Austurland - 29.12.1972, Qupperneq 4
4
AUSTURLAND
Nieskaupstað, 29. desemiber 1972.
Hitler hefur fengið sMn keppinaut
Styrjöldin í Vietnam hefur
geisað áratugum saman — svo
lengi, að mikill hluti fullorðinna
manna iþekkir ekki annað ástand.
Við getum ekki gert okkur í 'hug-
arlund þær ógnir, þá eyðileggingu
og þau hryllilegu manndráp, sem
eru hlutskipti vietnömsku þjóðar-
innar.
Eftir að Frakkar höfðu beðið
ósigui- í Vietnam, var gerður
samningur, sem m. a. fól það 1
sér, að efnt skyldi til kosninga í
landinu öllu og skyldi þjóðin sjálf
fá að ráða framtíð sinni. Við þetta
var ekki staðið og þar voru
Bandaríkin að verki. Talið var, að
þeir, sem Bandaríkjastjóra kallaði
kommúnista, mundu í frjálsum
kosningum fá 80% atkvæða. Og
lýðræðishugsjónin risti ekki dýpra
en sivo, að þjóðin mátti ekki ráða
framtíð sinni, nema því aðeins, að
tryggt væri, að vilji þjóðarinnar og
Bandaríkjastjórnar færi saman.
Nú ihafa Bandaríkjamenn ár eftir
ár rekið heiftarlega árásarstyrj-
öld í Víetnam og beitt þar öllum
þeim vopnum, sem þeir hafa yfir
að ráða, öðram en kjarnorku-
vopnum og sýklum. Svo miklu
isprengjumagni hefur verið hellt
yfir Víetnam, að loftárásirnar í
heimsstyrjöldinni verða barna-
leikur hjá þeim ósköpum.
Hér er um ójafnan leik að ræða.
Annars vegar mesta herveldi sög-
unnar með öllum sínum mannafla
og skelfilega vopnabúnaði. Hins
vegar er frumstæð smáþjóð, sem
að vísu nýtur margvíslegs stuðn-
ings vinveittra ríkja, en verður
fyrst og fremst að treysta á sjálfa
sig. Þessar vinveittu þjóðir taika
ekki beinan þátt í styrjöldinni, en
leggja fram vopn og annað, sem
þarf til styrjaldarrekstursins.
En þótt leikurinn sé ójafn, læt-
ur þjóðin ekki bugast. Þótt þús-
undum lesta af sprengjum sé látið
rigna, gefst Ihún ekki upp. Ekki
hel'dur þótt reynt sé að svelta
hana til uppgjafar með hafnbanni
og eyðingu gróðurs. Þjóðin sýnist
blátt áfram ósigrandi.
Bandaríkjamenn reyna *að telja
mönnum trú um, að þeir geri að-
eins árásir á hernaðarlega mikil-
væga staði. En reynslan sýnir að
það er rangt og hafa verið lagðar
fram óyggjandi sannanir fyrir
'því. Ibúðarhús, sjúkrahús, skólar
og öinnur slík mannvirki, sem enga
hernaðanþýðingu hafa, leggja
sprengjuflugvélar Bandaríkjanna
í rústir. Og við getum ekki á-
lyktað annað, en að það sé gert
af ráðnum hug.
Fyrir nokkrum mánuðum kom
fram í umræðuþætti í sjónvarp-
inu stríðsæsingamaður að nafni
Pétur. Af ísliemdingi að vera réði
hann yfir undraverðri þekkingu á
nútímavopnum og nútímahernaði
og hafði augsýnilega lagt alúð við
að nema þau fræði. Meðal þess,
sem hann sagði oklkur var, að
Bandaríkjamenn réðu nú yfir svo
fuUkominni miðunartækni, að flug
vélar þeirra hittu nákvæmlega í
mark. Af þessu getum við ekki
ályktað annað en að þegar
bandarískar sprengjur hæfa
sjúkrahús eða skóla, þá hafi skot-
mafkið í raun og veru verið
sjúkrahús eða skóli.
1 október í haust glæddust mjög
vonir manna um frið í Víetnam.
Samkomulag hafði náðst milli
Víetnama og Bandaríkjamanna
um frið. En Bandaríkjamenn
drógu á langinn að undirrita sam-
komulagið og brátt kom í ljós,
hvað á spýtunni hékk.
Nixon Bandaríkjaforseti hafði
heitið þjóð sinni því að koma á
friði í Víetnam á kjörtímabilinu.
Bandaríkjamenn eru löngu orðnir
þreyttir á styrjöldinni og skamm-
ast sín fyrir hana, enda er hún
talin ógeðslegasta og svívirðileg-
asta styrjöld, sem háð hefur verið
frá upphafi vega.
Nú kom að því, að Nixon þurfti
að leita endurkjörs. Ætti hann að
geta gert sér vonir um endurkjör,
varð hann að láta þjóð sína trúa
því, að friður í Víetnam væri á
næstu grösum. Þess vegna var
samninguiinn gerður, en frá hon-
um var hlaupið þegar 'hann hafði
gert sitt gagn í kosningunum. Og
sá, sem Nixon skaut sér á bak við
var leppur Bafldaríkjanna í
Saigon, en hann verður að sitja og
standa ieins og Nixon vill. Þegar
hann neitar að fallast á samkomu-
lagið gerir Ihann það af því að
hann veit, að til þess er ætlast af
honum.
En Nixon er ekki af baki dott-
inn með að standa við kosninga-
loforðið. Hanin hefur hafnað samn
ingaleiðinni, en í þess stað magn-
að stríðið. 600 risaþotur, sem hver
um sig kostar 800 millj. kr., láta
nú sprengjiunum iigna yfir Víetn-
am og þyrma engu. Víetnamar
taka hraustlega á móti og hafa á
nokknrm dögum tortímt yfir 30
þessara véla.
Þessar nýju oftárásir hafa vak-
ið óihug og fyrirlitningu um allan
heim, ekki sízt í Bandaríkjunum
sjáifum. Og lítið bætir Nixon fyr-
ir sér, iþótt hann fyrirskipi sólar-
hrings ihlé um jólin. Það er of aug-
ljós hræsni til þess að framferði
forsetans verði afsakanlegra fyrir
það.
Síðan heimsstyrjöldinni lauk
hefur Hitler verið talinn miesti
fjöldamoirðingi og stríðsglæpa-
maður sögunnar. Nú er svo að sjá
sem Nixon Bandaríkjaforseti sé
komínn vel á veg með að slá met
Hitlers og ávinna sér nafnbótina.
Og það fer vart á milli mála hver
hefðu orðið örlög Nixons, ef hann
hefði, eftir frammistöðu sem þessa
staðið við hlið nazistaforingjanna
í Núrnberg á sinum tíma.
Nú eru aðeins þrjár vikur ef.tir
af kjörtímabili Nixons. Eigi hann
að koma á friði í Víetnam innan
þess tíma, má hann halda á spöð-
unum, því til þess þarf hann að
leggja landið gjörsamlega í rústir
og eyða þar öllum mönnum.
Við íslendingar getum bezt átt-
að okkur á framkomu Bandaríkja-
manna, ef við gerðum ofckur í
hugarlund, að annað stórveldi, sem
við eigum í útistöðum við, hefði
hagað sér gagnvart okkur eitt-
hvað í líkingu við hegðun Banda-
ríkjamanna í Víetnam. Ef Bretar
hefðu, þegar samningarnir um
laudhelgina ströndúðu, sent flota
sprengjuflugvéla til árása á
Reykjavík og önnur þéttbýl svæði
ef þeir hefðu látið herskip halda
Eins og jafnan áður urðu marg-
ir til þess að færa sjúkrahúsinu
góðar gjafir fyrir jólin.
Jafnan hefur verið venja að geta
þeirra gjafa, sem sjúkrahúsinu
berast, hér í blaðinu, en komið hef-
ur þó fyrir, að misbrestur 'hefur
orðið á því og eru hlutaðeigendur
beðiiir velvirðingai' á því. Svo va.r
t. d. með gjöf frá Kvenfélugi
Reyðarfjarðar að upphæð 10 þús-
und krónur sem sjúkrahúsiiiu
barst á fyrra ári, en það félag hef-
ur áður gefið sjúkrahúsinu góðar
gjafir.
Nokkrar mæður hér í bæ ? f-
hentu sjúkrahúsinu myndarlega
gjöf í sumar er leið og var það ým-
islegt til aðhlynningar smábörn-
unum, sömuleiðis gaf fr. Nanna
Þórðardóttir, Fáskríiðsfirði þann-
ig varning, en Nanna hefur áður
gefið sjúfcrahúsinu góðar gjafir.
Á dögunum fyrir jól afhenti
Sinawikklúbbur Norðfj. sjúkra-
húsinu stórgjöf, en það var frysti-
kista að verðmæti um 50 þúsund
krónur. I bréfi sem fylgdi gjöfinni
lét klúbburinn þess getið, að gjöf
þessi væ.ri fyrsti vísir að stærra
átaki, sem klúbburinn hefði sett
sér að markmiði í sambandi við
sjúkrahúsið.
Hinn 21. þ. m. gaf fr. Irma Pájls-
dóttir, Neskaupstað, sjúkrahúshiu
20 þúsund krónur. Iraia Pálsdótt-
ir hefur áður gefið sjúfcrahúsinu
veglegar gjafir.
Sama dag barst sjúk(rahúsinu
höfðingleg gjöf frá öldungi hér í
bæ, Hjörleifi Brynjólfssjmi, en
hann gaf sjúkráhúsinu 10 þúsund
krónur.
uppi skothríð á ströndina og ef
þeir hefðu fyllt hafnir landsins af
tundurduflum til þess að ihindra.
aðflutninga til landsins, hefðum
við fengið nokkra mynd af hegðun
Bandaríkjanna í Víetnam.
Það er aðeins samvizka mann-
kynsins, sem getur stöðvað stríð-
ið í Víetnam. Snúist almenningsá-
litið í heiminum nægilega ákveðið
gegn styrjaldaræði Bandaríkja-
manna, geta þeir ekki haldið upp-
teknum hætti.
En við Islendingar mættum
gjaraan minnast þess, að við er-
um í hernaðarbandalagi við
Bandaríkin og berum að okkar
hluta nokkra ábvrgð á ihinum
skelfilegu stríðsglæpum þeirra i
Víetnam. Og efcki bætir það hlut
okikar, að við höfum fengið her-
veldinu bækistöðvar hér á landi.
Við getum ekki losnað við þessa
áibyrgð, nema við hættum þátt-
töku í hernaðarbandalaginu og
rekum her stríðsglæpamanna .úr
landi.
Kvenfélagið Keðjan, Fáskrúðs-
firði sendi nú, sem svo oft áður,
sjúbnahúsinu veglega gjöf fyrir
jólin, eða peninga, að upþhæð 10
þús. kr.
Þess skal getið, að allir þeir
peningar, sem sjúkrahúsinu á-
skotnast í gjcfum, eða með sölu
minningarkorta, eru lagðir í sama
sjóð oig verður honum varið íil
álialda.kaupa á skurðstofu.
Tvö fyrirtæki hér í bæ senda
jainan jólagjaf'r til sjúkrahússus
o:.* þá jafnar. *neð sama sniði, en
það eru Kauplélagið Fram. rem
ávallt gefur ávexti, og fyrirtæki
Jóhanns Sigmundssonar, Efnalaug
Noiðfjarðar, sem gefur peninga,
sem varið er til jólaglaðnings
öldnum og sjúkum á sjúkralhúsinu,
samkvæmt óskum gefanda.
Öllum þeim gefendum, sem ihér
hafa verið taldir, svo og öðrum
velunnuram sjúkiahússins, færi
ég alúðar þakkir fyrir 'þeirra góðu
gjafir og fyrir allan stuðning við
sjúkrahúsið.
Pramundan er stórt átak í upp-
byggingu sjúkrahússins og verður
það vissulega mikill styrkur fyrir
þá, 'Sem iþar standa fyrir fram-
kvæmdum, að eiga vísan stuðning
svo margra einstaklinga, félaga og
fyrirtækja víðsvegar á Austur-
landi, sem þessar gjafir og aðrar,
sem áður hefur verið getið, vitna
um.
Með kæiu þakklæti og beztu
kveðjum.
F. h. stjórnenda Fjórðungs-
sjúkrahússins Neskaupstað
Stefán Þorleifsson.
Gjafir tii Fjórðungssjúkrahúss