Austurland - 12.01.1984, Blaðsíða 2
2
FIMMTUDAGUR, 12. JANÚAR 1984.
Austurland
MALGAGN ALÞYÐUBANDALAGSINS
Ritnefnd: Elma Guðmundsdóttir, Guðmundur Bjarnason,
Kristinn V. Jóhannsson, Þórhallur Jónasson og Smári Geirsson.
Ritstjóri: Ólöf Þorvaldsdóttir ®7374.
Auglýsingar og dreifing: Áshildur Sigurðardóttir
S7629 - Pósthólf 31 - 740 Neskaupstað.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Egilsbraut 11, Neskaupstað
S7571.
Prentun: Nesprent.
ÚTG.: KJÖRDÆMISRÁÐ ALÞÝÐUBANDALAGSINS
Á AUSTURLANDI
IÞROTTIR
Af skíðaráði Þróttar
Sj úklingaskatturinn
Nú þegar Alþingi kemur saman á ný, má búast við
að boðaðar tillögur um hinn nýja skatt ríkisstjórnar-
innar, sem nefndur hefur verið „sjúklingaskattur-
inn“, liggi á borðum alþingismanna.
Vægast sagt þá hefur þessi boðaða skattheimta
mælst illa fyrir og hafa flestir, sem um hana hafa
fjallað á opinberum vettvangi, hvort heldur er í ræðu
eða riti, talið hana bæði óréttláta og ill framkvæman-
lega.
Talsmenn stjórnarinnar hafa reynt að réttlæta til-
lögugjörð sína, með því að lýsa því yfir, að þeir einir
yrðu látnir greiða, sem hefðu efni á því.
En þá er spurn, hvernig eiga sjúkrahúsin að fara
að því að flokka sjúklinga eftir efnum og ástæðum?
Á e. t. v. í hverju tilfelli að leita til skattyfirvalda?
eða eiga sjúklingar að ganga með skattframtal sitt
upp á vasann? eins og formaður Alþýðuflokksins orð-
aði það á dögunum.
Hvernig dugði sú viðmiðun við úthlutun láglauna-
bótanna?
Jú, stóratvinnurekendur og heildsalar urðu ásamt
láglaunafólkinu þiggjendur þeirra bóta og bæði þeir
laumríku og ríkisstjórnin skömmuðust sín og viðmið-
unarkerfið var dæmt ótækt.
Trúlega finna stjórnvöld hvergi þá fyrirmynd, sem
þau geta sniðið þessa skattheimtu eftir, sem réttlætir
hana eða gerir framkvæmanlega.
En fari svo, að þessi skattur verði lagður á sjúkl-
inga, þá má öllum ljóst vera, að það fylgir honum
ýmis annar vandi, og ábyrgð, en að finna réttláta
álagningarreglu.
Það fer enginn á sjúkrahús að gamni sínu, en vel
gæti svo farið, að einhverjir treystu sér ekki til að
bæta á sig þeim útgjöldum, sem af sjúkrahúsvist
leiddi og frestuðu því nauðsynlegum aðgerðum og
er þetta kannski hvað alvarlegast við slíka skatt-
heimtu.
Annað er og, að þetta myndi auka allverulega
skriffinnsku sjúkrahúsanna og innheimtukostnað og
trúlega skila sér illa.
Árangurinn af baráttu þjóðarinnar fyrir bættum
lífskjörum, þar með bættri heilsugæslu og lækning-
um, verður ekki nema að litlu leyti mælanlegur í
tölum eða öðru gildi, sem mælir gróða og tap.
En vissulega ber það vitni um mikinn árangur þessa
starfs og baráttu, að hér á íslandi er nú hlutfallslega
minnstur barnadauði í veröldinni og lengstur meðal-
aldur.
Hér hefur og ýmsum sjúkdómum, svo sem berkla-
veiki, mænuveiki og ýmsum öðrum mannskæðum
Skíðafólk okkar er nú komið
á fulla ferð niður brekkurnar,
enda hafa skilyrði til skíðaiðk-
unar verið þokkaleg. Nægur
snjór hefur verið uppi í Odds-
skarði síðan í nóvemberlok og
meira að segja er kominn snjór
úti í fjalli, þó ekki sé hann
mikill. Togbrautin á Kúahjalla
hefur verið í gangi meir og
minna síðan um miðjan des-
ember. Oddsskarðslyftan hefur
verið í gangi við og við síðan í
nóvember og var það einnig nú
um síðustu helgi.
Hið unga og efnilega skíða-
fólk Þróttar hefur tekið þessu
fegins hendi og ekki hefur það
spillt fyrir, að tveir prýðisgóðir
þjálfarar hafa verið því til
trausts og halds.
Um miðjan desember kom
Ingþór Sveinsson hingað og
starfaði við þjálfun fram að ára-
mótum, en nú eftir þau kom
hingað Karl Frímannsson frá
Akureyri, en hann er skíða-
mönnum hér að góðu kunnur,
er gamall keppnismaður á
skíðum og hefur starfað við
þjálfun undanfarin ár. Karl
stundar nú sem stendur nám við
íþróttakennaraskólann að
Laugarvatni og ákvað að nota
jólaleyfi sitt við hann til þess að
aðstoða okkur hér í austrinu, en
því miður lýkur leyfi hans í lok
þessarar viku. Æfingasókn hef-
ur verið með besta móti og náði
hún hámarki í góðviðrinu sl.
sunnudag, er um 60 krakkar og
unglingar mættu á æfingu, en
þá voru þeir Jóhann Tryggvason
og Sveinn Ásgeirsson einnig við
leiðbeinendastörf. Sveinn hefur
nú verið ráðinn til starfa hjá
UÍA til kennslu og leiðbein-
andastarfa og hefur störf á veg-
um sambandsins um miðjan
janúar.
Ekki er enn fullljóst með
áframhald skipulegra æfinga
nú fyrri hluta vetrar, þar sem
ekki hefur enn fengist þjálfari,
en það stendur vonandi til
bóta.
Nú er bara að vona að veður-
guðirnir verði okkur eins hag-
stæðir og þeir hafa verið fram
að þessu og að færi verði gott
svo að iðkun íþróttarinnar geti
orðið sem mest.
P. J.
Hópur ungra skíðakeppenda frá Neskaupstað i keppnisferð á Seyðisfirði. Ljósm. Ólöf.
ÍÞRÓTTIR ■HHHSH ÍÞRÓTTIR
sjúkdómum svo til verið útrýmt, eða gerðir sjaldgæfir
og hættulitlir.
Nú hin síðari ár, hafa í vaxandi mæli komið til
sjúkdómar og slys af toga sem lítið bar á fyrir nokkr-
um áratugum, en sem nú kalla á aukið sjúkrarými,
sem nemur tugum nýrra sjúkrarúma á ári.
Má þar nefna afleiðingar umferðaslysa, drykkju-
sýki, reykinga, eiturlyfjaneyslu og atvinnusjúkdóma.
Þegar þess er gætt, að rekstur eins sjúkrarúms kost-
ar trúlega að meðaltali ekki undir 1 milljón á ári, þá
hljóta þeir fjármunir að skila sér margfalt, sem varið
er til fyrirbyggjandi aðgerða á þessum sviðum, svo
að ekki sé talað um aðrar afleiðingar veikinda og
slysa.
Því verður ekki neitað, að þenslan í almannatrygg-
ingakerfinu er mikil og eru heilsugæslan og sjúkra-
húsareksturinn þar fyrirferðarmiklir og vaxandi
þættir.
Eflaust mætti spara þar verulega fjármuni með
markvissara skipulagi í uppbyggingu og rekstri svo
og auknum fyrirbyggjandi aðgerðum og væri slíkt
verðugra verkefni stjórnvalda, en álagning auka-
skatts á sjúklinga.
S. P.
Leiðrétting
í frétt um sónartæki í síðasta
tbl. var ranghermt að Krabba-
meinsfélag Austurlands hafi
staðið að söfnuninni. Það var
hinsvegar Krabbameinsfélag
Austfjarða.
Kirkja
Barnastundirnar í Norðfjarc
arkirkju hefjast aftur nk. sunnt
dag 15. janúar kl. 1(ÞU f. h.
Sóknarprestu,
Efnalaugin
verður opin
16.-20. janúar
Jóhann Sigmundsson
S7188