Austurland - 29.12.1972, Síða 1
lUSTURLAND
MALGAGN ALÞYÐUBANDALAGSINS A AUSTURIANDI
22. árgangur. Neskaupstað, 29. desember 1972. 48. tölublað.
10,7 if hundraði ðengisfellinf
Ekki hróflað við kjarasamningum
Um miðjan 'þennan mánuð var
gengi ísienzku krónunnar fellt um
10.7%. Allhörð átök munu thafa
átt sér stað innan ríkisstjórnarinn
ar og stjórnarflokkanna áður en
þessi ákvörðun var tekin. Það hef-
ur komið fram, að það voru eink-
um Samtök frjálslyndra og vinstri
manna, sem beittu sér fyrir þvi,
að þessi leið var farin. Raunar
vildu þeir lækka gengið meira, eða
um 15—16%, en á það var sætzt,
að fella það um 10.7%. Sérstak-
leg*a mun Björn Jónsson, forseti
Alþýðusambandsins, hafa sótt
fast, að gengislækkunarleiðin væri
farin. Þýkir það ,koma úr hörð-
ustu átt, þegar aðal forystumað-
ur verklýðssamtakanna beitir sér
sérstaklega fyrir gengislækkun.
En verklýðshreiyfingin sýnist ætla
að una þessu, a. m. k. 'hefur ekki
heyrst, að eitt einasta verklýðs-
félag hafi hreyft mótmælum. Það
verður líka að viðurkennast, að
þessi gengislæfckun er allt annars
eðlis en hinar miklu gengislækkan-
ir viðreisnarstjórnarinnar, að því
er að verklýðshreyfingunni snýr.
Við reisnargengi slæ kk anirnar voru
allar fyrst og fremst ætlaðar til að
rýra kjör launþega, enda fylgdi
þeim oftast vísitölubinding, þann-
ig að launþegar fengu ekki bætt-
ar þær verðhækkanir, s‘em af
gengisfellingunum leiddu. Og ekki
var hikað við að ógild*a gerða
kjarasamninga.
Nú er hinsvegar ekki hreyft við
vkjarasamningum. Vísitölubætur
verða óskertar og umsamin 6%
grunnlaunáhækkun tekur gildi 1.
marz.
Hinu verður ekki neitað, að með
því að fella gengið hefur ríkis-
stjórnin í veigamiklu atriði vikið
frá yfirlýstri stefnu sinni. Allt
c-kraf um hið -gagnstæða -er kattar-
þvotbur.
Alþýðubandalaginu er ljóst, að
gengisfelling er engin lausn á iþeun
vandamálum, sem við er að etja.
Hún getur aðeins veitt ríkisstjórn-
in.n:. aukið svigrúm til varanlegra
aðgerða til úrbóta á efnahagskerf-
iinu. Alþýðnbandalagið viar and-
vígt þcssari leið, þótt það féllist á
hana fremur en að láta stjómar-
samstarfið rofna á meðan ríkis-
st.jórnin á enn óleyst mörg af sín-
um þýðingaimestu stefnumálum.
Alþýðubandalagið ber því fulla
ábyrgð á gengisfellingunni að sínu
leyti og mun ekki gkorast undan
henni, þótt það hefði viljað fara
aðrar leiðir.
. . 1
Jafnframt gengislækkunmm
verður að gera ýmsar aðrar ráð-
stafanir. Þegar hefui- áfengi ver-
ið hæfckað um 30% og tóbak um
25% til þess að afla ríkissjóði
tekna, en flestar þessar ráðstafan-
ir bíða fram yfir áramót.
Af hálfu stjórnarandstæðinga
var mjög hart sótt að stjórninni
Um miðjan dag hinn 22. þ. m.
vildi það slys til að drengur tæp-
lega 3 ára datt í úrgangsþró á
síldarstöðinni Mána her í bæ og
var nærri drukknaður. Drengur-
inn heitir Steinólfur Peteisen og
er sonur hjónanna John Kristján
Petersen og Ragnhild Petersen.
Þau John og Ragnhild eru fær-
eyskrar ættar og hafa búið 'hér á
þriðja ár og vinnur John við Skipa
smiðar hjá Gylfa Gunnarssyni.
Þau eiga tvo syni, Steinólf tæplega
3 ára og Karl 4 ára.
Blaðið náði tali af Jóhn Peter-
sen og spurði hann nánar um til-
drögin að slysi þessu og sagði
hann svo frá atvikinu:
Rétt eftir að hann fer til vinnu
siunar eftir hádegisverð kl. 1,
koma synir hans til hans inn i
skipasmíðastöðina og biður hann
þý að fsra heim. Þeir fara þá frá
honum og hann veit ekki annað
en að þeir hafi gert eins og hann
bað þá. Litlu seinna kemur eldri
drenguunn aftur inn og er þá eitt-
hvað æstur og er að reyna að
segja þeim, sem þarna vinna, eitt-
hvað, en þeir gefa því ekki frekari
gaum og faðir hans biður hann á
ný að fara 'heim til mömmu og
grunsr þá ekkert sérstafct, enda í
önnum við sitt verk.
og af leiðurum stjórnarandstöðu-
blaðanna mátti glöggt ráða, að
þau gerðu ráð fyrir því,að stjórnin
félli, og blaðamenn Morgunblaðs-
ins, sem eru fréttaritarar ihelztu
fréttastofnana, sendu um allan
heim fréttir um það. Og sagt er,
að ný stjórn hafi verið tilbúin að
taka við. En rífcisstjórnin stóð af
sér hrinuna og sár hafa þau verið
vonbrigði stjórnarands-tæðinga,
sem séð höfðu ráðherrastólana í
ljósrauðum bjarma hillinganna.
Væntanlega gerir Lúðvík Jós-
epsson þessum málum frékari skil
í áramótagrein sinni hér í blaðinu
á gamlársdag.
Drengurinn fer svo heim til
móður sinnar (en íbúðarhúsið er
á að gizka eitt hundrað metra frá
skipasmíðastöðinni). Hún spyr
hann strax hvort bróðir hans sé
ekki hjá pabba sínum, en hann
neitar því og segir -hún Ihonum þá
að fara og leita hans. Litlu sernna
heyrði pabbi þeirra igrát og köll í
eldri drengnum og heyrir að 'þau
koma úr áttinni frá þrónni, og
heyrir Ihann að hann fcallar sífellt
nafn bróður síns.
Hann hleypur þá tll og sér Ihvar
drengurinn flýtur á grúfu ofan í
þrónni, en þróin var full af úldnu
leirskólpi, sem hafði blað upp í
krapa.
Auðvelt v*ar að ná direngmun úr
þrónni, en 'hann virtist þá algjör-
lega líflaus, enda sagði faðir hans
að trúlega hefði hann legið í
þi-ónni í 10—15 mínútur. Vinnu-
félagi Johns, Guðmundur Vest-
mann, var með bíl þama við hend-
ina og fóru þeir strax með dreng-
inn áleiðis til sjúfcrahússins og
voru komnir þangað um kl. 1.30.
Á leiðinni hóf Joihn strax lífgun-
artilraunir með blástursaðferð.
Strax og fcomið var til sjúkra-
hússins tóku læknar og samstarfs-
fólk þeirra við drengnum og var
FViuíih. 4 2 «í8u.
Urslitojijor d M
Sameinuðu þjóðannn
Áður hefur verið greint frá því
hér í blaðinu, að á þingi Samein-
uðu þjóðanna hafi Island og nofck-
ur ríki önnur flutt tillögu um rétt
strandiúfcja til auðæfa hafsins.
Efnislega var tillagan á þá leið,
>að þessi réttur skyldi ekfci aðeins
ná til hafs-botnsins heldur og
sjá-varins yfir ího-num. Tillaga
þessi var samþykkt í nefnd með
82 atkvæðum gegn engu, en marg-
ar þjóðir sátu ihjá. Állar tilraunir
til að spilla tillögunni fóru út um
þúfur.
Þegar málið kom til kasta Alls-
herjaiþingsins 18. desember höfðu
fleiri þjóðir snúizt til fylgiS við
hana og var hún þá samþykkt með
102 atkvæðum gegn engu, e,n 22
ríki sátu sjá. E'kki höfðu þó Norð-
urlöndin séð sér fært að fylgja
okkar málstað. Voru þau öll í
hópi hjáseturíkjanna ásamt öllium
ríkjum Vestur-Evrópu öðrum en
Irlandi. Einnig sátu öll ríki
Austur-Evrópu hjá, önnur en
Júgóslavía og Rúmenía.
Þessi úrslit eru stórsigur fyrir
Islendinga og má nú víst telja, að
fullnaðarsigur okkar sé ekki langt
undan. öllum er nú líka ljóst, að
ofbeldisaðgerðir Breta og Vestur-
Þjóðverja á Islandsmiðum era í
andstöðu við skoðun meginhluta
þjóða íheims. Þessum ofbeldisað-
gerðum er þó haldið áfram og
verður sjálfsa-gt haldið áfram svo
lengi sem ofbeldismennirnir sjá
sér fært.
Viðurkenna Norður-Víetnam
- Mótmœlo loftdrdsum
Islenzka ríkisstjórnin hefur á-
Ikveðið að taka upp stjórnmála-
samband við ríkisstjórn Norður-
Víetnam í Hanoi. Þá hefur iríkis-
stjórnin mótmælt hinum villi-
mannlegu loftárásum Bandaríkja-
manna á Noirður-Vi'etnam.
Þetta er með öðru ljós vottur
um breytta utanríkisstefnu Is-
lands. I stað algjörrar undirgefni
undir vald Bandarífcjastjórnar á
viðreisnarárunum hefur nú verið
tekin upp sjálfstæð utanríkis-
stefna, sem er oklkur til sóma og
sem aflað hefur okkur virðingar á
aliþjóðavettvangi.
Þá hefur Island einnig viður-
kennt ríkisstjórn Austur-Þýzka-
| lands.
Litlum dreng bjargaö úr
miklum lífsháska