Þjóðkjör - 14.05.1968, Blaðsíða 1
BLAÐ STUÐNINGSMANNA GUNNARS THORODDSENS
1. tölubiað. — Þriðjudagur 14. maí 1963.
I
!
I
!
!
I
Avarp til kjósenda
Um leið og islenzka lýðveldið var sett á
fót 1944, var embætti forseta Islands stofn-
að. Embættinu var ætlað að vera staðfest-
ing þess og kynning, að Island væri frjálst
og fullvalda ríki, engum háð nema því
fólki, sem byggir þetta land. Forsetastarfi'i
á að vera einingartákn þjóðarinnar, örva
til samheldni, bera klæði á vopn og veita
festu og forystu á örlagastundum.
Forsetinn er fulltrúi þjóðarinnar út á við
og kemur frarn fyrir hennar hönd, þegar
á þarf að halda. Forseti staðfestir lög frá
Alþingi, undirritar samninga við önnur ríki
og skipar í ýrnis opinber störf. Að jafnaði
er hér um formlegt vald að ræða, sem í
reynd er í höndurn ríkisstjórna. En for-
setanum er falið raunverulegt vald, varð-
andi myndun ríkisstjórna og staðfestingu
á lögum. Ef ekki er fyrir hendi meirihluti
alþingismanna, er stendur að stjóm, er for-
seta sá vandi á höndum að sjá landinu
fyrir ríkisstjórn; reynir þá rnjög á hæfni
hans og óhlutdrægni, því að oft er það
vandasaml verk að leysa stjórnarkreppur.
Og ef forseti synjar lögum staðfestingar,
skal leggja þau lög undir þjóðaratkvæði.
Á þcim tæpa aldarfjórðungi, sem lið-
inn er síðan íslenzka lýðveldið var endur-
reist, hefur Island átt tvo forseta, Svein
Björnsson í nær átta ár og Ásgeir Ásgeirs-
son í sextán. Þau margvíslegu viðfangsefni
og vandamál, sem hér hefur vcrið lýst, hafa
hinir farsælu forsetar leyst af hendi með
ágætum, sem alþjóð viðurkennir og virðir.
Því valda persónulegir hæfileikar og mann-
kostir, þekking þeirra á stjórnlögum og
stjórnháttum, og víðtækur kunnugleiki á
margháttuðum sviðum mannfélagsins, sem
þeir höfðu öðlazt í umsvifamiklum þjóð-
málastörfum fyrir land sitt, innan lands og
utan, áður en þeir tóku við starfi forseta.
Og vegna þess, hversu vel forsetunum hef-
ur farið úr hendi að leysa vandamálin, hef-
ur almenningur ekki orðið eins var við
þann þátt, sem þeir hafa átt í lausn þeirra.
Þegar þjóðin á að velja þriðja forseta
Islands, er nauðsynlegt, að sérhver kjós-
andi geri sér glögga grein fyrir eðli em-
bættisins. Síðan er það hans að dæma,
hvor frambjóðenda sé betur til þess fallinn,
að gegna þessu þýðingarmikla starfi. Þeir,
sem nokkuð íhuga málið, verða ckki í vafa
um, að þeir eiga að velja Gunnar Tlior-
oddsen. Þá yrði réttur maður á réttum
stað. Stuðningsmenn.
GUNNAR THORODDSEN
í
1
I
!
Skrifstofur stuðningsmanna GUNNARS THORODDSENS
REYKJAVÍK:
Aðalskrifstofa:
Pósthússtræti 13
Sími: 84500
Utankjörstaðaskrifstofa:
Aðalstræti 7, 2. hæð
(gengið inn að austanverðu)
Símar: 84532, 84533 og 84535
AKUREYRI:
Strandgata 5
Símar: 21810 og 21811
VESTMANNAEYJAR:
Um miðjan mánuðinn verður opnuð
skrifstofa í húsi DRÍFANDA
við Bárugötu. Sími: 1080.
Á R í Ð A N D I !
Stuðningsmenn Gunnars Thoroddsens eru hvattir til bess að
láta UTANKJÖRSTAÐASKRIFSTOFUNA VITA UM kjósendur,
sem verða fjarri heimilum sínum á kjördegi, bæði innanlands
og utan. Símar skrifstofunnar eru 84532, 84533 og 84535.
Fjölda meðmælenda haldið inn-
an ramma stjórnarskrárinnar
Fjölmargir hafa snúiö sér til
skrifstofu stuöningsmanna Gunn-
ars Thoroddsens og spurzt fyrir
um, hvernig á því standi, að ekki
sé auglýst, hvar meömælendalist-
ar vegna forsetaframboðs hans
liggi frammi, svo að mönnum sé
gefinn lcostur á að rita nafn sitt
þar.
Því er til að svara, að skýrt er
fram tekið í stjórnarskránni og
lögum um framboð og kjör for-
seta íslands, að forsetaefni skuli
hafa meðmæli minnst 1500 kosn-
ingabærra manna, en mest 3000,
og tiltekur forsætisráðherra há-
marks- og lágmarkstölu meðmæl-
enda forsetaefnis úr landsfjórð-
ungi hverjum í réttu hlutfalli við
kjósendatölu þar. Tölurnar eru
nú sem hér segir: Sunnlendinga-
fjórðungur 1040—2085, Vestfirð-
ingafjórðungur 130—265, Norð-
lendingafjórðungur 230—455,
Austfirðingafjórðungur 100—195.
Stuöningsmenn Gunnars Thor-
oddsens tóku þegar í upphafi þá
sjálfsögðu stefnu, að halda sig
innan ramma laganna, enda voru
þessi ákvæði sett í stjórnarskrá
lýðveldisins til að sporna við því,
að unnt væri að binda menn fyr-
irfram með undirskriftum, þótt á
hinn bóginn sé eðlilegt, að for-
setaefni hafi hóflegan fjölda með-
mælenda að baki. Er frekari með-
mælendasöfnun „óleyfilegur kosn-
ingaáróður og kosningaspjöll“ og
refsivert athæfi lögum sam-
kvæmt.
LANDSBOKASAFN
281002
fSLANDS