Austurland - 01.09.1988, Side 6
Passamyndir
í öll skírteini
Pantanir S 71758 eftir kl. 18
STEINSMIÐI - LEGSTEINAR
Biöjið um myndbækling
eða komið í heimsókn
ALFASTEINN '*/i
720 - Borgarfjöröur eystri
Egilsstaðir
Hafin bygging
íbúðarhúss fyrir aldraða
Um miðjan ágústmánuð var
tekin fyrsta skóflustungan að
stórhýsi fyrir sjálfseignaríbúðir
aldraðra á Egilsstöðum. I hús-
inu verða 18 íbúðir og verða 8
þeirra 59 m2, 6 íbúðir verða 47
m2 og fjórar íbúðir 41 m2. í heild
verður húsið 1700 m2 og er fjór-
ar íbúðarhæðir auk 131 m2 þjón-
usturýmis í kjallara. Egilsstaða-
bær mun eiga þjónusturýmið í
kjallaranum en þar verður til
húsa félagsaðstaða fyrir aldr-
aða. Þá munu 5 íbúðanna í hús-
inu verða í eigu bæjarins en aðr-
ar íbúðir eiga íbúarnir sjálfir.
Nú þegar er helmingur íbúð-
anna seldur eða leigður en sölu-
verð hverrar íbúðar er frá 3
milljónum til 3,9 milljóna.
Arkitekt hússins er Björn
Kristleifsson en framkvæmda-
Hrafnkell
A. Jónsson
formaður SSA
Á aöalfundi SSA um síð-
ustu helgi var kosin ný
stjórn SSA. Hina nýju
stjórn SSA skipa: Hrafnkell
A. Jónsson Eskifiröi, Þrá-
inn Jónsson Fellabæ,
Magnús Ingólfsson Vopna-
firði, Birgir Hallvarðsson
Seyðisfirði, Einar Már Sig-
urðarson Neskaupstað,
Ólafur Ragnarsson Bú-
landshreppi, Guðm,undur
Þorsteinsson Fáskrúðsfiröi,
Guðjón Þorbjörnsson Höfn
og Hálfdan Haraídsson
Norðfjarðarhreppi.
Hin nýja stjórn hélt fund
strax að aðalfundinum
loknunt og þar var kosið í
framkvæmdaráð SSA.
Tveír af þremur fyrrverandi
framkvæmdaráðsmönn um
eru ekki í hinni nýju stjórn,
en það eru Björn Hafþór
Guðmundsson fyrrverandi
formaður og Smári Geirs-
son. Nýja framkvæmdaráðiö
skipa: Hrafnkell A. Jónsson
formaður, Guðmundur Þor-
steinsson varaformaður og
EinarMárSigurðarson. hb
stjóri byggingarinnar er Ragnar
Jóhannsson. Vökvavélar hf. sjá
um uppgröft úr grunni hússins
og er vinna við það þegar hafin
en útboð í fyrsta áfanga stendur
nú yfir. Gert er ráð fyrir að ljúka
byggingu hússins í desember á
næsta ári. hb
Helgina 9. - 10. sept. verður
opið bridgemót á vegum
Bridgesambands Austurlands
haldið í Hótel Valaskjálf á Eg-
ilsstöðum. Búnaðarbankinn og
Samvinnubankinn á Egilsstöð-
um, Landsbankinn á Reyðar-
firði, Kaupfélag Héraðsbúa,
Flugleiðir og Egilsstaðabær
styðja mótshaldið fjárhagslega
auk Valaskjálfar. Spilað er um
vegleg verðlaun sem skiptast
þannig: 1. verðlaun: 80.000 kr.,
2. verðlaun: 50.000 kr., 3. verð-
Knattspyrnufélögin Fram og
Valur bjóða í samvinnu við
ferðaskrifstofuna Samvinnu-
ferðir/Landsýn upp á sérstakar
pakkaferðir af landsbyggðinni
til Reykjavíkur í sambandi við
Evrópuleiki félaganna 6. og 7.
september nk.
Fyrri leikurinn er þriðjudag-
inn 6. september en þá leikur
Sigurður Símonarson bæjar-
sljóri ávarpar vidstadda.
laun: 30.000 kr., 4. verðlaun:
20.000 kr., 5. verðlaun: 10.000
kr.
Keppnisgjald er kr. 3.800 á
mann og er þá innifalinn sam-
eiginlegur kvöldverður að móts-
lokum svo og aðgöngumiði að
dansleik. Spilamennska hefst
kl. 20{XI föstudagskvöldið 9.
sept.
Þátttakendur skrái sig sem
fyrst hjá Friðjóni í síma 41200
eða Sveini í síma 11604.
Fréttatilkynning
Valur við Monaco og daginn
eftir, þann 7. september leikur
Fram við Barcelona. Umboðs-
menn Samvinnuferða/Landsýn-
ar veita allar frekari upplýsingar
og eins aðalskrifstofa SL og
Skrifstofur Vals, sími 91-623730
og Fram, sími 680343.
Úr fréttatilkynningu
Jón Sigurðsson frá Kirkjubœ settist upp í skurðgröfu og tók fyrstu
skóflustunguna. Myndir Hallur Jónsson
Bridge í Valaskjálf
Knattspyrna
Pakkaferðir á Evrópuleiki
Hvarer Eskifjörður?
Eitt af leiðbeiningarmerkjunum og hvergi er minnst á Eskifjörð.
Hvar er Eskifjörður? - Þetta
er spurning sem ekki þarf að
spyrja Austfirðinga um en hins
vegar getur svarið vafist fyrir
ferðamönnum sem koma að
norðan og ætla til Eskifjarðar.
Þeir hinir sömu geta í það
minnsta ekki treyst á merkingar
Vegagerðarinnar því Eskifjarð-
ar er hvergi getið á spjöldum
þeirrar stofnunar.
Einar Þorvarðarson umdæmis-
stjóri Vegagerðarinnar á Aust-
urlandi sagði í samtali við blaðið
að við merkingar væri farið eftir
ákveðinni reglu um svokallaða
nær- og fjærstaði. Þess vegna væri
það, til dæmis, að þegar komið
væri að Fagradal frá Egilsstöðum
á Norðfjarðarveg, þá væri þar
vegvísir sem segði til um vega-
lengd til næsta staðar, sem er
Reyðarfjörður og fjærsta staðar,
sem er Norðfjörður. Hann sagði
hins vegar ljóst að þar sem stutt
væri á milli staða eins og hér á
Austfjörðum gæti þurft að hafa
frávik frá þessari reglu og það
væri engan veginn nógu gott að
geta hvergi Eskifjarðar. Einar
sagði að nú stæði til að hefja
endurskoðun á öllum vega-
merkingum á landinu og hefði
verkfræðistofa verið ráðin til þess
verks svo úrbóta mætti vænta í
þessum málum á næstu árum.
Auk þessa er algengt að ferða-
menn aki í gegnum allan Eski-
fjarðarkaupstað og endi úti í sveit
í leit sinni að veginum til Neskaup-
staðar. Við þau vegamót er hins
vegar merking en hún er beint á
móti vegamótunum og einnig er
að mönnum þykir þetta heldur
ótrúleg leið. Úr þessu mætti bæta
með því að hafa vegvísi nokkuð
frá vegamótunum sem gæfi til
kynna hve langt væri í þau.
í framhaldi að þessum vanga-
veltum um merkingar við vegi
má svo nefna hér að vtða er
ábótavant merkingum hjá opin-
berum stofnunum og fyrirtækj-
um í þéttbýli hér eystra og þurfa
ferðamenn oft að hafa talsvert
fyrir því að leita upplýsinga um
matsölu- og gististaði, svo
eitthvað sé nefnt. hb
Fáskrúðsfjörður
Bátarnir í
siglingum
Bátar Pólarsíldar, Guðmund-
ur Kristinn og Þorri hafa að
undanförnu aflað í siglingar.
Guðmundur Kristinn hefur ver-
ið á línu síðan 13. ágúst og á
mánudaginn seldi hann 51 lest í
Englandi. Fyrir aflann fékk bát-
urinn tæpar 4 milljónir og er
meðalverðið 77,47 kr. á kg.
Þorri hefur verið á netum og
sigldi í vikunni áleiðis til Eng-
lands með 65 - 70 en þar átti
báturinn að selja á morgun,
föstudag.
Hjá Pólarsíld er nú hafinn
undirbúningur að síldarsöltun
haustsins. í sumar hefur verið
unnið að lokafrágangi á lager-
húsnæði fyrir saltsíld sem reist
var í fyrra. Það húsnæði cr um
900 m2 en áður hafði verið reist
500 m2 hús þannig að lagerhús-
næði Pólarsíldar fyrir sahsíld er
nú 1400 nr.
Togarinn Hoffcll landaði á
mánudaginn 115 lestum af
blönduðum fiski, þar af voru 50
tonn ufsi, 20 tonn karfi og 38
tonn af þorski. Hoffellið er nú
langt komið með þorskkvóta
sinn og mun verða á skrap-
fiskiríi til áramóta. ms/hb