Austurland - 01.09.1988, Page 4
4
FIMMTUDAGUR, 1. SEPTEMBER 1988.
Fimmtudagur 1. september
18.50 Fréttaágríp og táknmálsfréttir.
9.00 Heiða.
25 íþróttasyrpa.
.50 Dagskrárkynning.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Mannskaði við Mýrar. Heimilda-
mynd um leiðangur nokkurra Frakka
vestur á Mýrar á þær slóðir er rann-
sóknarskipið Pourquoi Pas? fórst árið
1936. Einnig er rakinn ferill Jean-
Baptiste Charcot, skipstjóra og leið-
angursstjóra.
21.20 Glæfraspil. Lokaþáttur.
22.10 „Komir þú á Grænlands-
grund . . .“ Danskir sjónvarpsmenn
ferðuðust um Grænland á síðasta ári
á hundasleðum, þyrlum og jeppum.
Þetta er fyrsti þátturinn af fjórum um
Grænland sem Sjónvarpið mun sýna
næstu fimmtudaga.
23.10 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
Föstudagur 2. september
18.50 Fréttaágríp og táknmálsfréttir.
19.00 Sindbað sæfarí.
19.25 Poppkorn.
19.50 Dagskrárkynning.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Basl er bókaútgáfa.
21.00 Derríck.
22.00 Atlantic City. Kanadísk/frönsk
bíómynd frá 1980. Aðalhlutverk Burt
Lancaster og Susan Sarandon. Rosk-
inn smáglœpamaður finnur vœnan
skammt af eiturlyfjum og œtlar sér að
hagnast vel á sölu þeirra.
23.40 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
Laugardagur 3. september
17.00 íþróttir.
18.50 Fréttaágríp og táknmálsfréttir.
19.00 Mofli - síðasti pokabjörninn.
Spænskur teiknimyndaflokkur fyrir
börn.
.25 Smellir.
50 Dagskrárkynning.
u.00 Fréttir og veður.
20.30 Lottó.
20.35 Ökuþór. Breskur gamanmynda-
flokkur um ungan lágstéttarmann sem
ræður sig sem bílstjóra hjá auðmanni.
21.00 Maður vikunnar.
21.25 Ærslagarður. Bandarísk bíómynd
frá 1978. Aðalhlutverk John Belushi,
Thomas Hulce, Tim Matheson,
Donald Sutherland og Karen Allen.
Gamanmynd sem gerist í menntaskóla
á sjöunda áratugnum og fjallar um tvœr
klíkur sem eiga í sífelldum erjum.
23.00 Hörkutól. Bandarísk bíómynd frá
1968. Aðalhlutverk Richard Wid-
mark, Henry Fonda, Inger Stevens og
James Withmore. Leynilögreglumað-
ur frá New York fer sínar eigin leiðir
við lausn erfiðra mála, sem ekki eru
vel séðar af lögregluyfirvöldum.
00.45 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
Sunnudagur 4. september
16.00 Reykjavík - Reykjavík. Leikin
heimildamynd gerð í tilefni af 200 ára
afmæli Reykjavíkurbofgar þann 18.
ágúst 1986. Höfundur og leikstjóri
Hrafn Gunnlaugsson. Myndin var síð-
ast á dagskrá 17. ágúst sl. og er endur-
sýnd nú vegna hljóðtruflana sem komu
fram í sýningu myndarinnar þá.
17.30 Það þarf ekki að gerast. Mynd um
störf brunavarða og um eldvarnir í
heimahúsum. Áður á dagskrá 22. des.
1987.
17.50 Sunnudagshugvekja
18.00 Törraglugginn.
18.50 Fréttaágrip og táknmálsfréttir.
19.00 Knáir karlar.
19.50 Dagskrárkynning.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Dagskrá næstu viku.
70.45 Kvikmyndastjaman Nathalie
Wood. Heimildamynd um ævi og
leikferil Nathalie Wood.
21.45 Snjórinn í bikamum. 4. þáttur.
22.40 Úr Ijóðabókinni.
22.50 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
Norðfjarðarkróníka
Það hefur ekki farið framhjá
mörgum að ýmislegt er ekki eins
og það ætti að vera í þessum bæ
okkar. Sumir tala um leiðinda-
mál og aðrir nota sterk lýsingar-
orð til að útlista ástandinu í
mannlífi bæjarins.
Sparisjóðsmál
Fyrst er að nefna svokallað
sparisjóðsmál. Hefði ekki verið
auðvelt að forða okkur frá því
leikriti öllu saman. Ekki hefur
það skemmt fleirum en illum
tungum.
Hvað veldur því annars að
mannleg samskipti virðast ekki
vera nothæf til að leysa stjórn-
unarvandamál.
Svo mikið hefur mál þetta verið
til umræðu manna á meðal í sumar
að óþarfi er að fjalla um efnisþætti
þess. Öllum væri samt hollt að
hugleiða hvað hægt er að læra af
þeirri málsmeðferð sem viðhöfð
hefur verið þannig að menn losni
við að endurtaka hana.
Síldarvinnslan og fólkið
Að sögn kunnugra er andinn
meðal starfsmanna ekki upp á
það besta. Það sem helst fer fyr-
ir brjóstið á fólki er að fyrirtæk-
inu, sem það lítur gjarnan á sem
sitt fyrirtæki, er ekki lýðræðis-
lega stjórnað. Ef þessu er farið
á þann veg, þ. e. að fólkið og
Síldarvinnslan eru ekki í takt,
er vissulega þörf á að stilla
saman.
Það skal tekið fram að hér er
gerður skýr greinarmunur á
hinu hefðbundna naggi og
krúnki um Síldarvinnsluna og
ráðríki hennar og hennar stjórn-
enda og því umtali sem nú geng-
ur fjöllum ofar.
Stjórnsýsla bæjarins
I eyru undirritaðra hafa borist
orð um eitt og annað aðfinnslu-
vert í stjórnsýslu bæjarins. Að
sjálfsögðu er það bæði eðlilegt
og jákvætt að fólk láti ekki allt
framhjá sér fara án athuga-
semda og betur væri ef fleiri
gagnrýnisraddir heyrðust opin-
berlega. Eitt og annað í þeirri
gagnrýni sem borist hefur í eyru
okkar vekur upp spurningar um
það hvort bænum sé stjórnað í
þeim anda sem felst í stefnu Al-
þýðubandalagsins - að vera í
þjónustu fólksins. Hefur meiri-
hluti Alþýðubandalagsins
e. t. v. dottað við hliðina á sof-
andi minnihlutanum? Tekur
pólitíska staðan í bænum - allir
flokkar og skoðanahópar með-
taldir - mið af efnahagsstöð-
unni, sem ku víst vera nálægt
ördeyðu?
Að hreinsa loftið
Það er greinilega full þörf á
að hið óhreina loft verði hreins-
að. Það verður ekki gert með
því að setja í hnakkann og full-
yrða að allt sé í stakasta lagi,
heldur með því að ræða opin-
skátt um málefni bæjarins og
þeirra fyrirtækja sem eru óað-
skiljanlegur hluti mannlífsins.
Okkur kemur öllum við hvernig
málum er ráðið í umhverfi
okkar.
Markmiðið með þessari grein
er ekki að fara í saumana á þeim
málum sem verið hafa til um-
ræðu manna á meðal í sumar,
heldur aðeins að nefna þau op-
inberlega, það er eins og oft
þurfi slíkt til - einskonar stað-
festingu á að málið sé mál. Við
teljum okkur ekki búa yfir
lausnum, en erum þess fullvissir
að hægt sé að lægja öldur og
leysa mál ef um þau verði rætt
opinskátt og ærlega. Það er ekki
verið að leita upp sökudólga til
að hengja í næsta gálga, slíkt
þjónar engum tilgangi.
Við höfum þá trú að AUST-
URLAND ljái mönnum pláss
fyrir umræðu.
Það skal tekið fram að enda
þótt við tveir höfum tekið sam-
an pistil þennan þá höfum við
ekki fundið upp þau mál sem
nefnd eru í honum og verið hafa
milli tannanna á fólkinu í
bænum.
Albert Einarsson
Einar Már Sigurðarson
Norðf irðingar!
Blakdeild Þróttar vantar heimilistæki og
húsmuni fyrir veturinn
T. d. ísskáp, hjónarúm og sjónvarp
Til greina kemur að kaupa vel með farna hluti
en eins er vel þegið að fá þá lánaða í vetur
Upplýsingar veitir Grímur Magnússon
í síma 71562
Skjala- og myndasafn Norðfjarðar:
HVER ER MAÐURINN?
Ljósmyndari: Eyjólfur Ljósmyndari: Ólafur Magn-
Jónsson, Seyðisfirði. ússon, Reykjavík.
Allar upplýsingar má senda til Guðmundar Sveinssonar, Urð-
arteigi 10,740 Neskaupstað eða hringja í síma 71584 eða 71515
Nýjung í skólastarfi
Farskólinn Austurlandi
Nú í haust fer af stað athygl-
isverð nýjung í skólastarfi, sem
nefnd hefur verið Farskólinn
Austurlandi. í frétt frá skólan-
um segir að Farskólinn Austur-
landi sé ekki nýr skóli og það sé
heldur ekkert nýtt við það að
fólk vilji læra eitthvað gagnlegt.
Orðrétt segir síðan í frétt
skólans: „Farskólinn Austur-
landi er fræðsluhreyfing sem á
heima hverju sinni þar sem
námskeið á hans vegum er
haldið. Farskólinn Austurlandi
er vísvituð tilraun til að færa
menntunarmöguleika til dreif-
býlisins og þannig tilraun til að
jafna aðstöðumun fólks. í far-
skólakerfinu forðum daga vitj-
uðu kennarar heimila og fluttu
með sér eigi svo lítinn fróðleik
og leiðsögn um lífsins vegu.
Þeirri fræðsluhreyfingu sem af
okkur er kölluð Farskólinn
Austurlandi er ætlað það hlut-
verk að vitja atvinnulífsins og
flytja þangað fróðleik og starfs-
þekkingu sem að gagni geti
komið.“
Oefinn hefur verið út upplýs-
ignabæklingur, sem í frétt skól-
ans er nefndur „flettingur“ og
þar gefur að líta upplýsingar um
skólann og þau námskeið sem í
boði eru á komandi skólaári.
Það eru Verkmenntaskóli Aust-
urlands og Atvinnuþróunarfé-
lag Austurlands sem standa að
Farskólanum Austurlandi.
Úr fréttatilkynningu
NESKAUPSTAÐUR
Fundur
Jafnréttisnefnd Neskaupstaðar heldur fund í
fundarsalEgilsbúðar mánudaginn 5. sept. kl. 21.
Dagskrá:
Kynning á námsefni um jafnréttisfræðslu.
1. Námsefni fyrir yngri nemendur.
Stelpur — strákar, jafngildir einstaklingar.
Kynnir Steinunn Aðalsteinsdóttir.
2. Námsefni eldri nemenda.
Stelpur - strákar, starfsval.
Höfundur og kynnir Gerður G.
Óskarsdóttir.
Allir velkomnir.
Jafnréttisnefnd.