Austurland - 18.06.1987, Page 4
4
FIMMTUDAGUR, 18. JÚNÍ 1987.
sjónvarp
Föstudagur 19. júní
17.25 Útvarpshúsið vígt. Bein útsending
frá hátíðarsamkomu í nýja Útvarps-
húsinu við Efstaleiti.
18.30 Nilli Hólmgeirsson. 21. þáttur.
18.55 Litlu Prúðuleikararnir 8. þáttur.
19.15 Á döfínni.
19.25 Fréttaágrip á táknmáli.
19.30 Rokkamir. Sniglabandið.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Þorskur á stöng. Breskur sjón-
varpsþáttur um íslandsferð vonglaðra
veiðimanna sem kepptu í sjóstanga-
veiði við Suðurnes.
21.15 Derrick. 6. þáttur.
22.20 Giftu konurnar í Stepford. Ðanda-
rísk bíómynd frá 1974. Aðalhlutverk:
Katharine Ross, Paula Prentiss, Na-
nette Newman, Peter Masterson og
Patrick O’Neal. Myndin fjallar á gam-
ansaman hátt um samskipti kynjanna
og verkaskiptingu kvenna og karla.
Eiginmenn í svefnbœnum Stepford
hafa leyst öll ágreiningsmál á þessum
sviðum með allnýstárlegum hœtti sem
nýgrœðingar í bœnum átta sig ekki á í
fyrstu.
00.20 Dagskrárlok.
Laugardagur 20. júní
16.30 íþróttir.
18.00 Garðrækt. 8. þáttur.
18.30 Leyndardómar gullborganna. 6.
19.00 Litli prinsinn.
19.25 Fréttaágrip á táknmáli.
19.30 Smellir.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Lottó.
20.40 Allt í hers höndum. 2. þáttur.
21.15 Að duga eða drepast. Bandarískur
vestri frá 1955. Leikstjóri Nicholas
Ray. Aðalhlutverk: James Cagney,
John Derek og Viveca Lindfors. Tveir
samferðamenn eru sakaðir um lestar-
rán en tekst með naumindum að sanna
sakleysi sitt. Peir taka síðan að sér lög-
gœslustörf ílandnemabœ. Annarþeirra
er ístöðulítill unglingsmaður og leiðist
á villigötur þótt félagi hans reyni allt
hvað hann má til að gera hann að
manni.
23.45 Brúður á báðum áttum. Bresk
sjónvarpsmynd frá 1982. Aðalhlut-
verk: Sarah Miles, Stanley Baker og
Peter Day. Myndin gerist í Andalúsíu-
héraði á Spáni. Landgreifi einn biðlar
til ungrar ekkju og vantar ekki nema
herslumuninn til að innsigla ráðahag-
inn. Pá kemur sonurinn heim í leyfi en
hann nemur til prests. Fyrr en varir eru
feðgarnir orðnir keppinautar um ástir
konunnar og sonurinn verður að velja
milli hennar og köllunar sinnar.
00.25 Dagskrárlok.
Sunnudagur 21.júní
17.15 Eyja ófreskjanna. Breskævintýra-
ópera. / óperunni er fylgst með dreng-
hnokka sem fer í œvintýraferð í hugan-
um til eyjarsem byggð erýmsum furðu-
skepnum.
18.00 Sunnudagshugvekja.
18.10 Töfraglugginn. 1. þáttur. Nú er
Myndabókin komin í sumarbúning
undir nýju nafni. Sigrún Edda Björns-
dóttir og Tinna Ólafsdóttir kynna
gamlar og nýjar myndasögur fyrir
börn.
19.00 Fífldjarfír feðgar. 7. þáttur.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Dagskrá næstu viku.
20.50 Er ný kynslóð að taka við? Þáttur
um ungt fólk sem er að hasla sér völl
í viðskiptalífi, stjórnkerfi og listum.
22.45 Pye í leit að paradís. 3. þáttur.
22.40 Ungir einsöngvarar í Cardiff. Frá
söngkeppni í Wales á vegum BBC 15.
þessa mánaðar sem Kristinn Sig-
mundsson tók þátt í af hálfu íslenska
sjónvarpsins. Þessi þáttur er frá for-
keppni í riðli hans.
23.40 Dagskrárlok.
Leiðrétting
Prentvillupúkinn lækkaði
heldur betur hagnað Síldar-
vinnslunnar hf. í frétt hjá okkur
í síðustu viku um aðalfund fyrir-
tækisins. í greininni féll niður
einn tölustafur sem gerði það að
verkum að hagnaður var sagður
10 sinnum minni en hann varð
á árinu. Rétt er að hagnaður af
starfsemi ársins nam 76.8 millj-
ónum króna sem jafngildir
6.2% af heildarveltu.
í fyrirsögn var rétt farið með
þetta og glöggir lesendur hafa
líklega áttað sig á þessu.
AUSTURLAND biður hlutað-
eigandi velvirðingar á þessum
mistökum.
Sigurður Lárusson
Athugasemd við leiðara
Athugið
Fótaaðgerðastofan
og svæðanuddið er
flutt að Hafnarbraut
54 S 7329
Erica Pétursson
Sjálfsbjargarfélagar
Höfum orlofshús að
Einarsstöðum 6. til 13. júlí
Þátttaka tilkynnist sem
fyrst vegna skipta
® 7252, formaður
I síðustu viku hlustaði ég á
lestur úr landsmála- og héraðs-
fréttablöðum á rás eitt í Ríkisút-
varpinu eins og oft áður. Lestur
leiðarans úr AUSTURLANDI
varð mér tilefni til þessara hug-
leiðinga. Það var úr 23. tölu-
blaði blaðsins. Fyrst var rætt í
forystugreininni um samræmd
próf í íslensku í 9. bekk í vor.
Ég er greinarhöfundi algerlega
sammála að það sé fyrir neðan
allar hellur, ef málvillur hafa
verið í prófinu. Sé það rétt hafa
þeir menn sem áttu að sjá um
að það væri í alla staði gott og
gilt svo sannarlega ekki reynst
starfi sínu vaxnir. Svo segir
orðrétt: „Hinsvegar var útkom-
an úr prófinu mun lélegri en í
fyrra. Reynt var að grafast fyrir
um ástæður þess, og vantaði þar
inn í umræðuna nokkur mikil-
væg atriði. Þar virðist ástand í
kennaramálum úti á lands-
byggðinni t. d. skipa litlu máli.“
Hér vil ég leyfa mér að gera
athugasemd. Megin þorri barn-
anna í 9. bekk eru af stór-
Reykjavíkursvæðinu og öðrum
stærstu þéttbýliskjörnum
landsins, þar sem langflestir
kennarar munu hafa kennara-
réttindi. Hinn hluti barnanna í
9. bekk sem ekki hafði kennara
með réttindi er tiltölulega mjög
lítill og getur tæplega ráðið úr-
slitum í heildarútkomunni. Ég
er ekki sammála greinarhöfundi
að það eitt að kennarinn hafi
réttindi sé höfuðatriði, þó að
það sé auðvitað æskilegt. Það er
staðreynd að margir réttinda-
lausir kennarar hafa verið prýði-
legir kennarar. Einnig hitt að
kennarar með full réttindi, jafn-
vel úr kennaraháskólanum,
hafa alls ekki verið starfi sínu
vaxnir, og svo mun vera í öllum
stéttum, að það er ekki nóg að
hafa próf og réttindi í viðkom-
andi starfsgrein. Það er alltaf
eitthvað af því fólki sem er ekki
Austfirðingar
Kaupmenn - Kaupfélög - Veitingastaðir
Til afgreiðslu meðan birgðir endast:
Kartöflur úr kæligeymslu - flest afbrigði,
pakkaðar eða í 25 kg pokum
Viðurkennd gæðavara
Sveinberg Laxdal
S 96-22307 og 96-26290
starfi sínu vaxið. Hinsvegar eru
í kennarastétt jafnt sem öðrum
stéttum talsvert af fólki sem er
ágætlega starfi sínu vaxið, þó
það hafi ekki kennarapróf. Það
er alltof útbreiddur misskilning-
ur að halda að próf í sérstöku
fagi veiti fulla tryggingu fyrir
því, að fólkið sé starfhæft.
Þá er í framhaldi greinarinnar
gamli söngurinn um „skammar-
lega“ lág laun kennara. Þar segir
orðrétt: „Vegna síversnandi
kjara kennara á valdaferli síð-
ustu ríkisstjórnar yfirgaf stór
hluti þeirra stéttina og þeir sem
starfa fara fáir út á land. Helstu
ástæður eru eftirfarandi: Þjón-
usta er léleg, félagslíf liggur að
miklu leyti í láginni vegna óhóf-
legs vinnuálags, kennarar eru
oft óvinsælir og einangrast því
gjarnan félagslega, og þeir fáu
sem koma út á land flytja síðan
burt með framfærsluvíxla á
herðunum.“ Mig langar að gera
athugasemd við þessa klausu:
1. Getur greinarhöfundur
sagt mér hve mörg % hafa yfir-
gefið kennarastéttina síðustu
fjögur ár?
2. Ennþá kvarta kennarar um
óhóflegt vinnuálag. Ég er
kannski ekki nógu kunnugur
starfi kennara til að Ieggja dóm
á þessa margtuggnu fullyrðingu.
En af þeim litlu kynnum af starfi
þeirra, miðað við ýmsar aðrar
stéttir, svo sem fiskvinnslufólk
og bændur, held ég að kennarar
þurfi síst að kvarta yfir slæmum
kjörum. Ég hef miklu meiri
samúð með þeim stéttum og
einnig öllum þeim sem vinna á
lágmarkstöxtum. Getur grein-
arhöfundur ekki upplýst mig um
eftirfarandi: Hvað eru mánað-
arlaun kennara í grunnskólum
og einnig framhaldsskólum há
miðað við maí 1987 og hvað
voru þau há í maí 1983. í fyrsta
lagi byrjendalaun, í öðru lagi
eftir 5 ára starf og í þriðja lagi
eftir 15 ára starf?
3. Ég tel mig hafa heimildir
fyrir því að laun bæði grunn-
skólakennara og framhalds-
skólakennara hafi hækkað síst
minna á síðasa kjörtímabili en
laun flestra annarra stétta, enda
liafa þeir beitt verkfallsvopninu
svívirðilega tvisvar á þessu ára-
bili. Ef þetta er ekki rétt bið ég
þig að leiðrétta það.
4. í sambandi við launakjör
kennara vil ég minna á að þeir
hafa miklu lengra sumarfrí en
aðrar stéttir.
5. Margir kennarar sem fara
út á land fá ýmis fríðindi um-
fram margar aðrar stéttir j afnvel
frítt húsnæði.
6. Að kennarar sem fara út á
land séu óvinsælir og einangrist
félagslega. Vel má vera að svo
sé, en getur ástæðan þá ekki ver-
ið sú að þeir séu ekki starfi sínu
vaxnir, þó þeir hafi kennara-
próf?
7. Að kennarar flytji af lands-
byggðinni með framfærsluvíxla
á herðunum. Ég hef ekki heyrt
þess getið, en hugsanlega eru til
dæmi um það. En er það ekki
sama og í öðrum stéttum? Sumir
komast vel af með sömu laun og
öðrum duga alls ekki. Menn eru
nefnilega mjög misjafnlega
eyðslusamir.
Að lokum þetta. Mín skoðun
er sú að brýn nauðsyn sé að
endurskoða núgildandi vinnu-
löggjöf, fyrst og fremst til að fá-
mennir hópar geti ekki stöðvað
samgöngur eða lamað atvinnulíf
í landinu eins og dæmi eru um.
Einnig að takmörk séu á verk-
fallsrétti kennara og heilbrigðis-
stétta. Ennfremur að aðeins sé
heimilt að boða verkföll ef
minnst 40% atkvæðisbærra
manna í viðkomandi verkalýðs-
félagi eða samtökum hafi sam-
þykkt það í skriflegri og leyni-
legri atkvæðagreiðslu. En ekki
að innan við 10% atkvæðis-
bærra manna í viðkomandi fé-
lagi eða samtökum samþykki
verkfall eins og dæmi munu vera
til um.
Gilsá, 8. júní 1987,
Sigurður Lárusson.
Póstur og sími
Símnotendur athugið
Fyrirhuguðum breytingum símanúmera í
fimm stafi á Austurlandi, þ. e. frá Breiðdalsvík
til Bakkafjarðar, er frestað
Nú er stefnt að því að breytingin fari fram í
ágúst, þangað til er gamla símaskráin í gildi
fyrir ofangreint svæði Umdæmisstjóri