Austurland - 15.01.1965, Blaðsíða 3
Neskaupstað, 15. janúar 1965.
AUSTURLAND
/
3
Nýr símstjóri
Gissuri Ö. Erlir.gssyni, sem ver-
ið hefur stöðvarstjóri á Eiðum,
hefur verið veitt emtoætti sím-
stjóra og póstmeistara hér í bæ.
Úr starfsskýrslu
Sjúkrahússins
Framhald af 1. síðu.
Rétt er að geta þess, að í tveLm
síðasttöldu liðunum, eru tiltölulega
fáir, sem eru innritaðir sjúklingar.
Jón R. Árnason hætti störfum
við sjúkrahúsið í .maíiok en við
yfirlæknisstöðunni tók Sverrir
Haraldsson og hóf hann starf sitt
hér um mánaðamót júní og júlí.
Hér var þvi um eins mánaðar-
skeið enginn starfandi handlæknir
við sjúkrahúsið og urðu sjúkling-
ar sem slíkrar læknishjúlpar
þurftu við, að leita annað. Christ-
ine Guttormsson aðstoðarlæknir
sá um sjúkrahúsið meðan þetta
mil'libi.sástand ríkti hér. Á þess-
um sama tíma vantaði einnig
héraðslækni í bæinn og varð hún
einnig að sinna því embætti þar
til úr rættist.
Á árinu dvöldu hér fleiri sjúk-
hngar en nokkurn tíma áður. Ár-
ið 1962 er næsta hæst ár með
sjúklingafjölda, en það ár dvöldu
á sjúkrahúsinu 484 sjúklingar.
Heilsuverndarstöðin. 1 heilsu-
Verndarstöðinni voru framkvæmd-
P.r alls 817 skoðanir og læknisað-
gerðir. Hér er um að ræða eftir-
lit með heilsu fyrrv. berklasjúk-
linga, eft'rlit með verðandi mæðr-
um og eftirlit með ungbörnum,
þar með ónæmisaðgerðir á böm-
um til 7 ára aldurs. S.Þ.
Hvi,ð er í Iréttuin?
Framh. a£ 2. síðu.
svo ætlunin að halda því verki
áfram Hafnarbætur eru lífsspurs-
mál fyrir okkar byggðarlag.
Áð venju er atvinnulíf hér
dauft yfir veturinn. Helzt er það
byggingavinna sem hér er stund-
uð þessa dagana og eru það að-
allega byggingaframkvæmdir á
vegum síldarverksmiðjunnar, se.n
unnið er að.
Utgerð er hér engin og er hafn-
leysin i sjálfsagt fyrst og fremst
um að kenna.
Og nú er verið að undirbúa
þorrablótið, sem bráðlega verður
haldið í félagsheimilinu Mikla-
garði. Það verður að venju hin
glæsilegasta hátíð með almennri
þátttöku héraðsbúa.
Ur bænum
Afmæli.
Jón Guðmundsson, framkv.stj.,
Melagötu 1, varð 60 ára 13. jan.
— Hann fæddist á Þrasastöðum í
Holtshreppi, Skagafjarðarsýílu, e.r
hefur verið hér búsettur síðan
1948.
Hó'míríjur SveÍRsdóttir, fyrrom
húsmóðir, nú á elliheimilinu, varð
70 ára 13. jan. -—Hún fæddist á
Kirkjubóli í Vaðlavík en hefur átt
hér heima síðan 1912.
Hjónaband
Hinn 13. jan. gaf sóknarprest-
urinn í Neskaupstað, séra Árni
Sigurðsson, saman í hjónaband,
ungfrú Sólrúnu Jónsdó tur, Mela-
götu 1 og Pál Þorgfsson, verka-
mann frá Eyrarlandi í Hofshreppi,
Skagafj a rðarsýslu.
Síldveiði í Mecal-
landsbugt
Mikil síld virðist nú í Meðal-
landsbugt og eru margir bátar nú
að veiðum á þeim slóðum. Mest af
síidinni er flutt til Vestmanna-
eyja, en nokkuð ehinig til Faxa-
flóahafna.
Enn virðist þó mikil síld í
Austurdjúpi, en ógæftir hafa
b.aælað veiðum.
í fyrrinótt og í nótt var mest
veiði ausfan Ingólfshöfða í námd
við Tvísker. Er sú síld b’andaðri
en hin, sem veiddist í Meðallands-
bugt.
Tapafl-FuTtátil
Tapazt hafa gleraugu í ljósu
hulstri.
Finnandi vinsamlega skili þeim
til Hjálmfríðar Jóhannsdóttur,
Blómsturvöllum 16. Sími 176.
Nú liður senn að því, að úrslit
verði birt í Jólagetraun Austur-
lands.
Blaðið vill því minna á, að
Iausnir þurfa að berast fyrir 25.
janúar n. k.
Urslitin verða birt í blaðinu 29.
janúar.
Eins og fram var tekið í jóla-
blaðinu, verður einhver ný barna-
eða unglingabók valin til verð-
launa.
Utanáskriftin er: Jólagetraun
Austurlands, Neskaupstað.
Fró Iðnskólanum
Nemendur 4. bekkjar mæti mánudeginn 18. janúar kl. 1.30
e. h.
Skólastjóri.
lólagetraunin
nruVWVVVl>iVUVV*»*»*<-*i------—' ——-
Egilsbúð W
FATlMA
Islenzkur texti. Sýnd föstudag kl. 8. — Síðasta sinn.
GRÍMUD AN SLEIKUR
laugardag kl. 9.
ÁSTARHVATIR Á KORSÍKU
Sýnd sunnudag kl. 3. — Síðasta sinn.
UPPREISNIN Á BOUNTY
Sýnd sunnudag kl. 5. íslenzkur texti. Hækkað verð. Siðasta
smn.
HELDRI MAÐUR SEM NJÓSNARI |
Spennandi og skemm.tileg njósnrmynd í sérflokki. — Sýnd
sunnudag kl. 9.
rWWWWWWWVWWWWWVSA^WVWWWVW^/WWWWWVWWWWVVWVWWWWV V^ -
Óskum öllum viðskip ‘ amönnu m og' starfsfólki
r r
nyars
og þökkiun ánægjuleg viðskipti á nýliðnu ári.
Nípa sf.
Neskaupstað.
Reglur
um gjalddaga útsvara í Neaka.upstað 1965.
1. Hver útsvarsgjaldandi í Neskaupstað skal með fimm jöfnum
greiðslum greiða fyrirfram upp í útsvar ársins 1965 upp-
hæð, sem svarar til helmings þess útsvars, er honum bar að
greiða árið 1964.
2. Gjalddagar fyrirframgreiðslunnar skulu vera 1. febrúar, 1.
marz, 1. apríl, 1. maá og 1. júni 1965.
3. Álagt útsvar að frádregnu því, sem gjaldandi hefur greitt
fyrirfram, ber honum að gre ða með f mmi jöfnum greiðslum
1. ágúst, 1. september, 1. október, 1. nóvember og 1. desem-
ber 1985.
4. Allar greiðslur samkvæmt þassari reglugerð skulu inntar af
höndum í heilumi krónum.
5. Vangreiðsla á útsvarshluta snmkvæmt reglum þessum veld-
ur þvi, að allt útsvarið fellur í eindaga 15 dögum eftir gjald-
dagann, þó ekki fyrr en 15. næsba mánaðar eftir að álagn-
ingu er lokið.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 47. gr. laga nr.
69 28. apríl 1962 um tekjustofna sveitarfélaga og birtist hér
mel öllum hlutaðeigandi til 'ftirbreytni.
Bæjarstjórinn í Neskaupstað, 13. jan. 1965.
Bjarni Þórðarson,
Öl’.um þe:m, fjær og nær, sem h iðruðu mig á sextugsafmæli
mínu 13. jan., með heillaóskum, gjöfum og heimsókum, sendi
ég alúðarþakkir.
Jón Guðm ndsson.