Morgunblaðið - 10.10.2011, Page 2

Morgunblaðið - 10.10.2011, Page 2
2 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 2011 Íþróttir Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Víðir Sigurðsson, vs@mbl. is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf. Ólöf Kolbrún Ragnarsdóttir, mark- vörður HK, átti stórleik á milli stanganna og sýndi af hverju hún var valin í íslenska landsliðið á nýj- an leik á dögunum þegar HK hafði betur gegn KA/Þór, 30:19, í N1- deildinni í handknattleik en liðin áttust við í Digranesi. Ólöf Kolbrún varði alls 19 skot í leiknum og fann sig afar vel í marki Kópavogsliðsins. Alls komust ellefu leikmenn HK á lista markaskor- ara í dag en Arna Björk Al- marsdóttir var þeirra marka- hæst með 7 mörk og Jóna Sigríður Halldórsdóttir skoraði 6 mörk. Martha Her- mannsdóttir var markahæst Akureyringa með 8 mörk.  Á Ásvöllum hrósuðu Haukar sigri gegn Gróttu, 27:21, og þar með fengu Haukar sín fyrstu stig en liðið tapaði fyrir grönnum sínum í FH í fyrstu umferðinni. Karen Helga Sigurjónsdóttir var marka- hæst Hauka með 9 mörk en Erla Ei- ríksdóttir og Elsa Björg Árnadóttir skoruðu 4 mörk hvor. Hjá Gróttu skoraði Sunna María Einarsdóttir 9 mörk og Elín Helga Jónsdóttir var næstmarkahæst með 3 mörk. gummih@mbl.is Ólöf Kolbrún í stuði á milli stanganna Ólöf Kolbrún Ragnarsdóttir Íslenska U17 ára landslið stúlkna í knattspyrnu, undir stjórn Þorláks Árnasonar, er á sigurbraut í und- ankeppni Evrópumótsins. Liðið hafði í gær betur gegn Kasakhstan, 3:0, í öðrum leik sínum í riðlinum, sem spilaður er í Austurríki, en á föstudaginn fögnuðu íslensku stúlk- urnar sigri gegn Austurríki, 2:1. Ís- lenska liðið er öruggt með að enda í einu af tveimur efstu sætunum og hefur þar með tryggt sér sæti í milli- riðli. Glódís Perla Viggósdóttir skoraði tvö fyrstu mörk íslenska liðsins og Eva Lind Elíasdóttir bætti því þriðja við undir lok leiksins en hún kom inn á sem varamaður í síðari hálfleik. Glódís spilar í Danmörku en lék áður með HK/ Víkingi en Eva Lind leikur með Selfyssingum. Síðasti leikur íslenska liðsins er á miðvikudaginn en þá leikur það gegn Skotum en Skotar gerðu 1:1 jafntefli við Aust- urríki í gær. gummih@mbl.is Stelpurnar komnar áfram Þorlákur Árnason Bretinn AndyMurray hrósaði sigri á opna japanska meistaramótinu í tennis í gær. Murray hafði bet- ur gegn Spán- verjanum Rafael Nadal í úrslita- leik, 3:6, 6:2 og 6:0. Murray, sem er 24 ára gamall, hafði fyrir leikinn tapað fimm leikj- um í röð gegn Nadal, sem er efstur á heimlistanum.    Spánverjinn byrjaði betur og vannfyrsta settið en Murray, sem vann á dögunum opna taílenska mót- ið, sýndi styrk sinn og vann tvö næstu sett nokkuð örugglega og tryggði sér þar með sigur á mótinu. Fyrir það fékk hann 295.000 dollara í verðlaunafé en það jafngildir 35 milljónum íslenskra króna.    Bandaríkjamenn unnu sinn fyrstasigur undir stjórn Þjóðverjans Jurgen Klinsmann þegar þeir báru sigurorð af Hondúras, 1:0, í æfinga- leik sem fram fór í Miami. Clint Dempsey, leikmaður Fulham á Eng- landi, skoraði sigurmarkið á 36. mín- útu leiksins. Þetta var fjórði leikur bandaríska landsliðsins undir stjórn Klinsmann en hann var ráðinn þjálf- ari liðsins í júlí í sumar. Liðið gerði 1:1 jafntefli við Mexíkó en tapaði 1:0 fyrir Kosta Ríka og með sömu markatölu fyrir Belgíu.    Skotar lifa enní voninni um að enda í öðru sæti í I-riðli und- ankeppni Evr- ópumóts lands- liða í knattspyrnu og komast þar með í umspil um sæti í úr- slitakeppninni á næsta ári. Skotar lyftu sér upp í annað sætið með naumum sigri á Liechteinstein, 1:0, í Vaduz þar sem Craig Mackail- Smith skoraði sigurmarkið. Skotar eru með 11 stig í öðru sæti en Tékk- ar eru í þriðja með 10 stig. Skotar eiga eftir að spila við heims- og Evr- ópumeistara Spánverja, sem eru með 21 stig eða fullt hús stiga, en Tékkar mæta Litháen. „Við þurfum ekkert að hræðast það að mæta Spánverjum. Við förum í þann leik til að vinna. Við getum ekki hugsað um úrslitin í Litháen,“ sagði Craig Levein, landsliðsþjálfari Skota.    Bandaríkjamaðurinn Rickie Fow-ler hrósaði sínum fyrsta sigri á atvinnumannaferlinum í golfi þegar hann bar sigur úr býtum á opna Kóreumótinu sem lauk í gær. Fow- ler, sem er 22 ára gamall, lék loka- hringinn á þremur höggum undir pari og varð sex höggum á undan næsta manni sem var Írinn Rory McIlroy. Fowler lék samtals á 268 höggum, McIlroy lék á 274 höggum og Kóreumaðurinn Kim Meen-Whee varð þriðji á 277 höggum. Fólk sport@mbl.is HLÍÐARENDI Stefán Stefánsson ste@mbl.is „Mér fannst við vera búnar að hrista þær af okkur í fyrri hálfleik með sex marka forystu svo þetta leit allt voða vel út, en við sváfum þá aðeins á verðinum og hleyptum þeim inn í leikinn rétt fyrir hlé en það var samt alveg ljóst að við myndum ekki hleypa þeim nær. Við þurftum bara að þjappa saman vörninni, þá kemur Jenný í mark- inu í gang í kjölfarið og við fáum auðveld mörk – þetta gerum við oftast og gerum best,“ sagði Hrafn- hildur Ósk Skúladóttir, sem skoraði 6 mörk fyrir Val í 33:20 sigri á ÍBV að Hlíðarenda í gærkvöldi þegar liðin léku sinn annan leik í N1-deild kvenna í handbolta. Fram í miðjan fyrri hálfleik leit út fyrir jafnan leik og staðan 6:5 fyrir Valskonur en þá skelltu þær vörninni í lás, sem aftur skilaði mörkum úr hraðaupphlaupum og það örlaði þá á uppgjöf hjá gest- unum úr Eyjum. Þeir hristu af sér pusið og hrukku í gang og í byrjun síðari hálfleiks munaði bara einu marki, 15:14. Þá kom önnur alda og nú fór Eyjaliðið alveg á kaf því tíu mínútum síðar munaði 12 mörkum, 28:16. Það er Eyjakonum smá vor- kunn að þarna sýndu þrautreyndir Íslandsmeistarar allar sínar bestu hliðar. Eftir það gerðist lítið, úrslit- in ráðin og mest beðið eftir klukk- unni. Valskonur sýndu á köflum hvað þær kunna fyrir sér enda liðið lítið breytt og leikmenn þekkja hver annan vel. Engu að síður komu værukærir kaflar og Valskonur komust upp með það núna. „Veit ekki alveg hvað gerðist“ „Ég veit ekki alveg hvað gerðist á einhverjum sjö mínútna kafla í síðari hálfleik,“ sagði Ester Ósk- arsdóttir, sem var markahæst hjá ÍBV með 7 mörk. „Það munaði tveimur mörkum í hálfleik en svo voru það orðin sjö mörk. Við viss- um alveg að þær eru snöggar í Val með góðan hóp en við getum samt ekki gefist alveg upp. Munurinn þurfti ekki að vera svona mikill en við gerðum okkur þetta erfitt og eigum að geta betur,“ bætti Ester við. ÍBV tefldi fram nýjum leik- mönnum, sem eru eflaust öflugri en þeir sýndu nú. „Við fengum tvo nýja leikmenn í vörnina sem við eigum eftir að ná betur saman við og tökum Val þá bara heima. Okk- ur er spáð sæti um miðja deild en vitum að við verðum ofar og betra að vera spáð fimmta sætinu og lenda svo í þriðja en öfugt.“ Morgunblaðið/Eggert Markahæst Anna Úrsúla Guðmundsdóttir er hér að skora eitt átta marka sinna gegn ÍBV í gærkvöld. Sváfum aðeins á verðinum  Smá ströggl þegar Íslandsmeistarar Vals unnu Eyjakonur 33:20 að Hlíðarenda Vodafone-höllin, úrvalsdeild kvenna, N1-deildin, sunnudaginn 9. október 2011. Gangur leiksins: 0:1, 2:1, 3:3, 6:5, 11:5, 12:8, 14:9, 14:12, 15:14, 22:14, 28:16, 30:17, 32:19, 33:20. Mörk Vals: Anna Úrsúla Guð- mundsdóttir 8, Dagný Skúladóttir 6, Hrafnhildur Ósk Skúladóttir 6/1, Karólína B. Gunnarsdóttir 4, Ragn- hildur Rósa Guðmundsdóttir 4, Kristín Guðmundsdóttir 2, Nataly Sæunn Valencia 2, Arndís María Er- lingsdóttir 1. Varin skot: Guðný Jenný Ásmunds- dóttir 19 (þar af 6 til mótherja), Sunneva Einarsdóttir 5 (þar af 1 til mótherja). Utan vallar: 2 mínútur. Mörk ÍBV: Ester Óskarsdóttir 7, Þórsteina Sigurbjörnsdóttir 4/3, Iv- ana Mladenovic 3, Mariana Trboj- evic 3, Nina Lykke Pettersen 2, Aníta Elíasdóttir 1. Varin skot: Florentina Stanciu 14/1 (þar af 4 til mótherja). Utan vallar: 2 mínútur. Dómarar: Arnar Geir Nikulásson og Tatjana Zukovska. Áhorfendur: Um 95. Valur – ÍBV 33:20

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.