Morgunblaðið - 22.07.2011, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.07.2011, Blaðsíða 1
FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 2011 íþróttir Fótbolti Gunnar Borgþórsson, þjálfari bikarmeistara Vals, fer með sveit sína á gamla heima- völlinn sinn í kvöld þar sem Valur og Afturelding mætast í undanúrslitum bikarsins 4 Íþróttir mbl.is Íslandsmeistarar Vals í handknatt- leik kvenna hafa tekið boði um að koma á sterkt al- þjóðlegt æf- ingamót sem fram fer í Tékk- landi 24.-28. ágúst. Auk Vals taka þátt í mótinu HC Zlin frá Tékklandi, CMS Búkarest frá Rúmeníu og Team Tvis Holstebro frá Danmörku sem er Íslendingum að góðu kunnugt enda hefur Rut Jónsdóttir leikið með liðinu und- anfarið og Þórey Rósa Stefáns- dóttir gekk nýverið í raðir þess. Þýska félagið Oldenburg bauð Valskonum einnig á æfingamót á sama tíma en ákveðið var að af- þakka það. Ljóst er að mikil við- urkenning felst í þessum boðum fyrir Íslandsmeistarana sem tefla fram mjög breyttu liði á næstu leik- tíð því sex leikmenn hafa horfið á braut, auk þess sem Hildigunnur Einarsdóttir er meidd, og fimm ný- ir komið í staðinn. sindris@mbl.is Meistararnir á sterkt æfingamót Rut Jónsdóttir Sigur KR á Zilina í Evrópudeild- inni hefur í för með sér breyt- ingar á leikjanið- urröðun bæði Ís- landsmótsins og bikarkeppn- innar. KR mun mæta Dinamo Tbsili frá Georgíu í 3. um- ferð og fer fyrri leikurinn fram á fimmtudaginn í Vesturbænum, og sá seinni í Georgíu viku síðar, eða 4. ágúst. Leikið er þétt hjá KR á næstunni. Liðið mætir Breiðabliki í Pepsi- deildinni á sunnudag, mætir svo Di- namo Tbsili á fimmtudaginn og sækir svo BÍ/Bolungarvík heim í undanúrslitum bikarsins 31. júlí, á sunnudegi verslunarmannahelg- arinnar, en sá leikur átti að fara fram á fimmtudaginn. Frá Ísafirði þurfa Rúnar Kristinsson og hans menn svo að ferðast alla leið til Kákasusfjalla, rétt um 5.000 kíló- metra leið, til að leika seinni leikinn við Georgíumenn. Vegna þess leiks þarf að fresta deildarleik KR og Keflavíkur sem átti að fara fram 3. ágúst. Hann verður líkast til leikinn í kringum 21. september ef KR kemst í úrslit bikarkeppninnar, og yrði þá þriðji síðasti leikur liðanna á tímabilinu. sindris@mbl.is Leikið um verslunar- mannahelgi Rúnar Kristinsson Morgunblaðið/Golli Fagnað Það var líf og fjör á fjölmörgum knattspyrnuvöllum í Laugardal í gær þegar keppni hófst á hinu árlega Rey Cup móti Þróttar í knattspyrnu. Þar reyna með sér piltar og stúlkur í 3. og 4. flokki. Mótið stendur yfir fram á sunnudag. Hér fagna FH-ingar í 4. flokki marki. FÓTBOLTI Sindri Sverrisson sindris@mbl.is „Ég get ekki lýst því hvað við erum ánægðir. Þessi leikur er eitt mesta rugl sem ég hef tekið þátt í,“ sagði Hannes Þór Halldórsson markvörð- ur sem hafði í nógu að snúast í leik KR og Zilina í Slóvakíu í gærkvöld. Zilina vann 2:0 en KR komst áfram, 3:2 samanlagt, í 3. umferð forkeppni Evrópudeildar UEFA og mætir þar Dinamo Tbilisi frá Georgíu. „Það var ógeðslegt að fá á sig þetta annað mark þegar enn voru 20 mínútur eftir. Þeir gerðu allt sem þeir gátu á rennblautum vellinum, settu „turnana“ sína inn í vítateiginn og það er í raun ótrúlegt að við skul- um hafa hangið á þessu,“ sagði Hannes. Ekki er laust við að myndir af herklæddum hörkutólum vaðandi leðju í vígahug komi upp í hugann. „Það er góð lýsing á þessu. Við vorum öskrandi og berjandi hver annan áfram þarna í rigningunni þannig að stemningin var alveg þannig. Ég þurfti að eiga við nóg af fyrirgjöfum og svona en í rauninni komust ekki það mörg skot á mark- ið. Varnarmennirnir stóðu sig frá- bærlega og menn hentu sér fyrir skot úti um allt til að halda þessu,“ sagði Hannes sem viðurkennir að árangurinn sé ef til vill framar væntingum. „Ég held að enginn hafi búist við því fyrirfram að við ættum mikla möguleika en auðvitað blundaði alltaf í manni smávon. Það gekk allt upp í fyrri leiknum sem skilaði okkur þessu en það var líka mjög gott að hafa haldið þessu í seinni leiknum því þá sýndu þeir hvers þeir eru megnugir. Þeir áttu frábæran leik og það er bara frábært afrek hjá okkur að komast áfram þó ég segi sjálfur frá,“ sagði Hannes glaður í bragði eftir þetta fyrsta tap KR í allt sumar, og hann vill meira. Georgíumenn mæta í Vesturbæinn næstkomandi fimmtu- dag. „Ég hugsa að við séum að fara að mæta aðeins veikari andstæðingi en í dag þannig að við eigum að eiga möguleika en auðvitað eru þeir mjög sterkir. Við förum auðmjúkir inn í þá rimmu en við ætlum að verða fyrsta íslenska liðið til að komast í fjórðu umferðina.“ „Frábært afrek hjá okkur“  KR-ingar ætla fyrstir í 4. umferð Evrópudeildar eftir að hafa slegið Zilina út  Lýsingar Hannesar minna á stríðsmynd  Sýndu hvers þeir eru megnugir Hannes Þór Halldórsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.