Austurland - 17.05.1979, Side 1
ÆJSTURLAND
29. árgangur
Neskaupstað, 17. maí 1979.
21. tölublað.
Framhaldsnám
á Austurlandi
Tekið verði upp náið samstarf milli skóla
á Austurlandi um framhaldsskólanám
Dagana 4. og 5. maí sl. var
haldin á Egilsstöðum ráðstefna
um málefni framhaldsskóla á
Austurlandi að tilhlutan S.S.A. og
fræðsluráðs Austurlands. Til ráð-
stefnunnar var boðið skóla- og
sveitarstjórnarmönnum í umdæm-
inu.
Ráðstefnan var mjög vel sótt
og ríkti mikil eining meðal fund-
armanna. Fjögur framsöguerindi
voru flutt. Vilhjálmur Einarsson
fjallaði um markmið framhalds-
náms og námsbrautir í framhalds-
skólum á Austurlandi. Guðmund-
ur Ingi Sigurbjörnsson ræddi um
nemendafjölda á Austurlandi á
framhaldsskólastigi og skiptingu
námsbrauta milli skóla. Kristinn
V. Jóhannsson gerði grein fyrir
löggjöf um framhaldsskóla og
þátttöku sveitarfélaga í stjórnun
framhaldsnáms í fjórðungnum. Þá
gerði Gerður G. Óskarsdóttir grein
fyrir fjölbrautanámi og mögulegri
ótfærslu þess á Austurlandi.
Einnig ávarpaði menntamála-
ráðherra, Ragnar Amalds, ráð-
stefnuna og gerði grein fyrir stöðu
frumvarps til laga um framhalds-
skóla. Kom fram að nokkrar líkur
eru á að frumvarpið verði að lög-
um nú í vor.
Framhaldsskóla-
frumvarpið
Aðal umræðuefni á ráðstefn-
unni var frumvarp til laga um
framhaldsskóla og mögulega skip-
an framhaldsnáms í fjórðungnum
á grundvelli þess.
f umsögn ráðstefnunnar um
frumvarþið kom fram m. a.
1. Ráðstefnan telur að megin-
atriði frumvarps til laga um
framhaldsskóla séu það mikils-
verð, að dráttur á afgreiðslu
þess sé mjög óæskilegur og
hvetur því eindregið til að frv.
verði afgreitt sem fyrst frá
Alþingi.
2. Ráðstefnan telur að æskilegast
sé að uppbygging og rekstur
framhaldsskóla væri í höndum
ríkisins. En til að flýta því,
að samræmdur framhaldsskóli
komist á, og jöfnuður milli
bóknáms og verknáms, leggur
fundurinn til, að fjármálakafli
frumvarpsins verði samþykktur
eins og hann er með nokkrum
breytingum þó.
3. Byggja þarf upp vel búna
kjarnaskóla en síðan yrði hægt
að dreifa minna sérhæfðu námi
eftir því sem aðstæður leyfa.
Mikil harðindi hafa í vor verið
um land allt og mun lengi til
þeirra vitnað. Víðast hvar, ef ekki
allsstaðar, hefur verið frost á
hverjum degi og snjókoma og
stormar tíðir. Muna menn varla
eða ekki önnur eins vorharðindi.
Veðurfræðingur sagði á mánudag
að hitastigið fyrri hluta maí svar-
aði til þess, sem venja væri í
febrúar, þ. e. á Þorra sjálfum.
Þessi slæma tíð hefur valdið
miklum erfiðleikum. Samgöngur
hafa oft verið í ólestri og bætist
nú veðráttan við þau vandkvæði,
sem stafa af mannavöldum. Haf-
ís hefur líka legið við land sums-
staðar, torveldað samgöngur og
hindrað sjósókn.
Sauðburður er hafinn fyrir
Samræming og sam-
starf skóla á
Austurlandi
Skólastjórar framhaldsskólanna
á Austurlandi fluttu eftirfarandi
tillögu, sem ef vel tekst til um
framkvæmd markar tvímælalaust
tímamót í sögu framhaldsnáms á
Austurlandi.
„Ráðstefnan beinir því til S.S.A.
(stjórnar og fræðsluráðs) og
menntamálaráðuneytisins, að þess-
ir aðilar vinni að því að tekið verði
upp náið samstarf þeirra skóla
á Austurlandi, sem starfrækja
framhaldsnám og stefnt verði að
því að þeir starfi sem ein heild.
Markmið þess samstarfs er að
tryggja nemendum á Austurlandi
Framhald á 3. síðu
nokkru og þurfa bændur víðast
að hafa fé á húsum og veldur
það miklu umstangi. Ekki veit
blaðið hvernig ástatt er með hey-
birgðir, en fóðurbætir mun af
skornum skammti.
Kartöflur hafa að sjálfsögðu
ekki verið settar í jörð og kann
það að draga úr uppskeru.
Farfuglar hafa átt erfitt upp-
dráttar og hætt er við að þeir hafi
fallið í nokkrum mæli.
Hér áður fyrr, og það fyrir ekki
mörgum áratugum, hefði fjárfellir
fylgt í kjölfar svona vorveðráttu
um land allt. Og þegar féð fellur
er skammt í mannfelli.
En við vonum að bráðum komi
betri tíð með blóm í haga.
Mikil vorharðindi
Lions
kabarett
Að undanförnu hefur Lions-
klúbbur Norðfjarðar sýnt Lions-
kabarett hér í bæ við geypigóða
aðsókn og undirtektir. Kabarett-
inn samanstendur af söng, har-
mononikuleik, leikþáttum o. fl.
Efnið var að mestu leyti samið
af félögum í Lionsklúbbnum en
innan hans er mikið af húmor-
istum. — Eftirminnilegast af
skemmtiatriðunum er án efa fæð-
ing tannlæknisins sem lengi verð-
ur í minnum höfð. — Lionsmenn
sýndu kaparettinn á tveim stöð-
um utan Neskaupstaðar, Eskifirði
og Fáskrúðsfirði.
Eftir síðustu sýningu á kabarett-
inum í Neskaupstað var haldinn
dansleikur og voru á honum ýmiss
frumlegheit, bögglauppboð o. fl.
— G. B.
Þing'sájy ktunartillaga:
Mengunarvarnir
í fiskimjölsverksmiðjum
Frá Eskifirði.
Helgi Seljan hefur flutt þings-
ályktunartillögu um mengunar-
varnir í fiskmjölsverksmiðjum.
TiUagan er svohljóðandi:
Alþingi ályktar að fela ríkis-
stjórninni að beita sér fyrir því,
að á árinu 1979 verði gert átak
til að ráða bót á mengun frá fisk-
mjölsverksmiðjum og jafnframt
verði gerð áætlun um varanlegar
úrbætur í mengunarmálum slíkra
fyrirtækja i samvinnu við hlutað-
cigandi eigendur og samtök þeirra
svo og hcilbrigðis- og nátturu-
verndaryfirvöld.
Áætlunin taki m. a. mið af að
lágmarkskröfum um mengunar-
varnir allra starfandi fiskmjöls-
verksmiðja verði fullnægt innan
tveggja ára og fjármagn sé tryggt
til þeirra aðgerða. Verði í senn
haft í huga ytri og innri umhverfi
verksmiðjanna og athugaðir mögu-
leikar á bættri nýtingu hráefnis og
orkusparnaði samhliða viðhlítandi
mengunarvörnum.
í greinargerð með tiUögunni
segir flutningsmaður að marggefin
tilefni valdi því, að rétt þyki nú og
brýnt að flytja pingsályktunartil-
lögu um þetta efni og þurfi þar
skjóta og örugga úrlausn, þar
sem stjórnvöld hljóti að hafa for-
ystu. Á nýafstaðinni loðnuvertíð
komu fram háværar kröfur frá
íbúum ýmissa byggðarlaga um úr-
bætur í mengunarmálum fisk-
mjölsverksmiðja, og er skemmst
að minnast kröfugöngu húsmæðra
í Keflavík og Njarðvík vegna
óþolandi loftmengunar frá verk-
smiðjunni í Njarðvík.
Flutningsmaður sagði að hér
væri um gamalt vandamál að ræða
og oft áður komið fram mótmæli
— Ljósm.: lóa
s. s. frá heilbrigðisnefnd 5 þéttbýl-
isstaða á Austurlandi í nóvember
1978. Mengunarvandamál verk-
smiðjanna væru ekki einungis tak-
mörkuð við loftmengun heldur
einnig sjávarmengun. Ljóst væri
ennfremur að mikil verðmæti fari
forgörðum með frárennsli frá
verksmiðjunum. Auk þess mætti
benda á óþrif af slæmri umgengni
um athafnasvæði verksmiðjanna
og ófullnægjandi frágangi hrá-
efnisloftgeymslna. Starfsumhverfi
væri einnig víða ábótavant, m. a.
vegna ónógrar loftræstingar,
óþrifa á vinnustöðum, heilsuspill-
andi hávaða og ófullnægjandi
starfsmannaaðstöðu, en mjög treg-
lega hafi gengið að fá framgengt
kröfum heilbrigðisyfirvalda um úr-
bætur í mengunarmálum fiski-
mjölsverksmiðja. Hafi eigendurnir
m. a. borið við fjármagnsskorti,
skorti á opinberri fyrirgreiðslu og
skorti á samræmingu krafna um
úrbætur.
Helgi sagði ennfremur að loft-
mengun frá fiskimjölsverksmiðj-
um væri flókið vandamál og erfitt
úrlausnar. Tækniþróun til lausnar
þessa vandamáls hafi hins vegar
verið ör á undanfömum árum.
Heilbrigðiseftirlit ríkisins hafi nú
gert tillögu um setningu fastmót-
aðra reglna í þessum efnum bæði
um lágmarkshæfni slíks búnaðar
og framkvæmd mælinga og mats
á hæfni búnaðarins. Fyrr en slík-
ar mælingar hafi verið gerðar verði
hins vegar ekki skorið úr um
hæfni búnaðar sem settur hefur
verið upp og unnið er að því að
koma upp né heldur annars bún-
aðar, sem upp kann að verða sett-
ur í framtíðinni.
Þjóðleikhúsið frum-
sýnir í Neskaupstað
í tilefni 50 ára af-
mœlis bœjarins
Sunnudaginn 20. maí nk. frum-
sýnir Þjóðleikhúsið leikritið
„Gamaldags kómedía“ eftir
Aleksei Arbusov, í Neskaupstað.
Verður frumsýningin liður í há-
tíðarhöldum bæjarins í tilefni 50
ára afmælisins.
Leikstjóri er Benedikt Árnason
og leikendur. eru 2, Herdís Þor-
valdsdóttir og Rúrik Haraldsson.
Þýðandi leiksins er Eyvindur Er-
lendsson, leikmynd gerir Jón
Benediktsson.
Leikritið gerist í ágúst 1968 við
sjávarsíðuna í Riga og er f 9
atriðum. Það hefur verið sýnt víða
um heim á undanfömum árum
og notið afarmikilla vinsælda enda
er höfundur þess gamalreyndur
Ieikhúsmaður og hefur þarna unn-
ið verk sem í er blanda af gaman-
semi og viðkvæmni en það er
líklega sá máti sem helst nær til
okkar sbr. Chaplin o ,fl.
Tvær sýningar verða í Neskaup-
stað en fyrirhugað er að sýna
leikritið á fleiri stöðum Austan-
lands.