Austurland - 29.01.1965, Qupperneq 1
AmXurlmd
Má/gagn sósíalista ó Austurlandi
15. árgangur. Neskaupstað, 29. janúar 1965. 4. tölublað.
Fj árhagsáællun hafnar-
sjóðs Neskaupsíaðar
Hin miklu aflabrögð, sem hér
hafa verið um .skeið, hafa orkað
þannig á hag hafnarsjóðs, að
þótt fjárhagsáætlanir hans haii
jafnan þótt óvarlegar að undan-
förnu, hafa tekjurnar ætíð farið
fram úr áætlun. Aldrei hafa tekj-
■urnar þó reynst eins háar og á
síöasta ári og aldrei farið eins
'"nikið fram úr áætlun. Sjálfsagt
hafa nágrannahafnirnar sömu
sögu að segja.
Pjárhagsáætlun hafnarsjóð fyr-
ir þetta ár lá fyrir síðasta
bæjarstjórnarfundi til fyrri um-
ræðu. Áætlunin er byggð á af-
komu síðast árs og því djarfleg,
eins og áður. Niðurstöðutölur
hennar eru kr. 2.545.000.00.
Tekjurnar eru áætlaðar sem
kér segir:
Vörugjöld kr. 1.400.000
Skipagjöld (hafnargjöld,
kryggjugj., festargjöld,
Ijósagjöld) 375.000
Tekjur af eignum (drátt-
arbraut, hafnarhús, upp-
fyllingar, vogir) 720.000
Vmislegt 50.000
Kr. 2.545.000
Gjöldin eru áætluð þessi:
Reksturskostn. fasteigna 300.000
Vextir og afb. lána 1.100.000
Launagreiðslur o. fl. 250.000
Til sjómannastofu 15.000
Til hafnarframkv. 800.000
Vmislegt 80.000
Kr. 2.545.000
Eins og frá var sagt í síðasta
blaði, er gert ráð fyrir því á fjár-
hagsáætlun bæjarsjóðs, að varið
varði 1 ímillj. kr. til nýrra hafn-
arframkvæmda. Samtals eru á-
æflaðar til hafnarframkvæmda í
Neskaupstað í ár 1.800.00 kr., og
að meðtöldu geymslufé á að vera
hægt að leggja fram á þriðj í
inúlijón í þessu skyni. Þar við
bætist svo ríkisframlag og lán-
tökur. Verður að teíja, að fjár-
hags’.ega horfi ekki illa um hafn-
arfr amkvæmdir í Neskaupstað á
þessu ári.
Sjómannnsfoía í Neskaupstað
Það hefur nú verið ákveðið, að
skrifstofur bæjarins verði í vor
fluttar í félagsheimilið, sem nú
er unnið að að fullgera.
Jafnframt hefur verið ákveðið,
að hefja rekstur sjómannastofu í
núverandi skrifstofuhúsnæði bæj-
arins og er að því stefnt, að hægt
verði að hefja rekstur hennar
með byrjun síldarvertíðar í vor.
Svo er ráð fyrir gert á fjár-
hagsáætlun bæjarins, að bæjar-
sjóður greiði til sjómannastofu á
þessu ári 200 þús. kr. Hafnar-
nefnd hefur ákveðið, að greiða
úr hafnarsjóði 15 þús. kr. styrk
til sjómannastofunnar og á fjár-
lögum ríkissjóðs eru veittar til
hennar 25 þús. kr. En það er
fjarri því, að þetta fé hrökkvi
fyrir stofn- og reksturskostnaði.
Stofnkostnaður hlýtur að verða
þó nokkur. Kaupa þarf húsgögn
og áhöld til tómstundagamans.
Húsnæðið þarfnast nokkurra
endurbóta með tilliti til þessa
nýja hlutverks, t. d. þarf að
kcnna þar upp litlu eldhúsi.
Hugmyndin er, að leita eftir
fjárstyrk hjá þeim fyrirtækjum,
Áðalfundur
Sósíahstafélags Neskaupstaðar verður haldinn í félagsheimil-
inu mánudagskvöldið 1. febr. n. k. kl. 8.30.
DAGSKRÁ:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Tillaga urn stofnun Atþýðubandalags í Neskaupstað.
3. Bæjarmál.
4. Önnur mál.
Stjórnin.
! sem mest skipti hafa við sjó-
menn og mest hagnast á því, að
þeir komi til bæjarins. Efast ég
ekki um, að þeirri májtaleátan
verði vel tekið.
Húsnæðið er að vísu ekki eins
hentugt til þessa reksturs og
æskilegt væri. Einkum þyrfti hús-
rý.ni að vera meira. En ekki verð-
ur á allt kosið. Á öðru húsnæði
er ekki völ, en að því verður að
steína, að koma á fót góðu sjó-
mannaheimili, sem í öllu svarar
til kröfum tímans.
En þó húsnæðið mætti vera
hentugra, efaat ég ekki um, að
þessi starfsemi verður vel metin
af sjómönnui.n og kemur að mikl-
um notum.
Sjómennirnir flytja hér að
landi mikil verðmæti, sem eru
undirstaða mjög almennrar vel-
megunar og mikilla framfara.
Þrátt fyrir miklar sögur nm
slæma hegðun þeirra á ýmsum
höfnum, hafa þeir jafnan hagað
sér vel hér. Þetta hvoru tveggja
eigum við að sýna að við kunn-
um að meta, og fyrirætlanirnar
ui.n sjómannastofu ættu að sýna,
þó í litlu sé, hug okkar til sjó-
mannanna. Það er von manna, að
þeir geti fundið þarna nokkurt
athvarf í landlegum, og eytt
tímanum við lestur, spil, tafl,
samræður o. þ. h.
Ekki er ástæða til að ætla, að
sjómannastofan hafi nokkrar
teljandi reksturstekjur. Þær veit-
ingar og það annað, sem þar
kann að verða til sölu, verður
áreiðanlega ekki verðlagt með
hagnaðarsjónarmið í huga. Til-
gangur sjómannastofunnar verð-
ur ekki aö klófesta aura sjó-
ananna, heldur sá einn, að veita
þeim athvarf. Og það athvarf
gæti vissulega orðið til þess, að
þeim héldist ögn betur á kaupi
sinu en eila.
Úrslit jólaget-
raunar Aust-
urlands
f
í gær var dregið um verðlaun-
in í jólagetrauninni. Alls bárust
7 réttar lausnir. Svör bárust víðs
vegar að af Austfjörðui.n, allt frá
Borgarfirði og suður til Horna-
fjarðar.
Þó að ekki bærust nema 7 svör,
fullkomlega rétt, voru mörg svör
með aðeins smávægilegum vill-
um, en auðvitað var aðeins dreg-
ið úr þeim svörum, sem voru
alveg rétt.
Við birtuim hér svörin við
spurningum getraunarinnar:
1. Myndin er af Davíð Stefáns-
syni frá Fagraskógi.
2. Þorpið við Borgu’ jörð eysiri
liei ir Bakkagerði.
3. Sauðárkrólnir e ■ við Skaga-
fjörð.
4. Kirkjan er í Búðakauptúni
við Fáskrúðsf jörð.
5. Myndin er frá Skriðuklajastri
í Fljótsdal.
6. Auður djúpúðga bjó í
Hvammi í Dölum.
7. Myndin er frá Eiðum.
8. Vísan er eftir Jónas Hall-
grímsson.
9. Jón Trausti hét réttu nafni
Guðmundur Magnússon.
10. Alþingi var fyrst haldið árið
930 á ÞingvölS im.
Eins og fyrr var sagt, var dreg-
ið um verðlaunin í gær. Það gerði
8 ára stúlka í barnaskólanum,
Helena Lind Birgisdóttir.
Og sá hamingjusami, sem verð-
launin hlýtur, er Edva'd S. Ragn-
arsson, Hátúni, Djúpavogi, en
hann er 13 ára.
Við höfum valið í verðlaun bók-
ina Víkingaferð til Surtseyjar,
eftir Ármann Kr. Einarsson, og
verður hún send með fyrstu ferð.
Að lokum þakkar Austurland
öllum þeim, sem þátt tóku í get-
rauninni og óskar Eðvald til
hamingju með sigurinn.
Haft er í
flimtingum
að Einar ríki tapi heil ósköp á
frystihúsum sínum;
að þess vegna hafi hann nú
keypt sér pientsmiðju til að
reyna að græða;
að þá geti hi nn I klega efnt
gömul kosningaloforð og
bjálpað upp á Sverri líka;
að „Þór“ muni njó a góðs af
þessu nýja braiki — og
mundi ekki af veita;
að í næsta jólablaði Þórs ve:3i
clíu loimál úthýst, en að-
eins birtar auglýsingar;
að ekki liugsi íhaldið sér að
láta bókvitið í askana.