Austurland - 18.10.1979, Page 1
Austurland
29. árgangur.
Neskaupstað, 18. október 1979.
37. tölublað.
Hlupu frd þýðingarmiklum
hagsmunamálum alþýðu
til að mynda
dúkkustjórn fyrir
íhaldið að leika með
Nú hefur J>að gerst að ný stjóm hefur tekið við á landi Hi«>s Vegar er stefna Alþýðu-
hér á ábyrgð og með fullum stuðningi Sjálfstæðisflokksins. bandalagsins með
I
Eitt síðustu verka Hjörleifs
sem iðnaðarráðherra:
Ákveðið að virkjaj
Bessastaðaá sem )
1. hluta virkjunar
í Fijótsdal
Þann 11. október sl. sendi Iðnaðarráðuneytið erindi
til Rafmagnsveitna ríkisins þar sem tilkynnt er sú
ákvörðun ráðuneytisins að ráðast skuli í Bessastaðaár-
virkjun sem fyrsta áfanga Fljótsdalsvirkjunar og að
Rafmagnsveitunum sé falið að reisa og reka virkjunina.
Aljjýðuflokkurinn kaus að opinbera enn betur en áður
þá staðreynd, sem raunar hefur legið ljós fyrir j>eim sem gerst
hafa fylgst með, að meirihlutinn í f>eim flokki vill ekki eiga
samleið með vinstri öflum í landinu. Hann vill stjóma með
Sjálfstæðisflokknum af þeirri eðhlegu ástæðu að meginstefnu-
mið þeirra fara saman.
Þessi dúkkustjóm á að leggja grunn að J>essu samstarfi
og sjálfstæðismenn hafa }>ar tögl og halgdir, ráða í raun og
bera alla ábyrgð á hugsanlegum stjórnarathöfnum og beirri
J>róun sem nú er að gerasL
Vinstra fólki í landinu er þetta
holl lexía. Fyrrverandi ríkisstjórn
tók sannarlega vel á mörgum mál-
um. Alþýðuflokkurinn hljóp frá
mörgum þýðingarmiklum hags-
munamálum íslenskrar alþýðu,
ekki síst landsbyggðarfólks, mál-
um sem í höfn hefðu komist nú
í vetur ef af heilindum hefði verið
starfað.
Deilurnar í ríkisstjóminni stóðu
um afar einföld atriði í raun.
Samstarfsflokkar Alþýðubanda-
lagsins höfðu þar um margt sam-
eiginlega afstöðu þó að Alþýðu-
flokkurinn gengi þar ætíð lengra.
Deilan stóð um samneysluna í
þjóðfélaginu, atvinnuöryggið og í
beinu samhengi þar við en ofar
öllu: Lífskjör hins vinnandi
manns við sjó og í sveit.
Alþýðubandalagið neitaði ævin-
lega að leysa vandann einhliða
með því að lækka kaup láglauna-
fólks með því að stofna atvinnu-
öryggi í hættu á þann samdráttar-
veg sem Alþýðuflokkurinn setti í
öndvegi.
Illu heilli snérust Framsóknar-
menn á sl. vetri til liðs við kröfur
Alþýðuflokksmanna um skerðingu
kaups, um samdrátt, og um há-
vaxtastefnu sem einhliða aðgerðir
sem nú eru að verða eitt alvar-
legasta vandamál margra alpýðu-
heimila.
Alþýðubandalagið mat líf ríkis-
stjórnarinnar og störf hennar það
mikils fyrir alla vinstri menn í
landinu, að það lét í sumu undan;
sætti sig við málamiðlun eftir að
ýmiss fráleitustu atriðin í tillög-
um samstarfsflokkanna höfðu
verið felld út eða lagfærð.
Nú þegar ný íhaldsstjórn blasir
við, ef vinstra fólk í landinu verð-
ur ekki á verði, er mörgum ef til
vill ljósara hvers vegna Alþýðu-
bandalagið lagði svo mikla áherslu
á það þrátt fyrir allt að halda
fyrri stjórn saman.
Skilin eru nú skörp:
Annars vegar er stjórn íhalds
með
— samdrátt nauðsynlegra fram-
kvæmda
— skerðingu kaupmáttar
— óheftan gróða einkaframtaks-
ins
— erlenda stóriðju og
— ómengaða aronsku.
Fáskrúðsf jörður:
Sólborg seldi ytra
Sólborg hefur veitt í net í sum-
ar og haust, en afli hefur verið
tregur í heild og auk þess voru
miklar frátafir frá veiðum vegna
þorskveiðibannsins. Sólborg er nú
nýlega komin úr söluferð til
Þýskalands, þar sem hún seldi 63
tonn fyrir gott verð.
Guðmundur Kristinn er byrj-
aður línuveiðar og minni bátar
stunda einnig með línu.
Afli togaranna hefur verið með
minna móti að undanfömu, en
þó hefur vinna verið næg í fisk-
vinnslunni. Haffell landaði 50
tonnum á mánudag og Ljósafell
er fyrir skömmu byrjað veiðar
að nýju eftir að hafa verið í
slipp um skeið.
Hingað hafa borist 3.300 lestir
af loðnu til bræðslu og hefur
bræðsla gengið vel.
— B. S.
Neskaupstaður:
Skuttogaramálið
komið í höfn
Lán fengið hjá enskum banka til kaupanna.
— áframhaldandi sókn til auk-
innar samneyslu og félagslegra
framfara og uppskurðar á
efnahagslífinu
— atvinnuöryggi á grunni ís-
lenskrar atvlnnustefnu
— aukinn launajöfnuð og bættan
kaupmátt hinna lægst launuðu
og þá stefnu í þjóðfélagsmál-
um okkar sem jafnt lýtur að
andlegu sem efnahagslegu
sjálfstæði okkar.
Kosningabaráttan verður hörð og
óvægin en megin sannindin Iiggja
fyrir: Valið er milli Alþýðubanda-
lagsins og íhaldsins. í engu má
sundra kröftum einlægra vinstri
manna, það sannar saga síðustu
stjórnar það sanna atburðir lið-
inna daga.
Helgi Seljan
Nú hefur endanlega verið geng-
ið frá sölu á skuttogaranum Barða
NK 120 úr landi. — Sala þessi
hefur valdið talsverðu fjaðrafoki
og setti Kjartan Jóhannsson reglu-
gerð þess efnis að ekki fengist
lán úr Fiskveiðisjóði til kaupa á
skipi í stað Barða.
Síldarvinnslan hf. fór þá aðrar
leiðir og tókst að fá lán hjá
enskum banka til skipakaupanna.
— Barðinn er seldur til Frakk-
lands og þaðan kemur einnig hið
nýja skip sem keypt er í stað
Barða. Það skip er systurskip
Birtings NK. Kaupverð nýja
skipsins er 10,5 milljónir franka
en söluverð Barðans 4,5 milljónir
franka.
Barðinn er nú á veiðum og
mun hann sigla með aflann og
selja hann í Frakklandi, en að því
loknu munu hinir frönsku kaup-
endur taka við skipinu. Hið nýja
skip sem bera mun nafnið Barði
fer til Englands til breytinga og
vænta má að skipið komi til
íslands síðari hluta desember-
mánaðar. — G. B.
Djúpavogur:
Aœtlað aö framkvœmdir við
höfn og frystihús fylgdust aö
Fjórir bátar 70 til 120 tonn
hefja Unu strax eftir áramótin,
auk þess munu nokkrir minni
bátar verða gerðir þaðan út í
vetur.
Á vegum Búlandstinds hf. er nú
unnið að endurskipulagningu á
rekstri fyrirtækisins jafnframt því
að verið er að kanna, hvemig
hráefnisöflun fyrir nýja frystihús-
ið verður best tryggð heima fyrir
til frambúðar.
Á fjárlögum yfirstandandi árs
var áætlað að leggja 35 milljónir
króna til hafnarmála á Djúpa-
vogi. Fyrirhugað var að þessi
upphæð færi til þess að kaupa 50
metra stálþil sem koma á framan
við nýja frystihúsið.
Það hefur verið stefnt að því
frá upphafi í öllum áætlunum,
vegna uppbyggingar fiskiðjunnar,
að þessar tvær framkvæmdir þ. e.
frystihúsið og hafnarframkvæmd-
in fylgdust að svo tengdar sem
þær eru hvor annarri. Hart er, að
það geti orðið svo slæmt sem
það nú er.
Verið er að ljúka lagfæringu
á síldarverksmiðjunni þannig að
hægt verður að taka á móti loðnu
til bæðslu í næstu viku. — Már