Austurland - 03.06.1966, Side 4
4 f
austurla::d
Neskaupstað, 3. júní 1966.
Frd skMum MMdlons í Hesk.
Gagnfræðaskólanum var sagt
upp í Egilsbúð laugardaginn 28.
maí. 1 skólaslitaræðu sinni rakti
Þórður Jóhannsson skólastjóri
hið markverðasta úr starfsemi
skólans á liðnum vetri, ræddi
húsnæðismál skólans, gaf yfirlit
yfir hæstu einkunnir á vorprófi í
einstökum bekkjum og afhenti
nokkrum nemendum verðlaun.
Verður hér stiklað á nokkrum
atriðum úr ræðu hans.
Við skólann stunduðu nám í
vetur 107 nemendur í 7 bekkjar-
deildum. Fastráðnir kennarar
voru 5 auk skólastjóra og þar
að auki 8 stundakennarar. Tveir
ans, að það verði sem fyrst full-
búið. Auk ágætrar aðstöðu til í-
þróttaiðkana er þar gert ráð fyr-
ir húsnæði til kennslu í ýmsum
verklegum greinum.
Undir vorpróf gengu 14 nem-
endur 1 gagnfræðadeild, 11 í
landsprófsdeild, þar af tveir ut-
anskóla, 12 í miðskóladeild (III.
A), 34 í II. bekk og 35 í I. bekk,
Stóðust allir tilskilin próf, nema
tveir nemendur í II. bekk, sem
vantaði lágmarkseinkunn í sinn
hvorri grein, og þurfa þeir að
þreyta próf í þeim aftur. Nokkr-
ir nemendur áttu ólokið sund-
skyldu. Einn nemandi gat ekki
það Rúnar Björnsson, IV. bekk,
Sigríour Guðjónsdóttir III. A og
Kolbeinn Arason, II. bekk.
Rotary-klúbbur Neskaupstaðar
sýndi þann höfðingsskap að gefa
tvenn bókarverðlaun, annarsveg-
ar fyrir hæsta einkunn á gagn-
fræðaprófi og hlaut þau Katrín
Guðnadóttir, hinsvegar fyrir
hæst meðaltal í stærðfræði og
eðlisfræði á landsprófi. og hreppti
þau Hlöðver Smári Haraldsson.
—o—
Þess skal að lokum getið, að
gagnfræðingar og landsprófsnem-
endur fóru nú í vikunni í skóla-
ferðalag til Reykjavíkur og Suð-
urlands undir leiðsögn skólastjóra
og eins kennara. Er hópurinn
væntanlegur til baka á morgun.
H.G.
Engir sœkja um ýms eftirsóttustu
lœknishéruð landsins
nýir fastakennarar komu að skól-
anum sl. haust, þau Stella Ey-
myndsdóttir og Stefán Hannes-
son. Heilsufar var yfirleitt gott,
nema síðasta kennslumánuðinn,
en þá bar nokkuð á fjarvistum
sökum veikinda.
Merkasta nýjungin í skóla-
starfinu var sú, að nú var starf-
rækt við skólann fullgild gagn-
fræðadeild, það er IV. bekkur.
Taldi skólastjóri, að þessa áfanga
yrði síðar minnzt sem merkisvið-
burðar í skólasögu bæjarins.
1 húsnæðismálum skólans er nú
margt á döfinni og mörg verk-
efni óleyst. Sjálft skólahúsnæðið
er þegar orðið of lítið, og var
skólinn tvísetinn síðast liðinn
vetur. Hafinn er undirbúningur
að viðbótarbyggingu við skólann,
og er gert ráð fyrir að fjölga
kennslustofum um helming. Er
vonandi, að nauðsynleg fyrir-
greiðsla fáist frá stjórnarvöldun-
um, þannig að hægt verði að
hefja framkvæmdir hið fyrsta. —
Sama máli gegnir um heimavist-
arhúsnæði fyrir skólann. Þar
liggja teikningar fyrir og stend-
ur aðeins á fjárveitingu hins op-
inbera og leyfi fræðsluyfirvalda
til að hægt sé að byrja á bygg-
ingunni. En þótt heimavistin eigi
langt í land, verður þegar á
næsta hausti reynt að gera utan-
bæjarnemendum kleift að sækja
skólann með ráðstöfunum til
bráðabirgða. — Við hið væntan-
lega íþróttahús eru bundnar
miklar vonir, og er það ósk skól-
gengið undir próf sökum veik-
inda.
Ágætur árangur náðist á lands-
prófi að þessu sinni, þar sem all-
ir reglulegir nemendur hlutu
framhaldseinkunn og annar utan-
skólanemandinn. Hæstu einkunn
við skólann á þessu vori hlaut
Margrét Jónsdóttir í II. bekk,
8.94. I bóklegum greinum hlaut
hún aðaleinkunnina 9.67, og er
það hæsta meðaltal í þeim grein-
um í sögu skólans.
Hér fer á eftir yfirlit yfir þá
þrjá nemendur, sem hæstar eink-
unnir hlutu í hverjum bekk:
IV. bekkur, gagnfræðapróf:
1. Katrín Guðnadóttir 8.29
2. Ómar Þröstur Björgólfss. 8.00
3. Rúnar Björnsson 7.94
III. bekkur, landspróf:
1. Margrét Ólafsdóttir 8.23
2. Haraldur Óskarsson 7.91
3. Kári Hilmarsson 7.20
III. bekkur, miðskólapróf:
1. Þórdís Kristinsdóttir 8.51
2. Bergljót Bjarkadóttir 8.38
3. Sigríður Guðjónsdóttir 8.28
II. bekkur, unglingapróf:
1. Margrét Jónsdóttir 8.94
2. Líana Manda Guðnadóttir 8.86
3. Rut Ófeigsdóttir 8.80
I. bekkur:
1. Hallgerður Gísladóttir 8.19
2. Ragna Ingimundardóttir 8.05
3. Bryndís Ingvarsdóttir 7.95
Veitt voru bókarverðlaun fyrir
beztan námsárangur í hverjum
bekk, og auk þess hlutu þrír nem-
endur verðlaun fyrir framfarir í
námi og sérstaka ástundun. Voru
Æ fleiri læknishéruð verða að
búa við það ófremdarástand, að
enginn læknir fæst til að gegna
þeim. Það er að vísu ekki ný
bóla, að lækna vanti í stór, erfið
og oft rýr héruð hvað laun snert-
ir. En nú er svo komið, að eng-
inn læknir fæst til að sækja um
þau héruð sem eftirsóknarverð-
ust hafa verið til þessa.
Fyrir nokkru rann út umsókn-
arfrestur um fjögur læknishéruð,
Kleppsjárnsreyki, Isafjörð, Vest-
mannaeyjar og Flatey. Þrjú hin
fyrst töldu hafa hingað til verið
talin eftirsóknarverð héruð, en
enginn læknir leit við þeim. Af
þessum liéruðum mun ástandið
vera verst á ísafirði, þar sem
aðeins er einn læknir eftir, en
hann starfar á fjórðungssjúkra-
húsinu í kaupstaðnum.
I 9 héruðum starfa nú settir
læknar líklega yfirleitt ungir
menn, sem eru þvingaðir með
lögum til að gegna starfi héraðs-
læknis, eða vera aðstoðarlæknar
í a. m. k. 3 mánuði, ef þeir vilja
fá rétt til að stunda læknisstörf.
Héruð þau, sem þannig er ástatt
um, eru Þingeyrarhérað, Hólma-
víkurhérað, Súðavíkurhérað,
Hvammstangahérað, Höfðahérað,
Ólafsfjarðarhérað, Kópaskershér-
að, Neshérað (þ. e. Norðfjörður)
og Kirkjubæjarhérað* 1 2. Vofir stöð-
ugt héraðslæknisleysi yfir þessum
héruðum. Við hér á Norðfirði er-
um bezt settir, þar sem hér eru
2 læknar starfandi á sjúkrahús-
inu. En það er annað mál.
Nágrannalæknar hafa verið
settir til að gegna störfum í 4
héruðum imeð sínum, en þau eru:
Flateyjarhérað, Djúpavíkurhérað,
Bakkagerðishérað og Raufarhafn-
arhérað.
Eftir mánuð rennur út um-
sóknarfrestur um fjögur héruð
til viðbótar, Álafosshérað, Reyk-
hólahérað, Patreksf jarðarhérað
og Húsavíkurhérað. Þó að þessi
héruð hafi jafnan verið eftirsótt,
er talið tvísýnt að um þau verði
sótt.
Höfuðástæðan fyrir héraðs-
læknisskortinum mun vera sú, að
fleiri og fleiri læknar sérmennta
sig og fækkar þá stöðugt þeim,
sem leggja fyrir sig almennar
lækningar. Verður ungum mönn-
um ekki legið á hálsi fyrir það,
þó að þeir reyni að afla sér sem
beztrar menntunar.
En ástæða er til að hafa miklar
áhyggjur út af þessum málum.
Ljóst er, þegar svo er komið,
að engin umsókn berst um hér-
uð, sem verið hafa eftirsótt til
þessa, að eitthvað er að, að hin
forna skipan heilbrigðismálanna
er úrelt orðin og þarf róttækrar
breytingar við. Athyglisverðar
hugmyndir eru uppi um að koma
á fót læknamiðstöðvum, þar sem
nokkrir læknar starfa saman, en
sjúklingar séu fluttir til þeirra
loftleiðis þar sem þarf. Á sama
hátt séu læknarnir fluttir loft-
leiðis til óferðafærra sjúklinga.
Brýna nauðsyn ber til að hraða
breytingum á skipulagi heilbrigð-
isþjónustunnar. Verði það ekki
gert, verður dreifbýlið, ef svo
heldur sem horfir, læknislaust
fyrr en varir. Og er þá ekki víst,
að dreifbýlið verði lengi til úr
því, því góð og örugg heilbrigð-
isþjónusta er eitt það helzta, sem
með þarf til að viðhalda byggð.
Hópist allir læknar saman í Stór-
Reykjavík, gerir landsfólkið það
líka.
Vorhlaup
Ágætur afli er nú um klukku-
stundar keyrslu frá Horni. Fisk-
uðu bátarnir mjög vel í gær, t. d.
fékk bátur með einum manni 3
tonn af óslægðum fiski.
Hér mun vera á ferðinni svo-
kallað „vorhlaup", en þau voru
miklar aflahrotur áður fyrr.