Morgunblaðið - 10.10.2011, Side 3

Morgunblaðið - 10.10.2011, Side 3
ÍÞRÓTTIR 3 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 2011 Inga Elín Cryerúr Sundfélagi Akraness setti um helgina nýtt Ís- landsmet í 400 metra skriðsundi. Metið setti hún í landskeppni Ís- lands og Færeyja sem fram fór í Klakksvík í Færeyjum og lauk með sigri Íslendinga. Inga Elín synti á tímanum 4.15,13 mín- útum og bætti met Sigrúnar Brár Sverrisdóttur frá því Meist- aramótinu árið 2009 en það var 4.15,17 mín. Þá setti Ólöf Edda Eð- varðsdóttir, ÍRB, nýtt telpnamet í 200 metra bringusundi þegar hún synti á 2.35,28 mínútum. Gamla metið átti Erla Dögg Haraldsdóttir síðan í Svíþjóð árið 2002 en það var 2.37,53 mínútur.    Körfuknattleiksdeild Grindavíkurhefur ráðið annan Bandaríkja- mann fyrir átök vetrarins, kraft- framherjann J́Nathan Bullock. Þetta kemur fram á vef Grindavíkur. Áður hafði leikstjórnandinn Giordan Wat- son verið ráðinn og kom hann til landsins í lok september. Beðið er eft- ir að dvalar- og atvinnuleyfi verði klárt fyrir Bullock en pappírarnir eru komnir til landsins og ætti leikmað- urinn að geta komið til landsins í næstu viku.    Hlynur Bær-ingsson er orðinn fyrirliði sænska körfu- knattleiksliðsins Sundsvall en hann tekur við því hlut- verki af Alex Wesby sem hélt til Hollands í sumar. Peter Öqvist, þjálfari Sundsvall, sem reyndar er einnig landsliðsþjálfari Ís- lands, segir að valið hafi verið í stöðu fyrirliða í samráði við leikmenn sem hafi flestir kosið að Hlynur gegndi því hlutverki. Jakob Örn Sigurðarson var næstur Hlyni í kosningunni. Hlynur hefur áður verið fyrirliði bæði Snæfells og íslenska landsliðsins.    Hamar í Hveragerði hefur náð ítvo erlenda leikmenn fyrir bar- áttuna í 1. deild karla í körfuknatt- leik. Annars vegar Bandaríkjamann- inn Terrence Worthy en hann lék með Concordia Irvine-skólanum í banda- ríska háskólaboltanum. Ungur Breti, Louie Kirkman, er einnig genginn í raðir félagsins en hann lék síðast í 3. deild í Englandi.    Áheimasíðu Hamars er einniggreint frá því að Sahli Heimir Porca sé tekinn við þjálfun karlaliðs Hamars í knattspyrnu sem leikur í 2. deild. Fólk sport@mbl.is Í DIGRANESI Kristján Jónsson kris@mbl.is Afturelding átti nánast aldrei möguleika gegn HK þegar liðin mættust í 3. umferð N1-deildar karla í handknattleik í gær. HK náði strax yfirburðaforystu á fyrstu fimmtán mínútum leiksins og lagði þá grunn- inn að sigrinum. HK hafði yfir að loknum fyrri hálfleik 15:10 en Aftur- elding náði aldrei að éta upp for- skotið. HK lék án varnarmannsins sterka, Bjarka Más Gunnarssonar, en hann sneri sig á ökkla í vikunni. Meiðslin eru ekki alvarleg og ekki er útilokað að hann geti tekið þátt í næsta leik á fimmtudaginn þegar HK fær Ís- landsmeistara FH í heimsókn. Hafþór stóð upp úr Þrátt fyrir fjarveru Bjarka var varnarleikur HK góður en liðið lék 5-1 vörn með nafna hans Elísson fyr- ir framan. Mosfellingar voru í basli í sóknarleiknum og þurftu að hafa talsvert mikið fyrir hverju skoruðu marki. Afturelding er hins vegar ekki í vandræðum hvað varðar mark- verði og Hafþór Einarsson stóð fyrir sínu í gær. Fyrst og fremst var það honum að þakka að Afturelding var „ekki nema“ fimm mörkum undir þegar flautað var til leikhlés. Sér- staklega varði hann oft í stöðunni maður á móti manni og gekk ágæt- lega að eiga við einn besta mann deildarinnar, Ólaf Bjarka Ragn- arsson. Hafþór þarf svo sem að standa sig vel ef hann ætlar að halda Davíð Svanssyni á varamannabekkn- um. 18 mörk frá Ólafi og Bjarka Þrátt fyrir það náði Ólafur að skila 9 mörkum í leiknum fyrir HK en skotnýting hans hefur oft verið betri. Bjarki Már Elísson gerði einnig 9 mörk hjá HK og áhugavert verður að fylgjast með honum í vetur. Bjarki vakti nokkra athygli á síðustu leiktíð og með því að vinna markvisst í nokkrum þáttum, meðal annars lík- amlegu atgervi, þá gæti hann spilað í háum gæðaflokki í framtíðinni. HK-liðið er öflugt og þá sér- staklega er byrjunarliðið sterkt. Álagið dreifist engu að síður ágæt- lega á milli varnar og sóknar. Vil- helm Gauti og Bjarki Már Gunnars sjá um að binda saman vörnina en Ólafur Bjarki og Ólafur bera hitann og þungann af sóknarleiknum. Þar gæti Tandri Konráðsson einnig átt eftir að láta að sér kveða en hann raðaði inn mörkunum fyrir Stjörn- una í fyrra. Þá eru Atli Ævar og Bjarki Már Elísson drjúgir í marka- skorun. Líklega er best að forðast það að dæma Aftureldingu af þessum leik enda lenti liðið strax í miklum elting- arleik. Gæðin hefðu einfaldlega þurft að vera meiri til þess að veita HK mótspyrnu. HK fékk litla mótspyrnu Morgunblaðið/Ómar Seigur Atli Ævar Ingólfsson skorar eitt sex marka sinna af línunni fyrir HK á móti Aftureldingu í Digranesinu í gær.  HK komst í 9:1 á móti Aftureldingu  Sigur HK var ekki í hættu eftir það  Afturelding í vandræðum í sókninni  Ólafur og Bjarki Már markahæstir Þormóður Jónsson úr Júdófélagi Reykjavík- ur vann tvöfalt á haustmóti Júdósambands Íslands sem haldið var á Selfossi um helgina þar sem 29 keppendur frá fimm félögum tóku þátt. Úrslitin urðu nokkuð eins og vænta mátti. Ríkjandi Íslandsmeistarar unnu sína þyngdarflokka nokkuð örugglega og vann Þormóður Jónsson (JR) bæði þungavigtina og opna flokkinn, Þorvaldur Blöndal (Ármanni) -90 kg flokkinn, Svein- björn Iura (Ármanni) -81 kg flokkinn og Ingi Þór Kristjánsson (JR) -73 kg flokkinn. Það voru síðan bráðefnilegir unglingar sem unnu léttustu flokkana en Gísli Haraldsson (ÍR) vann -66 kg flokkinn og Ing- unn Rut Sigurðardóttir (JR) vann nokkuð óvænt en örugglega í-57 kg flokki kvenna. Sérstaka athygli vakti þátttaka Gísla Jóns Magnússonar (Ár- manni) fyrrum landsliðsmanns í þungavigt en hann varð í öðru sæti. gummih@mbl.is Tvöfalt hjá Þormóði á haustmóti JSÍ Þormóður Jónsson Ylfa K. Árnadóttir ylfa@mbl.is Gísli Kristjánsson lenti í 2. sæti í 105 kg þyngdarflokki eftir harða baráttu við Norðmanninn Kim Eirik Tollefsen á Norðurlanda- mótinu í ólympískum lyftingum sem lauk í Pori í Finnlandi í gær. Það var að lokum líkamsþyngd þeirra sem réð úrslitum eftir að þeir lyftu sömu þyngd, 315 kg. Gísli snaraði 150 kg sem var þriðja þyngsta snörun mótsins en það er jafnframt jöfnun á hans eigin Íslandsmeti frá 2003. Jafnhendingin gekk ekki eins vel, að því er segir í tilkynningu. Gísli lyfti 165 kg í fyrstu lyftu og gerði síðan naumlega ógilt 170 kg og 171 kg í annarri og þriðju tilraun. Þess má geta að Gísli er 47 ára og var langelsti keppandi móts- ins. Árangur hans í snörun er 10 kg yfir núgildandi heimsmeti í öldungaflokki 45-49 ára og samanlagður árangur er 8 kg yfir heimsmeti í sama aldursflokki. Finnland vann allar liðakeppnir mótsins en alls kepptu 53 keppendur. Besti lyftari mótsins var yf- irþungavigtarmaðurinn Jim Gyllenhammar frá Svíþjóð en hann lyfti 380 kg samanlagt, 170 kg í snörun og 210 kg í jafnhendingu. Silfurverðlaun hjá Gísla á Norðurlandamóti Haukur Helgi Pálsson, landsliðsmaður í körfuknattleik, lék sinn fyrsta leik í spænsku úrvalsdeildinni í gær þegar lið hans Assignia Manresa vann Joventut 71:59 í fyrstu umferð í gær. Haukur Helgi kom til Manresa í sumar eftir að hafa leikið með Maryland í banda- ríska háskólaboltanum. Hann var í byrj- unarliði Manresa í gær og spilaði rúmlega helminginn af 40 mínútum leiksins í þessari gríðarsterku deild sem sýnir hve háum gæðaflokki þessi 19 ára leikmaður tilheyrir nú þegar. Haukur Helgi skoraði tvö stig og tók þrjú fráköst í leiknum en þótti þar að auki standa vel fyrir sínu í vörninni. Manresa var aðeins tveimur stigum yfir í hálfleik en landaði svo sigrinum í þeim seinni. Jón Arnór Stefánsson átti einnig að spila sinn fyrsta leik fyrir nýtt félag, CAI Zaragoza, en ákveðið var að fresta leik liðsins við Valladolid. sindris@mbl.is Sigur í fyrsta leik Hauks Helga á Spáni Haukur Helgi Pálsson Digranes, úrvalsdeild karla, N1- deildin, sunnudaginn 9. október 2011. Gangur leiksins: 3:0, 3:1, 9:1, 10:4, 12:6, 14:9, 15:10, 15:11, 16:12, 19:13, 21:15, 24:16, 24:18, 27:20, 30:22. Mörk HK: Bjarki Már Elísson 9/3, Ólafur Bjarki Ragnarsson 9/4, Atli Ævar Ingólfsson 6, Tandri Már Kon- ráðsson 3, Léo Snær Pétursson 2, Hörður Másson 1. Varin skot: Björn Ingi Friðjónsson 7, (þar af 3 aftur), Arnór Freyr Stef- ánsson 6. Utan vallar: 4 mínútur. Mörk Aftureldingar: Hilmar Stef- ánsson 6/4, Jóhann Jóhannsson, Þorlákur Sigurjónsson, Elvar Magn- ússon, Helgi Héðinsson, Sverrir Her- mannsson 2, Mark Hawkins 2. Varin skot: Hafþór Einarsson 16 (þar af 8 aftur til mótherja), Davíð Svans- son 4 (þar af 1 aftur til mótherja). Utan vallar: 8 mínútur. Dómarar: Gísli Jóhannsson og Haf- steinn Ingibergsson. Höfðu góða stjórn á leiknum. Áhorfendur: Um 200. HK – Afturelding 30:22

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.