Morgunblaðið - 22.07.2011, Side 4

Morgunblaðið - 22.07.2011, Side 4
4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 2011 Fylkisvelli hinsvegar. Flautað verður til beggja leikja klukkan 19.15. „Þótt Aftureldingarliðið hafi verið að styrkjast upp á síð- kastið og fengið til sín nokkra leikmenn þá held ég að ljóst sé að Valur hafi einfaldlega mikið fleiri vopn í sínu búri en Mosfellingar sem hafa staðið sig vel í deildinni. Auk þess þá held ég að nokkrir af nýju leikmönnum Aftureldingar séu ekki gjaldgengir í bikarkeppn- inni þar sem þeir hafa leikið með öðrum liðum á fyrri stigum keppn- innar,“ segir Þorlákur sem telur líklegt að Valur vinni með þriggja til fjögurra marka mun. Afturelding vann ÍBV óvænt eft- ir vítaspyrnukeppni í 8-liða úrslit- um og hefur aldrei náð í undan- úrslit bikarkeppninnar fyrr. „Fylkir er með gott lið og á að vinna KR sem hefur vegnað illa í deildinni þrátt fyrir að vera með góðan leikmannahóp. Eini mögu- leiki KR til að vinna leikinn væri sá að liðið kæmist yfir og næði að hanga á því. Liðinu hefur hins- vegar gengið illa að skora í deild- inni og framundan virðist einfald- lega vera hatrömm barátta um að halda sæti í deildinni. Fylkisliðið er hinsvegar sterk- ara að mínu mati og leikur auk þess á heimavelli og er að mínu mati líklegra til sigurs,“ sagði Þorlákur Árnason, þjálfari Stjörn- unnar. Veðjað á Val og Fylki í úrslitum Morgunblaðið/Kristinn Bikarkeppnin Leikmenn Vals og Fylkis geta mæst í úrslitum bikarkeppn- innar í knattspyrnu kvenna. Í kvöld fara fram undanúrslitaleikirnir. BIKARKEPPNIN Ívar Benediktsson iben@mbl.is „Ég er nokkuð viss um að Valur og Fylkir vinna sína leiki í undan- úrslitum og mætist í úrslitaleik bikarkeppninnar,“ sagði Þorlákur Árnason, þjálfari toppliðs Pepsi- deildar kvenna í knattspyrnu, Stjörnunnar, þegar hann var innt- ur eftir hvernig hann telji að und- anúrslitaleikirnir í bikarkeppni kvenna, Valitor-bikarnum, ljúki, en þeir fara fram í kvöld. Þá tekur Afturelding á móti bikarmeist- urum Vals á Varmávelli ann- arsvegar og Fylkir mætir KR á GOLF Ólafur Már Þórisson omt@mbl.is Axel Bóasson er efstur eftir fyrsta daginn á Íslandsmótinu í höggleik sem fram fer á Hólmsvelli í Leiru. Leiknir eru fjórir dagar en frábær byrjun keppenda í gær lofar góðu. Axel jafnaði vallarmetið þegar hann lék hringinn á 65 höggum eða sjö undir pari. Næstir á eftir honum eru Kristján Þór Einarsson og Alfreð Brynjar Kristinsson, en þeir léku á 66 höggum. Axel var ánægður þegar Morgunblaðið náði tali af honum eftir hringinn. „Ég er mjög sáttur eftir góðan dag,“ en þess ber að geta að Axel tapaði ekki höggi á hringn- um og fékk sjö fugla. Axel sagðist ekki hafa sett niður nein áform um að leika ákveðið eða taka áhættu. „Nei, alls ekki, þetta átti að vera bara mjög einfalt, eitt högg í einu og vera skynsamur. Svo fóru höggin bara öll upp að stöng af einhverjum óútskýranlegum ástæð- um,“ sagði forystusauðurinn með kaldhæðnina að vopni. Alltaf að finna eitthvað nýtt Axel er þekktur fyrir að vera mjög langur en hann sagði að púttin hefðu verið góð í gær. „Þau voru mjög góð, ég setti mikið af góðum púttum í en missti auðvitað líka. Það bara gerist í þessu.“ Eitt púttið var þó mikilvægara en annað í þeirri stöðu sem upp var komin. Á átjándu holunni missti hann metra pútt sem hefði tryggt honum vallarmetið á Hólmsvelli. „Það var eitt af þessu stuttu púttum bara. Ég vissi ekki af því að ég gæti bætt metið með þessu síðasta pútti. Hinsvegar gerði ég mér grein fyrir því að ég væri lík- legast að gæla eitthvað við það. Mig minnti að vallarmetið væri mjög lágt en var ekkert að spá í það.“ Axel vildi þó ekki meina að hann væri í sínu besta formi en sagðist þó vera að leika stöðugt golf. „Ég myndi ekki segja að ég væri í topp- formi. Maður er alltaf að finna eitt- hvað nýtt og nýtt sem má laga og ég rokka upp og niður. Ég er búinn að vera mjög stöðugur að undanförnu en það má auðvitað alltaf gera betur í því eins og öðru.“ Ekki gera einhverja vitleysu Hann vill halda áfram að leika gott golf og halda sér í þannig stöðu að geta keppt um titilinn á sunnu- daginn. „Mér líst vel á næstu daga. Þetta er langt mót og mikið eftir. Ég vil halda mér í þessari toppbar- áttu áfram, ekki að gera einhverja vitleysu núna. Umgjörðin er þannig hjá þeim á Suðurnesjum að þeir gera þetta enn betra. Það eru mjög góðir kylfingar í baráttunni og því er mikilvægt að hugsa um eitt högg í einu.“ Hólmsvöllur er mjög góður að sögn Axels og miðað við góðan ár- angur keppenda í gær má alveg taka mark á því. „Ég er mjög sáttur með hvernig Suðurnesjamenn hafa náð að gera flatirnar frábærar. Þetta eru toppaðstæður og svo var veðrið algjör unaður.“ Íslandsmeistarinn frá því í fyrra, Birkir Leifur Hafþórsson, er ekki með á mótinu og því ljóst að nýr Ís- landsmeistari verður krýndur í karlaflokki á sunnudag. Í kvenna- flokki er því ekki þannig farið. Titilvörnin byrjar af krafti Tinna Jóhannsdóttir úr GK og ríkjandi meistari í kvennaflokki lék við hvern sinn fingur og sló vall- armetið af bláum teig á Hólmsvelli í gær. Hún lék á 69 höggum, eða þremur undir pari. Greinilegt er að Tinna ætlar ekki að láta titilinn af hendi svo auðveldlega. Hún fékk fimm fugla en tvo skolla sem komu báðir á fyrri 9 holunum. Ljóst er að stöðuleikinn sem Tinna hefur verið að sýna að und- anförnu á eftir að hjálpa henni mikið um helgina. Hún hefur unnið bæði stigamótin í sumar og þá vann hún öruggan sigur á meistaramóti Keilis um liðna helgi. Tinna hefur eins höggs forystu á Eygló Myrru Óskarsdóttur, GO. Eygló lék líkt og Tinna mjög gott golf og líklegt að þær eigi eftir að berjast áfram næstu þrjá dagana. Signý Arnórsdóttir, GK og Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, eru svo báðar á einu höggi undir pari í þriðja sæti. „Vissi að ég væri eitt- hvað að gæla við metið“  Axel jafnaði vallarmetið og er í forystu  Tinna gerði gott betur og bætti það Ljósmynd/Víkurfréttir Fór á kostum Íslandsmeistarinn Tinna Jóhannsdóttir lék vel í Leirunni í gær og bætti vallarmetið um eitt högg. Íslandsmótið í höggleik Hólmsvöllur í Leiru, par 72: Axel Bóasson, GK.......................................65 Kristján Þór Einarsson, GKJ ...................66 Alfreð Brynjar kristinsson, GKG .............66 Helgi Birkir Þórisson, GSE ......................68 Hjörleifur Bergsteinsson, GK...................68 Arnar Sigurbjörnsson, GKJ......................69 Heiðar Davíð Bragason, GÓ......................69 Helgi Runólfsson, GK ................................69 Ottó Sigurðsson, GKG ...............................70 Guðjón Henning Hilmarsson, GKG..........70 Ólafur Björn Loftsson, NK .......................70 Magnús Lárusson, GKJ.............................71 Davíð Gunnlaugsson, GKJ ........................71 Sigurbjörn Þorgeirsson, GÓ .....................71 Nökkvi Gunnarsson, NK ...........................71 Ólafur Már Sigurðsson, GR ......................71 Hlynur Geir Hjartarson, GOS ..................71 Þórður Rafn Gissurarson, GR...................71 Davíð Jónsson, GS......................................71 Arnar Snær Hákonarson, GR...................71 Sigurjón Arnarsson, GR............................71 Andri Már Óskarsson, GHR .....................71 Theodór Emil Karlsson, GKJ ...................72 Bjarni Sigþór Sigurðsson, GS...................72 Sigumundur Einar Másson, GKG ............72 Hjalti Atlason, GKB...................................73 Ingi Rúnar Gíslason, GKJ .........................73 Guðmundur Arason, GR............................73 Birgir Guðjónsson, GR ..............................73 Hlynur Þór Stefánsson, GO ......................73 Óskar Pálsson, GHR..................................73 Haraldur Franklín Magnús, GR...............73 Magnús Birgisson, GO...............................73 Hrafn Guðlaugsson, GSF ..........................73 Örvar Samúelsson, GA ..............................73 Úlfar Jónsson GKG....................................74 Rafn Stefán Rafnsson, GO ........................74 Andri Þór Björnsson, GR ..........................74 Rúnar Arnórsson, GK................................74 Guðmundur R. Hallgrímsson, GS.............74 Guðmundur Sveinbjörnsson, GK..............74 Oddur Óli Jónasson, NK............................74 Sturla Ómarsson, GKB..............................75 Theodór Sölvi Blöndal, GO........................75 Ingi Fannar Eiríksson, GL .......................75 Rúnar Örn Grétarsson, GKG ....................75 Kjartan Dór Kjartansson, GKG ...............75 Helgi Anton Eiríksson, GR .......................75 Fylkir Þór Guðmundsson, GO ..................75 Gunnar Snær Gunnarsson, GKG..............75 Emil Þór Ragnarsson, GKG......................75 Ingvar Jónsson, GÞ....................................75 Ragnar Már Garðarsson, GKG.................76 Gauti Grétarsson, NK................................76 Yngvi Sigurjónsson, GKG .........................76 Frans Páll Sigurðsson GO.........................76 Þórður Ingi Jónsson, GK...........................76 Stefán Már Stefánsson, GR.......................76 Örn Ævar Hjartarson, GS.........................76 Starkaður Sigurðarson, GKG ...................76  Alls eru 110 keppendur í karlaflokki en fækkað verður í hópnum eftir annan hring í dag og komast um 70 áfram og leika tvo síð- ustu hringina. Í kvennaflokki eru 24 kylf- ingar. Kvennaflokkur: Par 72: Tinna Jóhannsdóttir, GK...........................69 Eygló Myrra Óskarsdóttir, GO.................70 Signý Arnórsdóttir, GK.............................71 Valdís Þór Jónsdóttir, GL .........................71 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR .............72 Berglind Björnsdóttir, GR ........................72 Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK..............74 Þórdís Geirsdóttir, GK ..............................74 Ingunn Gunnarsdóttir, GKG.....................77 Karen Guðnadóttir, GS..............................77 Ragnhildur Sigurðardóttir, GR ................78 Heiða Guðnadóttir, GKJ............................79 Hildur Kristín Þorvarðardóttir, GR.........80 Elísabet Oddsdóttir, GR............................80 Sunna Víðisdóttir, GR................................80 Sara Margrét Hinriksdóttir, GK ..............81 Ragna Björk Ólafsdóttir, GK....................82 Jódís Bóasdóttir, GK..................................83 Íris Katla Guðmundsdóttir, GR................86 Ingunn Einarsdóttir, GKG........................86 Hansína Þorkelsdóttir, GKG.....................87 Ragnheiður Sigurðardóttir, GKG.............87 Högna Kristbjörg Knútsdóttir, GK..........89 Stefanía Kristín Valgeirsdóttir, GA .........97 GOLF

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.