Austurland - 11.01.1979, Page 3
Fimmtudagur 11. jaiuíar 1979
Hátíðarfundur
Framh. af 4. síðu.
mál, sem allir bæjarfulltrúar stóðu
að.
Tillaga um
umhverfismál
„Bæjarstjórn Neskaupstaðar
samþykkir að gera sérstakt átak
í umhverfis- og fegrunarmálum
í bæjarlandinu.
Gera skal áætlun til fjögurra
ára og verja til verkefnis þessa
a. m. k. 1% af tekjum bæjarsjóðs
ár hvert.
Áætlunin skal gerð í samráði
við sérfróða menn og hafist handa
samkvæmt henni á þessu ári“.
Því næst flutti Kristinn V.
Jóhannsson tillögu um kaup á
höggmynd, eftir Gerði Helgadótt-
ur myndlistarmann. Gerður var,
sem kunnugt er , Norðfirðingur.
Fjórða mál á dagskrá var eftir-
farandi tillaga um félagsmál, sem
allir bæjarfulltrúar stóðu að.
Framsögu hafði Sigrún Þormóðs-
dóttir 2. varaforseti.
Tillaga um féjagsmál
„Bæjarstjórn Neskaupstaðar
samþykkir að taka félagsmál til
sérstakrar umfjöllunar á afmælis-
árinu.
Á árinu verði skipan þeirra
samræmd með það markmið í
huga, að íbúar Neskaupstaðar
treysti og auki félagslega sam-
stöðu og félagsþroska og búi jafnt
ungum sem öldnum, sem best lífs-
skilyrði“.
Tæplega þarf að taka fram, að
allar hlutu þessar tillögur sam-
hljóða atkvæði allra bæjarfulltrúa,
og ríkti mikil hátfðarstemming á
fundinum.
Fimmti liður á dagskrá var
kynning á dagskrá afmælisársins,
en ætlunin er, að allt árið verði
afmælisins minnst með ýmsum
hætti, og munu félagasamtök í
bænum leggja bæjarstjóm lið eftir
mætti.
Stór hluti Norðfirðinga
í kaffi
Er fundi hafði verið slitið, var
boðið upp á kaffiveitingar og
veislubrauð og sáu kvenfélagasam-
tök í bænum um það. Var opið
hús til kl. 7.00 og mun stór hluti
Norðfirðinga hafa komið í af-
mæliskaffið.
Skemmtilegan svip setti á þenn-
an hátíðisdag, að ljósmyndir eftir
Björn Björnsson í eigu Norðfirð-
ingafélagsins í Reykjavík, voru
til sýnis í Egilsbúð, og eru þær
ómetanlegar heimildir um fortíð-
ina og leiddu fram fyrir okkur
æskufólk og öldunga liðins tíma,
og atburði og atvinnuhætti, sem
fortíðin geymir. Vöktu þær verð-
skuldaða athygli.
— Á. J.
KIRKJA
Bamastarfið í Norðfjarðar-
kirkju hefst á ný n. k. laugardag
13. jan. kl. 10.30 f. h.
Sóknarprestur
Jeppi
til sölu
Tilboð óskast í Willis ár-
gerð 1942 í toppstandi.
Upplýsingar í síma 7559 á
kvöldin.
Þorrablót
Mjófirðingafélagsins verður haldið í Egilsbúð laugar-
daginn 13. jan. kl. 20.00 stundvíslega.
Miðasala föstudaginn 12. jan. frá 17—19. — Trogum
skilað milli kl. 16—18 laugardag. — N E F N D I N
Frá Tónskóla
Neskaupstaðar
lnnritað verður í vorönn í húsnæði skólans mánudag-
inn 15. janúar og Jtriðjudaginn 16. janúar kl. 16—18
báða dagana.
í píanóleik er enn hægt að innrita nokkra nemendur,
að öðru leyti er skólinn nær fullskipaður.
Umsóknir )>arf að staðfesta með greiðslu námsgjalda
áður en kennsla byrjar.
Kennsla hefst fimmtudaginn 18. janúar samkvæmt
stundarskrá.
SKÓ LAST J Ó R 1
Neskaupstaður
Skattskýrslur viðskiptamanna okkar verða að berast
til skrifstofunnar hið allra fyrsta ásamt öllum gögnum
og er æskilegt að allar upplýsingar séu sem nákvæmast-
ar. Sérstaklega er bent á að koma með allar vaxtanótur
og reikninga vegna viðhaldskostnaðar húsnæðis, j>ar
sem gert er ráð fyrir strangara skattaeftirliti í ár, heldur
en áður hefur tíðkast.
Viðskiptavinir okkar eru beðnir velvirðingar á lokun
skrifstofunnar undanfamar 3 vikur vegna veikinda
og þeim óþægindum sem þeir hafa hlotið af þeim sökum.
Skrifstofan óskar Norðfirðingum og reyndar öllum
Austfirðingum árs og friðar og ]>akkar góð viðskipti
á liðnu ári.
VIÐSKIPTAÞJÓNUSTA
GUÐMUNDAR ÁSGEIRSSONAR
Melagötu 2 — Neskaupstað
Sími 7677
ÚTSALA
Norðfirðingar komið á útsöluna 15. janúar. Aldrei
eins mikið úrval af vörum, allt á að seljast. Nýtt á
hverjum degi.
Ath.: Fyrstu dagana verður opið frá 9—6.
Verslun Pálína Imsland
EGILSBÚÐ -i i—•—á\ ,
□□dnnbbtiDt
Sími 7322 Neskaupstað □□□□□□ □□□□□□□□□□
LÆKNIR f HÖRÐUM LEIK
Hörkuspennandi mynd með Nicholas Field. Sýnd
í kvöld, fimmtudag, kl. 9. — Bönnuð innan 14 ára.
TINNl í SOLTEMPLET
Bráðskemmtileg teiknimynl. Sýnd sunnudag kl. 3.
DRUM
SVARTA VÍTIÐ
Raunsæ og hörkuspennand l'tmynd um líf præla og
þrælahald í Bandaríkjunum á síðustu öld. Aðalh.
Warren Oates og Isela Veg Sýnd sunnudag kl.
9. — Bönnuð innan 14 ára.
LOGINN OG ÖRIN
Ákaflega spennandi og ævii.íýraleg kvikmynd. Aðalh.
Burt Lancaster og Virginia Mayo. Sýnd mánudag kl. 8.
Norðfirðingar —
Eigendur fyrirtækja og hú- ráðendur í Neskaupstað
eru beðnir að athuga eftirfai nú': Allt sorp skal sett í
þar til gerð ílát, )?au staðsett j^annig að greiðfært sé að
þeim og mokað frá feim snj '< ef með f>arf.
Þeir, sem vantar sorpílát, geta haft samband við
áhaldahús bæjarins.
BÆJ ARVERKSTJÓRINN
í NESKA UPSTAÐ
RTvmfm
Fjórðungssjúkrahúsið Neskaupstað vantar starfsfólk
frá miðjum þessum mánuði. Um er að ræða hluta úr
störfum.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í símum 7403
og 7466.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
NESKA UPST Atí
Frá kvenfélaginu
Nönnu, Norðfirði
Fyrirhugað er að halda á næstunni námskeið í púða-
og skermasaumi. Þær konur sem voru búnar að láta
skrifa sig eru beðnar að staðfesta það.
Nýir félagar velkomnir.
Upplýsingar í síma 7468 og 7477.
S T J Ó R N I N