30. júní - 01.05.1968, Blaðsíða 1
BLAÐ STUÐNINGSMANNA KRISTJÁNS ELDJÁRNS — 1. TBL. — MAÍ 1968
Frá því að ljóst vai'ð um síðastliðin áramót, að hinu íslenzka lýðveldi yrði valinn nýr forseti á sumri komanda, hafa um land
allt, í öllum stéttum og öllum stjórnmálaflokkufti, komið fram stcrkar óskir um, að ferskur andi mætti leika um þetta æðsta
embætti þjóðarinnar. Upp af þessum almenna áhuga liafa sprottið öflug samtök, sem hafa unnið að því að fá til framboðs rnann,
sem líklegur væri til að láta þessaa- óskir rætast. Það er samtökunum mikið gleðiefni, að dr. Kristján Eldjárn hefur tekið áskorun
þeirra um að gefa kost á sér til forsetakjörsins, því sá íslendingur mun vandfundinn, sem betur er kostum búinn til þessa mikil-
væga embættis.
í sambandi við framboðið viljum við sérstaldega minna á eftirfarandi atriði:
1. Kristján Eldjáirn hefur aldrei tekið virkan þátt í stjórnmálum, en býr hins vegar yfir auðugri og lifandi þekkingu á íslenzkri
þjóðmenningu og þjóðlífi að fornu og nýju. Við teljum hann manna líklegastan til að láta ferskt og óháð andrúmsloft skapast
umhverfis æðsta embætti þjóðarinnar.
2. Framboð Kristjáns Eldjárns er óháð öllum stjórnmálaflokkum, enda hefur hann aldrei verið flokksbundinn neins staðar.
3. Kristján Eldjárn er af alþýðufólki kominn og er uppruna sínum trúr í lífi og háttum. Við teljum, að forseta lýðveldisins
sé styrkur að slíkum eiginleikum.
4. Kristján Eldjárn hefur um tveggja áratuga skeið gegnt forstöðumannsstarfi Þjóðminjasafnsins. Þar hefur hann verið í
fyrirsvari fvrir eina helztu menningarstofnun þjóðarinnar, bæði gagnvart landsmönnum sjálfum og á erlendum vettvangi, og tekið
á rnóti fjölda gesta, m. a. erlendum þjóðhöfðingjum. Honum hefur farizt starf sitt vel og virðulega úr hendi, hvort heldur
sem er inn á við eða út á við.
5. Það skal tekið fram, að Kristján Eldjárn gaf fyrst kost á sér til forsetakjörs eftir ítrekaðar áskoranir fólks úr öllum stéttum
og stjórnmálaflokkum hvaðanæva af landinu.
Við viljum skora á alla þá, sem eiga samstöðu með okkur í þessu máli, að vinna ötullega að drengilegum sigri Kristjáns
Eldjárns í væntanlegum forsetakosningum.
Benedilct Blöndal
Guðmundur Iljartarson
Halldór E. Sigurðsson
Hersteinn Pálsson
Iíilmar Foss
Jóhannes Elíasson
Jónas Árnason
Karl Guðjónsson
Örlygur Geirsson
Kristján Karlsson
Kristján Thorlacius
Ragnar Jónsson
Sigurður Guðmundsson
Stefán Jóh. Stefánsson
Steingrimur Hermannsson
Svandís Skúladóttir
Þorsteinn Pétursson
LAHDSBÍK ASAF
ó 7 9 5 21)
fSLANDS