Austurland - 23.02.1984, Qupperneq 1
Austurland
34. árgangur. Neskaupstað, 23. febrúar 1984. 8. tölublað.
Alþýðubandalagið
Neskaupstað:
Félagsvist
í Egilsbúð kl. 845 í kvöld
Loðnan:
Líður að hrognatöku
Ekkert lát hefur verið á
loðnuveiðunum að undanförnu
og eru bátarnir vart fyrr komnir
á miðin en þeir fylla sig.
Nú er svo komið að þróarrými
er á þrotum um land allt, svo að
aðeins lítill hluti flotans er að
veiðum á hverjum tíma, en
mestur hluti hans á siglingu til
fjarlægra landshluta með afla
sinn eða til Færeyja, en Börkur
Nk. kemur þangað kl. eitt í dag
með fullfermi og landar í Fugla-
firði.
Loðnu hefur nú verið landað
hjá svo til hverri einustu verk-
smiðjusem unniðgeturfeitfisk.
Nokkuð hefur borið á því, að
verksmiðjur hafi tekið frá um-
talsvert þróarrými, er þær
hyggjast síðan nýta vegna
hrognatöku.
Hrognafylling loðnunnar er
nú komin yfir 20% og styttist
óðum í það, að hefja megi
söfnun hrognanna, en þau eru
sem kunnugt er margfalt verð-
meiri en loðnan sjálf. Reikna
má með að hrognasöfnun hefjist
af fullum krafti nú um helgina.
Á þriðjudaginn var gerð til-
raun til söfnunar hrogna úr Beiti
Nk. er hann landaði hér í Nes-
kaupstað, en hrognin reyndust
ekki vera orðin nógu þroskuð
til þess að vera söfnunarhæf.
Fituinnihald loðnunnar er nú
um 8%, sem er óvenju hátt
hlutfall miðað við hrogna-
þroska.
I gærmorgun var búið að
landa eftirtöldu magni á Aust-
fjarðahöfnum:
Lestir
Seyðisfjörður ......... 33.000
Eskifjörður ........... 27.000
Neskaupstaður ..........17.000
Reyðarfjörður ..........13.000
Fáskrúðsfjörður .... 3.500
Stöðvarfjörður ......... 3.000
Hornafjörður............ 8.000
P. J.
Pimgt hugsi yfir skák.
Ljósm. Pórarinn Traustason.
VISA-kort hjá okkur til innlendra og erlendra
viðskipta
Takið VISA-kort með í .sólarlandaferðina
Hestamennskuhópurinn í hlaðinu á Skorrastað. Ljósm. Steinþór Pórðarson.
Opin vika í
Framhaldsskólanum
í Neskaupstað
í þessari viku er efnt til svo-
nefndrar opinnar viku í Fram-
haldsskólanum í Neskaupstað.
í opinni viku er ekki starfað eftir
hinni hefðbundnu stundaskrá,
en þess í stað mynda nemendur
hópa sem sinna tilteknum verk-
efnum. Megintilgangur opinnar
viku er að fá tilbreytingu í skóla-
starfið og veita nemendum tæki-
færi til að sinna hugðarefnum
sínum í skipulegu hópstarfi und-
ir handleiðslu kennara.
Að þessu sinni er megin-
áhersla lögð á að koma félags-
miðstöð unglinga í austurhluta
eldra skólahússins í notkun.
Hópar nemenda vinna þar í
opnu vikunni við trésmíðar,
veggskreytingar og saumaskap.
Það er afar ánægjulegt að ungl-
ingunum sjálfum gefist kostur á
að móta það húsnæði sem þeir
eiga að nýta undir félagsstarf-
semi.
Auk hópanna, sem vinna í
félagsmiðstöðinni, er starfandi
skákhópur, skíðahópur, ljós-
myndahópur, hópur sem undir-
býr árshátíð, hópur sem sinnir
hestamennsku, hópur sem sækir
námskeið í málmsuðu og sam-
setningum og hópur sem kannar
stöðu kvenna í skólum og at-
vinnulífi.
Að lokum ber að nefna hóp.
sem vinnur að þvf að gera video-
mynd um daglegt líf ungs fólks
í Neskaupstað.
Þegar tíðindamaður blaðsins
leit við í skólanum sl. mánudag
var svo sannarlega mikið um að
vera. Allir starfshóparnir höfðu
Saga UMFI
Eins og kunnugt er, átti Ung-
mennafélag íslands 75 ára af-
mæli í hitteðfyrra. í tilefni þess,
ákvað stjórn UMFÍ þá að láta
rita sögu hreyfingarinnar og var
Gunnar Kristjánsson ráðinn til
verksins.
Verk þetta er nú komið út og
mun óhætt að fullyrða, að hér
sé á ferðinni hið merkasta heim-
ildarrit, en Ungmennafélags-
þá þegar hafið störf, skíðafólkið
farið upp í Oddsskarð og hesta-
menn á þeysispretti inni í sveit.
Kennararnir virtust hafa í mörg
horn að líta og ekkert fór á milli
mála að starfsgleði ríkti hjá
nemendum.
hreyfingin var í upphafi og er
reyndar enn í dag sterkt afl í
þjóðfélaginu, þó áherslurnar í
starfi hreyfingarinnar hafi
breyst með tímanum.
Margan Austfirðinginn mun
eflaust fýsa að eignast þessa bók
og er mönnum bent á, að hún
er fáanleg á skrifstofu UÍA á
Egilsstöðum, en einnig geta
menn keypt hana hjá aðildarfé-
lögum sambandsins á hverjum
stað. P. J.