30. júní - 28.06.1968, Blaðsíða 13

30. júní - 28.06.1968, Blaðsíða 13
30. JÚNÍ 13 Úrslit prófkosninga hafa sýnt yfirburðafylgi Kristjáns Eldjárns Frá því að forsetaframboö dr. Kristjáns Eldjárns var kynnt 1 marz hafa menn viða svalað for- vitni sinni um fylgi forsetaefn- anna með prófkosningum, á vinnustöðum, í sambýlishúsum, á samkomum, í skipum, lang- ferðavögnum og víðar. Er skemmst frá þvi að segja, að þessar prófkosningar hafa víð- ast hvar sýnt yfirburðafylgi Kristjáns Eldjárns umfram keppinaut hans. Úrslit prófkosninga hafa kom- ið illa við stuðningsmenn Gunn- ars Thoroddsens, eins og fram kemur í 6. tbl. Þjóðkjörs. Þeir hafa sjálfir stofnað til fylgis- könnunar á ýmsum stöðum, þar sem þeir töldu sér vís hagstæð úrslit, en allt hefur það snúizt á sömu leið. Fyrir forsetakosningar 1952 sýndu prófkosningar miklð fylgi Ásgeirs Ásgeirssonar og voru þannig glögg vísbending um úr- slit kosninganna. Blað stuðn- ingsmanna Ásgeirs birti þá úr- sllt prófkosninga. Þetta er rifjað upp hér vegna þess, hve undar- legt það er, að ritstjóri stuðn- Á blaðamannafundi kom það fram hjá dr. Gunnari Thorodd- sen, að honum yrðu það mikil vonbrigði, ef ekki færðist hiti í kosningarnar. Þetta er vægast sagt óviðfelldinn hugsunarhátt- ur, þar sem forsetaembættið á að vera sameiningartákn þjóð- arinnar. Dr. Gunnar hefur varla orðið fyrir vonbrigðum með stuðningsmenn sína, þvi að eft- irtektarverður er sá æsinga- og óróablær, sem er yfir blöðum þeirra. Þar ber mikið á ókurteisi I garð hins frambjóðandans, dr. Kristjáns Eldjárns, og er m. a. reynt að snúa út úr orðum hans, sem birzt hafa í viðtölum við hann undanfarið. Þetta gengur jafnvel svo langt, að mikilsmet- inn prestur stígur niður af þeim virðingarpalli, sem hann hefur náð að komast upp á, og atyrðir freklega samborgara sína á heldur ósmekklegan hátt, jafnframt því sem hann dá- samar dr. Gunnar Thoroddsen, þó aðallega fyrir hans göfugu skyldmenni og fallegu konu og einnig fyrir það, hvað hann ingsblaðs Ásgeirs, sem stendur einnig að Þjóðkjöri, skuli nú ekki mega heyra á prófkosningar minnzt. Prófkosningarnar eru staðreynd og sýna betur en flest annað fylgi Kristjáns Eldjárns ásamt hinni gífurlegu aðsókn, sem verið hefur að fundum hans hvarvetna. Hér verða aöeins birt nokkur dæmi um nýleg úrslit prófkosn- inga, sem staðfest hafa verið við blaðið. Af sjálfsagðri tillitssemi við forráðamenn stofnana og starfsfólk eru ekki nefnd nöfn nema hinna stærstu fyrirtækja. Fyrri hluta þessarar viku var efnt til prófkosninga í stóru kjötvinnslufyrirtæki í Reykjavík og lauk á þá leið, að Kristján hlaut 80 atkvæði, en Gunnar 30. 24. júní fór fram prófkosning í Áburðarverksmiðjunni í Gufu- nesi. Úrslit urðu þessi: Kristján 69 atkv. Gunnar 35 — Auðir og óg. 5 í þremur vélsmiðjum í Reykja- vík, Hamri, Héðni og Lands- smiðjunni, hefur verið efnt til gerði vel til kirkna Reykjavík- ur á sínum tíma. í öðru tölublaði „Unga fólks- ins“ er svo mikið samsafn af ósvífni og ókurteisi í garð dr. Kristjáns Eldjárns og tilhæfu- lausum aðdróttunum, að það vekur hjá manni óhug, en það er von mín og vissa, að það unga fólk, sem styður svo of- stopafullt blað, sé fámennur hópur, en hugsandi og prúð æska íslands styðji dr. Kristján Eldjárn í kosningabaráttunni. Blöð stuðningsmanna dr. Kristjáns Eldjárns og viðtöl við hann og konu hans hafa ein- kennzt af kurteisi, hógværð og látleysi, eins og vera ber í sið- uðu þjóðfélagi. Við íslendingar verðum að geta borið fulla virð- ingu fyrir forseta okkar, og ís- lendingar geta borið fulla virð- ingu fyrir dr. Kristjáni Eld- járn. Þess vegna kjósum við hann næsta forseta íslands. Sigurrós Þórðardóttir Klúku Kirkjubólshrcppi Strandasýslu. prófkosninga. Samanlagðar töl- ur úr smiðjunum voru þessar: Kristján 139 atkv. Gunnar 49 — Auðir og óg. 12 Hin síðasta þessara þriggja prófkosninga fór fram 21. júní. í þeirri smiðju hlaut Kristján 51 atkv., en Gunnar 21. Á skrifstofu opinberrar stofn- unar í Reykjavík var prófkjör 24. júní. Niðurstaða varð þessi: Kristján 9 atkv. Gunnar 11 — Auður seðill 1 í gosdrykkjaverksmiðju Reykjavík var nýlega prófkosn- ing. Þar hlutu frambjóðendur: Kristján 31 atkv. Gunnar 4 — Auðir 11 í prentsmiðju einni í Reykja- vík hefur verið kosið tvisvar, í síðara skiptið 20. júní, og var þá þátttaka nokkru meiri en áður. Úrslit urðu þannig: Kristján 22 atkv. (áður 19) Gunnar 12 — (áður 9) 1 Búnaðarbankanum og Út- vegsbankanum hefur farið fram prófkjör, og var fylgi Kristjáns meira i báðum stöðum. Saman- lagðar tölur urðu þessar: Kristján 116 atkv. Gunnar 92 — Auðir 9 Ennfremur mun hafa verið efnt til prófkjörs í Landsbank- anum í síðustu viku. Sagnir herma, að Kristján hafi þar hlotið 71 atkv. og Gunnar 61, en þessar tölur hafa ekki fengizt staðfestar. Fyrir rúmum tveimur vikum var kosið í einni deild í sjúkra- húsi í Reykjavík, og þar fengu frambjóðendur: Kristján 23 atkv. Gunnar 2 — Litlu fyrr fór fram prófkjör í raftækjaverzlun í Reykjavík og verkstæði, sem henni er tengt. Úrslit urðu þessi: Kristján 30 atkv. Gunnar 11 — Auðir 5 Úrslit prófkosninga, sem frétzt hefur um utan af landi, eru mjög á sömu lund og í Reykjavík. Fyr- ir skömmu var efnt til prófkjörs í Slippstöðinni hf. á Akureyri, og urðu úrslit þessi: Kristján 110 atkv. Gunnar 24 — í fataverksmiðju á Akureyri urðu úrslit prófkjörs þessi: Kristján 45 atkv. Gunnar 5 — Auðir 17 1 prentsmiðju á Akureyri hlaut Kristján 17 atkv., en Gunnar 10, og meðal starfsfólks þekkts verzlunar- og verksmiðjufyrir- tækis á sama stað hlaut Kristján 12 atkv., en Gunnar 6. 31. maí var kosið í skipasmíða- stöð á Suðurnesjum. Þar fékk Kristján 31 atkv., en Gunnar 8. í sams konar fyrirtæki á Vest- urlandi hlaut Kristján 43 atkv., en Gunnar 7 (auðir og óg. 5), og í stóru kaupfélagi á Vestur- landi hlaut Kristján 60 atkv., en Gunnar 20. EINAR GUÐMUNDSSON, rithöfundur: Háttvís maður og fordildarlaus Þegar Kristján Eldjárn lét tll leiðast að gefa kost á sér til forsetakjörs, vakti það fögnuð manna um land allt. Þar var maður, sem var ekki að trana sér fram, maður, sem hefur ekki leikið tveim skjöldum. í hjá- verkum við erilsöm embættis- störf hefur Kristjáni orðið þess auðið að setja saman bækur og ritgerðir, er lúta að fornleifa- fræði og menningarsögu og eru dýrmætir fjársjóðir í hverjum bókaskáp. Þær ætti að þýða á sem flestar erlendar tungur. Fordildarleysi Kristjáns Eld- járns er þjóðinni kunnugt. Það eru ekki stækkaðar myndir af þjóðhöfðingjum til þess að skreyta híbýli með, sem þjóðina vantar, heldur sígild verk þeirra. Alkunn er háttvísi Kristjáns Eldjárns, sem einatt hefur reynt á, m. a. í því að taka á mótl tignum erlendum gestum. Kristján er kvæntur mikilhæfri konu. Það er von mín, að í Kristjánl Eldjárn' sé íslenzkur forsetl fundinn — maður, sem þjóðina hefur dreymt um I forsetastól. Kaflar ör bréfi af Ströndum

x

30. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 30. júní
https://timarit.is/publication/815

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.