Morgunblaðið - 22.07.2011, Side 2
Slagur Hafsteinn Briem og Vigfús Arnar Jósepsson
eigast hér við í fallslagnum í Kópavogi í gær.
Selfyssingar eru á góðri siglingu í 1. deild karla í
knattspyrnu og virðast líklegir til að fylgja toppliði
ÍA upp í úrvalsdeildina. Skagamenn eru langefstir í
deildinni með 37 stig en Selfyssingar koma næstir
með 28 stig eftir öruggan 4:0 sigur á Gróttu fyrir
austan fjall í gærkvöld. Haukar koma næstir með 20
stig og leik til góða við BÍ/Bolungarvík á laugardag-
inn, og Þróttur R. er einnig með 20 stig.
Viðar Örn Kjartansson kom Selfyssingum á
bragðið gegn Gróttu með enn einu marki sínu í sum-
ar en hann skoraði eftir skallasendingu frá Babacar
Sarr. Senegalinn sá svo sjálfur um að bæta við öðru
marki á 19. mínútu með skoti úr teignum eftir að
hafa leikið á varnarmann. Kantmaðurinn efnilegi
Jón Daði Böðvarsson bætti svo við tveimur glæsi-
legum mörkum sitt hvorum megin við hálfleikinn.
Því fyrra eftir stungusendingu frá nýja Norðmann-
inum í liði Selfoss, Ivar Skjerve, og því seinna með
glæsilegu skoti eftir undirbúning Einars Ottó Ant-
onssonar og Joe Tillen.
Eftir tapið er Grótta áfram nærri fallsvæðinu með
14 stig, fjórum stigum ofar en Leiknir R. og KA.
Leiknismenn hafa farið vel af stað undir stjórn
Zorans Miljkovic sem tók við sem þjálfari nýverið.
Leiknir vann KA 2:0 á útivelli í síðustu umferð og
lagði svo HK að velli, einnig á útivelli, í gærkvöldi,
3:0. Jafnræði var með liðunum framan af leik á
Kópavogsvelli í gær en Pape Mamadou Faye, sem
skoraði einmitt tvívegis gegn KA í síðustu umferð,
kom gestunum yfir fimm mínútum fyrir leikhlé.
Ólafur Hrannar Kristjánsson tvöfaldaði svo foryst-
una snemma í seinni hálfleik og gerði svo að segja út
um leikinn með skoti upp undir þverslána úr teign-
um. Ólafur Hrannar bætti svo við þriðja marki
Leiknismenn sendu KA í fallsæti og skildu HK-inga eftir án sigur
Morgunblaðið/Eggert
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 2011
1. deild karla
HK – Leiknir ............................................ 0:3
– Pape Mamadou Faye 39., Ólafur H.
Kristjánsson 50., 67.
Selfoss – Grótta........................................ 4:0
Viðar Örn Kjartansson 12., Babacar Sarr
19., Jón Daði Böðvarsson 43., 59.
Staðan:
ÍA 13 12 1 0 39:5 37
Selfoss 13 9 1 3 29:12 28
Haukar 12 6 2 4 17:13 20
Þróttur R. 13 6 2 5 16:21 20
BÍ/Bolungarvík 12 6 1 5 17:22 19
Fjölnir 12 5 3 4 20:22 18
Víkingur Ó 12 4 3 5 14:14 15
ÍR 12 4 2 6 15:21 14
Grótta 13 3 5 5 8:16 14
Leiknir R. 13 2 4 7 15:19 10
KA 12 3 1 8 12:23 10
HK 13 0 5 8 12:26 5
2. deild karla
Hamar – Árborg ...................................... 1:1
Staðan:
Hamar 13 8 2 3 29:17 26
Höttur 12 7 3 2 20:11 24
Reynir S. 12 7 1 4 32:26 22
Njarðvík 12 6 2 4 35:25 20
Afturelding 12 6 2 4 20:17 20
Fjarðabyggð 12 6 1 5 18:19 19
Tindastóll/Hvöt 12 5 2 5 18:22 17
Dalvík/Reynir 12 5 2 5 26:31 17
KF 12 4 4 4 21:19 16
Völsungur 12 5 0 7 21:23 15
Árborg 13 1 3 9 9:26 6
ÍH 12 1 2 9 17:30 5
3. deild karla A
Stál-úlfur – Þróttur V ...............................1:6
Víðir – KFG ...............................................0:2
Vængir Júpíters – Augnablik...................1:6
Staðan:
Augnablik 10 8 1 1 46:10 25
KB 10 8 0 2 32:9 24
Víðir 10 7 1 2 31:9 22
KFG 10 5 2 3 29:18 17
Þróttur V. 10 3 2 5 24:28 11
Vængir Júpíters 10 2 2 6 13:26 8
Markaregn 10 2 2 6 16:32 8
Stál-úlfur 10 0 0 10 13:72 0
3. deild karla C
Afríka – Björninn ......................................0:5
Berserkir – Kári ........................................4:3
Staðan:
Grundarfjörður 9 7 1 1 23:8 22
Álftanes 9 7 0 2 40:13 21
Berserkir 10 7 0 3 39:14 21
Kári 10 6 1 3 30:15 19
Björninn 10 5 1 4 27:17 16
Skallagr. 9 3 1 5 20:26 10
Afríka 10 0 1 9 13:53 1
Ísbjörninn 9 0 1 8 8:54 1
Svíþjóð
Bikarkeppnin, 8-liða úrslit:
Falkenbergs FF - IFK Göteborg ............2:3
Hjálmar Jónsson og Theódór Elmar
Bjarnason léku allan leikinn fyrir IFK en
Hjörtur L. Valgarðsson kom ekki við sögu.
IFK mætir Kalmar í undanúrslitum.
Svíþjóðarmótið
U 19 ára landslið karla:
Svíþjóð - Ísland .........................................0:2
Árni Vilhjálmsson skoraði bæði mörkin.
Evrópudeildin
Forkeppni, 2. umferð síðari leikir,
helstu úrslit, liðin sem komust áfram eru
feitletruð:
Zilina - KR..................................................2:0
Nacional - FH............................................2:0
Mika - Våleregna ......................................0:1
Elfsborg - Suduval ....................................3:0
Din. Tbilisi - Llanelli .................................5:0
FK Sarajevo - Örebro ...............................2:0
Fulham - Crusaders..................................4:0
St. Patricks - Shakhtyor Karagandy ......2:0
Ameríkubikarinn
Undanúrslit:
Paragvæ - Venesúela ................................0:0
Paragvæ komst áfram, 5:3, eftir víta-
spyrnukeppni og mætir Úrúgvæ í úrslita-
leik á sunnudag.
KNATTSPYRNA
EVRÓPUDEILDIN
Ólafur Már Þórisson
omt@mbl.is
FH var slegið út af portúgalska liðinu
CD National í 2. umferð forkeppni
Evrópudeildarinnar í gær. Liðin
mættust á Madeira og unnu heima-
menn 2:0. Fyrri leikurinn endaði 1:1
og samanlögð úrslit því 3:1, eitthvað
sem FH getur vel við unað. Portú-
galska liðið er mjög sterkt og ljóst að
FH þurfti alltaf að spila tvo frábæra
leiki og hafa heppnina með sér hafi
það ætlað sér áfram.
Þá missti FH framherja sinn, Atla
Viðar Björnsson, af velli í hálfleik.
Hann hlaut þungt högg frá markverði
Nacional þegar hann reyndi að vinna
skallabolta rétt fyrir hálfleikinn.
Heimir Guðjónsson sagði að sam-
kvæmt upplýsingum sjúkraþjálfara
liðsins kenndi Atli Viðar sér meins í
viðbeininu. Það verður rannsakað
nánar þegar heim verður komið.
Heimir sagði að þó liðið væri dottið
úr keppni gætu þeir borið höfuðið
hátt. „Við duttum út með stolti, spil-
uðum góðan leik og fengum þrjú fín
færi til að koma okkur í 1:0. Þá hefð-
um við getað haldið leikskipulaginu
og látið þá koma á okkur.“
Sýndum góðan fótbolta á köflum
Það gekk hinsvegar ekki eftir og
fengu FH-ingar á sig mark úr föstu
leikatriði. Sending frá vinstri úr
aukaspyrnu féll beint fyrir Luís Al-
berto sem skoraði með skalla og eins
og mörk gera, breytti leiknum. „Auð-
vitað var það klaufalegt af okkar
hálfu, verandi með töluvert hærra lið
en þeir. Þess vegna er það enn
klaufalegra.“
Heimir sagðist þó ekki getað þrætt
fyrir það að Nacional hafi átt það skil-
ið að fara áfram í keppninni. „Ef við
tökum þessa tvo leiki eru þeir einfald-
lega með betra lið og fóru verð-
skuldað áfram. Við hinsvegar sýndum
þeim tvo góða leiki. Það var ekki
undan neinu að kvarta hjá FH-
liðinu. Við sköpuðum okkur góð
færi gegn þessu liði og sýndum
góðan fótbolta á köflum. Við get-
um því gengið út úr þessu með
höfuðið hátt.“
Ekki þarf annað að gera en að
líta til portúgölsku deildarinnar til
að sjá hversu sterkt liðið er. Það
náði 7. sæti á síðustu leiktíð og þá
hafa lið þaðan verið að gera góða
hluti í Evrópudeildinni. Til að
mynda var úrslitaleikur keppn-
innar í vor milli tveggja liða frá
Portúgal, Braga og Porto.
Aðeins Pepsi-deildin
eftir hjá FH
Framundan hjá FH er því ekk-
ert nema deildin þar sem liðið er
nú dottið úr út bæði Evrópu-
keppni og bikarkeppni KSÍ. Verk-
efnið er ærið en gengi liðsins hef-
ur ekki verið gott að undanförnu.
Liðið er með 16 stig í 5. sæti, átta
stigum á eftir KR sem á leik til
góða. „Við eigum erfiðan leik
gegn Val á mánudaginn. Við þurf-
um þess vegna að hvíla okkur og
hugsa vel um okkur.“
Morgunblaðið/Ómar
Stoltir Sóknarmaðurinn stæðilegi Hannes Þ. Sigurðsson og félagar í FH stóðu vel í Nacional-mönnum í einvígi liðanna í forkeppni Evrópudeildarinnar.
„Duttum út með stolti“
Ekki spilað í Evrópudeildinni í Kaplakrika Nacional einfaldlega með betra lið
en FH Ærið verkefni framundan í deildinni Atli Viðar aumur í viðbeininu
Knattspyrna
Bikarkeppni KSÍ, Valitor-bikar kvenna,
undanúrslit:
Varmárvöllur: Afturelding - Valur ......19.15
Fylkisvöllur: Fylkir - KR .....................19.15
Úrvalsdeild kvenna, Pepsi-deildin:
Þórsvöllur: Þór/KA - Grindavík ...........18.30
Laugardalsv.: Þróttur R - Stjarnan.....19.15
1. deild karla:
ÍR-völlur: ÍR - KA......................................20
Ólafsvíkurvöllur: Víkingur Ó - Fjölnir .....20
2. deild karla:
Dalvíkurv.: Dalvík/Reynir - Reynir S.......20
3. deild karla:
Þorlákshöfn: Ægir - KV.............................20
Bessastaðav.: Álftanes - Skallagrímur.....20
Grundarfj.: Grundarfj. - Ísbjörninn ....20.30
1. deild kvenna:
Sindravellir: Sindri - HK/Víkingur...........18
Húsavíkurvöllur: Völsungur - Fram ........20
Ásvellir: Haukar - Tindastóll ....................20
Fjölnisvöllur: Fjölnir - Selfoss ..................20
Í KVÖLD!
Estádio da Madeira, forkeppni Evr-
ópudeildar UEFA, 2. umferð, síðari
leikur, fimmtudag 21. júlí 2011.
Skilyrði: Hægur vindur og völlurinn
blautur.
Skot: Nacional 16 (11) – FH 6 (4).
Horn: Nacional 9 – FH 4.
Lið Nacional: (4-3-3) Mark: Elisson,
Vörn: Joao Aurélio, Felipe Lopes,
Danielson, Nuno Pinto. Miðja: Luís Al-
berto, Rene Mihelic (Elizeu 71.), Dejan
Skolnik (Todorovic 88.). Sókn: Ma-
teus, Edgar Costa, Oliver (Daniel Can-
deias 74.).
Lið FH: (4-3-3) Mark: Gunnleifur
Gunnleifsson. Vörn: Ásgeir Gunnar
Ásgeirsson (Guðmundur Sævarsson
81.), Pétur Viðarsson, Freyr Bjarna-
son, Björn Daníel Sverrisson. Miðja:
Hákon Atli Hallfreðsson, Hólmar Örn
Rúnarsson (Viktor Örn Guðmundsson
81.), Hannes Þ. Sigurðsson. Sókn:
Matthías Vilhjálmsson, Atli Viðar
Björnsson (Atli Guðnason 46.), Ólafur
Páll Snorrason.
Dómari: Alan Black frá Norður-Írlandi.
CD Nacional vann samtals 3:2 og
heldur áfram keppni.
Nacional – FH 2:0