Austurland - 16.02.1984, Side 4
Fundahöld um fíkniefnamál á Seyðisfirði:
Einstæð fundarsókn
í AUSTURLANDI 2. tbl.
þessa mánaðar var sagt frá við-
brögðum bæjaryfirvalda á Seyð-
isfirði vegna blaðaviðtals þar
sem getið var um góðan fíkni-
efnamarkað og fíkniefnaneyslu
á þremur stöðum á landsbyggð-
inni.
Borgarafundurinn, sem þá
var greint frá í blaðinu, var hald-
inn sl. fimmtudag, 9. febrúar.
Hátt á annað hundrað eða u. þ.
b. fimmti hluti bæjarbúa voru á
fundinum og telst sú fundarsókn
einstæð, nema um framboðs-
fundi eða aðra skemn.dfundi sé
að ræða.
Starfsmaður menntamála-
ráðuneytisins í fíkniefnamálum,
Árni Einarsson, mætti á fundinn
og var fundargestum skýrt frá
hvað aðhafst hefði verið í þess-
um málum að hálfu hins opin-
bera á undanförnum árum.
Einnig voru flutt fræðileg er-
indi. í lok fundar svöruðu síðan
Árni og héraðslæknirinn fyrir-
spurnum fundargesta. Þótti
fundurinn í alla staði heppnast
vel.
Næsta dag var Árni með
fræðslu um fíkniefnamál fyrir
nemendur Seyðisfjarðarskóla.
Ákveðið er að vinna áfram að
þessum málum og er sennilegt
að Árni komi aftur til þess að
leiðbeina um fyrirbyggjandi að-
gerðir á þessu sviði.
J. J. / S. G.
Fjárhagsáætlun Neskaupstaðar
Framhaid af 1. síðu____________
Af einstökum málaflokkum
er meslu varið til fræðslumála
eða 9.6 millj. kr. því næst til fé-
lagsmála 7.0 millj. kr. eða
13.9% og þá til gatnageröar 5.7
millj. kr. eða 11.2%
Af rekstrarafgangi fara 5.6
millj. í gatnagerð, fegrun bæjar-
ins og til tækjakaupa hinna
ýmsu stofnana. 3.4 millj. kr.
fara til byggingaframkvæmda.
Þegar upp er staðið eru eftir-
stöðvar á reksturs- og fram-
kvæmdayfirliti 7.2 milj. kr. sem
fara til afborgunar af lánum og
til að bæta fjárhagsstöðuna."
Helstu framkvæmdir eru
áætlaðar:
Áfram verður haldið með
sjúkrahúsið og framhaldsskól-
ann í samræmi við fjárveitingar
ríkisins, sem sjaldan liafa verið
jafn rýrar og nú. 1 framhalds-
skóla er ætlunin að taka í notk-
un fyrstu hæðina meö stjórnun-
arálmu.
Mcö tilkomu hennar og aö
óbreyttum forsendum bendir
allt til þess, að í austurálmu
framhaldsskólans rúmist félags-
og æskulýðsstarf og bókasafn,
þ. e. a. s. skólans og almcnn-
ingssafnið geti síðan fengiö aö-
stöðu á neðstu hæð.
Að því er stefnt á þessu ári
að taka íbúöir fyrir aldraða í
notkun og er 1.0 millj. kr. variö
af tjárhagsáætlun til byggingar-
innar.
Hlutur Neskaupstaðar í bygg-
ingu þjónustumiðstöðvar í
Oddsskarði er áætlaður 600 þús-
und og að því er stefnt að skál-
inn verði tilbúinn fyrir næsta
vetur.
Áfram verður unnið við
undirbúning íþróttaleikvangs
og lokið við anddyri íþróttahúss-
ins, sem notað hefur verið til
kennslu undanfarin ár.
Til nýbyggingar gatna á að
verja 3.7 millj. kr., sem bæjar-
ráð hefur ekki gert tillögu utrt
ráðstöfun á en líklcgast er að
auk lagningar nýrra gatna á
Bökkum og hafnarsvæöi verði
unniö við Þiljuvclli og Nesgötu.
Þá væri mjög æskilegt að geta
gert endurbætur á miðbæjar-
svæði.
„Þegar horft er fram til næsta
árs cr útlit fyrir að áfram verði
hér öflug atvinnustarfsemi,
minni þorskurcn meir af loðnu.
Mcnn ættu því ekki að þurfa að
óttast atvinnuleysi hér í bæ.
Haldist verðlag og kaupgjald
nokkurn veginn í hendur frá
því sem nú er verða möguleikar
sveitarfélagsins til framkvæmda
á næsta ári ekki minni en nú.
Neskaupstaöur eins og önnur
sveitarfélög þarf að vísu ein-
hvern tíma til að jafna sig eftir
þrjú erfið ár.
Fara verður gætilega í lán-
tökur og bæta þarf lausafjár-
stöðuna. Meginmálið hlýtur þó
að vera að halda uppi góðri
þjónustu á sem flestum sviðum
og verölag þeirrar þjónustu sé
miöað viö að allir geti nýtt sér
hana burt séö frá efnahag.
í þessari áætlun er að þessu
stefnt: öflugur rekstur og
óbreytt þjónustugjöld. Á þenn-
an hátt tryggir bæjarfélagið
helst hag þeirra sem lægst hafa
launin." sagði Logi að lokum.
Eiskulum vér
þrælar vera!
Iðnaðarráðherra hefur sent frá sér bænaskjal til (að
hans mati) álitlegra erlendra aðila, þar sem hann býður
upp á ódýrt vinnuafl (væntanlega austfirskt) og langan
vinnudag ásamt ódýrri orku ef útlendir vilja byggja
svo sem eins og eina kísilmálmverksmiðju handa hon-
um uppi á Islandi.
Finnst Austfirðingum lágt lagst og kveðjan köld frá
þingmanni þeirra þar sem hann þykist geta boðið vinnu
þeirra fyrir lágt verð og séð svo um að vinnudagurinn
verði langur, rétt eins og um drógmerar væri að ræða
forðum daga en ekki frjálst fólk með samningsrétt.
Kemur það víst engum á óvart eftir yfirlýsingar ráð-
herrans vegna vinnudeilunnar í Straumsvík, þar sem
greinilega kom fram hverjum klukkan glymur.
Löngu fyrir daga Egils rauða vissu norrænir menn
að betra væri að kunna fótum sínum forráð og Egill
sendir iðnaðarráðherra eftirfarandi vísu úr Hávamál-
um:
Veistu,
Veistu,
Veistu,
Veistu,
Veistu,
Veistu,
Veistu.
Veistu,
hvé rísta skal?
hvé ráða skal?
hvé fáa skal?
hvé freista skal?
hvé biðja skal?
hvé blóta skal?
hvé senda skal?
hvé sóa skal? —