29. júní - 14.06.1980, Blaðsíða 2
2 29. júní
Þjóð-
höfðingi er
stjórnar...
Framhald af bls. 4
höfðingi og fólkið séu án
sundurþykkju.
Mér finnst að hinar hóg-
væru setningar í þessari
merku bók séu ágæt leið-
sögn um hvernig forseti eigi
að hafa sínum störfum.
Ástæðan fyrir því að ég
ætla að kjósa Pétur J. Thor-
steinsson í komandi forseta-
kosningum er sú að ég tel
hann mann til að höndla
hið mikla vald forseta af
þeirri gætni og varúð sem
eðlilegt er. Af kynnum mín-
um við hann hef ég líka
sanfærst um að Halldór
Laxness hafði á réttu að
standa þegar hann sagði
Pétur J. Thorsteinsson „of
mikinn höfðingja til að ber-
ast á.“
Hann hæfir því ágætlega
þeirri mynd sem ég geri mér
af góðum þjóðhöfðingja;
manni sem stjórnar vel án
þess að stjórna mikið.
Kjósum
Pétur
29. júní göngum viö íslending-
ar að kjörborði til að kjósa forseta
íslands. Það val verður að vera
vel vandað. Pétur J. Thorsteins-
son er maður sem hefur alla kosti
til að bera sem forseti fyrir okkar
þjóð. Hann hefur ekki fæðst með
silfurskeið í munni eins og svo
margir aðrir. Á námsárum þurfti
hann að vinna hörðum höndum
fyrir sér til að geta haldið skóla-
námi áfram. Hann hefur annast
margvísleg störf í þágu okkar ís-
lendinga sem við getum verið
þakklát fyrir. Hann er kvæntur
glæsilegri konu Oddnýu sem er
vel menntuð og fjölhæf og mun
sóma sér vel sem forsetafrú á
Bessastöðum.
íslendingar Pétur er okkar
maður það sannar starfsferill
hans fyrir okkar þjóð.
Erla Hauksdóttir
Flateyri.
Kosningaskrifstofur
og trúnaðarmenn
Péturs J. Thorsteinssonar
í Vestfjarðakjördæmi
ísafjörður:
Kosningaskrifstofa
Hafnarstræti 12 sími (94) 4232
Heildarkjörskrá fyrir allt kjördæmið liggur frammi,
en auk þess eru kjörskrár hjá eftirtöldum aðilum
fyrir viðkomandi staði og nágrenni.
Forstöðumaður Málfríður Halldórsdóttir.
Vatneyri: (Patreksfjörður)
Ólafur H. Guðbjartsson, Urðargötu 7, sími (94)
1129
Sveinseyri: (Táiknafjörður)
Jón Bjarnason, Miðtúni 16, sími (94) 2541
Bíldudalur:
Sigurður Guðmundsson, Dalbraut 8, sími (94)
2148
Þingeyri:
Gunnar Proppé, Brekkugötu 1, sími (94) 8125
Flateyri:
Erla Hauksdóttir, Þórður Júlíusson, Hjallavegi 5,
sími (94) 7760
Suðureyri:
Páll Friðbertsson, Hjallavegi 13, sími (94) 6187
Bolungarvík:
Kristjón S. Pálsson, Miðstræti 18, sími (94) 7209
Hnífsdalur:
Einar Steindórsson, Engjavegi 29, sími (94) 3610
Súðavík:
Hálfdán Kristjánsson, sími (94) 6969 og 6970
Hólmavík:
Þorsteinn Þorsteinsson, sími (95) 3185
Einn hefur þá
þekkingu...
Framhald af bls. 1
lagagildi, en þá ber að
leggja þau „svo fljótt sem
kostur er undir atkvæði
allra kosningarbærra
manna í landinu til sam-
þykktar eða synjunar.“
Þessu valdi hefur mér vitan-
lega aldrei verið
beitt, en það er fyrir hendi.
Framangreind dæmi sýna
að vald forsetans getur verið
mikið, en samkvæmt stjórn-
arskránni er það miklu víð-
tækara, og efast nokkur
maður um þau áhrif bein og
óbein, sem hygginn og dug-
legur forseti gæti haft bæði
til góðs og ills. Því er ekki að
leyna, að ég undrast hve
margir telja að þjóðhöfðingi
okkar þurfi aðeins að vera
greindur áferðarfallegur
veislustjóri, eins og áður er
að vikið, og hlýtur sú spurn-
ing að vakna hvað valdi. Er
ekki tímabært að við hug-
leiðum öll þessa spurningu?
Til að stjórna skipi, vél-
um, bifreiðum o.s.frv. er
krafist ákveðinnar þekking-
ar og prófskírteinis. Það er
ekki hægt að fara í skóla eða
námskeið til að læra að vera
forseti, en við hljótum að
ætlast til að forsetinn hafi
reynslu í samningum og
samskiptum við erlendar
þjóðir auk staðgóðrar þekk-
ingar á hinu íslenska stjórn-
kerfi og þjóðlífinu í heild.
Okkur er vissulega vandi
á höndum, við eigum að
velja milli fjögurra fram-
bjóðenda, sem við í flestum
tilfellum þekkjum aðeins af
afspurn eða úr fjölmiðlum.
Ég vil þess vegna hvetja alla
til að kynna sér sem best
fyrri störf frambjóðenda,
hugleiða hvaða kostum for-
setinn þarf að vera búinn,
og velja síðan þann sem
hver og einn telur hæfast-
ann.
Einn frambjóðandinn
hefur þá þekkingu og
reynslu, sem nauðsynleg er
til þess að geta orðið góður
forseti. En auk þess er hann
hugrakkur og dugmikill
drengskaparmaður, sem
unnið hefur þjóð sinni í
kyrrþey en ekki í sviðsljósi
fjölmiðla. Maður sem átt
hefur góð og oft á tíðum
náin samskipti við leiðtoga
allra stjórnmálaflokka án
þess að tengjast nokkrum
þeirra.
Þessi maður er Pétur J.
Thorsteinsson, sendiherra.
Það vill svo til að ég átti
þess kost að kynnast þessum
frambjóðanda og störfum
hans, sem helguð hafa verið
landi og þjóð bæði hér
heima og erlendis frá því
hann lauk námi. Vil ég nota
tækifærið og þakka þeim,
sem fengu því áorkað að
Pétur fékkst til þess að bjóða
sig fram til embættis forseta
íslands.
Það er sannfæring mín að
hann sé hæfasti frambjóð-
andinn, og þess vegna mun
ég gera það sem ég get, til
þess að Pétur og hans ágæta
eiginkona Oddný verði
næstu húsráðendur að
Bessastöðum.
Einr B. Ingvarsson.
Áki Eggertsson, Súðavfk
Valmundur Pétur Árnason, matreiðslu-
maður M.Í., ísafirðl
VALMUNDUR PÉTUR
ÁRNASON MATREIÐSLUMAÐ-
UR M.í. ÍSAFIRÐI:
„Ég hitti Pétur af tilvilj-
un á götu hér á ísafirði.
Hann stoppaði og gaf sér
Anna Hermannsdóttir, ísaflrðl