Austurland - 03.09.1965, Side 4
4
r
r
AUSTURLAND
Neskaupstað, 3. september 1965.
Tekj uskatlurinn þykir hár
Ekki v,arð annars vart, en að
allur þorri útsvarsgjaldenda
yndu sæmilega því útsvari, sem
á þá var lagt í sumar og margir
höfðu búizt við stærri skammti.
Öðru máli gegnir um tekju-
skattinn. Mikillar óánægju gætir
með hann. Margir standa nú með
í höndunum gjaldseðla sem sýna,
að tekjuskatturinn er tiltölulega
litlu lægri en útsvörin og í ein-
staka tilfellum hærri. 1 heild
sinni er tekjuskattur einstaklinga
hér í bæ nærri því að svara til
50% útsvarsupphæðarinnar.
Tekjuskattur félaga er tiltölu-
lega hærri.
Óánægjan eðlileg
Síðan viðreisn hófst hefur rík-
isstjórnin verið önnum kafin við
að lækka skattana. Að heita imá
á hverju ári hefur ríkisstjórnin
birt fregnir af stórfelldum
skattalækkunum og stjórnarblöð-
in hafa talið skattalækkanirnar
með helztu afrekum ríkisstjórn-
arinnar.
Samtímis því, sem ríkisstjórnin
hefur keppzt við að „lækka“
beinu skattana, hefur hún verið1
iðin við að hækka þá óbeinu,
einkum söluskattinn. Með því að
teija almenningi trú um, að
beinu skattarnir, tekjuskattur og
útsvar, hefðu stórlækkað, átti að
fá hann til að una hækkun ó-
beinu skattanna. Oft hefur mátt
skilja málflutning stjórnarblað-
anna svo, að í raun og veru
væri búið að afnema tekjuskatt-
mn, nema þá af allra hæstu
tekjum.
En nú hljóta menn að sjá
hversu ósvífnum blekkingum þeir
hafa verið beittir. Ríkisstjórnin
hefur nú rembst við það í sex ár,
að iækka tekjuskattinn og næst-
um árlega gefið út boðskap um
stórkostlega skattalækkun.
Og hver er árangurinn?
1 stuttu imáli isagt er árangur-
inn sá, að tekjuskattur er nú
margfalt hærri en í upphafi við-
reisnar.
Þokkaleg skattalækkun það.
Hér í blaðinu hefur því verið
haldið' fram, að sú stefna í
skattamálum væri hagstæðust
almenningi, að óbeinir skattar
væru sem lægstir og að skatt-
heimtan færi fram í formi beinna
skatta að langmestu leyti. Enn-
freimur að undanþiggja bæri
eðhlegar þurftartekjur allri
skattlagningu. En í framkvæmd
hefur stefna ríkisstjórnarinnar
verið sú, að stórhækka hvoru-
tveggja, beina skatta og óbeina.
Er þess ekki að vænta, að al-
menningur uni vel slíkri skatt-
píningu.
Pálsbréf hin nýju
Að undanförnu hefur rignt yf-
ir Neskaupstað, og sjálfsagt
einnig önnur byggðarlög á Aust-
urlandi, orðsendingum frá skatt-
stofunni á Egilsstöðum. Líkur
benda til, að mikill meirihluti
framteljenda hafi fengið þessar
kveðjur.
Menn eru nú farnir að nefna
þessi bréf Pálsbréf, eftir ábyrgð-
armanni þeirra, en hvort þau
þola að snilld og boðskap sam-
jöfnuð við hin fornu Pálsbréf
biblíunnar, skal ósagt látið. Sum
hin nýj.u Pálsbréf standa þó á-
reiðunlega framar hinum fornu í
smámunasemi og skáldskap.
Hér er um að ræða of bók-
staflega framkvæmd á lagafyrir-
mæium uim tilkynningarskyldu
þegar framtali er breytt. Breyt-
ingar, sem engu máli skipta, er
ástæðulaust að tilkynna, svo
sem breytingar á framtölum
þeirra, sem enga skatta geta
fengið. Þetta er eitt dæmið um
óþarfa skriffinnsku í þjóðfélag-
inu. Annað dæmi um skriffinnsk-
una er það, að þeim, sem enga
skatta bera, skuli sendir álagn-
ingaseðlar.
Kirkjugarðsgjaldið
Einn er sá skattur, sem ekki
er tilgreindur á gjaldseðlinum.
Það er kirkjugarðsgjaldið, sem
svarar til l!/2% útsvara, eða um
200 þús. kr. hér í bæ. Síldar-
vinnslunni er ætlað að greiða um
100 þús. kr. í kirkjugarðsgjald.
Þetta er fáránleg skattheimta.
Fróðlegt væri að vita hvað er
gert við þetta fé. Ekki getur
nema lítUl hluti þess — senni-
iega ekki fram yfir tuttugasta
Nefnd sú, er skipuð var vegna
kalskemmdanna í túnum á
Austurlandi, hefur nú sent land-
búnaðarráðuneytinu skýrslu um
störf sín og tillögur um hvernig
mæta skuli þeim vanda, sem við
blasir á Austurlandi.
Meginátriðin í tillögum nefnd-
arinnar eru:
1. Útvegað verði og sent austur
eins mikið hey og bændur þar
fara fram á og bændum eystra
þegar gert Ijóst, fyrir hvaða
verð þeir geta fengið hey.
2. Bjargráðasjóður veiti lán til
heykaupanna og óafturkræfan
styrk til bindings heyjanna
og flutnings á austfirzkar
hafnir.
3. Skorti Bjargráðasjóð fé, leggi
ríkissjóður honum til fjár-
magn eftir þörfum.
Tillögur þessar sýnast vera
mjög skynsamlegar og líklegar
til að koma að notum. Ölíklegt
er, að bændur telji sér hag í
hluta — gengið til þarfa kirkju-
garðsins.
Að sjálfsögðu verður að sjá
kirkjugörðum landsins fyrir fé.
Kirkjugarðarnir eiga að vera
friðhelgir reitir, fagrir og vel
hirtir, en í því er áreiðanlega
mikill misbrestur víða.
Engin ástæða virðist til að
safna stórfé í kirkjugarðssjóð
og fráleitt að verja þessu fé á
nokkurn hátt í þarfir kirkjunn-
ar. Borgarar landsins eru skatt-
lagðir sérstaklega til að viðhalda
guðs kristni í landinu, líka þeir,
sem eru lílið hrifnir af íslenzku
þjóðkirkjunni
Og úr því löggjafinn er svona
rausnarlegur við kirkjugarðs-
sjóðina, sýnist sjálfsagt að verja
fénu í þarfir þeirra. Hér í bæ
imætti t. d. stofna nýtt embætti,
embætti kirkjugarðsvarðar. Satt
að segja þarf kirkjugarðurinn á
starfsmanni að halda sumar-
langt — mann, sem sæi um að
slá hann, hirti um vanrækt leiði,
dyttaði að girðingunni o. s. frv.
— Kirkjugarðurinn á auðvitað
ekki að verða neinn skemmti-
staður, en það gæti orðið mörg-
um manninum sálarbót að koma
í vel hirtar kirkjugarð.
Ef mönnum finnst þetta í of
mikið ráðizt, gæti ef til vill tek-
izt samvinna með bæjarstjórn og
stjórnendum kirkjugarðsins um
ráoningu manns til að sjá um
kirkjugarðinn og til að vinna
ýms störf í skrúðgarðinuim, en
mikill hluti hans er einmitt gam-
all grafreitur.
því, að fækka gripum, eigi þeir
kost á ókeypis flutningi heyj-
anna austur og hagstæðum lán-
um til að kljúfa kaupin.
Gjafahey
Bændur á Suðurlandi, í Borg-
arfirði og á Snæfellsnesi hafa í
sumar aflað óvenjumikilla heyja.
Margir þeirra hafa látið í ljósi
þá skoðun, að þeir ættu að rétta
austfirzkum bændum hjálpar-
hönd og senda þeim hey að
gjöf.
Nefndin, sem í upphafi var
getið, tók fram í skýrslu sinni,
að henni litist vel á þessa hug-
mynd og lagði til, að kannað
yrði hversu mikið hey væri fá-
anlegt með þessu imóti. Fól land-
búnaðarráðuneytið Búnaðarfé-
laginu að kanna hversu mikið
hey bændur annars staðar á
landinu vilja gefa bændum á
Austurlandi.
Framhald á 2. síðu.
Úr skattskráuni
Á skattskrá Neskaupstaðar
eru 672 nöfn einstaklinga. Tæp-
lega helmingur þeirra, eða 332,
bera tekjuskatt, samtals kr.
2.784.437.00. Eignarskatt greiða
99 einstaklingar, samtals kr. 60.
348.00. Samanlagður tekju- og
eignarskattur einstaklinga er því
kr. 2.844.785.00.
Á skatt,skránni eru nöfn 8
annarra tegunda einstaklings-
skatta. Eru þeir tilgreindir hér á
eftir og tölu gjaldenda getið í
svifum. Námsbókagjald (143)
kr. 32.175.00, kirkjugjald (480)
kr. 84.360.00, Almannatrygginga-
gjald (482) kr. 1.362.858.00,
slysatryggingagjald (136) kr.
50.255.00, lífeyristryggingagjald
(88) kr. 51.868.00, atvinnuleysis-
tryggingagjald (67) kr. 19.377.
00, launaskattur (48) kr. 45.
499.00 og iðnlánasjóðsgjald (17)
kr. 22.400.00.
Hæstfu skattar
Eftirtaldir gjaldendur greiða
hæstan tekju- og eignarskatt
einstaklinga:
Guðgeir Jónsson, bílstj. 74.477.00
Sveinbj. Sveinsson, útgm.
og skipstjóri 61.439.00
Jón S'k. Ölverss. sk.stj. 52.167.00
Hermann Lárusson
framkvæmdastj. 52.058.00
Jón Einarsson,
Naustahvar.imi 56 51.649.00
Sigurþ. Sigurðss. vélstj. 43.004.00
Birgir Sigurðss. skipstj. 40.877.00
Leó Sveinsson, vélstj. 35.287.00
Ölver Guðm. útgm. 34.196.00
Guðjón Marteinss.
verkstjóri k 33.460.00
Jón L. Baldurss. sp.stj. 32.560.00
Jón Finsson bílstj. 32.069.00
Gylfi Gunnarss. bílstj. 31.687.00
Tekjuskattur félaga
Tekjuskatt greiða 36 félög,
samtals kr. 4.505.097.00. Auk
þess greiða félögin stórar fúlg-
ur í önnur gjöld og skatta.
Þessi félög greiða hæstan
tekjuskatt:
Síldarvinnslan hf. 3.782.328.00
Drífa hf. Netagerð Friðriks 168.306.00
Vilhjálmss. hf. 107.544.00
Sæsilfur hf. Verzl. Björns Björns- 97.061.00
sonar hf. 80.800.00
Kveðja frá
Bretlandi
Blaðinu hefur borizt bréf frá
enskum sjómanni, Luke Cain, bú-
settum í Hull. Hann dvaldist á
sjúkrahúsinu hér í 9 daga nýlega.
Biður hann fyrir kærar kveðjur
til starfsliðs sjúkrahússins og
þakkir fyrir góða umönnun. Hann
biður líka fyrir kveðju frá konu
sinni og krökkunum þeirra sjö.
Er þessu hér með komið á
framfæri eftir beiðni hins brezka
sjómanns.
Lagt tii að austfirzkum
bœndum verði veitt aðstoð