Austurland - 29.03.1984, Qupperneq 1
Austurland
34. árgangur. Neskaupstað, 29. mars 1984.
Alþýðubandalagið
Neskaupstað:
Félagsvist
í Egilsbúð kl. 845 í kvöld
13. tölublað.
Frá höfninni á Djúpavogi. Ljósm. Ólöf.
Nýr bátur til Djúpavogs
Fyrir nokkru bættist nýr bátur
í flota Djúpavogsbúa. Er þar
um að ræða 215 lesta nýyfir-
byggðan bát, sem hlotið hefur
nafnið Stjörnutindur og ber ein-
kennisstafina SU 159. Var bát-
urinn keyptur frá Keflavík, en
hann var smíðaður 1967 og er
með 1200 ha. vél.
Eigandi bátsins er Búlands-
tindur hf. og er báturinn þriðja
skipið í eigu fyrirtækisins.
Að sögn Gunnlausgs Ingvars-
sonar framkvæmdastjóra Bú-
landstinds er ætlunin að
Stjörnutindur veiði aðallega út-
hafsrækju, en nú er að hefjast
rækjuvinnsla á Djúpavogi á ný
eftir að hafa legið niðri frá 1980.
Skipstjóri á Stjörnutindi er
Sigurður Ingimarsson og er
áhöfnin öll frá Djúpavogi.
S. G
Neskaupstaður:
Fjárhagsáætlanir bæjarsjóðs
og stofnana hans fyrir árið
1984 samþykktar einróma
Fulltrúar minnihlutans lýstu sig eindregið fylgjandi stefnu AB
og fluttu engar breytingartillögur við fjárhagsáætlanirnar
Fjárhagsáætlun bæjarsjóðs
fékk talsverða umfjöllun hér í
blaðinu þegar hún var lögð fram
í febrúar og vísast til hennar.
Niðurstöðutölur hennar eru
51.031 milljón og mismunur
tekna og gjalda 7.255 milljónir.
Stærstu liðir eru fræðslumál
með 9.653 milljónir (18.9%), al-
mannatryggingar og félagsmál
7.090 milljónir (13.9%), götur
og holræsi 5.7 milljónir (11.2%)
og fjármagnskostnaður 4.7
milljónir (9.2%).
Talsverðar umræður urðu um
áætlunina og voru menn afskap-
lega sammála. Bæjarfulltrúar
minnihlutans kepptust við að
lýsa sig fylgjandi stefnunni og
áætluninni í öllum aðalatriðum.
Þrátt fyrir nöldur um einstaka
liði, töldu þeir ekki ástæðu til
að flytja neinar breytingartil-
lögur og einn þeirra var svo
hreinskilinn að segja að þessi til-
löguflutningur sem þeir hefðu
stundum verið með hér áður
fyrr hefði verið tóm sýndar-
mennska og þeir væru bara
hættir því!!
Fjárhagur hafnarsjóðs er
greinilega að batna og verði
framhald á loðnuveiðum á
næstu vertíð ætti að vera unnt
að ráðast í nauðsynlegar fram-
kvæmdir svo sem dýpkun o. fl.
Hagur vatnsveitunnar er erf-
iður og veldur þar mestu hár
fjármagnskostnaður og raforku-
kostnaður, en reiknað er með
að kostnaður við vatnsdælingu
á þessu ári verði ríflega 700 þús-
und krónur.
í síðasta tbl. AUSTUR-
LANDS var greint frá starfsemi
Fjórðungssjúkrahússins, sem
fer sívaxandi. Það er nú næst-
stærsta atvinnustöð bæjarins og
fjárhagsáætlun þess fyrir þetta
ár er upp á rúmar 39 milljónir
króna, þar af eru laun um 21.5
milljónir.
Krjóh.
Alþjóðlega skákmótið í Neskaupstað:
s
Helgi Olafsson í forystu
Nú líður að lokum alþjóðlega
skákmótsins í Neskaupstað og
er eftir að tefla 2 umferðir. Tafl-
mennskan í mótinu hefur verið
býsna fjörleg í flestum tilfellum.
Eftir 9 umf. er Helgi Ólafsson
efstur með 6V2 vinning og nægir
honum að fá 1 vinning úr síðustu
2 skákunum til þess að ná 2.
áfanga að stórmeistaratitli en 3
áfanga þarf til að ná honum.
í 2. - 3. sæti eru þeir Jóhann
Hjartarson og Tom Wedberg
með 5 vinninga og í 4. - 5. sæti
þeir Margeir Pétursson og
William Lombardy með 4V5
vinning og biðskák.
10. og næstsíðasta umferð
verður tefld á morgun, föstudag
kl. 17 - 22. Þá tefla saman:
Lombardy- - Robert, Guð-
mundur - Wedberg, Helgi -
Schússler, Knezevic - McCam-
bridge, Margeir - Jóhann. Á
laugardag verða biðskákir tefld-
ar kl. 14. Lokaumferð mótsins
verður svo tefld á sunnudag kl.
10 - 15 og kl. 16 verður haldið
áfram að tefla biðskákir ef ein-
hverjar verða.
Á morgun, föstudag kl. 1925,
verður skákskýringarþáttur frá
mótinu í sjónvarpinu, á sunnu-
dag verður síðan annar skák-
skýringarþáttur í sjónvarpinu.
Á sunnudagskvöld kl. 20-24
fara fram mótsstlit með matar-
veislu, verðlaunaafhendingu og
tónlistarflutningi. E. K.
Guðmundur Sigurjónsson, stórmeistari, teflir fjöltefli við nemendur
Nesskóla, Neskaupstað. Ljósm. Karl Hjelm.
Setið að tafli í Egilsbúð. Frá vinstri: Dan Hansson, Vincent
McCambridge, Helgi Ólafsson og William Lombardy.
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 Vinn. S.B. Röð
1. Guðmundur Sigurjónsson V2 V2 X V2 V2 Bið Bið v2 V2 3+2bið 9
2. Helgi Ólafsson V2 1 X V2 1/2 1 1 1 1 6V2 1
3. Milorad Knezevic V2 0 X V2 V2 '/2 V2 V2 V2 3V2 8
4. Benóný Benediktsson X X X X X X X (0) (0) (0) X
5. Margeir Pétursson V2 V2 V2 X 1 V2 V2 1 Bið 4'/2+bið 4-5
6. Jóhann Hjartarson V2 V2 V2 X 1 V2 1/2 '/2 1 5 2-3
7. Dan Hansson Bið 0 V2 X 0 0 0 0 1 0 lV2+bið 10
8. Vincent McCambridge Bið 0 X 0 V2 1 V2 V2 1 0 3'/2+bið 7
9. Harry Schússler V2 (1) V2 v2 1 '/2 1/2 1 0 4>/2 6
10. Tom Wedberg 1/2 (1) V2 V2 1 v2 V2 1 1 '/2 5 2-3
11. Róbert Harðarson 0 V2 (1) 0 0 0 0 0 0 | >/2 11
12. William Lombardy '/2 0 V2 X Bið 1 1 1 V2 B4V2+bið 4-5