Austurland - 29.12.1972, Page 3
Neskaupetað, 29. desemiber 1972.
ÁUSTUELANÐ
3
Samtök hernámsandstœðinga
í mótun á Austurlandi
Héldu fund í Neskaupstað í gœr-
kvöldi, fimmtudaginn 28. des.
Herstöðvaandstæðingar á Aust-
urlandi boðuðu til almenns fundar
í Neskaupstað fimmtud-agskvöldið
28. desember og sóttu hann yfir
50 manns. Sérstök undirbúnings-
r.efnd boðaði til fundarins, og setti
Smáji Geirsson fundinn fyrir
hennar hönd og skipaði Baldur
Böðvarsson fund.arstjóra.
Framsögu á fundinum höfðu
Hjdrleifur Gul tormsson, Neskaup-
stað, Kristján Inigólfsson, Hail-
ormsstað, Sigurður Ó. Pálsson, Eið
urn og Skjöldur Eiríksson, Skjöld-
ólfsstöðum. Kæddu þeir herstöðva-
máhð lrá ýmsum hliðum og margt
í tengslum við ;það. Lögðu þeir á-
herzlu á nauðsyn skipulegrar bar-
áttu um land allt til að tryggja
brottför hersins ihið fyrsta í sam-
ræmi við ákivæði stjórnarsáttmála
ríkisstjórnarinnar og minntust
góðs stuðnings Austfirðinga fyrr
á ár.um við málstað hernámsand-
stæðinga. Að framsöguræðum
lóknum hófust almennai- umræður
og tóku til máls 7 fundarmenn auk
framsögumanna, sem svöruðu
fyrirspurnum.
Fundurinn ákvað að kjósa 5
manna nefnd Austfirðinga til að
tvinna að eflingu Samtaika her-
stöðvaandstæðinga í fjórðungnum
á næstu mánuðmn og hafa sam-
band við Samtökin í öði-um lands-
hlutum. Völdust í nefndina ofan-
greindir framsögumenn, svo og
Smári Geirsson, iháskólanemi. Hef-
ur nefndin þegar haldið fund og
ákveðið að leita á næstunni til
nokkurra manna í hverju byggð-
arlagi á Austurlandi með ósk um
að þeir taki sæti í nefndum til
stuðnings ibaráttunni fyrir brott-
för Bandaiikjahers frá íslandi.
Þá samþykkti fundurinn í Nes-
kaupsbað einróma eftirfarandi á-
lyktanir:
1. „Amennur fundur um her-
stöðvamál, haldinn í Neskaupstað
28. des. 1972, skorar á ríkisstjórn
íslands að hraða undirbúningi
uppsagnar -herverndarsamnings-
ins þannig að allur erlendur her
verði af landinu á kjörtímabilinu,
svo sem stefnt er að í málefna-
samningi núverandi ríkisstjórnar.
Jafnframt beinir fundurinn þeim
tilmælum til ríkisstjórnarinnar, að
hún geri þjóðinni jafnharðan grein
fyrir framgangi málsins, og stuðl-
að verði að umræðum um mál
þetta í aðalfjölmiðlum landsins".
2. „Fundur herstöðvaandstæð-
inga, haldinn í Neskaupstað 28.
des. 1972, fegnar iþeirri hreyfingu,
sem nú er að myndast í landinu til
baráttu fyrir brottför hersins.
Fundurinn hvetur herstöðvaand-
stæðinga í öllum landshlutum til
að skipuleggja hið fyrsta samtök
sín, þannig að órofa þjóðfylking
verði sem fyrst til staðar til að
tryggja sigur í þessu máll“.
Hugsað til
átthaganna
Þegar ég nú læt af nær þriggja
áratuga skólastarfi í þágu Aust-
urlands, æskustöðva minna, vil ég
gjarna biðja „Austurland“ að
flytja beztu óskir og þakkir nem-
endurn mínum, samstarfsmönnum
og félögum í kennarastétt og Ung-
menna- og íþróttasambandi Aust-
urlands og öðrum vinum.
Éig áma öllum Austfirðingum
og Austurlandi allra heilla á nýju
ári og um alla framtíð.
Skúli Þorsteinsson.
Egilsstdðflflugvöllur fluttur
Á þessu ári fóru fram athugan-
ir á nýju flugvallarstæði á Héraði,
þar eð Egilsstaðaflugvöllur er
orðinn mjög slæmur og brautar-
stefnan au'k þess ekki sú æskileg-
asta.
Niðurstöður þessara athugana
l'ggja nú fyrir, og mun flugmála-
stjórnin hafa ákveðið, að flugvöll-
urinn verði færður að Snjólholti i
Eiðaþinghá.
Þetta kemur fram í viðtali, sem
tímaritið Frjáls verzlun átti ný-
lega við flugmálastjóra.
Hugmyndin er, að flugstöðin á
Egilsstöðum verði notuð sem af-
greiðsla fyrst um sinn.
Nán-ar v.erður frá þessu sagt,
þegar frekari upplýsingar liggja
f.yrir.
Ur bcenum
Afmæli.
Ragnar Ágústsson, afgreiðslu-
maður, Þiljuvöllum 9, varð 65 ára
23. des. — Hann fæddist á Vopna-
firði, en hefur átt hér heima síðan
1951.
Björn Björnsson, kaupmaður,
Egilsbraut 19, varð 60 ára 25. des-
ember. Hann fæddist á Seyðisfirði,
en hefur átt hér heima síðan 1914.
Ósóttnr vinningar
í leikfengahappdrætti Þróttar
1972:
880 566 282 834 740 852 865 47
306
Egilsbúð
VILLT VEIZLA
Sprenghlægileg gamanmynd í litum með hinum snjalla Peter
Sellers. Sýnd laugardag kl. 9. Bönnuð innan 14 ára. — Islenzk-
ur texti.
Árdmótadflusleifiur
Það verður hin vinsæla hljómsveit „AMON RA“, sem leikur
og syngur gömlu og nýju dansana af miklu f jöri í Egilsbúð á
gamlársdag kl. 24—0.4. Söngkona Ólöf Þórarinsdóttir. — Mæt-
ið snyrtilega lqlædd. — Allir koma í Egilsbúð og skemmta sér
með „Amon Ra“.
Gleðilegt nýtt ár.
Nýársmyndir I Egilsbúð verðla:
RHINO
Mjög skemmtileg dýramynd í litum. Nýársdag kl. 3. íslenzk-
ur texti.
SVARTI SVANURINN
Byggð á samnefndrt skáldsögu eftir Rafael Sabatini. Aðal-
hlutverk: Maureen 0‘Hara og Tyrone Power. Nýársdag kl. 5.
APPALOOSA
Hörkuspennandi og frálbærlega vel leikin mynd með Marlo
Brando. Nýársdag kl. 9. Bönnuð innan 14 ána. íslenzkur texti.
Vélstjóra og tvo háseta vantar á 250' tonna netabát, sem
stundar frá Seyðisfirði.
Uppl. hjá Þorbergi Þórarinssyni eða Ól-afi Ólafssyni.
AUGL ÝSING
Athygli gjaldenda í Neskaupstað skal vakin á því, að frá ára-
mótum reiknast 1% vanskilavextir á mánuði á ógreidd þing-
gjöld.
Bæjarfógetinn í Neskaupstað.
Hús til sölu
Ásbjörn Tómasson, Neskaupst.