Austurland - 03.05.1979, Síða 1
Æjsturland
Olían og kaupið
29. árgangur
Neskaupstað, 3. maí J979.
19. tölublað.
Hörmulegt sjóslys
Það hörmulega slys gerðist um
kl. 11 að kvöldi mánudagsins 30.
apríi, að vélbáturinn Hrönn frá
Eskifirði fórst í mynni Reyðar-
fjarðar. 6 menn voru á bátnum.
Hrönn SH 149 var eikarbátur,
41 tonn, smíðaður 1956 á Akur-
eyri og var í eigu Haföldunnar hf.
á Eskifirði.
Báturinn hafði lagt upp á Breið-
dalsvík í vetur en var á heimleið
paðan að lokinni vetrarvertíð.
Einn skipverjanna varð eftir á
Breiðdalsvík. Hrönn hafði samflot
með Magnúsi NK og höfðu skipin
lent í stormi. Leiðir peirra skildu
við mynni Reyðarfjarðar en
Magnús fylgdist með bátnum í
ratsjánni. Magnús var kominn 4
mílur norður fyrir Vattamestanga
er hjálparbeiðni barst frá Hrönn,
en eftir pað sást ekki til bátsins
í ratsjánni. Magnús keyrði pegar
í rekstefnu í átt til pess staðar er
Hrönn sást síðast um 3 sjómílur
innan við Vattarnestangann en er
pangað kom eftir um 20 mín.
siglingu, sást aðeins ýmislegt laus-
legt úr bátnum á sjónum.
Fleiri skip komu fljótlega á
vettvang og varðskip seinna um
nóttina og leituðu pau án árang-
urs.
Mjög fljótt var einnig brugðið
við á landi. Innan 10 mínútna var
búið að kalla út björgunarsveitir
sem leitað hafa fjörur. Brak sem
fullvíst er talið að sé úr Hrönn
hefur fundist og lík eins skip-
verjans, Stefáns V. Guðmundsson-
ar stýrimanns.
5 skipverja er saknað, peir eru:
Jóhannes Steinsson, skipstjóri,
Eiríkur Bjarnason, 1. vélstjóri,
Sveinn Guðni Eiríksson 2. vélstjóri
Gunnar Hafdal Ingvarsson, háseti,
Kjartan Ólafsson, háseti.
Þeir sem kynda híbýli sín með
olíu hafa heldur betur fengið að
kenna á stríði olíupjóða og iðn-
velda undanfarin ár og enn er
ekkert lát á hækkunum.
Fjórðungssamband Vestfirðinga
hefur birt athyglisverða greinar-
gerð um próun olíuverðs, kaup-
gjalds og olíustyrks á tímabilinu
J. júlí 1973, en pá var olíukreppan
hin fyrri í aðsigi, fram til 1. mars
1979. í greinargerðinni er ísafjörð-
ur lagður til grundvallar, en par
er um 95% íbúðarhúsnæðis upp-
hitað með gasolíu.
1. júií 1973 kostaði hver lítri
af gasolíu kr. 5.30, en kr. 68,90
hinn 1. mars 1979. Hækkunin
nemur 1200%, p. e. verðið hefur
13-faldast.
— Á sama tíma hefur kaup
verkamanns í fiskvinnu hækkað
úr kr. 135,70 í kr. 981.00. Sú
hækkun nemur 623% eða ríflega
7-földun á kaupinu á tímabilinu.
— Olíukostnaður á íbúa á ísa-
firði var kr. 10.427 á árinu 1973,
en kr. 119.047 árið 1978.
— Árið 1973 fóru 5,61% ráð-
stöfunartekna verkamannsins í
olíukostnað, en 17,01% árið 1978.
— Hinn fyrsta júlí 1973 feng-
ust 25,6 lítrar af gasolíu fyrir
tímakaup verkafólks í fiskvinnu,
en 1. mars 1979 fengust 14,2 lítrar.
— Og árið 1973 fengust 1358
lítrar af olíu fyrir olíustyrkinn
yfir árið. í mars 1979 fengust 151
lítri.
— í júlí 1973 var hlutfall olíu-
styrks af olíukostnaði 70%, en í
mars 1979 tæp 9%.
í vísitölu framfærslukostnaðar
er hitunarkostnaður í Reykjavík
lagður til grundvallar. Kannski er
par að finna tregðu stjórnvalda
til að greiða olíuverðið niður. Það
hefur nefnilega engin áhrif á bless-
aða vísitöluna pó hitunarkostnað-
ur úti um land margfaldistl!
— Krjóh.
Meiri loðna en
nokkru sinni fyrr
Atvinnuástand hefur verið með
eindæmum gott á Eskifirði í vetur.
Tekið var á móti meiri loðnu en
nokkru sinni áður og var unnið
nótt og dag við vinnslu aflans.
Vinnuálagið á pessum tíma hlýtur
að vera ærið umhugsunarefni. Það
er til lítils að hafa lögfesta 40
tíma vinnuviku pegar fólk parf
að vinna helmingi lengri tíma
bæði vegna lágs tímakaups í dag-
vinnu en ekki síður vegna kröf-
unnar um að bjarga verðmætum.
Því á móti peim efnahagslegu
verðmætum sem bjargast við hinn
óhemjulanga vinnutíma, pá eru
ómæld menningarleg verðmæti
sem tapast og heilsutjón vegna
vinnuálagsins.
Annar böggull hefur fylgt loðn-
unni en pað er peningalyktin
margfræga. Hún hefur verið með
alversta móti í vetur og er orðin
nánast óbærileg, enda er orðinn
verulegur prýstingur á rekstrar-
aðila verksmiðjunnar hér og
stjórnvöld að vinda bráðan bug
að pví að koma upp hreinsibúnaði
við verksmiðjuna. — H. J.
Hver á
gamlar
myndir
{ tilefni 50 ára bæjarafmælis
Neskaupstaðar er í undirbúningi
myndasýning, sem ætlað er að
sýna próun byggðar og mannlífs
í bænum pessi 50 ár og reyndar
lengur.
Líklegt er að brottfluttir Norð-
firðingar eigi í fórum sínum gaml-
ar myndir. Myndir af gömlum at-
vinnuháttum, gömlum bátum eða
húsum. Myndir af atburðum, fólki
eða félagslífi svo eitthvað sé nefnt.
Afmælisnefnd Neskaupstaðar
beinir pví til allra brottfluttra
Norðfirðinga að peir leiti að
gömlum myndum og öðru sögu-
NESKAUPSTAÐUR
legu efni í fórum sínum og láni
pað til skoðunar og ef til vill til
eftirtöku og sýningar. Því er heitið
að fara vel með myndirnar, skrá
pær og skila peim aftur sé pess
óskað.
Tíminn er naumur og pví biðj-
um við alla að bregðast fljótt við.
Senda má myndirnar til afmælis-
nefndarinnar, en starfsmaður
hennar er Ágúst Ármann Þorláks-
son og sími hans er 7625. Ágúst
gefur allar nánari upplýsingar og
ennfremur formaður afmælis-
nefndarinnar Kristinn V. Jóhanns,
son.
(Fréttatilkynning frá af-
mælisnefnd Neskaupst.)
Fjárhagsáae-tlun Neskaupstaðar afgreidd
Raunverulegt útsvar
hefur skerst um 40 prósent
Bæjarstjórn Neskaupstaðar af-
greiddi fjárhagsáætlun ársins 1979
á apríifundi sínum. Ástæðan fyrir
því að afgrciðsla hennar dróst er
sú, að beðið var efnahagsaðgerða
ríkisstjórnarinnar og auk þess
vonuðu mcnn í lcngstu lög, að
ríkisstjórnin hcimilaði svcitarfé-
lögunum að leggja á 12% útsvar
í stað ellcfu.
Óhætt er að fullyrða, að pað
urðu sveitarstjómum mikil von-
brigði, að stjórnvöld sýndu ekki
meiri skilning á vanda sveitarfé-
laganna. Það er ekki sérlega stór-
mannlegt í peirra garð að byrja
á pví að fulltryggja tekjustofna
ríkissjóðs fyrir verðbólguáhrifum
og koma svo fram fyrir alpjóð,
eins og fjármálaráðherra gerði, og
segja að álmenningur poli ekki
aukna skattpíningu og pví verða
sveitarfélögin að búa við pað að
raunverulegt útsvar hefur skerst
um 40 prósent.
Helstu tekjuliðir
Niðurstöðutölur áætlunarinnar
eru rúmar 449 milljónir. Útsvör
(11%) eru áætluð kr. 252 milljónir,
aðstöðugjöld tæpar 59 milljónir,
fasteignaskattur 65 milljónir og
framlag úr jöfnunarsjóði kr. 44
milljónir. Aðrir tekjuliðir eru
minni.
Rekstrarafgangur
120 m. kr.
Rekstrargjöld eru tæpar 329
milljónir og rekstrarafgangur rúm-
ar 120 milljónir (26.7%).
Stærstu rekstrarliðir eru fræðslu-
mál 61 millj., félagsmál tæpar 57
millj., vextir og lántökukostnaður
Framhald á 4. síðu.
Fundur Iðnaðarráðuneytis og SSA um orkumál á Austurlandi
Heimamenn leggja áherslu á
forgang Bessastaöaárvirkjunar
Sumarið notað til framkvæmdaundirbúnings og rannsókna
Um fjörutiu manns sátu fund
á Egilsstöðum síðastliðinn föstu-
dag 27. april um orkumál á Aust-
urlandi en til hans var boðað af
Iðnaðarráðuneytinu í samvinnu
við Samband sveitarfélaga í Aust-
urlandskjördæmi. Var þetta með
vissum hætti framhald fundar sem
haldinn var í Reykjavik 9. mars
sl. cn allmargir heimamanna sem
þangað var boðið komust þá ekki
vegna samgönguerfiðleika.
Góð sókn var á fundinn á Egils-
stöðum, þangað var boðið alping-
ismönnum kjördæmisins, stjórn
SSA, orkunefndar SSA og Hafn-
arhrepps, og nokkrum starfsmönn-
um Austurlandsveitu. Einnig
komu til fundarins ýmsir sérfræð-
ingar í orkumálum og fluttu fram-
söguerindi: Jakob Björnsson,
orkumálastjóri, Kristján Jónsson,
rafmagnsveitustjóri, Finnur Jóns-
son, forstjóri Hönnunar hf., sem
unnið hefur að undirbúningi
Bessastaðaárvirkjunar, Tryggvi
Sigurbjarnarson, verkfræðingur,
sem greindi frá undirbúningi að
stofnun landsfyrirtækis til raforku-
öflunar og Kristján Sæmundsson,
jarðfræðingur, sem sagði frá stöðu
og horfum í jarðhitaleit á Austur-
landi. Verkfræðingarnir Jóhann
Indriðason frá verkfræðistofu Sig-
urðar Thoroddsen og Sveinn Þór-
arinsson á Egilsstöðum greindu frá
athugunum sínum varðandi raf-
orkumál Austuriands, sem þeir
hafa unnið að á vegum SSA.
Að framsöguerindum loknum
fóru fram hringborðsumræður par
sem margir lögðu orð í belg og í
fundarlok var sampykkt ályktun
par sem áhersla er lögð á að virkj-
un í fjórðungi komi á undan
hringtengingu sem þó verði einnig
stefnt að. Fundarstjórar voru:
Hörður Þórhallsson, stjórnarfor-
maður SSA, og Bergur Sigur-
björnsson, framkvæmdastjóri SSA.
í ávarpiiðnaðarráð-
herra, Hjörleifs
Guttormssonar,
í upphafi fundar kom meðal ann-
ars fram, að iðnaðarráðuneytið
vildi með pessum fundi og dreif-
ingu upplýsinga milli funda gefa
þeim aðilum heima fyrir sem mest
láta sig varða orkumál fjórðungs-
ins kost á að fylgjast með fram-
vindu mála, heyra rök sérfræðinga
og koma á framfæri gagnrýni og
ábendingum.
Viðhorf í orkumálum lands-
manna tækju nú örum breytingum
meðal annars vegna hækkunar
innfluttra olíuafurða sem kölluðu
á verulegt átak og auknar fram-
kvæmdir til að draga úr olíunotk-
un. Hefur ráðuneytið nýlega lagt
fram tillögur um verulegar við-
bótarfjárveitingar til orkumála
pegar á pessu ári og væru pær til-
iögur nú til athugunar í ríkis-
stjórninni. Þar væri meðal annars
um að ræða hröðun á línulögn
til Vopnafjarðar og lúkningu imd-
irbúnings vegna línu frá Skriðdal
til Hafnar í Hornafirði.
Megin málið sem við Austfirð-
ingum blasir nú sé hins vegar
spurningin um, hvort áformin um
Bessastaðaárvirkjun nái fram að
ganga í bráð eða hvort orkumái
fjórðungsins yrðu í bili leyst með
hringtengingu sunnan jökla eins
og mjög væri nú knúið á um af
ýmsum aðilum utan fjórðungs að
undanförnu.
Framhald á 3. síðu