Austurland - 09.02.1984, Síða 2
2
FIMMTUDAGUR, 9. FEBRÚAR 1984.
----------Austurland--------------------
MÁLGAGN ALÞÝÐUBANDALAGSINS
Ritnefnd: Elma Guðmundsdóttir, Guðmundur Bjarnason,
Kristinn V. Jóhannsson, Þórhallur Jónasson og Smári Geirsson.
Ritstjóri: Ólöf Þorvaldsdóttir 2Í7374.
Auglýsingar og dreifing: Áshildur Sigurðardóttir
S7629 - Pósthólf 31 — 740 Neskaupstað.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Egilsbraut 11, Neskaupstað
S7571.
Prentun: Nesprent.
ÚTG.: KJÖRDÆMISRÁÐ ALÞÝÐUBANDALAGSINS
Á AUSTURLANDI
Byggð með byggð
Fyrir um það bil tveimur áratugum kom fram sú kenning
að lausnin í byggðamálum okkar íslendinga væri sú að
byggja upp höfuðstað í hverjum landsfjórðungi. Þar átti
að safna á einn stað allri þjónustu fyrir landshlutann, þar
átti menningin að dafna og mannlífið að blómstra. Aðrar
byggðir áttu svo að vera eins konar hjáleigur frá höfuðból-
inu, útróðrarstaðir þar sem fiskur væri dreginn úr sjó til
að standa undir ljóma höfuðstaðarins og allri menningunni
þar,
Flestir gerðu sér strax ljóst að þetta var vond kenning,
en sumir fengu glýju í augun og enn þann dag í dag skýtur
þessi höfuðstaðarkomplex stundum upp kollinum,
skynsamlegri byggðaþróun til mikillar óþurftar. Að sjálf-
sögðu eru aðstæður misjafnar eftir landshlutum, en alltaf
er hætt við skæklatogi ef byggja á upp einn stað á kostnað
annarra.
Á Austurlandi er stefnt að því að byggja byggðirnar upp
sem jafnast eftir aðstæðum á hverjum stað og mynda
byggðakeðju. Með skynsamlegri verkaskiptingu í alls kyns
þjónustugreinum viljum við treysta hverja byggð, hvern
hlekk og keðjuna alla um leið.
Vilji heimamanna er fyrir hendi. Þeir gera sér ljóst að
aðeins með samstarfi er unnt að fullnýta hina miklu mögu-
leika Austurlands til arðbærs vaxtar í atvinnulífi og þjón-
ustu, og að samheldnin er forsenda þess að hér verði mótað
heilbrigt samfélag. Þess vegna er það höfuðmál Austfirð-
inga nú að tengja byggðirnar betur saman með stórbættum
samgöngum. Byggja þarf upp vegi, gera jarðgöng, leggja
bundið slitlag - færa byggðirnar saman. Ef stjórnvöld og
þingflokkar meina eitthvað með yfirlýsingum sínum í sam-
bandi við afgreiðslu kosningalaga, hljótum við að vera
bjartsýn á árangur.
✓
Oþolandi ástand
Fyrir nokkrum árum ákváðu þrjú sveitarfélög, Eskifjarð-
arkaupstaður, Neskaupstaðurog Reyðarfjarðarhreppurað
sameinast um uppbyggingu skíðaaðstöðu í Oddsskarði. Þar
er nú skíðalyfta og skáli er í byggingu. Aðstæður eru ein-
hverjar þær albestu á landinu og svæðið er geysivinsælt af
ungum sem öldnum, ekki síst um helgar.
En hængur er á. Helgi eftir helgi hefur þessi heilsu-
brunnur verið lokaður fólki, því vegurinn þangað hefur
verið ófær. Ekki svo að skilja að allt sé á kafi í snjó, því
fólksbílafæri hefur verið langleiðina að skíðasvæðinu, en
100 - 200 metra kafli hefur lokað þjóðveginum.
Myndu höfuðborgarbúar eða Akureyringar - svo dæmi
séu tekin - sætta sig við að komast ekki í skíðalönd sín
um helgar af því að þjóðvegurinn þangað væri ófær? Áreið-
anlega ekki. Og við eigum ekki að sætta okkur við það
heldur. Það er sjálfsögð krafa að við eðlilegar aðstæður
séu ekki smáskaflar látnir hindra það að íbúar svæðisins -
sem eru 3500 talsins - geti sótt sér hressingu og ánægju í
skíðaparadísina í Oddsskarði. Krjóh.
FRÁ ALÞINOI
Sverrir Hermannsson á Alþingi 31. jan. sl. um kísilmálmverksmiðjuna:
Engin endanleg áform
um framkvæmdirnar
í síðustu viku, 31. jan., svar-
aði Sverrir Hermannsson iðn-
aðarráðherra á Alþingi fyrir-
spurnum Hjörleifs Guttorms-
sonar varðandi framkvæmdir
við kísilmálmverksmiðju á
Reyðarfirði. Verða hér rakin
helstu atriði sem fram komu
hjá fyrirspyrjanda og ráð-
herra.
1. Hjörleifur spurði: Hvenær
hyggst ríkisstjórnin leita
eftir heimild Alþingis til að
hefja framkvæmdir við kís-
ilmálmverksmiðjuna sam-
kvæmt lögum nr. 70/1982?
Sverrir svaraði: Ákvörð-
un hefur ekki enn verið tek-
in um tillöguflutning, en
gert var ráð fyrir í stefnu-
ræðu hæstvirts forsætisráð-
herra í byrjun þessa þings,
að slík tillaga yrði flutt á
yfirstandandi þingi.
2. Hjörleifur spurði: Hvenær
er áformað að hefja fram-
kvæmdir við verksmiðjuna
og byrja rekstur hennar?
Sverrir svaraði: Engin
endanleg áform eru uppi
um framkvæmdirnar. . . .
Menn hafa bundið vonir við
að hefjast mætti handa á
þessu ári um undirbunings-
framkvæmdir .... Bygg-
ingartími verksmiðjunnar
frá því að jarðvegsfram-
kvæmdir hefjast þar til fyrri
ofn hennar er gangsettur er
um 2'/: ár. Talið er æskilegt
að framkvæmdir hefjist
snemma vors.
3. Hjörleifur spurði: Hvað
hefur gerst í viðræðum við
erlenda aðila vegna hugs-
anlegrar eignaraðildar að
Kísilmálmvinnslunni hf. og
út frá hvaða forsendum er
gengið í þeim viðræðum,
m. a. varðandi orkuverð?
Sverrir svaraði: Á vegum
samstarfsnefndar Stóriðju-
nefndar og Kísilmálm-
vinnslunnar hf. var gefið út
kynningarrit um Kísilmálm-
vinnsluna hf. Ritinu hefur
verið dreift til fjölmargra
aðila í Evrópu, Ameríku og
Japan. Kynningarviðræður
um eignaraðild hafa átt sér
stað við nokkra aðila. Nú
þessa dagana er verið að
hafa samband við þá aðila,
sem kynningarritið var sent
til og óskað eftir viðræðum
við þá. Aðilum þeim sem
rætt hefur verið við hefur
verið gerð grein fyrir því,
hver sé framleiðslukostn-
aður raforku frá nýjum
virkjunum á Islandi.
Hefði verið unnt að
gangsetja verksmiðjuna
seint á árinu 1986
í inngangsorðum að fyrir-
spurninni minnti Hjörleifur á
stöðuna í verksmiðjumálinu
við ríkisstjórnarskipti með
þessum orðum:
„Við ríkisstjórnarskipti í
vor stóðu mál því þannig. að
miðað við þá stefnu sem fylgt
hefði verið um uppbyggingu
kísilmálmverksmiðjunnar sem
íslensks fyrirtœkis og að því
tilskyldu að Alþingi samþykkti
fyrir árslok 1983 niðurstöður
stjórnar fyrirtækisins um upp-
byggingu verksmiðjunnar,
hefði verið unnt að gangsetja
verksmiðjuna seint á árinu
1986.
Núverandi ríkisstjórn
breytti hins vegar um stefnu á
þessu sviði sem öðrum. I
stjórnarsáttmála hennar frá
26. maí 1983 má lesa eftirfar-
andi: „Nýjum aðilum verði
gefinn kostur á eignaraðild að
kísilmálmverksmiðjunni".
Núverandi hæstvirtur iðnað-
arráðherra gaf fljótlega út þá
textaskýringu, að hér væri um
að ræða erlenda aðila og helst
kysi hann að þeir œttu verk-
smiðjuna að fullu og a. m. k.
að meirihluta. Ekki hefur
komið fram mér vitanlega
hvort samstarfsflokkur sjálf-
stæðismanna, Framsóknar-
flokkurinn hafi skrifað upp á
þá stefnu iðnaðarráðherra
varðandi kísilmálmverksmiðj-
una og væri æskilegt að fá það
upplýst. Margir urðu hins veg-
ar áhyggjufullir út af þessari
stefnubreytingu og áhrifum
hennar á framgang verk-
smiðjumálsins.“
Hörmulegt hvernig til
hefur tekist
Eftir að hafa heyrt svör
Sverrissagði Hjörleifurm. a.:
„Hér erum við að sjá upp-
skeruna af þeirri stefnu, sem
ríkisstjórnin og hæstvirtur ráð-
herra beitir sér fyrir í stóriðju-
málum að ætla útlendingum að
ráða þar ferðinni. Það er horf-
ið frá því að Islendingar séu
þarna frumkvæðisaðilar og
forystuaðilar í þessum málum
og geti tekið sínar ákvarðanir
út frá íslenskum forsendum.
(Iðnrh. grípurfram í: Oggrætt
á öllu saman). Já, og fleytt
rjómann af sölu orkuverðs og
sköttum, eins og Morgunblað-
ið orðar það í ritstjórnargrein-
um sínum, sem á að vera upp-
skeran af stóriðjustefnu
flokksins. Og þetta er þeim
mun hörmulegra, þessar horf-
ur og þessi stefnubreyting, sem
allar aðstœður varðandi þetta
fyrirtœki hafa reynst vera góð-
ar og batnandi nú hina síðustu
mánuði, fyllilega í samræmi
við þær vonir og spár, sem
stjórn verksmiðjunnar lagði
fyrir í sinni skýrslu. Þannig
liggur það fyrir, að það er unnt
að fá hagstæð tilboð í fram-
kvæmdaþætti vegna efnahags-
ástands í heiminum, m. a. úti
í Evrópu og einnig hér innan-
lands. í öðru lagi liggur það
fyrir, að kostnaðaráœtlun
varðandi verksmiðjuna er nú
áœtluð um 10% lœgri heldur
en var mat stjórnarinnar í árs-
byrjun, sem hefur veruleg
áhrif á arðgjöf fyrirtækisins
eða um 2%, þannig að miðað
við þær forsendur sem þá lágu
fyrir ætti arðgjöfin að metast
um 15%. Og í þriðja lagi er
þess að geta, að verðlag á af-
urðum þessarar verksmiðju,
kísilmálmi, hefur farið veru-
lega hækkandi á undanförnum
misserum úr þeim öldudal,
sem ríkti 1981 og sérstaklega
1982, eða um 30 - 40% og er
það í samræmi við spár, sem
fyrir lágu um verðþróun á
þessari afurð.
Ég tel að það sé hörmulegt,
hvernig til hefur tekist í þessu
stóra máli fyrir íslenskan þjóð-
arbúskap og þá ekki síst fyrir
Austurland, þar sem þetta
fyrirtœki á að rísa lögum sam-
kvœmt og þar sem það kemur
til með að hafa gífurlega þýð-
ingu fyrir atvinnustarfsemi í
fjórðungi og orkunýtingu í
framtíðinni. “