Austurland - 03.06.1966, Qupperneq 1
Málgagn sósíalista á Austurlandi
16. árgr.ngur. Neskaupstað, 3. júní 1966. 27. tölublað.
Nýkjörin bæjarstjórn Neskaupstaðar, talið frá vinstri: Gestur J. Ragnarsson, Sigfús Guð-
mundsson, Reynir Zoega, Kristinn Jóhannsson, Lúðvík Jósepsson, Sigurjón Ingvarsson, Jó-
hannes Stefánsson, Jóhann K. Sigurðsson og Bjarni Þórðarson. Ljósm.: Hjörl. Guttormsson.
Miklar framkvæmdir á
vegum Neskaupsiaðar
Vatnsveitan
Mjög miklar verklegar fram-
kvæmdir standa nú yfir á veg-
um> Neskaupstaðar eða eru að
hefjast.
Hafnarframkvæindir
Stórfelldastar eru framkvæmd-
irnar á vegum hafnarinnar. Vinna
vio' nýju dráttarbrautina er hafin
fyrir nokkru og er áætlað að
ljúka verkinu á þessu ári. Verð-
ur þá hægt að taka hér á land
400—500 lesta skip.
Innan skamms verður svo haf-
izt handa um gerð nýju liafnar-
innar við fjarðarbotninn og á að
ljúka fyrsta áfanga á þessu ári.
Verður þá hægt að afgreiða þar
stór flutningaskip og allmargir
bátar munu geta legið þar í ör-
uggu vari. Þó hér sé aðeins um
lítinn hluta væntanlegrar hafnar
að ræða, verður að þessu mjög
mikil bót frá því sem nú er.
Vegaframkvæmdir
í vetur átti að fylla upp veg-
arstæði í Víkinni, en vegurinn á
að koma niðri í fjöru framan við
öll sjóhús. Vegna mjög erfiðrar
veðráttu tókst þetta ekki, en að
undanförnu hefur verið unnið
kappsamlega að uppfyllingunni
og er hún nú vel á veg komin.
Eftir er þá að hlaða grjóti utan
á uppfyllinguna og gera stokka
fyrir þrjá læki gegnum uppfyll-
inguna. Verður reynt að hraða
þessu svo umferð geti hafizt um
veginn. Áformað hafði verið að
steypa þennan veg í haust, en af
því getur ekki orðið' fyrr en að
vori, vegna þess að ekki tókst að
undirbyggja veginn í vetur. Hann
verður ekki orðinn nógu þjappað-
ur í haust. Þessi nýi vegur verð-
ur nær 400 m langur og þegar
hann er fullgerður hefur vegur-
inn með ströndinni frá Þórhóls-
götu að Tröllavegi verið steypt-
ur, og auk þess tvær þvergötur.
Miklar aðrar vegaframkvæmdir
standa fyrir dyrum. Framkvæmd-
ir eru að hefjast við færslu veg-
arins frá síldarverksmiðjunni upp
fyrir Bjarg. Á næstunni mun svo
hafizt handa um að ljúka lagn-
ingu Blómsturvalla og við að
leggja vestari hluta Urðarteigs.
Síðar verður svo Víðimýri lögð
austur yfir Nesgil. I öllum þess-
um vegum þarf að skipta um
jarðveg að mestu eða öllu leyti
og gera þarf margar dýrar brýr.
Reynslan hefur kennt okkur, að
ekki borgar sig að gera vegi úr
mold, þar sem mold er í vegar-
stæði verður að skipta um jarð-
veg og undirbyggja vegina sem
fyrir steypu væri. Það er mjög
dýrt, en borgar sig þsgar frá
líður.
Innan skamms hefjast fram-
kvæmdir við nýju vatnsveituna
og á fyrsta áfanga að Ijúka í
haust. Gerðar hafa verið allar
nauðsynlegar mælingar varðandi
næsta áfanga og verður verk-
fræðilegum undirbúningi lokið í
vetur í þeirri von, að mögulegt
reynist að halda framkvæmdum
áfram næsta sumar. Annar á-
fangi verður pípulögn út hlíðina
að geymisstæði ofan við miðjan
bæinn og bygging 1300 rúm-
metra geymis.
íþróttahúsið
Hafnar eru að nýju fram-
kvæmdir við byggingu íþrótta-
hússins og er að því stefnt að
koma fyrsta áfanga undir þak á
þessu ári.
Barnaheimilið
Byrjað er að vinna við barna-
heimilisbygginguna. Er gert ráð
fyrir, að hún komist undir þak
í sumar og verður þá hægt að
vinna í vetur að miðstöðvarlögn,
einangrun o. þ. h.
--0—
Allt eru þetta stórframkvæmd-
ir, sem fullgerðar munu kosta
um 100 millj. króna.
Til stuðnings-
manna Alþýðu-
bandalagsins
Afráoið hefur verið að fresta
til haustsins fyrirhugaðri sam-
kornu til að fagna kosningasigri
Alþýðubandalagsins hér í bænum.
Ástæðan fyrir þessari frestun
er sú, að fjölmargir stuðnings-
menn Alþýðubandalagsins hafa
ekki aðstöðu, vegna anna og
fjarveru, til að sækja samkomur
um þessar mundir og hafa ein-
dregið mælzt til þess, að kosn-
ingafagnaðinum veröi frestað, og
telur Alþýðubandalagið sjálfsagt
að verða við þeim óskum.
Einhverntí-.na þegar vel stend-
ur á í haust, mun Alþýðubanda-
lagið efna til fjölbreyttrar og vel
undirbúinnar samkomu til að
fagna kosningasigrinum.
Það er von Alþýðubandalags-
ins, að allir stuðningsmenn þess
uni eftir atvikum vel við þessa
breytingu.
Aðalfundur
Verhlýðsfél. Reyðorfjarðar
Aðalfundur Verkalýðsfélags
Reyðarfjaroarhrepps var haldinn
föstudaginn 27. maí og gaf frá-
farandi formaður, Arthúr Guðna-
son, skýrslu um störf stjórnar á
sl. ári.
Fjárhagur félagsins er mjög
góður og sömuleiðis hagur
sjúkra- og styrktarsjóðs. Félagið
hefur sagt upp samningum sínum
við atvinnurekendur og mun hafa
samflot með öðrum félögum inn-
an Verkamannasambands Islands
um nýja samninga.
Stjórn félagsins skipa nú:
Form.: Þorkell Bergsson; vara-
form.: Gísli Benediktsson; ritari:
Sveinn Pétursson; gjaldkeri: Sig-
tryggur Þorsteinsson og með-
stjórnandi: Bergljót Einarsdóttir.
I Trúnaðarmannaráði eru:
Helgi Seljan, Páll Guðjónsson,
Jóhann Björnsson og Árnmar
Andrésson.
Síldin
Nokkur síldveiði hefur að und-
anförnu verið 200 mílur og
þar yfir frá Glettingsnesi.
En síldin hefur verið stygg og
erfitt að veiða hana, Síldarflutn-
ingaskipið Síldin hefur farið með
tvo farma suður og Dagstjarnan
með einn farm vestur.
Bræðsla hófst í Neskaupstað í
fyrrinótt og voru þá þrærnar
orðnar fullar fyrir nokkrum dög-
uim'.
Fjarðarheiði rudd
Nú er lokið að ryðja snjó af
Fjarðarheiði. Enn er vegurinn að-
eins fær bílum með. drifi á öllum
hjólum. .