Austurland - 02.11.1956, Blaðsíða 4
4
AUSTURLAND
Neskaupstað, 2. nóvember 1956.
Gamall Norðfirðingur látinn
Hi*nn 26. október andaðist í
Reykjavík Brynjólfur Bjömsson,
sem um langan aldur átti heima
hér í bænum, og sem flestir Norð-
firðingar, sem komnir eru af
barnsaldri, muna.
Brynjólfur varð maður háaldr-
aður. Hann fæddist að Bakkagerði
í Stöðvarfirði 10. marz 1863 og
var því kominn góðan spöl á 94.
árið er hann lézt.
Kona Brynjólfs, Kristín Ás-i
grímsdóttir, var Vesturskaftfell.
ingur. Hún er löngu látin. Eign-
uðust þau mörg börn, en ekki hef-
ur nema eitt þeirra ílenzt hér.
Fyrir allmörgum árum flutti
Brynjólfur til dætra sínna í
Reykjavík og þar átti hann heima
upp frá því.
Brynjólfur var á sínum tíma
alláberandi maður hér í bænum.
Hann var félagshyggjumaður
mikill og starfaði í ýmsum sam-
tökum. Söngmaður var hann góð-
ur og starfaði mikið í söngfélögura
en þó líklega lengst og mest í
kirkjukórnum.
Hagmæltur var Brynjólfur vel
og lét oft fjúka í kviðlingum og
yfirleitt var fjör á ferðum þar
sem hann var nálægt.
Atvinna Brynjólfs var venjuleg
'daglaunavinna og smábátaút-<
gerð rak hann lengi.
1 skoðunum var hann róttækur
og fylgdi Alþýðuflokknum fast að
málum. Trúmaður var hann mik-
ill.
„Gullna hliðið“
lesið upp
I ráði er að Jón Norðfjörð,
leikari, lesi1 upp „Gullna hliðið“
eftir Davíð Stefánsson næstk.
laugardagskvöld hér í bænum.
Jón hefur verið lasinn af kvefi
undanfarna daga, en vonir standa
til þess að úr þessum upplestri
geti orðið.
Jón er alþekktur leikari, leik-
stjóri og upplesari. Sem kunnugt
er starfar hann nú hjá Leikfélagi
Neskaupstaðar við að setja „Log-
ann heljga“ eftir Sommerset
Maugham á svið. Eru æfingar
langt komnar og verður frum-
sýning í næstu viku.
„Gullna hliðið“ þarf ekki að
kynna bæjarbúum. Ekkert ís-
lenzkt leikrit, nema ef vera skyldi
„Skuggasveinn' ‘, hefur orðið eins
vinsælt. Ýmsir leikarar hafa
spreytt sig á því að lesa það upp,
bæði í heilu lagi og brot úr því.
Jón hefur oft lesið leikinn upp
og hlotið mikið lof fyrir, enda al-
mennt talinn í fremstu röð upp-
lesara. Er því að vænta að marga
fýsi að hlusta á hann á laugar-
dagskvöldið. D. Á.
Margir Norðfirðingar munu við
andját Brynjólfs Bjömssonar,
hafa rennt huganum til ánægju-
legra samverustunda og góðs
samstarfs á liðnum áratugum og
þakkað samfylgdina svo langt
sem hún náði.
Dagana 26.—28. sept. var hald-
inn á Isafirði fulltrúafundur kaup-i
staðanna 8 á Norður-, Austur- og
Vesturlandi. Er þetta í annað
sinn sem slíkur fundur er haldinn.
Fundurinn fjallaði um ýms
sameiginleg hagsmunamál kaup-
staðanna og sveitarstjómarmál
almennt. Hér er ekki rúm til að
rekja samþykktir fundarins, enda
hefur það verið gert allrækilega í
dagblöðunum.
Þó skal getið tveggja sam-
þykkta.
Ákveðið var að athuga mögu-
leika á að mynda samtök allra
kaupstaða utan Reykjavíkur í
því skyni að kaupa og reka vega-
gerðavélar til steypu eða malbik-
unar gatna. Ennfremur að at-
huga möguleikana á að bæjarfé-
lögin taki öll sameiginlega stórt
lán til langs tíma til vegagerðar
og skipulagsbreytingar. — Þessi
samþykkt er fram komi'n vegna
þess, að yfirleitt er hið mesta ó-
fremdarástand ríkjandi í vega-
málum kaupstaðanna og þeim
hverjum um sig ofviða að kaupa
og reka vegagerðarvélar.
Þá voru samþykktar áskoranir
til Alþingis um ýmsar bneytingar
á útsvarslöggjöfinni, m. a. að
setja ljós ákvæði um útsvars-
greiðslur samvinnufélaga þar sem
heimilað væri að leggja á þau
Nýtt blað
1 gær hóf göngu sína hér í
bænum nýtt blað sem nefnist
Austri. Er það gefið út af Fram-
sóknarmönnum á Austurlandi og
á að koma út hálfsmánaðarlega.
Nesprent prentar blaðið.
Ritstjóri Austra er talinn Ár-
mann Eiríksson. Hann mun þó
aðeins vera leppur, en hinn eigin-
legi ritstjóri mun vera Vilhjálmur
skattstjóri Sigurbjörnsson og er
ekki gott að sjá hvað veldur þvf,
að hann kýs að fela sig að baki
annars.
Þetta fyrsta blað er þokkalegt
og að miklu leyti laust við ádeilur.
í þessu sambandí má geta þess,
að Fjórðungsþing Austfirðinga
athugar nú möguleika á útgáfu
hálfsmánaðarblaðs.
Íþróttavöllurinn
Nú er verið að vinna að íþrótta-
vellinum og mun innan fárra daga
lokið við að fylla upp gilið utan
við Laufás. Eins og áformað er
nú að hafa völlinn er þá lokið
að mestu ýtu- og mokstursvinnu,
en það sem eftir er er mestmegn-
is snydduhleðsla og bíður hún
næsta árs.
veltuútsvör sem önnur fyrirtæki.
Eins og er eru ákvæði um útsvör
samvinnufélaga mjög á reiki,
einkum eftir dóm hæstaréttar um
útsvarsskyldu SlS. — Hinsvegar
var kaupfélagið hér eina kaupfé-
lagið í þessum átta kaupstöðum,
sem nú kærði útsvar sitt, en það
krcfst niðurfellingar á útsvarinu
með tilvísun til hæstaréttardóms-
ins. Alls staðar hafði þó verið
lagt á kaupfélögin samkv. sömu
reglum og áður. Líklegt er að á
yfirstandandi þingi verði sett ný
og skýr lagaákvæði um útsvars-
greiðslur samvínnufélaga.
Þriðji fulltrúafundur kaupstað-
anna verður haldinn á Austur-
landi næsta haust.
XV. þing Æ. F. átelur harðlega
það sleifarlag sem ríkt hefur x
húsnæðismálum landsmanria,
einkum þó höfuðstaðarins og tel-
ur brýna nauðsyn til bera, að
þeim málum verði komið í við-
unandi horf hið fyrsta fyrir fnxm-
kvæði hiris opinbera. Húsnæðis-
vandamálið er eitt alvarlegasta
þjóðfélagsivandamál íslenzku
þjóðarinnar og slík verkefni eru
þar framundan, að þau verða ekki
leyst nema með samstilltu átaki
einstakliriga, samtakaheilda og
hins opinbera.
Þingið bendir á að húsaleigu-
okur og geysilegur en dulinn
gróði í sambandi við íbúðarhúsa-
byggingar á síðustu árum hefur
verið einn snarasti þátturinn í
vexti dýrtíðarinnar.
Húsnæðisvandræðin bitna harð-
ast á hinni uppvaxandi kynslóð
og því er lausn þeirra eitt brýn-
asta hagsmunamál unga fólksins
í landinu,
XV. þing Æ. F. beinir því til
ríkisstjórnarinnar, að hún hlutist
nú þsgar til um undirbúning og
framkvæmd raunhæfrar framtíð-
arlausnar húsnæðismálanna, og
bendir í því sambandi á eftir-
farandi:
Gera þarf heildaráætlun um
íbúðabyggingar í landinu, sem
grundvölluð sé á réttilegri hag-
nýtingu vinnuafls og fjármagns
og við það miðuð að útrýma öllu
Kirkjan
Messur sunnudaginn 4. nóv.:
Mjóafjarðarkirkja: kl. 2.
Norðfjarðarkírkja: Kvöldmessa
kl. 8.30.
Afmæli.
Eiríkur Elísson, trésmiður
varð 80 ára 29. október. Hann
fæddist á Skorrastað, en ólst upp
í Ormsstaðahjáleigu. Iðn sína
lærði hann í Reykjavík og enn
fæst hann við trésmíðar þrátt
fyrir allháan aldur.
Helgi Halldórsson frá Stuðlum
verður 60 ára n. k. sunnudag, 4.
nóvember. Hann á nú heima að
Stuðlabergi, Hafnarfirði.
Dánardægur:
Þórunn Björg Björnsdóttir and-
aðist á heimili dóttur sinnar og
tengdasonar hér í bænum 31. okt.
Hún var gift Elíasi Jónassyni og
lifir hann konu sína ásamt mörg-j
um börnum þeirra hjóna. Bjuggu
þau lengi1 í Vindheimi hér í bæ og
þar dó Þórunn Björg. Þórunn
Björg fæddist í Vaðlavík 6. febr.
1879. Foreldrar hennar voru
hjónin Björn Jónsson og Svan-
hildur Magnúsdóttir.
óhæfu og heilsuspillandi húsnæði
á næstu 4 árum. Stefna skal að
því að gera mönnum kleift að fá
sómasamlegar íbúðir til umráða
fyrir 10% af mánaðarl. sínum.
Tryggja þarf aukið fjármagn tíl
þessara hluta og lækka vexti af
lánum til íbúðarhúsabygginga frá
því sem nú er og lengja lánstím-
ann. Einni'g þarf að veita barn-
mörgum fjölskyldum sérstakan
vaxtaafslátt. Tryggja þarf stór-
aukna bygginjju vejrkamannabú-
staða með eflingu Byggingarsjóðs
verkamanna og gera aðrar nauð-
synlegar ráðstafanir til að beina
byggingarstarfseminni inn á
heilbrigðar brautir. Gera þarf bæj-
ar- og sveitarfélögum kleift að
byggja leiguíbúðir fyrir þá, sen
ekki geta byggt sjálfir.
Um leið og 15. þingið lýsir a-
nægju sirini yfir bráðabirgðalög-
um ríkisstjórnarinnar um bann
við því að taka íbúðarhúsnæði til
annarrar notkunar, leggur þingið
ríka áherzlu á hlífðarlausa fram-
kvæmd laganna.
Á síðustu árum hefur gersam-
Lega verið vanrækt að byggja
íbúðir af hæfilegri stærð fyrir ný-
gift fólk (2ja og 3ja herbergja
íbúðir) og beinir þingið því til
ríkisstjóraaririnar að gera sér*-
stakar ráðstafanir til þess að
tryggja byggingu íbúða af þeirri
stærð, svo að hagsinunum unga
fólksins sé borgið í því efni'.
Fulltrúafundur kaupstaðanna
15. þing Æ. F.:
Ályktun un húsnæðismál