Morgunblaðið - 10.10.2011, Page 7
ÍÞRÓTTIR 7
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 2011
Tiger Woods lék nokkuð vel þegar upp var
staðið á opna Frys.com-mótinu á PGA-
mótaröðinni í golfi sem lauk í Kaliforníu í gær-
kvöldi. Woods byrjaði ekki ýkja vel og lék
fyrsta hringinn á 73 höggum á fimmtudags-
kvöldið sem er tvö högg yfir pari vallarins.
Hann spýtti hins vegar í lófana og lék hina
þrjá hringina á sama skorinu, 68 höggum. Þeg-
ar upp var staðið lék hann því á sjö höggum
undir pari samanlagt.
Þó svo að bestu menn hafi leikið talsvert
betur þá er engu að síður um allgott skor að
ræða hjá Woods þar sem hann var að leika á
sínu fyrsta móti í liðlega sjö vikur vegna
meiðsla. Hann hafnaði í 28.-33. sæti. Miðað við
skorið á þremur síðustu
hringjunum þá virðist
Woods vera á réttri leið þó
of snemmt sé að fullyrða
eitthvað um slíkt.
Woods var í fyrsta skipti
með Joe LaCava á pok-
anum hjá sér en hann réð
LaCava sem kylfusvein á
dögunum. Woods starfaði í
meira en áratug með ný-
sjálenska kylfusveininum
Steve Williams en leiðir skildi fyrr í sumar.
LaCava starfaði áður með Fred Couples og
síðast hjá Dustin Johnson. kris@mbl.is
Notaði 68 högg þrjá hringi í röð
Tiger
Woods
Edda Garðarsdóttir lagði upp sigurmark
Örebro á ögurstundu í 1:0 sigri á toppliði Ty-
resö í gær í sænsku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu. Edda, sem er að koma upp úr
meiðslum, kom inn á sem varamaður á 76.
mínútu og átti aukaspyrnu á 90. mínútu sem
Sanna Talonen skallaði í netið. Ólína G. Við-
arsdóttir lék allan leikinn í vörn Örebro.
Þetta var síðasti heimaleikur Örebro en
hann fór fram í skugga fráfalls þjálfarans
Richard Holmlund sem lést í bílslysi fyrir
skömmu, en Holmlund var þjálfari Örebro
2007-10 og gerði liðið meðal annars að bik-
armeistara. Örebro mætir Malmö á útivelli í
lokaumferðinni og getur með sigri náð 4. sæti
en endar annars í því
fimmta.
Liðsfélagar Eddu úr ís-
lenska landsliðinu, þær
Þóra Helgadóttir og Sara
Björk Gunnarsdóttir hjá
Malmö, eru henni sjálfsagt
afar þakklátar fyrir stoð-
sendinguna því úrslitin í
gær þýða að titillinn er nú í
höndum Malmö. Liðið er
jafnt Tyresö að stigum og
á leik til góða gegn Hammarby, sem er þegar
fallið, fyrir leikinn gegn Örebro í loka-
umferðinni. sindris@mbl.is
Edda færði Þóru og Söru nær titli
Edda
Garðarsdóttir
HANDBOLTI
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
„Þetta var frábær leikur hjá liðinu
og gaman að vinna stórsigur í fyrsta
heimaleik liðsins frá upphafi í
Meistaradeildinni,“ sagði Arnór
Atlason, fyrirliði danska meistaral-
iðsins AG Köbenhavn, við Morg-
unblaðið eftir tólf marka sigur á
ungverska liðinu Pick Szeged, 36:24,
í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.
Á sjötta þúsund áhorfendur í
Bröndby-höllinni sáu AG Köben-
havn fara á kostum en liðið hefur
unnið báða leiki sína í keppninni og
er til alls líklegt.
„Við náðum strax góðum tökum á
leiknum og það má segja að við höf-
um gert út um leikinn í fyrri hálf-
leik. Stemningin í höllinni var frá-
bær. Það var uppselt á leikinn og við
fengum gríðarlega góðan stuðning
frá áhorfendum. Það var mikilvægt
fyrir okkur að spila vel og vinna eft-
ir allt sem á undan er gengið,“ sagði
Arnór en tveimur af þremur þjálf-
urum liðsins var sagt upp störfum í
síðustu viku og nú er Svíinn Magnus
Andersson einn við stjórnvölinn.
„Þetta er frábær byrjun hjá okk-
ur í Meistaradeildinni en nú fer róð-
urinn að þyngjast. Næsti leikur er á
móti Montpellier og svo eru það
leikir á móti Ademar Leon og Kiel.
Það verður bara tilhlökkun að spila
þessa leiki,“ sagði Arnór sem sneri
aftur inn í liðið eftir meiðsli sem
hafa verið að hrjá hann í baki
undanfarnar vikur.
„Ég gat spilað í tíu mínútur í
seinni hálfleik. Ég vildi ekki taka
frekari áhættu því ég er ekki nógu
góður í bakinu. En ég gat leyst
Snorra aðeins af hólmi og það var
fínt,“ sagði Arnór.
Stóskyttan Mikkel Hansen fór
mikinn í liði AG Köbenhavn en hann
skoraði 10 mörk í leiknum. Guðjón
Valur Sigurðsson skoraði 4 mörk,
Snorri Steinn Guðjónsson 3 og Arn-
ór Atlason 2 mörk. Ólafur Stef-
ánsson er enn frá vegna meiðsla en
að sögn Arnórs er hann allur að
koma til. „Við hlökkum mikið til að
fá hann í gang og með tilkomu hans
mun liðið bara styrkjast. Við vonum
að hann verði mættur í slaginn þeg-
ar kemur að stóru leikjunum,“ sagði
Arnór.
Seigla hjá lærisveinum Dags
Dagur Sigurðsson og lærisveinar
hans í þýska liðinu Füchse Berlín
hrósuðu sigri gegn Þóri Ólafssyni og
félögum hans í pólska liðinu, Kielce.
Lokatölur urðu 30:27, en leikurinn
var æsispennandi. Það var ekki fyrr
en rétt undir lok leiksins sem Berl-
ínarliðið seig fram úr við mikinn
fögnuð áhorfenda en 6.000 manns
börðu leikinn augum.Kielce var yfir
eftir fyrri hálfleikinn, 15:14, og Pól-
verjarnir undir stjórn Bogdan
Wenta voru skrefinu á undan þar til
á lokakafla leiksins. Alexander Pet-
ersson skoraði 3 mörk fyrir Füchse
Berlín en Þórir Ólafsson skoraði 1
fyrir Kielce.
Accambray hetja Montpellier
Kiel, undir stjórn Alfreðs Gísla-
sonar, mátti þola sitt fyrsta tap á
leiktíðinni en liðið tapaði á heima-
velli fyrir franska meistaraliðinu
Montpellier, 24:23. Aron Pálm-
arsson gat ekki spilað með Kiel
vegna meiðsla en eins og fram kom í
Morgunblaðinu á dögunum varð
hann fyrir því óláni að togna aftan í
læri.
Spennan var mikil í leiknum. Kiel
var fjórum mörkum yfir eftir fyrri
hálfleikinn, 14:10, en Frakkarnir
komu öflugir til leiks í seinni hálfleik
og skoraði William Accambray sig-
urmarkið 20 sekúndum fyrir leiks-
lok. Nikola Karabatic og Vid Kaft-
incik sneru aftur á sinn heimavöll en
þeir yfirgáfu Kiel á síðasta ári.
Frábær leikur hjá liðinu
AG Köbenhavn vann 12 marka sigur í fyrsta heimaleiknum í Meistaradeildinni
Fyrsti tapleikurinn hjá Kiel Góður endasprettur hjá lærisveinum Dags
Morgunblaðið/Gísli Baldur
Spilaði Arnór Atlason lék með AG á ný en bakmeiðsli hafa verið að hrjá kappann.
Ólafur Guð-mundsson
skoraði sín fyrstu
mörk fyrir Nord-
sjælland í Evr-
ópukeppninni í
handknattleik
þegar liðið lagði
tékkenska liðið
Dukla Prag,
31:24, í fyrri viðureign liðanna í 2.
umferð EHF-keppninnar. Ólafur er
í láni hjá Nordsjælland en hann er
samningsbundinn stórliðinu AG Kö-
benhavn.
Einar Ingi Hrafnsson átti stóranþátt í þriggja marka sigri
Mors-Thy á Lemvig í dönsku úrvals-
deildinni í handknattleik, 31:28.
Mors-Thy var fjórum mörkum und-
ir, 26:22, þegar um sjö mínútur voru
til leiksloka.
Lemvig komst í 18:13 og hélt for-
ystunni lengi vel en Einar Ingi jafn-
aði metin í 27:27 þegar þrjár mín-
útur voru eftir. Hann gerði svo út
um leikinn þegar hann kom Mors-
Thy í 30:28 rúmri hálfri mínútu fyrir
leikslok. Einar skoraði fjögur mörk í
leiknum.
LærisveinarGuðmundar
Þórðar Guð-
mundssonar í
þýska liðinu
Rhein Neckar-
Löwen sluppu
með skrekkinn
þegar þeir mættu
Melsungen í
þýsku A-deildinni í handknattleik.
Liðin skildu jöfn, 30:30, og jafnaði
norski landsliðsmaðurinn Borge
Lund metin 10 sekúndum fyrir leiks-
lok. Róbert Gunnarsson skoraði
fjögur af mörkum Löwen.
Björgvin Gúst-avsson,
landsliðs-
markvörður í
handknattleik,
átti stórleik í
marki Magde-
burg þegar liðið
burstaði Hütten-
berg, 33:22, í
þýsku A-deildinni. Magdeburg var
einu marki undir eftir fyrri hálfleik-
inn en þjálfari liðsins ákvað að setja
Björgvin í markið í seinni hálfleik og
það virkaði vel. Björgvin lokaði
marki sínu á löngum köflum og fékk
aðeins á sig sex mörk.
Sigurbergur Sveinsson átti enneinn stórleikinn með svissneska
liðinu Basel í gær en hann skoraði 11
mörk þegar liðið lagði Endingen að
velli í svissnesku úrvalsdeildinni.
Enski miðjumaðurinn Ian DavidJeffs skrifaði í gær undir
þriggja ára framlengingu á samningi
sínum við ÍBV en hann kom til ÍBV á
sínum tíma frá enska félaginu
Crewe. Síðan þá hefur hann spilað
með Fylki, Val og Örebro, áður en
hann sneri aftur í herbúðir ÍBV.
Fólk sport@mbl.is
Þjóðverjinn Sebastian Vettel
tryggði sér í gær heimsmeist-
aratitil ökuþóra í formúlu-1 annað
árið í röð. Það gerði hann með
þriðja sætinu í japanska kappakstr-
inum sem fram fór í Suzuka. Jenson
Button á McLaren vann kappakst-
urinn með glæsibrag, rétt á undan
Fernando Alonso á Ferrari sem
veitti honum harða keppni seinni
hlutann. Á næstsíðasta hring stöðv-
aði Button hins vegar sókn Alonso
með hraðasta hring keppninnar.
Eftir að yfir
marklínuna var
komið beið But-
ton ekki með sig-
urfögnuð eftir að
inn að bílskúrum
væri komið, held-
ur sveigði strax
út í brautarkant
og nam staðar
fyrir framan að-
alstúkuna. Stóð
svo upp úr bílnum og fagnaði sigri
við mikinn fögnuð áhorfenda.
Vettel hóf kappaksturinn af rás-
pól en varð að gera sér þriðja sætið
að góðu á endamarki. Hans komst í
tæri við Alonso á síðustu 10 hringj-
unum en Ferrari-þórinn varði stöðu
sína af grimmd og Vettel komst
aldrei nógu nærri til að hafa nógu
mikið gagn af hreyfivængnum til
framúrtöku.
Félagi Vettels, Mark Webber,
varð fjórði, og blasir titill bílsmiða
því við liðinu annað árið í röð, auk
heimsmeistaratitils ökumanna. Vet-
tel er yngsti ökuþórinn til að vinna
titilinn tvö ár í röð, en hann er að-
eins 24 ára og 99 daga gamall.
Serio Perez hjá Sauber sló félaga
sínum og heimamanninum Kamui
Kobayashi við og lauk keppni í átt-
unda sæti, en milli hans og Webbers
urðu Lewis Hamilton á McLaren,
Michael Schumacher á Mercedes og
Felipe Massa á Ferrari. Fyrsta tug-
inn fylltu svo Vitaly Petrov á Re-
nault og Nico Rosberg á Mercedes.
Vettel heimsmeistari 2. árið í röð
Þjóðverjinn þriðji í Suzuka og það nægði honum til að hampa heimsmeistaratitlinum
Sebastian
Vettel