Austurland - 09.11.1956, Side 2
2
AUSTURLAND
Neskaupstað, 9. nóvember 1956.
HenSa 150-250 lesta
bátar Austfirðingum?
Framhald af 1. síðu.
rcynslan sýnt, að útgerðarmenn
Faxaflóabátanna hafa takmarkað.
an áhuga á heimaútgerð. Hráefn-
isskortur er oft bagalegur í fisk-
vinnslustöðvunum og enginn telj-,
andi bátafiskur berst þeim hálft
árið. Ef ekki væri togaraútgerð-i
in væri rekstur þeirra áreiðan-
lega vonlaus.
Fiskvinnslustöðvarnar þyrftu að
eignast nokkra báta. Eignarrétt-
ur þeirra mundi vera trygging
fyrir því, að bátarnir reru og
legðu upp hér heima eins og fært
er.
Mundu 150—250 tonna
bátar henta?
Þá er ég kominn að því atriði,
sem átti að vera uppi'staða þess-
arar greinar, það er hvort líklegt
væri að vélskip af þeirri gerð, sem
fjallað er um í frumvarpi ríkis-i
stjórnai'innar, mundu henta þeim
staðháttum, sem fyrir hendi eru á
Austfjörðum.
Engin reynsla er af útgerð
slíkra skipa eftir af upp voru
teknir þeir hættir, sem nú tíðkast
um veiðar og hagnýtingu aflans.
En margt bendir til þess, að
þesskonar bátar væru mjög lík-
legir til að hjálpa til að leysa
þann vanda, sem hér er við að ei'ga.
Við Suðausturlandið eru auðug
fiskimið og hefur mikið aflazt þar
í net undanfarna vetur. Að sjálf-
sögðu hafa Hornfirðingar bezta
aðstöðu til að notfæra sér þessa
fiskigengd, en bátar héðan að
austan hafa líka sótt þangað góð-
an afla. Má í því sambandi minna
á, að Eskifjarðarbátar lögðu upp
heima í nokkra vetur (þó ekki sl.
vetur) mikihn fisk veiddan á þess-
um slóðum. Hinsvegar eru flestir
Faxaflóabátarnir heldur burðar-
litlir til að vera hentugir til slíkra
veiða með heimflutning aflans
um hávetur fyrir augum.
En full ástæða er til að ætla, að
150—250 lesta bátar mundu eihk-
ar vel fallnir til þessara veiða og
heppnaðist útgerð þeirra, gæti
það gjörbreytt ástandi atvinnu-
mála austfirzku þorpanna.
En hvað eiga svo bátarnir að
gera eftir að vertíð lýkur?
Gera verður ráð fyrir, að þess-
ir bátar færu á síld um tveggja
mánaða skeið að sumrinu og
mundu áreiðanlega verða vel
fallnir til þessháttar veiða. Að
síldveiðum loknum virðist einkum
tvennt fyrir hendi. 1 fyrsta lagi
að fara í Austurdjúp til síldveiða
í reknet, sé veiði þar viðunandi.
Mundu vera allt önnur skilyrði ti'l
veiðanna og söltunar aflans á
svona stóru skipi en á bátum þeim,
sem reynt hafa að stunda þessar
veiðar msð misjöfnum árangri. I
öðru lagi sýnist engin fjarstæða
að gera þessi skip út með botn-
vörpu. Þau hljóta að geta fiskað
á nokkuð miklu dýpi og ekki er
ólíklegt, að þær veiðar gæfu góða
raun.
Fjórðungsþing Austfirðinga
hefur lagt til, að keyptir verði
tiltölulega litlir togarar til að afla
hráefnis fyrir minni frystihúsin
hér eystra, En er ekki útgerð vél-
skipa sem þessara enn líklegri til
til uppfylla þarfir smærri þorp-
anna? Það ber að athuga gaum-
gæfilega.
En hvað sem öðru líður verða
2—3 þessara skipa væntanlega
staðsett á Austfjörðum og fæst þá
úr því skorið að hvaða gagni þau
koma.
• WHMiMWMIMIMIIHMMMBtMMMIMMMMM
| Til sölu
Trillubátur, með nýrri 3—4
• ha. Gauta-vél, til sölu.
Baldvin Þorsteinsson.
:
■
Austurland
[ Ritstjóri: Bjarai Þórðarson.
Kemur út einu sinni í viku.
Lausasala kr. 2.00.
■
■
[ Árgangurinn kostar kr. 60.00.
Gjalddagi 1. apríl.
NESPRENT H-P
Tilkjmnim
Að gefnu tilefni vill Verklýðsfélag Norðfirðinga benda
verkafólki á, að ef brotnir eru á því samningar eða það þarf
að fá einhverjar upplýsingar, á það að snúa sér til Sigfinns
Karlssonar. Samningar félagsins eru einnig til hjá honum og
geta allir fengið þá.
Verklýðsfélagið.
ós til sölu
Hús’ign mín, Gamla Lúðvíkshús, ásamt trillubát, fé og
heyi, til sölu nú þegar.
Símon Eyjólfsson.
Nr. 22/1956.
n
Innflutningsskrifstofan hefur ákveðið nýtt hámarksverð á
smjörlíki sem hér segir:
Niðurgreitt: Óniðurgreitt:
Heildsöluverð ............. kr. 5.50 kr. 10.33
Smásöluverð ............... kr. 6.30 kr. 11.30
Söluskattur og framleiðslusjóðsgjald er innifalið í verðinu.
Reykjavík, 30. okt. 1956.
Verðgæzlustjórinn.
Fjárbödun
Þrifaböðun og kláðaskoðun sauðfjár í Neskaupstað skal
fram fara 15. nóvember til 16. desember n. k.
Páll Magnússon,
eftirlitsmaður með fjárböðun.
ilfundur
Samvinnufélags útgerðarmanna
Og
Olíusamlags útvegsmanna
verður haldinn í Bíóhúsinu föstudaginn 9. nóv. 1956, kl. 8.30.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Neskaupstað, 1. nóv. 1956.
Stjórnirnar.
Kvennadeild Slysavarnarfélagsins
heldur fund að Grænuborg mánudaginn 12. nóv. kl. 9 e. h.
Áríðandi mál á dagskrá.
Félagskonur eru beðnar að fjölmenna á fundinn.
Að fundarstörfum loknum verður spiluð félagsvist.
Stjórnin.
Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfall og jarðar-i
för mannsins míns, föður okkar og tengdaföður
Þorleifs Ásmundssonar,
Naustahvammi.
María Aradóttir, börn og tengdahöra.