Austurland - 03.04.1985, Qupperneq 1
Austurland
Bílasala - Bílaskipti
Vantar bíla á söluskrá
Benni & Svenni
S 6399 & 6499
35. árgangur.
Neskaupstað, 3. apríl 1985.
14. tölublað.
Bj örgunarafrek Austfirðinga
Rétt fyrir sl. helgi lentu þrír flugbjörgunarsveitar-
menn frá Akureyri í hrakningum á norðaustanverð-
um Vatnajökli og einn þeirra hrapaði niður í jök-
ulsprungu, en félagar hans höfðu ekki búnað til að
ná honum upp. Þeir gátu látið vita, hvernig komið
var og voru björgunarleiðangrar sendir af stað frá
Reykjavík, sem áttu lengsta leið á slysstað og frá
Akureyri, en þeim sem þaðan fóru var ætlað að fara
ófæra leið upp á jökulinn.
Yfirstjórn þessara mála sást
hins vegar yfir tryggustu lausn-
ina, þ. e. að fá björgunarmenn
til að koma að austan og verður
það að teljast furðulegt.
Björgunarsveitin Gró á Egils-
Eining
Blað um framhaldsnám á Austurlandi
Síðar í þessum mánuði mun
Stjórnunarnefnd framhalds-
náms á Austurlandi gefa út
blaðið Einingu, sem fjalla mun
um það framhaldsnám sem í
boði er í fjórðungnum. Er ætl-
Fellahreppur:
Nýr sveitarstjóri
Laust fyrir miðjan mars réð
hreppsnefnd Fellahrepps nýjan
sveitarstjóra, sem taka mun við
störfum 1. júní nk. Hann heitir
Hafsteinn Sæmundsson og er
unin að dreifa blaðinu inn á
hvert heimili landshlutans.
Peir skólar sem kynntir verða
í blaðinu eru eftirtaldir: Al-
þýðuskólinn á Eiðum, Fram-
haldsskólinn í Neskaupstað,
Heppuskóli á Höfn, Hússtjórn-
arskólinn á Hallormsstað,
Menntaskólinn á Egilsstöðum
og Seyðisfjarðarskóli. Einnig
verður fjallað um samstarf skól-
anna og það námsskipulag sem
þeir starfa eftir. Þá er ritað um
Fræðsluskrifstofu Austurlands
í blaðið.
Eining verður sett og prentuð
í Nesprenti í Neskaupstað, en
ritstjóri blaðsins er Smári Geirs-
son skólameistari Framhalds-
skólans í Neskaupstað.
Er hér um að ræða merkilegt
framtak Stjórnunarnefndarinn-
ar og ætti þetta blað að koma
þeim nemendum, sem ljúka
grunnskólaprófi í vor, í sérlega
góðar þarfir.
stöðum og Sveinn Sigurbjarnar-
son á Eskifirði brugðu hins veg-
ar við, er þeir fréttu af slysinu
og lögðu af stað til bjargar
óbeðnir. Fóru þeir á tveimur
snjóbílum, en bíll Sveins,
Tanni, er sérlega vel útbúinn m.
a. með lórantækjum. Er
skemmst frá því að segja, að
Austfirðingarnir björguðu
mönnunum giftusamlega og
komu til byggða aftur síðdegis
á sunnudag.
Skipulagning þessarar björg-
unar í heild og frásagnir hljóð-
varps og sjónvarps af atburðum
hafa vakið athygli og skýrt kom
fram, að björgunarsveitir Reyk-
víkinga og hersins voru í sviðs-
ljósinu, á meðan Austfirðingarn-
ir fóru og björguðu mönnunum.
AUSTURLAND óskar þeim
félögum til hamingju með þessa
giftusamlegu björgun. í leiðangr-
inum voru: Sveinn Sigurbjamar-
son á Eskifirði og frá björgunar-
sveitinni Gró Baldur Pálsson,
formaður sveitarinnar, Björn
Ingvarsson, Sigurjón Hannesson
og Úlfar Svavarsson. B. S.
ifr ,vH.\ 4’ . v
í
' í
....... . .■■ : ' ■ -.V, :■ . ..
Gleðilega páska
Brimið strókar sig við Páskahelli. Ljósm. Sig. Arnfinnsson.
Sverri svars vant
Eins og skýrt var frá hér í
blaðinu fyrir mánuði lagði Helgi
Seljan fram fyrirspurn á Alþingi
til iðnaðarráðherra um kísil-
málmverksmiðju á Reyðarfirði.
Fyrirspurnin var í 5 liðum og
spurt var um stöðu verksmiðju-
málsins nú, við hvaða aðila
hefði verið rætt um eignaraðild,
hversu mikla eignaraðild hefði
verið rætt um, hvaða raforku-
verð hefði verið lagt til grund-
fæddur á Sauðárkróki 1956.
Hann stundar nám í byggingar-
iðnfræði og rekstrarfræði í
Tækniskóla Islands og lýkur
prófi þaðan í vor. Kona Haf-
steins heitir Anna María Sverr-
isdóttir.
Hafsteinn tekur við sveitar-
stjórastarfi af Svölu Eggerts-
dóttur, sem verið hefir sveitar-
stjóri Fellahrepps um þrjú ár,
en er nú að flytjast á brott.
AUSTURLAND býður hinn
nýja sveitarstjóra og fjölskyldu
hans velkomin til starfa í fjórð-
ungnum. B. S.
Egilsstaðir:
Batnandi
Atvinna fer nú batnandi á
Héraði eftir þeim upplýsingum
sem blaðið fékk hjá Verkalýðs-
félagi Fljótsdalshéraðs, en þar
fer atvinnuleysisskráning fram
fyrir allt félagssvæðið, sem er
Fljótsdalshérað allt. Skráningin
nær til iðnaðarmanna og bifreið-
arstjóra o. fl. auk verkafólks.
22. mars sl. voru 22 á atvinnu-
leysisskrá, 15 konur og 7 karlar.
Hafði atvinnulausum þá fækkað
um 8 frá 11. mars, en þá voru
30 skráðir atvinnulausir.
atvinna
Enginn iðnaðarmaður var á
atvinnuleysisskrá nú, en áður
voru tveir á skrá, en þeir eru
búnir að fá vinnu.
Pess má geta, að í vetur hefir
enginn vörubifreiðarstjóri kom-
ið á atvinnuleysisskrá, en þeir
hafa verið allnokkuð á atvinnu-
leysisskrá síðustu vetur. Lítil
sem engin vinna hefir verið hjá
vörubifreiðarstjórum nú lengi,
en var hins vegar lengur fra-
meftir sl. haust en venja hefir
verið. K. Á. I B. S.
vallar og hvaða skilyðrum þurfi
að vera fullnægt til að iðnaðar-
ráðherra beiti sér fyrir, að ríkis-
stjórnin taki ákvörðun um að
ráðast í framkvæmdir við verk-
smiðjuna.
Nú hefir iðnaðarráðherra
svarað fyrirspurninni, ef hægt er
að kalla umfjöllun hans um
hana svar. Hið eina sem svar er
hægt að kalla var það, að þeir
útlendingar, sem rætt hefir verið
við, neita að greiða 18millsfyrir
orku til verksmiðjunnar, en við
það verð hafa útreikningar verið
miðaðir. Öðrum atriðum fyrir-
spurnarinnar neitaði Sverrir
Hermannsson að svara. Að hans
dómi virðist þetta mál ekki koma
Alþingi og þjóðinni neitt við,
slíkur er hroki valdsmannsins.
Vanefndir hans í þessu máli
eru honum kannski Ijósar, þær
er hann hins vegar ekki maður
til að viðurkenna, en reynir þess
í stað í hrokagikkshætti sínum
að sveipa málið einhverjum
leyndarhjúpi.
Helgi Seljan sagði í ræðu sinni
um málið á Alþingi, að það
skipti miklu fyrir Reyðfirðinga,
hvernig úr því rættist og niður-
staða yrði að fást sem fyrst. Eina
vissan, sem menn hafa um þetta
mál eftir nær tveggja ára yfir-
stjórn Sverris Hermannssonar,
er óvissan. Fólk sem hefir ætlað
að byggja afkomu sína á þessum
nýja atvinnurekstri er að gefast
upp á biðinni og óvissunni og er
að flytjast í burtu.
Orðrétt sagði svo Helgi: „Og
nú kemur fram, að það er orku-
verðið, sem er hindrunin. Auð-
vitað vilja útlendingar þrýsta 18
millidalaverðinu niður m. a. í
ljósi þeirra samninga, sem gerð-
ir hafa verið við Alusuisse. Ég
skil mætavel, að þeir kæri sig
ekki um að fara upp fyrir það
verð, sem ráðherra þótti þar
hæfilegt.“ B. S.
Börkur og
Beitir seldu vel
Beitir seldi afla í Grimsby 27.
mars, 125.9 tonn og fékk 39.60
kr. meðalverð.
Börkur seldi svo í Grimsby í
gær 126.6 tonn og fékk 46.80 kr.
meðalverð.
Félagsvist AB
er annað kvöld í
Egilsbúð og hefst kl. 2045
Alþýðubandalagið