Austurland - 12.07.1979, Qupperneq 3
Hátíðarhöldin
• •
Framhald af 1. síðu.
og fengu þar margir sinn fyrsta
reiðtúr.
Um kvöldið var kvöldskemmt-
un í Egilsbúð með vandaðri dag-
skrá, þar sem skólahljómsveitimar
og þjóðdansararnir komu aftur
fram. Kynnt voru 6 norðfirsk skáld
og hagyrðingar og lesið úr verk-
um þeirra. Lesarar voru Guðríður
Kristjánsdóttir, Smári Geirsson og
Ólöf Þorvaldsdóttir. Margrét
Pálmadóttir, mjög efnileg og kom-
ung sópran söngkona, söng við
undirleik Hrefnu Eggertsdóttur
sem ekki er síður ung og efnileg
og Láms Sveinsson dáleiddi við-
stadda með trompetleik sínum.
Líf og f jör í
skrúðgarðinum
Á meðan á kvöldskemmtuninni
stóð var líf og fjör í skrúðgarð-
inum, þar sem skátarnir stóðu fyr-
ir alls konar sprelli með mini
Tívolí, varðeld o .fl. Síðast á
dagskrá laugardagsins var svo
dansleikur í Egilsbúð, þar sem
Amon Ra lék fyrir dansi.
Rigningin setti strik í
reikninginn
Á sunnudaginn var farið að
rigna en um morguninn var haldið
sundmót og eftir hádegi var hátíð-
arguðþjónusta í Norðfjarðarkirkju,
þar sem Lárus Sveinsson lék á
trompet.
Hraðmót í handknattleik sem
halda átti á íþróttavellinum var
flutt í íþróttahúsið vegna veðurs
en Vaxlíf var á sínum stað í
Egilsbúð kl. S.Allar sýningamar
voru opnar og mikið sóttar. Yfir
600 manns hafa nú séð sýninguna
á verkum Gerðar Helgadóttur í
Egilsbúð og Náttúrugripasafnið
var að sjálfsögðu einnig opið.
Margar góðar gjafir
í kvöldverðarboði sem bæjar-
stjóm Neskaupstaðar hélt gestum
í Egiisbúð voru Neskaupstað gefn-
ar margar góðar gjafir og heilla-
óskir fluttar. Oddviti Mjófirðinga
Erlendur Magnússon afhenti bæj-
arstjórn forkunnarfagran skjöld úr
grágrýti greyptan silfri. Magnús E.
Guðjónsson færði bæjarstjórn
fundarhamar frá Sambandi ísl.
sveitarfélaga, einnig listasmíði úr
hvaltönn, silfri og steini. Þorsteinn
Þorsteinsson afhenti fyrir hönd
Hafnar í Hornafirði mynd af Höfn
og Sýslunefndarinnar í Austur-
Skaftafellssýslu sýslufánann á
granítfæti.
Borgarstjórinn í Stavanger Ame
Rettedal gaf Neskaupstað fagur-
iega unnið víkingaskip úr silfri
og borgarstjórinn í Esbjerg,
Henning Rasmussen færði bóka-
safninu veglega bókagjöf.
Á öllum aldri og 3
þjóðemum
Þjóðdcinsahópurinn frá Esbjerg.
Á sunnudagskvöldið var boð
inni fyrir gesti, innlenda og er-
lenda ásamt gestgjöfum þeirra og
fulltrúum þeirra félaga og félaga-
samtaka og einstaklinga sem unnið
höfðu að undirbúningi afmælisins.
Þarna var því samankominn
blandaður hópur, allt niður í 10
ára aldur sem átti skemmtilega
stund saman.
Skemmtiatriði voru ekki fyrir-
fram ákveðin, heldur komu þeir
fram sem vildu og úr þessu varð
mikið glens og gaman.
Góð umg-engni
í heiid tókust hátíðarhöldin vel
og þátttaka var mjög góð þrátt
fyrir að veðrið var ekki upp á
sitt besta.
Eftirtektarvert var, hvað um-
gengni var góð og skemmdarverk
engin, hvorki á mannvirkjum né
gróðri, ekki heldur eftir dansleik-
inn á laugardagskvöldið og sýnir
það vonandi að unnið sé á réttri
braut.
Lína langsokkur (Sigríður Þorvaldsdóttir) kom i heimsókn.
Takið eftir
Óska eftir að kaupa notaðan
ísskáp.
Uppl. í sima 7646, Neskaupst.
lnnilegar jtakkir til allra er glöddu mig á 80 ára afmæli
mínu 8. júlí með heimsóknum, gjöfum og skeytum.
Lifið heil
Stefán Einarsson
Neskaupstað
Almennir fundir
Alþingismennirnir Helgi Seljan og Hjörleifur Gutt-
ormsson boða til tveggja funda á næstu dögum:
Á FÁSKRÚÐSFIRÐl
í Skrúð föstudagskvöldið 13. júlí kl. 20.30.
VIÐ LAGARFOSS
laugardaginn 14. júlí kl. 15.
Sundnámskeið
Sundnámskeið fyrir börn fædd 1971 og 1972 hefst vænt-
anlega þriðjudaginn 17. júlí. Þátttakendur mæti til
skráningar og frekari upplýsinga mánudaginn 16. júlí
við sundlaugina.
Til skráningar eiga böm f. 1971 að koma kl. 9.30 en
böm f. 1972 koma kl. 10.30.
SUNDKENNARl
Atvinna
Starfsfólk óskast allan daginn.
Upplýsingar gefur Lilja Karlsdóttir, síma 7125.
«
SPARISJÓÐUR NORÐFJARÐAR
Atvinna
Okkur vantar skipasmið eða trésmið nú þegar.
íbúð á staðnum.
DRÁTTARBRAUTIN HF.
íbúðarhús til sölu
Húseignin Miðstræti 25 er til sölu.
Upplýsingar í síma 7130 — Neskaupstað.
Timbursala
Eigum fyrirliggjandi 2“x5“ — l^“x6 — 2j^“x6.
Væntanlegt seinni hluta ágústmánaðar l“x4“ — l“x6“
— I“x7“ — l“x8“ — l“x9“.
Gott verð — Tökum inn pantanir í síma 7384.
Trésmiðjan HVAMMUR SF.
Neskaupstað