Austurland - 18.06.1987, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR, 18. JÚNÍ 1987.
3
Vopnafjörður
Viðlegukanturinn
lengdur í sumar
„Hafnarframkvæmdimar vcrða
umfangsmestu framkvæmdir
sveitarfélagsins í sumar“, sagði
Sveinn Guðmundsson, sveitar-
stjóri á Vopnafirði er
AUSTURLAND hafði sam-
band við hann í vikunni.
Sveinn sagði að áformað væri
að lengja viðlegukant hafnar-
innar um 55 - 60 metra og myndi
það stórbæta aðstöðu fyrir
stærri báta og skip í höfninni.
Hann sagði verkið verða unnið
af heimamönnum undir verk-
stjórn manna frá Hafnarmála-
stofnun og væri áformað að
vinna við þetta gæti hafist um
20. júní.
Prátt fyrir þetta sagði Sveinn
að mikið verk yrði óunnið við
hafnarframkvæmdir á Vopna-
firði og væri þar mest knýjandi
að útbúa aðstöðu fyrir smábáta
en þeim hefur fjölgað mikið á
Vopnafirði að undanförnu eins
og víðast hvar annars staðar.
Taldi hann líklegt að nú væru
um 30 smábátar gerðir þaðan út
og væru hugmyndir uppi um
smábátahöfn og teikningar af
skjólgarði fyrir þá innan hafnar-
innar lægju á borðinu. „En þetta
kostar allt peninga", sagði
Sveinn, „og sem stendur er ekki
gert ráð fyrir þessu á fjárhags-
áætlun, þannig aö framkvæmdir
við þetta eru ekki á næstunni“,
sagði hann.
Mikil atvinna er nú á Vopna-
firði og vantar fólk í flestar at-
vinnugreinar, jafnt í fiskvinnslu
sem iðnað og erfitt hefur verið
að manna skipin á staðnum. Að
sögn Sveins spilar skortur á
leiguhúsnæði nokkuð þar inn í
og sagði hann sveitarfélagið nú
áforma að hefja byggingu
tveggja húsa með samtals fjór-
um leiguíbúðum og er áætlað að
franikvæmdir við þær byggingar
hefjist í sumar. hb
ÞVI EKKIISLENSKAISVEL?
★
★
★
★
★
★
★
★
★
ísvél er framleiöir betri ís
svél, íslensk hug- og handarsmíð
svél sem er ódýrari
svél sem fylgja betri greiöslukjör
svél sem komin er á 10 ára reynsla
svél sem hefur 1. flokks þjónustu
svél sem kemst nánast alls staðar fyrir
svél sem er hafinn útflutningur á
smark ísvél, framleiðsluafköst
0.5 - 100 tonn á dag, hvort sem er úr
fersku vatni eða sjó
M° ÍSVÉLAR HF
Höfðabakka 3
S 91-83582
P.O. Box 4305
Reykjavík
ALFASTEINN % sími
720— Borgarfirði eystri 97-2977
Við minnum ykkur á sérunnu
tækifærisgjafirnar sem við framleiðum
Hringið og fáið myndbækling
Þá fást vörurfrá okkurí nokkrum verslunum
á Austurlandi
Frá Vopnafjarðarhöfn. - Par verða talsverðar framkvœmdir í sumar. Mynd AB
Fyrirtækjaskránni seinkar
Eins og fram hefur komið í
fjölmiðlum er nú verið að vinna
að gerð fyrirtækjaskrár fyrir
Austurland undir heitinu „Lyk-
ill að Austurland“. Undirbún-
ingur hófst um áramótin og
fyrirhugað var að bókin kæmi
út í maímánuði.
Nú verða útgefendur að horf-
ast í augu við þá staðreynd að
sú tímaáætlun stenst ekki.
Astæðurnar eru ýmsar, svo sem
annir í prentsmiðjunni Nes-
prenti í Neskaupstað þar sem
bókin er unnin, og ekki síður að
vinnslan hefur reynst tímafrek-
ari en útgefendur héldu í bjart-
sýni sinni. Nú er fyrirsjáanlegt
að hún kemur ekki út fyrr en
um næstu mánaðámót, þ. e.
júní - júlí.
Á þessu er beðist velvirðingar
en um leið er skylt að þakka
Austfirðingum geysigóð við-
brögð við þessu framtaki. Pátt-
taka er langt yfir 90% í aðal-
skránni, þ. e. þeim hluta sem
greitt er fyrir skráningu í. í þjón-
ustuskránni hefur verið leitast við
að hafa öll fyrirtæki, stofnanir og
félagasamtök með, ásamt með
umboðsmönnum fyrirtækja utan
fjórðungsins, og er það von út-
gefenda að hún reynist tæmandi.
Vegna þessara góðu undir-
tekta reyndist nauðsynlegt að
stækka bókina verulega. í stað
100 bls. eins og fyrirhugað var
verður hún tæplega 200 bls. Pað
er því von útgefenda að hér sé
á ferðinni vandað rit sem allir
Austfirðingar geti notfært sér.
Samið hefur verið við Prentverk
Austurland hf. í Fellabæ um dreif-
ingu á bókinni inn á öll heimili í
fjórðungnum en fyrirtæki fá hana
senda í pósti. Ef allt fer að óskum
ætti „Lykill að Austurlandi" að
detta inn um bréfalúguna um
næstu mánaðamót.
Pessa dagana er verið að
senda út gíróseðla fyrir skrán-
ingargjöldum. Á næstunni falla
ýmsir stórir útgjaldaliðir í gjald-
daga og er því brýnt að menn
bregðist skjótt og vel við og
skundi með seðlana á pósthúsið.
Gangstéttarhellur
l-steinn í gang-
stéttir og bílaplön.
Brotþols- og frost-
þíöu prófaður af
Rannsóknastofnun
byggingariönaöar-
ins.
Hagstætt
verð
660 REYKJAHLlÐ MÝVATNSSVEIT SÍMI 96-44250