Austurland - 18.06.1987, Side 6
Nýjar vörur
Verslunin Nesbær
Neskaupstað @7115
i! l l l l llll
HÓPFERÐIR
Hef til reiðu 30 — 44 manna bíla
til styttri og lengri hópferða
Geri verðtilboð
SIGURÐUR M. BJÖRNSSON
® 7279 • Gilsbakka 6 • Neskaupstað
Gunnar SU er enn við bryggju í Noregi
Þegar undirritaður var á ferð
í Noregi fyrir skömmu vakti
kunnuglegt skip athygli hans við
bryggju í Flekkefjprd. Þar
reyndist vera vélbáturinn Gunn-
ar SU 139 frá Reyðarfirði.
Jónas Jónsson fyrrum skip-
stjóri og einn af eigendum
Gunnars, sagði í samtali við
AUSTURLAND að báturinn
hefði verið settur upp í kaupin
á togaranum Snæfugli hjá skipa-
smíðastöð í Flekkefjprd árið
1981. „Við þurftum þá að selja
tvo báta utan, því Snæfuglinn
gamli fór líka, en nú dugar
mönnum að setja eitt skip úr
landi“, sagði Jónas.
Gunnar SU var happadrjúgt
skip alla tíð en hann var smíðað-
ur í Austur-Þýskalandi og kom
til landsins árið 1959. Báturinn
var alla tíð í eigu Reyðfirðinga
og þeir eru margir sjómennirnir
hér eystra sem komið hafa við
sögu þessa báts.
Jónas sagði að það hefði verið
meining Norðmanna að selja
bátinn áfram, en greinilegt væri
að ekkert hefði orðið úr því og
taldi hann helstu ástæðuna þá
að í bátnum hefði verið jafn-
straumskerfi og slíkur rafbún-
aður þekktist ekki lengur og
kostnaður við lagningu nýs raf-
kerfis væri líklega of mikill til
að slíkt þætti borga sig.
Báturinn hefur látið nokkuð
á sjá eftir 6 ára legu í Flekke-
fjórd en að sögn Jónasar var
hann allur yfirfarinn og vel útlít-
andi þegar hann fór utan.
3 *! :
.v.vá/nL.. 11*^1.,;»«»;.;* i/„. v*"
Gunnar hvílir lúin bein við bryggju íFlekkefj0rd íNoregi.
Mynd hb
Jónsmessuvaka Kvenfélagsins Nönnu og Kvennadeildar
SVFÍ Norðfirði verður haldin í skíðaskálanum við
Oddsskarð á Jónsmessukvöld miðvikudaginn 24. júní
naestkomandi
Farið verður með rútu og lagt af stað
frá Hafnarkaffi kl. 2000
Þær konur sem ætla að taka þátt, láti skrá sig fyrir
miðvikudaginn 24. júní hjá
Guðlaugu: H® 7331 - V® 7500 og
Sigrúnu: H® 7136 - V® 7234
Mætum hressar, með nóg af góðu skapi í farteskinu
Undirbúningsnefnd
Skammt frá Gunnari mátti svo
sjá nýsmíðaðan og glæsilegan
togara, sem smíði er langt kom-
in á fyrir Sjólastöðina í Hafnar-
firði og kemur hann í stað hins
fræga stefnisskorna Sjóla sem
eyðilagðist í eldi.. hb
Gunnar SU á Reyðarfirði
skömmu áðuren hann varseldur
úr landi. ^
Handknattleikur
Þróttarar æfa fyrir Færeyjaför
Nú eru hafnar á ný hand-
knattleiksæfingar hjá Þrótti.
Fyrst um sinn verða æfingar á
þriðju- og fimmtudagskvöldum,
bæði inni og úti.
Sem kunnugt er fara Þróttarar
til Færeyja í sumar, til keppni við
Sandavogs íþróttafélag og er
handknattleikur og knattspyma
aðalkeppnisgreinamar. í athugun
er að bæta blaki við þessar keppn-
isgreinar, en enn hefur ekki borist
svar um hvort svo verður.
Þó svo að hér sé minnst á
handknattleikinn í sambandi
við Færeyjaverð, er það engan
veginn svo að æft sé eingöngu
með þá ferð í huga. Hanknatt-
leikurinn hefur verið í mikilli
lægð hér undanfarin ár og hefur
takmörkuð stærð íþróttahússins
til handknattleiksiðkunar verið
aðal orsökin. Ekki er þó ein-
göngu hægt að skella skuldinni
á það, margir aðrir þættir spila
inn í, s. s. þátttaka iðkenda í
öðrum íþróttum, fá verkefni hér
austanlands í handknattleik og
áfram mætti telja.
Við komum handknattleik
hér ekki á rétta braut með
stefnu á heimsóknir til eða frá
Færeyjum á tveggja ára fresti,
heldur verður að gera þetta að
heilsárs íþrótt.
Sú tíð er liðin að handknatt-
leikur sé útiíþrótt, þess vegna
verðum við að leggjast af alefli
á þá kröfu sem fram hefur
komið, margsinnis, að stækkun svo megi verða dugar ekki til
íþróttahússins hafi algeran for- eindreginn vilji bæjaryfirvalda,
gan í uppbyggingu íþrótta- það er ríkisvaldið sem þarræður
mannvirkja á staðnum. Til að ferðinni. EG
Austfirðingar!
Kynnið ykkur nýjar reglur um
APEX-fargjöidin í innanlandsflugi.
APEX-fargjöidin eru ódýr og þægileg.
Upplýsingar hjá Flugleiðum, umboðs-
mönnum og ferðaskrifstofum.
FLUGLEIÐIR
Austfjarðaleið hf.
S 7713
FLEIRI FARÞEGAR
BETRI ÞJÓNUSTA
Reiðhjól, Hörpumálning
Thoro-múrviðgerðarefni - Póstsendum
Varahlutaverslunin Vík
Neskaupstað S 7776
ÞINN HAGUR
OKKAR STYRKUR
m
Sparisjóður Norðfjarðar