Austurland


Austurland - 08.03.1979, Blaðsíða 3

Austurland - 08.03.1979, Blaðsíða 3
Fyrir opnum... Framh. af 4. síðu. Sjálfstæðisflokkurinn hefur haft hægt um sig á opinberum vett- vangi síðan um kosningar. Hann hefur verið önnum kafinn við að sleikja pau holundarsár, sem hann þá hlaut. Einnig hefur hann haft ærið að starfa við að setja niður innanflokksdeilur, en þar logar allt í illindum og er hver höndin upp á móti annarri. En nd hefur flokkurinn hrist af sér slenið. Hann hefur lagt fram efnahagsmálatillögu, hina furðu- legustu samsuðu. Og þessu til við- bótar hefur hann nú lagt fram til- lögu um þingrof og nýjar kosn- ingar. Engin rök eru fyrir þessari til- lögu. Ríkisstjómin hefur staðið sig vel í ýmsum málum svo sem í baráttunni við verðbólguna, við- haldi kaupmáttar launa og mótun nýrrar orkustefnu. Og nú er hún að leitast við að móta framtíðar- lausn á efnahagsvandanum. Ríkis- stjómin verður að fá tóm til að ljúka ætlunarverki sínu og harð- vítug kosningabarátta er ekki lík- leg að greiða fyrir málum. Það yrði áreiðanlega mikið áfall fyrir Sjálfstæðisflokkinn, ef þing- menn samþykktu þingrofstillögu hans. Flokkurinn er illa undir kosningaátökin búinn. Hann hef- ur staðið sig illa í stjómarand- stöðunni og áreiðanlega hefur hann haldið áfram að tapa, auk þess, sem innanflokksófriðurinn er honum erfiður. Þingrofstillagan ber vott um, að Sjálfstæðisflokkurinn er líka klikkaður. Efnahagsmálafrum- varpið Sem kunnugt er lagði forsætis- ráðherra fram í ríkisstjórninni drög að frumvarpi um efnahags- mál. Um stuðning við frumvarpið innan ríkisstjórnarinnar skipti mjög í tvö horn. Alþýðubandalag- ið snerist öndvert gegn ýmsum þáttum þess, einkum þeim, sem hlutu að leiða til kjaraskerðingar og óhæfilegs samdráttar. Alþýðu- flokkurinn tók hinsvegar frum- varpinu af miklum fögnuði og krafðist þess, að það yrði þegar lagt fram sem stjórnarfrumvarp, ella flyttu kratar það sjálfir. Auð- vitað guggnuðu þeir á því eins og öðru. Þessar ljúfu undirtektir krata vekja óhjákvæmilega grun um, að frumvarpið hafi verið samið í samráði við þá, þótt forsætisráð- herra vilji eigna sér einum fað- ernið. Af launþegasamtökunum var ýmsum þáttum frumvarpsins mjög illa tekið og samþykkt þess í upp- haflegri mynd hefði leitt til stór- átaka á vinnumarkaðnum. For- sætisráðherra sá þá sitt óvænna og gerði verulegar breytingar á frumvarpi sínu og leitast þá við að koma til móts við kröfur laun- þegasamtakanna og Alþýðubanda- lagsins. Vonandi tekst um málið samkomulag milli stjórnarflokk- anna. Á þeim degi Það hefði einhverntíma þótt óspámannlegt að gera ráð fyrir því, að kratar tækju fagnandi frumvarpi Framsóknarmanns um ráðstafanir, sem m. a. snerta land- búnaðinn, því kratar hafa fengið orð fyrir annað en vinsamlega af- stöðu til bænda og landbúnaðar. En milli krata og Framsóknar gekk ekki hnífurinn í þessu máli og hefur frumvarpið því varla verið hagstætt bændum og þeirra atvinnugrein. En á þeim degi urðu þeir Ólaf- ur og Vilmundur vinir. NESKAUPSTAÐUR Bœjarskrifstofur Athygli er vakin á breyttum opnunartíma bæjar- skrifstofanna frá og með 1. mars n. k. Opnunartímar og viðtalstímar einstakra starfsmanna verða sem hér segir: Egilsbraut 1 1. hæð Afgreiðsla - opin kl. 9.30—12.00 — 12.30—15.00 Bæjargjaldkeri - viðtalstímar: mánud. kl. 10.00—12.00 jjriðjud. — 10.00—12.00 fimmtud. — 12.30—15.00 Bæjarbókari 2. hæð Bæjarstjóri - viðtalstímar: mánud. kl. 10.00—12.00 miðvikud. — 10.00—12.00 fimmtud. — 13.00—15.00 Ritari Skólafulltrúi - viðtalst.: alla virka daga kl. 9.00—12.00 Egilsbraut 5 Bæjarverkstjóri - viðtalst.: þriðjud. kl. 18.00—19.00 föstud. — 11.00—12.00 Egijsbraut 11 Byggingafulltrúi - viðtalst.: alla virka daga kl. 9.00—12.00 og — 14.00—16.00 Hafnarstjóri BÆJARSTJÓRJ Gömlu dansarnir Fyrirhugað er 10 tíma námskeið í gömlu dönsunum. Námskeiðið hefst 11. mars. — Þátttaka tilkynnist í síma 7424. — Öllum heimi] þátttaka. Kiwanis-klúbbitrinn Gerpir Neskaupstað AUGL ÝS/NG Nefnd. skipuð af bæjarráði Neskaupstaðar, til könnun- ar á byggingu vöruskemmu á hafnaruppfyllingunni i Neskaupstað, leitar hér með eftir aðilum, sem telja sig hafa j’örf fyrir aðstöðu í slíku húsnæði, og vildu vera hátttakendur um byggingu og rekstur ]>ess, þeir eru beðnir að hafa samband við hafnarstjóra, fyrir 15. mars n. k., sem gefur nánari upplýsingar. Undirbímingsnefndin Bíll til sölu N 134 Fiat 131 S árgerð 1977 er til sölu. Mjög vel með farinn.. — Upplýsingar gefur Hjörvar Jensson síma 7652 og 7575. EGILSBÚÐ Sfmi 7322 Neskaupstað □□□□□□ SIGLING HINNA DÆMDU Afburða vel leikin mynd um eitt hrottalegasta áróð- ursbragð nasista í fyrri heimsstyrjöldinni. Aðalh. James Mason, Max von Sydow og Malcolm Mc Dowell. Sýnd fimmtudag (í kvöld) kl. 9. Bönnuð innan 14 ára. Hækkað verð. TEIKNIMYNDASAFN 1977 Sprenghlægilegar og fallegar teiknimyndir. Sýndar sunnudag kl. 3. — Síðasta sinn. SJÖ NÆTUR í JAPAN Hörkuspennandi mynd með Michael York. Sýnd sunnudag kl. 9. — Bönnuð innan 14 ára. F M ÚTVARPSSTÖÐIN QSKY Bráðskemmtileg músíkmynd með Michael Brandon. Sýnd mánudag kl. 8. Ath. breyttan sýningartíma. Mynd- in er leyfð. NESKAUPSTAOUR Fró sorphiröunni Að gefnu tilefni er itrekað, að allt sorp skal sett í lokuð þar til gerð ílát og þau skulu staðsett þannig, að greiðfært sé að þeim og mokað frá þeim snjó ef þarf. BÆJAR VERKSTJÓRl Hundaeigendur Hundaeigendur í Neskaupstað eru minntir á fjórðu gr. í reglugerð um hundahald í Neskaupstað, sem er þannig: „Hundurinn skal aldrei ganga laus á almannafæri, heldur vera í taug í fylgd aðila sem hefur fullt vald yfir honum. Eigi er leyfilegt að fara með hunda inn á leikvelli, skóla, matvöruverslanir eða aðra staði, þar sem matvara er um hön,d höfð“. Ennfremur eru menn minntir á það, að hundahald í Neskaupstað er bannað með lögum og að sækja þarf um undanþágu ef hafa á hund. Eftirlitsmeður hunda Már Sveinsson, sími 7475 Nauðungaruppboð sem auglýst var í 84., 89. og 94. tbl. Lögbirtingablaðs 1978 á Naustahvammi 46—48, þingl. eign Naustavers hf., fer fram eftir kröfu innheimtumanns ríkissjóðs á eigninni sjálfri fimmtudaginn 15. mars, kl. 11.15. BÆJARFÓGETINN í NESKAUPSTAÐ — B. Þ.

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.