30. júní - 28.06.1968, Page 15

30. júní - 28.06.1968, Page 15
30. JÚNÍ 15 Varðar mestu Framh. af bls. 4. 5. Rétt eins og valið er um tvo mjög mæta menn til for- seta, er og valið um tvær glæsl- legar konur, sem standa eiga þeim við hlið. Er við kjósum dr. Kristján, kjósum við því jafn- íramt glæsilega og óvanalega gáfaða konu. Með því að velja þau hjón höfum við fullvissu um, að sú reisn, sem leikið hef- ur um æðsta embættissetur landsins, Bessastaði, muni hald ast og aukast eins og reisn em- bættisins sjálfs. Eg endurtek: Það er happ að mega velja milli svo mætra manna. Eg vona samt, að þjóð- in kjósi dr. Kristján Eldjárn sem næsta forseta íslenzka lýð- veldisins vegna mannkosta hans, einlægni og látlausrar reisnar. Eg vona, að hún láti þá kosti vega þyngst á meta- skálunum. Ólafur Mixa. Víða blása Framh. af bls. 16. ar alþýða manna ætlar að taka af þeim ráðin? Og hvers vegna hefir þessi margnefndi frambjóðandi fund- ið, hve litlu fylgi hann á að fagna? Hann hefir m. a. fundið það á því, að það er ótrúlega stór hópur góðra, traustra Sjálf- stæðismanna, sem telja alger- lega ástæðulaust að hefja hann til æðstu metorða. Það er fá- læti Sjálfstæðismanna um land allt, sem gerir að verkum, að fylking andstæðinga Kristjáns Eldjárns finnur kuldann næða um sig, hvar sem komið er í liðsbón, hvort sem er í höfuð- staðnum eða úti um land. Á síðustu stundu hefir þó heyrzt hjáróma rödd, sem til- kynnir, að stjórn h.f. Árvakurs styðji Gunnar Thoroddsen. Morgunblaðið birti boðskap frá stjórn hlutafélagsins, sem er eigandi þess, s.l. sunnudag. Það er augljóst, Árvakursmönnum scm ððrum, að slík yfirlýsing getur engu breytt um gang mála næstkomandi sunnudag. f raun- innl er hún brosleg og heyrir annaðhvort undir kattarþvott — til að firra viðkomandi ein- hverju ámæli fyrir svik — eða afgreiðslu á pöntun á stuðnings- yfirlýsingu af því tagl, sem reynt hefir verið að afla úr ýmsum áttum síðustu vikur. Það er vert, að menn athugi — og einkum Sjálfstæðismenn •— að stjórn h.f. Árvakurs talar ekki fyrir aðra aðila en sjálfa sig og jafnvel ekki fyrir alla stjórnarmenn eða hluthafa. Og sízt talar hún með rödd Siálf- stæðisflokksins. Þótt stuðnings- menn Gunnars Thoroddsens grípl nú þetta hálmstrá og reyni að telja mönnum trú um, að þarna hafi miðstjórn Sjálfstæð- isflokksins talað, þá er slíkt vís- vitandi blekking. Menn mega alls ekki rugla saman jafnóskyld- um aðilum og stjórn hlutafé- lagsins Árvakurs og miðstjórn Sjálfstæðisflokksins. Hvorugur aðili getur talað fyrir hinn í þessu máli fremur en öðrum. S j álf stæðismenn! Það stendur óhaggað, sem bent hefir verið á hér í blaðinu og víðar, að ykkur er skylt að láta einungis samvizku ykkar ráða atkvæði ykkar á sunnu- daginn. Þá gefst ykkur einstætt tækifæri tll að sýna, að þið setjið þjóðarhag ofar metorða- girnd einstaklings. Þá munu andstæðingar Kristj- áns Eldjárns finna, að víða blása svalvindar á íslandi um þessar mundir, því að þjóðin ætlar sjálf að ráðstafa embætti for- seta. f það getur enginn setzt án leyfis hennar. Flykkjumst því á kjörstað á sunnudag, Sjálfstæðismenn, og gerum sigur Kristjáns Eldjárns sem glæsilegastan. Hersteinn Pálsson. m aaaaaa w a bs m aiaiais mm I nánum tengslum Framh. af bls. 16. tengslum við okkar forna menn- ingararf, manni, sem hefur hlotið beztu menntun, sem völ er á, bæðl heima og erlendis, á þeim sviðum, er lúta að sögu og fornri menningararfleifð þjóðarinnar. Hann hefur frá- bært vald á íslenzkri tungu, myndauðgi hennar og hljóm- fegurð. Þessi maður er Kristján Eld- járn. Ég treysti honum betur en nokkrum öðrum manni til þess að vekja þjóðina tll skilnings á grundvallarlögmálum fyrir því, að hún geti talizt sjálfstæð þjóð. Ég treysti honum til að sýna hófsemi i öllum llfnaðarháttum og meðferð forsetavaldsins, eins og þjóðhöfðingja fátækrar þjóð- ar hæfir. Ég treysti honum til að halda virðuleik embættisins í fullum heiðri með þeirri reisn, sem því hæfir. Ég heiti því á allt sveitafólk og alla íslendinga, sem skilja þá hættu, sem vofir yfir þjóð- menningu okkar vegna vanmats á dýrustu þáttum hennar og vegna óheftrar innrásar er- lendra áhrifa á mörgum sviðum, að snúast til varnar með þvi að kjósa Kristján Eldjárn 30. júní næst komandi. Gunnar Guðbjartsson. Yfirlýsing Hannibals 1 flokksblaði Sjálfstæðisfiokksins á Akureyri, „ísl€flidiingi“, birtist grein um forsetakjörið þann 25. þ.m., þar sem blað- ið nafng’reinir Hannibal Valdimarsson, forseta A.S.Í., sem fylgismann Gunnars Thoroddsens. Vegna þessara ummæla hefur Hannibal Valdimarsson sent „íslondingi“ eftirfarandi yfirlýsintgu: „Það er með öllu úr lausu lofti gripið, að ég liafi heitið Gunnari Thoroddsen eða stuðningsmönnum hans fylgi mínu. Ég hef jafnan svarað því til, er spurt hefur verið um af- stöðu mína til forsetaefnanna, að nú hygðist ég í eitt skipti á ævinni neyta leyndar kosningaréttarins. Ég tel þessar kosningar eiga að vera óháð þjóðkjör. Auk þess teldi ég það illa samrýmast fyrri yfirlýsingum stjórnmálaflokkanna um hlutleysi þeirra 1 þessum kosninguin, ef flokksformenn og aðrir forystumenn þeirra tækju nú — rétt fyrir kjör- dag, að vitna hver í kapp við annan um afstöðu sína, í blöð- nm eða á mannfundum, þótt aldrei nema því sé vendilega hnýtt aftan í yfirlýsingarnar, að um persónulega afstöðu þeirra sé að ræða. Slíkt er aðeins aumleg yfirbreiðsla. Við kjör þjóðhöfðingja eiga allir að ganga FRJÁLSIR af flokksböndum að kjörborði. Flokkslegan áróður skulu menn að engu hafa í þetta sinn, enda mun hann frekar spilla fylgi en auka það. HANNIBAL VALDIMARSSON44. Higi ais'aaiaia'aiffliE aBBBBBBBBBEBBBBBBBBBBBBBBBBBBIgBBBBBBBia Líknarsjóöur Áslaugar H.P. Maack er sjóður, sem starfað hefir s.l. 15 ár í Kópavogl. Markmið sjóðsins er: Að styrkja þá sem veikindi eða | aðrir erfiðleikar hafa steðjað að. Aðalfjáröflunarleið sjóðsins er sala blóma og minningar- korta. Síðastliðið ár voru veittar 130 þús. kr. úr sjóðnum. Blómasöludagurinn hefir verið ákveðinn 30. júní n.k. 1 í Kópavogi. Kópavogsbúar! Berum öll blóm Líknarsjóðsins þann dag. iHiaiaiiisiEiaiaiiiiæiaHiiHHHasiiBifflfflaiasBiBHaamaEi BEHiaaBisiaB

x

30. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 30. júní
https://timarit.is/publication/815

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.