Austurland - 08.03.1979, Blaðsíða 1
Austurland
Nauðsyn d hœkkun
olíustyrksins
29. árgangur
Neskaupstað, 8. mars 1979
10. tölublað
Gallar í olíumölinni
í Ijós hefur komið að olíumöl,
sem lögð var á götur á Eskifirði,
Reyðarfirði og í Neskaupstað síð-
astliðið sumar, uppfyllir ekki pær
gæðakröfur sem til hennar voru
gerðar.
Viðloðun efnisins er ekki næg-
anieg og „ullast“ pví olíumölin
upp undan umferðinni og er því
óeðlilegá mikið slitin miðað við
umferð og pann tíma sem hún
hefur verið á götunni.
Samkvæmt upplýsingum Loga
Kristjánssonar, bæjarstjóra í Nes-
kaupstað var efnið þar undir eft-
irliti bæjarverkfræðings og Rann-
sóknarstofntmar byggingariðnað-
arins og kom pá fljótlegá í ljós,
að helmingur prufanna sem tekn-
ar voru stóðst ekki suðuprófskröf-
Félagslíf
Hornfirðinga
O
Eftir að vertíð byrjaði eftir ára-
mót hefur verið frekar dauft yfir
menningarlífinu fyrir utan hefð-
bundin porrablót og pess háttar.
Þó eru einstaka félög alltaf með
einhverja tilbreytni. Kvenfélagið
Tíbrá hefur ætið verið mjög iif-
andi í starfi. Það heldur til dæmis
basar og hlutaveltu og hefur með
tekjum sínum fjármagnað ýmiss
konar framkvæmdir í líknarmál-
um hér. Líklega má pakka Kven-
félaginu Tíbrá og Kvenfélagasam-
bandi sýslunnar að hér er kominn
góður vísir að elliheimili.
Hér eru tvær slysavarnadeildir,
karla og kvenna. Þær eru einnig
mjög virkar. Karlmennirnir beita
sér einkum að björgunarmálum
en konurnar að fjáröflun. Þessi
félög hafa í samstöðu lyft grettis-
taki á sínu sviði. Svo er hér sæg-
ur annarra félaga t. d. var ég á
skátavígslu í fyrradag par sem 20
nýir skátar voru vígðir á afmælis-
degi Baden Powells. f félaginu á
Höfn eru um 50 skátar og í ný-
stofnuðu félagi í Nesjum nokkuð
færri. — H. Þ. G.
NESKAUPSTAÐUR
1929:
1979/
llBlfB
-> •
Nú þcgar kyndingarkostnaður
þeirra, sem hita þurfa hús sín með
olíu, æðir upp úr öllu valdi, er
eðlilegt að spurt sé, hvers stuðn-
ings sé að vænta af opinberri
hálfu til viðbótar núverandi olíu-
styrk. Við gerð fjárlaga beitti rík-
isstjórnin sér fyrir pví, að olíu-
styrkurinn yrði tvöfaldaður frá
því sem verið hefur en það var
áður en hinar miklu hækkanir
voru í sjónmáli.
Þessi mál munu nú vera í at-
hugun hjá ríkisstjórn og hefur nú
komið fram hjá einstökum ráð-
herrum, að þeir telji brýnt að deila
byrðunum og að hlaupið verði
myndarlega undir bagga hjá þeim
sem búa við olíukyndingu.
Einnig virðist full ástæða til að
endurskoða pau tengsl í verðlagn-
ingu á raforku til húshitunar við
olíuverð, sem nú eru í gildi, og
hafa myndu í för með sér mikla
og sjálfvirka hækkun á raforku til
húshitunar á næstunni í kjölfar
olíuverðshækkunar. Fáir lands
menn eiga jafn mikið í húfi í þess-
um efnum og Austfirðingar og því
vænta menn hér almennt aðgerða
í þessum efnum.
Umhverfis HlíÖarskálann ci Eskifirði var lögð olíumöl og
gengið frá gangstéltum.
Skólaskákkeppni
ur sem benti til þess að viðloðun
olíumalarinnar væri ekki næg.
Þegar þessir galiar komu í ljós
beitti hann sér fyrir að haldinn
yrði fundur um málið, þegar í
stað, með fulltrúum sveitarfélag-
anna, Olíumalar, verkfræðistofa og
rannsóknarstofnunar byggingar-
iðnaðarins.
Rannsóknarstofnunin taldi sig
ekki geta úrskurðað efnið ónot-
hæft þrátt fyrir niðurstöður pruf-
anna og varð því úr að ákveðið
var að leggja olíumölina á 500 m
langan kafla í Neskaupstað á
kostnað Olíumalar hf. og reynsla
látin skera úr um gæðin.
Jafnframt varð að samkomu-
lagi að Rannsóknarstofnunin hefði
eftirlit með efninu og ef gallar
kæmu í ljós léti Olíumöl annað
efni af hendi eða olíumölin yrði
verðlögð upp á nýtt.
Fulltrúar Rannsóknarstofnunar-
innar munu koma austur um leið
og snjóa léttir til að rannsaka
olíumölina og gefa sinn úrskurð.
Að þeim úrskurði fengnum
verður hægt að hefja samninga við
Olíumöl hf. að nýju.
Síðastliðinn sunnudag fór fram
á Eiðum sýslumót skólaskák-
keppninnar. Þar voru mættir til
keppni nemendur úr grunnskólum
Suður-Múlasýslu, Eskifirði og
Neskaupstað. Teflt var í
tveimur flokkum, yngra flokki,
sem í eru nemendur í 1.—6. bekk,
þar mættu nemendur úr 6 skólum
og eldra flokki, sem í eru nemend-
ur 7.—9. bekkjar þar mættu nem-
endur úr 5 skólum.
v Skólaskákmeistari S.-Múl. og
kaupst. varð í yngri flokki Þor-
valdur Logason, Neskaupstað og í
eldra flokki Kristinn Bjarnason,
F.iðum. Hljóta þeir verðlauna-
peninga og bikar að launum.
í öðru sæti í yngri flokki varð
Bjarki Unnarsson, Eskifirði og í
þriðja sæti Georg Pálsson, Reyð-
arfirði. I öðru sæti í eldra flokki
varð Jón A. Kjartansson, Eiðum
og í 3. sæti Þór Jónsson, Eskifirði.
Þessir piltar keppa síðan á
kjördæmismóti ásamt nemendum
frá A.-Skaftafellssýslu og N-Múla-
sýslu um titilinn skólaskákmeistari
kjördæmisins. Sigurvegari þar
keppir síðan á landsmóti þar sem
skólaskákmeistarar kjördæmanna
og 2 nemendur frá Reykjavík
keppa um titilinn Skólaskákmeist-
ari fslands í hvorum flokki fyrir
sig.
Frumvarpið
enn i deiqlu
Fjölskyldu-
skenimtun
Fjölskylduskemmtun á vegum
afmælisnefndar Neskaupstaðar
verður í Egilsbúð þ. 16. þ. m.
Skemmtunin er liður í hátíðar-
höldum afmælisársins.
Fjölbreytt efnisskrá, m. a.:
einsöngur, Baldur Karlsson, Leik-
félag Neskaupstaðar með þætti úr
verkum Jónasar Árnasonar, Lions-
kórinn syngur, nemendur Tónskól-
ans leika og ýmislegt fleira.
Mætum öll og eigum saman
ánægjulega kvöldstund.
(fréttatilkynning)
Frumdrög um stjórn efnahags-
mála og fleira voru enn til með-
ferðar f ríkisstjórninni er blaðið
fór í prcntun og óvíst hvort og
hvenær þau verða lögð fram á
Alþingi. 1 síðustu viku bárust rík-
isstjórninni umsagnir um frum-
varpsdrög forsætisráðherra frá að-
ilum vinnumarkaðarins með fjöl-
mörgum athugasemdum og kröf-
um um breytingar. Ráðherrar
Alþýðubandalagsins lögðu í
síðustu viku fram í ríkisstjóminni
tillögur sínar um breytingar á
frumvarpinu og voru margar
þeirra svipaðs eðlis og athuga-
semdir launþegasamtaka en höfðu
einnig að geyma nokkur ný efnis-
atriði og kafla til viðbótar, meðal
annars um hagræðingu og áætl-
anagerð í atvinnuvegunum.
Þá hefur forsætisráðherra einnig
kynnt hugmyndir um breytingar á
fyrri tillögum sínum og koma
sumar þeirra, að því er hermt er,
lil móts við sjónarmið Alþýðu-
bandalagsins og launþegasamtak-
anna, meðal annars varðandi
greiðslu vísitölu á laun.
Er þess að vænta að línur skýr-
ist, varðandi stefnumörkun í
efnahags- og atvinnumálum, öðru
hvoru megin við komandi helgi
og hvort saman gengur með stjórn-
arflokkunum eftir þóf síðustu
vikna.
Ljóst er að Alþýðuflokkurinn
unir illa sínum hlut, einkum Vil-
mundararmurinn en forsprakki
hans stóð fyrir tillöguflutningi á
Alþingi í síðustu viku um að frum-
varpsdrög forsætisráðherra skyldu
borin undir þjóðaratkvæði en hann
dró síðan tiliögu sína til baka,
eftir að hún hafði vakið furðu og
aðhlátur manna í tvo daga. Hins
vegar tóku þá sjálfstæðismenn upp
þráðinn með tillögu um þingrof
og nýjar kosningar og er það
Framh. á 2. síðu
Kristinn Bjarnason
Eiðum
Þorvaldur Logason
Neskaupstað
Hœkkun olíuverðsins ó heimsmarkaðnum
breytir viðhorfum
í orkubúskapnum
Hækkun olíuverðs á heimsmark-
aði að undanförnu, sem á eftir að
skella á íslcnsku efnahagslífi af
meiri þunga en fram er komið í
verðlagi á olíu og bensíni til
þessa, brcytir ýmsum viðhorfum
í orkubúskap þjóðarinnar ef um
varanlega þróun er að ræða. Fram
kom hjá Hjörleifi Guttormssyni,
iðnaðarráðherra í Kastljósi Sjón-
varpsins um daginn, að auk orku-
sparandi aðgerða þurfi að endur-
meta ýmsar áætlanir í orkumál-
um og ef til vill breyta fram-
kvæmdaröð og herða á fram-
kvæmdum sem flýtt gætu fyrir
því. að innlendir orkugjafar leysi
innflutt eldsneyti af hólmi. Þetta
varðar meðal annars línulagnir til
að útrýma dieselkeyrslu til raf-
orkuframleiðslu og endurbætur á
dreifikerfi í strjálbýli, þannig að
unnt sé að taka upp beina raf-
hitun í stað olíukyndingar.
Fundir syðra um
orkumál
Iðnaðarráðuneytið hefur nú
boðað til fundar þar sem þessi
nýju viðhorf verða rædd með tilliti
lil landsins í heild og einstakra
landshluta.
Þannig koma saman í byrjun
næstu viku yfir 30 sérfræðingar til
að bera saman bækur um við-
brögð við olíuverðshækkunum og
til að leggja á ráðin um breyttar
áherslur í orkuframkvæmdum á
næstunni og horft til lengri tíma.
Þá hefur iðnaðarráðherra boð-
að til sérstaks fundar um orkumál
Austurlands og verður hann hald-
inn í Reykjavík á morgun, föstu-
dag. Meðal þátttakenda eru al-
þingismenn kjördæmisins, formað-
ur og framkvæmdastjóri SSA og
orkunefnd SSA svo og fulltrúar
úr orkunefnd Hafnar í Hornafirði.
Á fundinum munu sérfræðingar
flytja yfirlitserindi um stöðu orku-
mála fjórðungsins og þá kosti sem
helst eru taldir koma til greina
til úrbóta á næstu árum og síðan
verður skipst á skoðunum.
Miklar umræður hafa verið að
undanförnu um aðgerðir í orku-
málum fjórðungsins, ekki síst
varðandi Bessastaðaárvirkjun og
hugsanlega hringtengingu sunnan
jökla á næstu árum og sýnist þar
sitt hverjum. Fundurinn, sem ráð-
herra hefur boðað til, mun ætlaður
til að fá fram hugmyndir manna
og umræður um ný viðhorf, meðal
annars að því er varðar æskilega
tengingu Austur-Skaftafel lssýsl u
við raforkukerfi landsins, fyrr en
seinna.