Austurland - 21.09.1956, Blaðsíða 1
á Anstnrlandi
Málgs&git sóslalista
6. árgangur. Neskaupstað, 21. september 1956. 34. tölublað.
Félagsheimili Neskaupstaðar
'éu
-Byggingu félagsheimilisins hef-
ur miðað vel áfram í sumar. Þó
%
tafðist verkið um nokkrar vikur
vegna skorts á steypustyrktar-
járni.
Á miðvikudag var lokið við að
steypa upp alla neðstu hæðina. Ef
nokkur tök verða á er ætlunin að
steypa loftið í þá hæð og takist
það hefur mikið á unnizt á þessu
ári.
Bygging samkomuhúss hér í
bænum er knýjandi nauðsyn, því
skortur á hæfu samkomuhúsi
stendur öllu félagslífi mjög fyrir
þrifum.
Yfirmenn á Gerpi
Skipstjóri á Gerpi hefur verið
ráðinn Magnús H. Gíslason, sem
nú er skipstjóri á Goðanesi.
Hjörtur Kristjánsson, Reykja-
vík, sem er reyndur mótorvélstjóri,
hefur verið ráðinn 1. vélstjóri á
Gerpi um 8 mánaða skeið.
Birgir Sigurðsson, sem er 1.
stýrimaður á Goðanesi, verður 1.
stýrimaður á Gerpi.
Magnús Hermannsson, sem nú
er fyrsti vélstjóri á Goðanesi,
verður 2. vélstjóri á Gerpi og mun
gert ráð fyrir að hann verði 1.
vélstjóri þegar Hjörtur lætur af
því starfi.
Mjög er því þýðingarmikið, að
bygging þessa húss þurfi ekki að
standa yfir í mjög mörg ár. En
hraði framkvæmdanna fer að lang-
mestu leyti eftir því, hvernig geng-
ur að útvega fé til verksins.
Bæjarbúar geta áreiðanlega
flýtt verkinu mjög með því að
Happdrœtti
Árlega hefur Þjóðviljinn efnt
til happdrættis til ágóða fyrir út-
gáfuna. Hefur jafnan verið dregið •
í þessum happdrættum um jóla-
leytið. Sala miða hefur venjulega
staðið yfir í nokkra mánuði.
Happdrætti Þjóðviljans hafa
jafnan notið vinsælda, enda hafa
vinningar ætíð verið glæsilegir.
Og enn á ný efnir Þjóðviljinn til
liappdrættis. Að þessu sinni verður
dregið miklu fyrr og miðasala
stendur yfir miklu skemmri tíma.
Að þessu sinni nefnist happ-
drættið Afmælishappdrætti Þjóð-
viljans. Þjóðviljinn á nefnilega 20
ára afmæli 31. okt. í haust og verð-
ur dregið í happdrættinu daginn
áður. Vinningar eru Pobeda-bif-
reið og 15 ísskáþar.
Miðasala er hafin hér í bænum
og eru miðar afhentir hjá Jó-
hannesi Stefánssyni. Er þess vænzt
verja einhverju af tómstundum
sínum til sjálfboðaliðsvinnu við
bygginguna. Nú á næstunni verður
áreiðanlega þörf fyrir slíka vinnu
við að hreinsa mótatimbur og búa
það undir notkun á ný. Mundi slík
vinna áreiðanlega vel þegin ef
byðist.
Þjóðviljans
að allir stuðningsmenn taki miða
til sölu. Vegna þess hve stuttur
tími er til stefnu er áríðandi að
rösklega verði unnið.
Athygli lesenda og velunnara
Austurlands skal vakin á þvi, að
blaðið fær helminginn af andvirði
þeirra miða sem seljast hér í bæn-
um. Það skiptir því miklu máli
fyrir blaðið, að miðasala gangi
greiðlega. Er því treyst, að þessi
staðreynd verði til að glæða miðan
söluna.
Austurland átti nýlega 5 ára af-
mæli og getur happdrættið því
vissulega með réttu kallast Af-
mælishappdrætti Þjóðviljans og
Austurlands.
Styðjið útgáfu Þjóðviljans og
Austurlands með því að kaupa
miða. Það borgar sig þó óbeint sé.
Og svo er alltaf fyrir hendi mögu-
leikinn á að fá glæsilegan vinning.
Sláturafurðir
lækka í verði
Eins og kunnugt er, hefur verð-
lag í landinu verið stöðvað til
næstu árarnóta. Þstta hefur m. a.
þau álirif að verðlag á landbúnað-
arafurðum, svo sem kjöti og mjólk
og mjó kurvörum, hækkar ekki, en
veruleg hækkun var fyrirsjáanleg
á þessum vörum, ef ekki var að
gert.
Nú hefur hinsvegar verið ákveð-
in veruleg verðlækkun ú slátri og
sláturvörum. Vegna mikils fram-
boðs og til þess að örfa söluna,
hefur Framleiðsluráð landbúnað-t
arins ákveðið þessa lækkun.
Það mun líka hafa haft áhrif á
þessa ákvörðun Framleiðsluráðs-
ins að það hefur í verki viljað sýna
stuðning við tilraunir ríkisstjórn-
arinnar til að stöðva verðbólguna.
Slátur kostar í haust kr. 32.00,
en í fyrra 37.50,, lækkun kr. 5.50.
Mör kostar nú 9.45 kg, en í
fyrra 18.90 og er hér um helm-
ingslækkun að ræða.
Sviðnir hausar kosta nú kr. 15.90
kg., en í fyrra kr. 18.90, lækkun
kr. 4.00,
Aðrar sláturvörur hafa lækkað
í hlutfalli við þetta.
Lúðrasveitin heldur
hljómleika hér
annað kvöld
Lúðrasveit Neskaupstaðar hefur
nýlega haldið hljómleika á Fá-
skrúðsfirði, Eskifirði, Seyðisfirði
og Reyðarfirði. Hefur aðsókn ver-
ið mjög góð og sums staðar ágæt
og lúðrasveitinni mjög vel tekið,
enda á hún það fyllilega skilið, því
hún er mjög vel þjálfuð.
Annað kvöld heldur lúðrasveitin
hljómleika hér í bænum, í barna-
skólanum, og eru það síðustu
hljómleikarnir sem ráðgerðir voru
á þessu hausti. Er ekki að efa að
bæjarbúar muni fjölmenna á
hljómleikana, því þeir kunna vissu-
lega að meta lúðrasveitina og hið
mikla starf, sem liggur að baki
þjálfunar hennar.
í fyrrahaust fór lúðrasveitin
einnig í hljómleikaför og lék á hin-
um sömu stöðum nema Fáskrúðs-
firði.