðum á leið-
inni og tók ferðin til Astrakan 20
stundir. Siglingin niður Volgu var
mjög skemmtileg og fagurt um að
litast, en fremur virtist mér strjál-
byggt.
Ibúar Astrakan eru um 200 þús.
Lifa þeir mestmegnis á fiskveið-
um og fiskiðju. Borgin er skammt
frá Volguósum þar sem fljótið
fellur í Kaspíhaf. Borgin er mjög
fögur og mikið um trjágróður. 1
Astrakan ber miklu meira á ein-
býlishúsum en í Moskva og Stalín-
grad.
Við heimsóttum mikið fiskiðju-
ver þar sem um 6000 manns vinna.
Fer þar fram fjölbreytt úrvinnsla
úr fiski og margskonar fiskafurðir
eru framleiddar þar. Frystihús
og útbúnaður þeirra er með mjög
líkum hætti og hér tíðkast. Þama
mun aðallega unninn vatnafiskur,
en Volga er mjög auðug af fiski.
Fiskurinn er fluttur lifandi í
stórum prömmum til verksmiðj-
unnar og dælt úr þeim með raf-
magnsdælu á færibönd, sem flytja
fiskinn á vinnustað.
Eitthvað er um fom mannvirki'
í Astrakan og sáum við þar um
400 ára gamalt vígi.
Til fiskiveiða fóru
I Daginn eftir tókum við okkur
fari með farþegabáti, sem Volga
heitir til fiskveiðistöðvanna í
Volguósum um 100 km frá Astra-
kan. Veiði'aðferð sú, sem notuð er,
er ekki ólík loðnuveiðum á Horna-
firði. Nót er kastað í fljótið og
hún dregin á land með rafmagns-
vindum. Næturnar eru allstórar, á
að gizka 150 faðmar að lengd. Við
vorum þarna við eitt kast og lögð-
um hönd að veiðiskapnum. Veiði
var lítil að þessu sinni, en fiski-
mennirnir sögðu okkur, að þeir
fengju allt að 15 smálestir í kasti,
einkum í apríl, en þá er veiði mest.
Fiskurinn er af ýmsum tegundum,
stór og smár, þar á meðal styrja,
en aðrar tegundir kann ég ekki að
nefna.
Um 15 manns starfa í einu víð
hvert nótabrúk og er vinnutími
þannig, að menn vinna í 6 stund-
ir samfleytt, en hafa svo frí næstu
12 stundirnar.
Meirihluti fiskimannanna, lík-
lega tveir þriðju, eru konur og
konur eru formenn fyrir a. m. k.
sumum útgerðunum. Fiskurinn er
háfaður upp í prammana og síð-
an fluttur lifandi í fiskiðjuverin
sem áður segir.
Stangaveiði sá ég ekki, nema
suður við Svartahaf síðar 1 ferð-
inni. Þar sá ég menn með fiski-
stengur á hafnargörðum og
bryggjum.
Við fórum svo aftur sömu leið
til baka til Astrakan með sama
báti eftir að hafa setið veglega
veizlu hjá fiskimönnunum. Voru
þar á borðum gnægðir drykkjar-
og matfanga, m. a. fjölbreyttir
fiskréttir.
Daginn eftir flugum við svo til
Moskva. Var flogið í lítilli hæð
yfir stóra og litla bæi, þorp og
sveitabýli og skiptust þar á akrar
og skóglendi. Sýndist okkur þarna
mjög vel uppbyggt og ræktun
mikil.
Hafnarmál
Framhald af 1. síðu.
I þessu tilfelli verða menn að átta
sig á því, hvort þeir muni sam-
þykkja, að staðið yrði i skilum með
afborganir og vexti1 af hafnarlán-
um með því móti, að taka féð með
útsvörum.
Nú má vel vera, að möguleikar
til hafnargerðar séu að opnast. Hin
nýja ríkisstjórn ætlar sér að taka
erlent lán og verja því til hafnar-
gerðar. Ekki er ólíklegt, að Nes-
kaupstaður geti notið góðs af því.
Bæjarstjórn mun fylgjast af á-
huga og með athygli með fyrirætl-
unum stjórnarinnar í hafnarmál-
um og tilraunum hennar til lánsJ
útvegunar til hafnargerða og gera
það sem í hennar valdi stendur til
að Neskaupstaður njóti góðs af
aðgerðum ríkisstjórnarinnar í
hafnarmálum.