Austurland - 24.06.1966, Blaðsíða 1
Amlurlanú
4*
Málgagn sósíalista á Austurlandi
16. árgangur. Neskaupstað, 24. júní 1966. 30. tölublað.
Bœndur mótmœla
Krefjast þess, að mjólkurskatturinn verði felldur niður
Mikill þytur hsfur verið í
bændum landsins síðustu vikurn-
ar. Hver stórfundurinn hefur
rekið' annan og nú hafa fulltrúar
bænda úr öllum landshéruðum
komið saman í Reykjavík til þess
að fylgja eftir kröfum bænda.
Tildrög þeirrar miklu og al-
mennu gremju, sem gripið hefur
mn sig meðal bænda eru þau, að
í \or ákvað Framleiðsluráð land-
búnaðarins að notfæra sér nýja
heimild í lögum og innheimta sér-
stakt gjald af allri innveginni
mjólk í mjólkurbúin sem næmi 50
aurum á lítra í maí-mánuði, en
síðan 1.00 krónu á lítra næstu
þrjá mínuði, þ. e. júní, júlí og
ágúst. (íjald þetta átti að nota
til verðmiðlunar á mjólkurvörum
og þó fyrst og fremst til þess að
greiða uppbætur á þær mjólkur-
vörur sem seldar yrðu úr landi
og útflutningsuppbætur fengjust
ekki á frá ríkinu.
Auk þessa nýja innvigtunar-
gjalds var svo gamla verðjöfnun-
argjaldið hækkað nokkuð frá því
sem áður var.
Hér var því um mjög verulega
skattlagninj';u á mjólkurframleið-
endur að ræða og þótti einsýnt,
að þessi ráostöfun leiddi til stór-
lækkaðra t.'kna bænda frá því
sem ráð hafði verið íyrir gert.
Þegar bær.dum varð ljóst hvað
í rauninni var að gerast, brugð-
ust þeir ilhr við og töldu ráðstaf-
anir Framleiðsluráðs hinar sví-
virðilegustu og mótmæltu þeim
kröftuglega.
Mótmæli bænda voru augljós-
lega af öðrom toga spunnin en
venjulegt aðfinnslunudd eða
óánægja út í pólitíska andstæð-
inga.
Það fór tkki á milli mála, að
bændastéttin sem heild, án tillits
til mismunandi pólitískra skoð-
ana, reis nú upp og var ákveðin
í að þola e!:ki þessa nýju skatt-
lagningu. Bi aaur voru greinilega
að átta sig á því, að forustumenn
þeirra, sérstaklega ýmsir af póli-
tískum forustumönnum þeirra,
höfðu brugðizt þeim, ekki aðeins
í þessari ';kattlagningarsamþykkt,
heldmr í landbúnaðarmálunum al-
mennt séb.
Það ej athyglisvert í Jæssu
máli, að það voru nokkrir for-
ustumenn í Framsóknarflokknum
og í Sjálístæðisflokknum sem
samþykktu ákvæðin um nýja
mjólkurskattinn í Framleíðslu-
ráði landbúnaðarins í bróðurlegri
einingtj og algjörlega án samráðs
við bændastéttina.
I Framleiðsluráði landbúnaðar-
ins eru m. a. Vilhjálmur Hjálm-
arsson á Brekku, varaþingmaður
FramsóknSrflokksins á Auistur-
landi og Gunnar Guðbjartsson,
form. Stéttarsambands bænda,
varaþingm. Framsóknarflokksins
í Vesturlandskjördæmi.
Báðir þessir varaþingmenn
Framsóknarflokksins áttu sæti á
Alþingi í vetur, þegar samþykkt
var sú breyting á lögunum um
Framsleiðsluráð landbúnaðarins
og um verðlagningu landbúnaðar-
vara, sem gerði ráð fyrir þeirri
heimild til þess að leggja gjald á
innvegna mjólk, sem nú hefur
verið notuð.
Nokkurs uggs gætir nú meðal
síldarverksmiðjueigenda vegna
fregna um lækkandi verð á fram-
leiðsluvörum verksmiðjanna, síld-
armjöli og síldarlýsi.
Verð á síldarmjöli hefur lækk-
að talsvert og mun nú vera kom-
ið nokkuð niður fyrir það sem
miðað var við, þegar verðið á
síld til verksmiðjanna var ákveð-
ið í vor. Fregnir berast af ó-
venjulega miklum birgðum af
síldarmjöli í Perú og er búizt við,
að Perúmenn muni lækka verðið
á Evrópumarkaði verulega frá því
sem verið hefur.
Erfitt mun þó vera að segja
nokkuð með vissu um hvað ger-
ist í þessum efnum.
Þá hefur verð á sílaarlýsi einn-
ig farið lækkandi og er nú orðið
miklum mun lægra en það var á
sl. ári.
Fréttir þessar eru sagðar hafa
orðið til þess að verksmiðjueig-
endur í Reykjavík hafi rætt um
Við þessa lagasetningu kom í
ljós, að báðir þessir varaþing-
menn Framsóknarflokksins höfðu
ásamt öðrum flokksbræðrum sín-
um gert bindandi samkomulag við
þingmenn Sjálfstæðisflokksins og
Alþýðuflokksins um þá breytingu
á lögunum um verðlagningu land-
búnaðarvara, sem samþykkt var
á Alþingi í vetur.
Það fer ekki á milli mála, að
samkomulag Framsóknar þá við
stjórnarflokkana um þessi mál
var einnig um Jtennan mjólkur-
skatt, sem bændastéttin nú rís
upp gegn.
Aljiýðubandalagsmenn á AI-
þtngi voru á móti þessari laga-
setningu og vöraðu við ýmsum
ákvæðum hennar.
En hvað skyldi hafa komið til
þess, að Framsóknarmenn á Al-
þingi gengu til samkomulags við
ríkisstjórnarflokkana í vetur og
Framh. á 2. síðu.
það að hætta kaupum á síld og
dýrum flutningum að minnsta
kosti í bili. Ekki hefur þó komið.
til slíkra ráðstafana ennþá.
Þá mun einnig hafa komið
nokkuð hik á suma þeirra, sem nú
hafa í undirbúningi miklar fram-
kvæmdir í síldarvinnslumálum.
Markaðsverð á síldarverk-
smiðjuafurðum hefur verið mjög
hagstætt undanfarin tvö ár. Af-
koma síldarverksmiðja hefur því
yfirleitt verið mjög góð, enda
mikið unnið að byggingu, nýrra
verksmiðja og stækkun þeirra
eldri. Lagður hefur verið sérstak-
ur skattur á framleiðsluvörur
verksmiðjanna m. a. til stuðnings
annarri fiskvinnslu.
Fari svo, að verð á síldarmjöli
og síldarlýsi lækki verulega, er
hætt við því, að mikil og alvar-
leg breyting geti orðið í rekstri
verksmiðjanna og þá um leið í
síldariðnaðinum almennt.
17. júní
Hátíðarhöldin hófust með víða-
vangshlaupi, hinu fyrsta hér í
bæ. Sigurvegari í flokki eldri
drengja varð Örn Agnarsson, en
í flokki yngri drengja Einar Sig-
urjónsson.
Klukkan tvö hófst skrúðganga.
Lagt var af stað frá félagsheim-
ilinu og lá leiðin um Egilsbraut,
Nesgötu, Mýrargötu, Sverristún
og Miðstræti að sundlauginni þar
sem útisamkoma var.
Lúðrasveit Neskaupstaðar var
í fararbroddi skrúðgöngunnar og
staðnæmdist hún við sjúkrahúsið
og lék þar nokkur lög. Einnig lék
hún við sundlaugina. Stjórnandi
hennar var enn sem fyrr Harald-
ur Guðmundsson.
Sævar Steingrímsson setti sam-
komuna og kynnti dagskráratriði,
en Magnús Guðmundsson flutti
athyglisverða og snjalla hátíðar-
ræðu.
Auk þessa fóru fram ýmsir leik-
ir.
Rigning var um daginn og dró
það úr þátttöku í hátíðarhöldun-
um og varð1 einnig þess valdandi,
að ekkerrt varð úr útidansleik.
Þess í stað var dansað í félags-
heimilinu.
Síldarbrœðsla
seld
Snemma í þessum mánuði var
síldarverksmiðjan á Bakkafirði
seld á nauðungaruppboði og varð
Stofnlánadeild sjávarútvegsins
eigandi hennar. Hefur verksmiðj-
an nú verið auglýst til sölu, en
engar horfur eru á því taldar, að
hún verði rekin í sumar.
Gestakoma
Deild Norræna félagsins hér í
bæ á von á tignum gesti frá vina-
bænum Esbjerg. Heitir hann
Brochorst og gegnir embætti, sem
svarar nokkurn veginn til emb-
ættis borgarritara. Þar að auki
er hann yfirmaður þeirrar deild-
ar bæjarmálanna, er annast vina-
bæjartengsli.
Hann er væntanlegur hingað
föstudaginn 1. júlí og dvelur
fram á mánudag. Gert er ráð fyr-
ir, að efna til almenns félags-
fundar laugardagskvöldið 2. júlí
og þar mun gesturinn segja frá
heimabæ sínum Esbjerg og sýna
skuggamyndir. Er þess að vænta,
að félagsmenn og gestir þeirra,
svo og aðrir áhugamenn noti
þetta tækifæri til þess að fá frá
fyrstu hendi hina traustustu
fræðslu um þann merkilega bæ,
Esbjerg. Fundur þessi verður
nánar auglýstur síðar.
(Fréttatilkynning frá stjórn
Norræna félagsins).
Lækkandi verð á
síldarmjöli og lýsi