Austurland - 14.10.1960, Side 4
AUSTURLAND
Neskaupsfca/3, 14. október 1960. ''' jf'
Afnám kotabúskaparins á íslandi
Hin síðari ár hefur það verið að
koma sífellt betur í Ijós, að eitt
mesta mein landbúnaðarins er mis
jöfn stærð búanna, og mikill fjöldi
smábúa, sem eru svo lítil, að fram-
leiðslumöguleikar geta ekki borið
þann véltæknikostnað, sem nútím-
inn krefst.
Þótt jarðræktarlögin, sem nú
hafa gilt í áratugi hafi tvímæla-
laust átt mikinn þátt í því, að örva
framkvæmdir í landbúnaðinum og
þar með framleiðslu hans, þá hafa
þau ekki reynst þess megnug að
leysia þetta vandamál.
Á stjórnartímabili vinstri stjóm
arinnar var því ákveðið að gera
nýtt átak í þessum efnum. Var þá
samþykkt viðbót við lögin um
landnám og endurbyggingar í
sveitum, og með þeim ákvæðum
stefnt að þvi. að koma öllum jörð-
um í það ræktunarástand, að hafa
minnst 10 ha. tún, véltækt að öllu
leyti.
Var því landnámi ríkisins falin
framkvæmd málsins, og hefur
verjð unnið að því síðan. Eins og
að líkum lætur hefur meginþungi
hin9 skipulagslega framkvæmda- I
starfs hvílt á herðum Pálma Ein-
arssonar, landnámsstjóra, og í
tilefni þess að liðin em u. þ. b.
þrjú ár síðan það hófst, hefur
undirritaður átt tal við Pálma og
fengið m. a. eftirfarandi upplýs-
ingar um ganginn í starfi þessu og
árangur þann, sem þegar er feng-
inn.
Undirbúningur hafinn
Byrja varð á því, að gera nýjar
mælingar af öllum túnum á land-
inu, til þess að fá nákvæmt yfir-
lit um ástand jarðanna eins og .
það var. Hefur þetta verið mjög
mikið verk, og mest verið fram-
kvæmt af héraðsráðunautum und-
ir stjórn landnámsstjóra. Er þáð
nú svo langt komið að aðeins em
ómældar um 900 jarðir. Jafnframt
hefur verið gerð áætlun, er nær
til - 5157 jarða, og miðast við að
fyrrnefndu marki verði náð.
Samkvæmt mælingum var rækt-
unarástand þeirra þannig í byrj-
un.
2084 jarðir höfðu yfir 10 ha. véltæk tún.
1 töflunni eru tví- og fleirbýlis-
jarðir, svo og félagsbú talin sem
einn aðili, þegar ábúðarhlutar em
sammetnir í fasteignamati. Og í
þessu koma heldur ekki fram þau
nýbýli, sem fyrst hafa verið met-
in eftir að gengið var frá fasteigna
matinu 1957, en það em öll nýbýli
byggð árið 1956 og síðan. Ekki em
heldur taldar hér 176 sérmetnar
jarðir innan lögsagnarumdæma
kaupstaða.
Þróunin gengur í rétta átt
Taflan sýnir greinilega hvert
þróunin stefnir. Jörðum í lægri
flokkunum fækkar, en fjölgar í
hinum hærri. Ennfremur má benda
á það, að þótt til séu í sauðfjár-
ræktarhéruðum jarðir með lítil
tún, en allstórt bú, er byggjast
mest á fóðurbætisgjöf, og beit, þá
eru það fyrst og fremst undantekn
ingar. Hitt er hin algenga regla að
lítilli túnstæiið fylgir lítil bústærð.
T. d. voru yfir 400 af þeim jörð-
um, er höfðu minna en fimm ha.
tún einnig með minna en fimm kú-
gilda bústofn.
Hvað er eftir að framkvæma?
I ársbyrjun 1960 vom 1781 af
hinum mældu jörðum ennþá með
minna en 10 ha. tún. Ræktunar-
þörf þeirrá til að ná markinu mun
vera sem næst 6832 ha. eða að
meðaltali 3,49 ha. pr. jörð. Ekki
er enn vitað um þörf hinna 900 ó-
mældu jarða. En sennilega er hún
hlutfallslega meiri. Er því auðséð
að allmikið verk er óunnið enn. Er
það ekki ajfj undra, þegar tekið er
tillit til hins stutta tíma og einnig
hins mikla undirbúnngsstarfs, er
vinna þurfti. En von mun það allra
er af heilum hug óska gengis ís-
lenzks landbúnaðar, að sem fyrst
takist að ná fyrrgreindu marki,
og afnema kotabúskapinn á Is-
landi.
Ásmundur Sigurðsson
„Viðreisn" útgerðarinnar
2968 — — 5—10 — — —
1085 — — undir 5 — — —
Voru þannig allt að 60% þess-
ara jarða með minna en 10 ha. tún
cg koma því undir ákvæði lag-
anna. En ræktunarþörf þeirra
reiknajiist vera samtals 12550 ha.
til að ná 10 ha. markinu.
Þá eru ennþá ómældar ca. 900
jarðir, en líkur benda til, að all-
flestar þeirra hafi minna en 10
ha. tún og komi þvi undir ákvæði
laganna.
Árangur birtist í vaxandi
framkvæmdum
Til þess að herða á ræktun þess-
ara jarða hefur verið veitt auka-
framlag samkvæmt hinum nýju
lagaákvæðum til ræktunar á þeim.
Hefur það náð til 2124 af hinum
mældu jörðum og verið greitt á
samtals 3338.2 ha. Þá hefur og
verið greitt aukaframlag á þann
hluta hinna 900 ómældu jarða, er
samkvæmt spjaldskrá Búnaðarfé-
lags íslands höfðu minna véltækt
tún en 5 ha. Hefur það verið veitt
á samtals 644,4 ha. vegna jarða í
þessum flokki. Alls hefur þetta
framlag því verið veitt á 4032.6
ha. á þessum jörðum öllum.
Er greinilegt að ræktunin hef-
ur allmikinn kipp tekið og sést
það enn betur á því, að af þeim
2124 mældu jörðum, er notið hafa
framlagsins hafa 446 komizt yfir
10 ha. markið, og af hinum, er
voru fyrir neðan fimm ha., hafa
466 komizt yfir það mark. Aðrar
hafa þokazt áleiðis, þótt enn sé
nokkuð að markinu enda er tím-
inn ekki langur.
Þá er einnig rétt að geta þess,
a}5 úr þeim flokknum, er var fyrir
neðan 5 ha. hafa 56 jarðir fallið
úr byggð.
Bústofninn hefur vaxið
Nú mun margur vilja spyrja,
hvort þessar framkvæmdir séu
ekki þegar famar að segja til sín
í stækkun búanna á þessum jörð-
um. Sé tillit tekið til þess, hve
timinn er stuttur er tænast hægt
að vænta að svo sé í ^orum stíl.
Eftirfarandi tafla, tekin upp eftir
jarða og ábúðaskrá Landnáms
ríkisins sýnir þó verulega breyt-
ingu í þá átt, sem án efa má að
verulegu leyti þakka þessari
starfsemi.
Hinar illræmdu efnahagsaðgerð-
ir núverandi ríkisstjómar voru
fyrst og fremst rökstuddar með
því, að koma ætti rekstri atvinnu-
veganna á heilbrigðan gmndvöll
og gera þeim fært að komast af
án styrkja og uppbóta.
Og hvemig er nú ástandið í út-
vegsmálunum eftir 9 mánaða við-
reisn ?
Þannig, að útgerðarmenn eru á
einu máli um að rekstur útgerðar
sé miklu óhagstæðari en áður og að
ekki komi til mála að hægt sé að
hefja róðra í vetur, nema til komi
stórkostleg aðstoð við útgerðina.
Það mun koma mörgum á óvart
að útgerðin á Suðurlandi, þar sem
mönnum hættir til að halda að
smjör drjúpi af hverju strái, mun
allra verst stödd. Útgerðin hér
eystra er áreiðanlega miklu betur
á vegi stödd en sunnlenzka útgerð-
in almennt.
Ekki veiOur aflabresti kennt um
ófarir útgerðarinnar. Vetrarvertíð-
in var góð og þó síldveiðar hafi
gengið illa, er það þó staðreynd,
atö svo mikil síld hefur veiðst, að
útgerðarmenn eiga ekki rétt á
bótum úr hlutatryggingasjóði.
Ekki verður heldur skuldinni
skellt á verkafólk. Ekki hefur
reksturskostnaður hækkað vegna
óbilgirni þess. Þrátt fyrir gífur-
lega hækkaðan framfærslukostnað
hefur kaup þess ekki hækkað og
er nú svo komið, að hvergi í ná-
lægum löndum býr verkafólk við
svo léleg kjör.
En hver er þá ástæðan?
Ástæðan er einfaldlega „við-
reisnin" sjálf. Vaxtaokrið, hinar
geysilegu verðhækkanir á reksturs
vörum og aðrar „viðreisnar“-ráð-
stafanir, hafa komið útgerðinni 4
kaldan klaka. Útgerðarmennirnir
mega eins og fleiri sakna
vinstri stjómarinnar, þegar allt
kapp var á það lagt, að tryggja at-
vinnuvegunum starfsskilyrði.
Fylgispekt útgerðarmanna við í-
haldið ætlar að verða þeim dýr.
Ástandið á sunnlenzku útgerð-
inni er sagt mjög slæmt. Bátamir
eru flestir aðgerðarlausir, margir
hafa ekki getað gert upp við sjó-
menn eftir síldarvertíðina. Tap-
rekstur er almennur og í mörgum
tilfellum ekki um annað en gjald-
þrot að ræða, verði ekki gerðar
sérstakar ráðstafanir.
Hér við bætist, að afli er tregur
hjá þeim, sem róa.
Og þá vaknar spuraingin. Hvað
ætlar ríkisstjórnin að gera til að
gera úrgerðinni fært að starfa?
Um það er nú flest á huldu og
margt bendir til að ráðherrar viti
ekki sitt rjúkandi ráð og hafi ekki
hugmynd um, hvað gera skal.
Þó er vitað um tvær kákráð-
stafanir, sem á döfinni eru.
í fyrsta lagi er um það rætt að
veita lán til síldamótakaupa á síð-
astliðnu vori. Mun eiga að nota
til þess einhvem huta þess 240
miílj. kr. láns, sem ríkisstjómin
nú er að reyna að slá í Bandaríkj-
unum út á landhelgina.
Um þetta lán má ýmislegt
segja. Það er tekið til viðbótar við
800 millj. kr. „viðreisnar“-lánið,
sem nú er uppgengið, eða því sem
næst. Við valdatöku sína málaði
ríkisstjómin með mjög dökkum
litum hættuna af erlendri skulda-
söfnum og eitt helzta stefnumál
hennar var að hætta skuldasöfnun
erlendis. En það er öðru nær að
svo hafi orðið. Sjaldan hefur
Frarflhaid á 2. ðlðu.
Fl. Bústærð: Tala jarða í flokki
nr. Kúgildiseining Fardagaár Fardagaár Fardagaár
1955—56 1957—58 1958—59
1 Færri en 5 kúg. 500 466 433
2 5— 7.5 — 545 499 442
3 7.6—10 — 795 680 651
4 10.1—12.5 — 798 788 747
5 12.6—15.0 — 720 674 690
6 .15.1—20.0 — 925 1035 1040
7 Yfir 20.0 — 846 1046 1075