Austurland - 27.10.1988, Síða 2
2
FIMMTUDAGUR, 27. OKTÓBER 1988.
Austurland
MÁLGAGN ALÞÝÐUBANDALAGSINS
Útgefandi: Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins á Austurlandi
Ritnofnd: Elma Guðmundsdóttir, Guðmundur Bjarnason,
Einar Már Sigurðarson og Smári Geirsson
Ritstjári: Haraldur Bjarnason (ábm.) S 71750 og 71756
Auglýsingar og dreifing:
Áshildur Sigurðardóttir S 71571 og 71629
Ritstjórn, afgreiðsla og auglýsingar:
Egilsbraut 11 • Pósthólf 31 ■ 740 Neskaupstaður ■ ® 71750 og 71571
Prentun: Nesprent
Jarðgöng eru ekki bara vegur
Umræðan um jarðgöng hefur nú tekið kipp eftir
að Steingrímur J. Sigfússon settist í stól samgöngu-
ráðherra en hann, ásamt öðrum þingmönnum Al-
þýðubandalagsins, hefur verið ötull talsmaður jarð-
gangagerðar hérlendis undanfarin ár.
Öll umfjöllun um jarðgangagerð hefur á síðustu
árum einkennst af því að hér væri um dýrar fram-
kvæmdir að ræða og gjarnan hefur því verið haldið
á lofti að slíkar framkvæmdir séu allt of dýrar því
þær nýtist svo fáum. Allt slíkt tal er hin mesta fjar-
stæða og allur samanburður á jarðgöngum og venju-
legum vegi yfir fjöll er gjörsamlega út í hött. Aldrei
hefur verið gerð könnun á félagslegum þáttum jarð-
gangagerðar og hve þjóðhagslega hagkvæm slík
mannvirkjagerð gæti orðið. Jarðgöng geta nefnilega
verið grundvöllur fyrir margvíslegum sparnaði sem
kemur til eftir að fámennir þéttbýiisstaðir tengjast
með heilsárssamgöngum og fyrst og fremst öruggum
samgöngum.
í fyrrgreindum efnum getum við tekið fjölmörg
dæmi. Við getum séð fyrir okkur margvíslega sam-
nýtingu byggðarlaga á skólakerfi, í menningarmál-
um, heilbrigðismálum, þjónustu og verslun hvers-
konar. Við getum séð fyrir okkur fiskmarkað á Aust-
fjörðum, sérhæfingu fiskvinnslustöðva með miðlun
á fiski milli fjarða eftir þörfum og aðstæðum á hverj-
um stað. Hugsanlega getur sameiginleg hitaveita eða
fjarvarmaveita komið til. Svo ekki sé nú talað um
allan sparnaðinn sem Póstur og sími og Rafmagns-
veiturnar myndu fá í sin hlut eftir að hægt verður að
leggja strengi á milli staða um jarðgöng í stað erfiðra
fjallaleiða og öllu öryggi sem því fylgir. Þá gætu Aust-
firðingar jafnvel búsit við að geta hlustað óslitið á
útvarp og með sama hætti notið sjónvarpsdagskrár.
Sameiginleg sorpeyðing byggðarlaga er og eitt dæmið
sem við getum séð fyrir okkur og svo mætti lengi telj a.
Það væri því þarft verk fyrir nýjan samgönguráð-
herra að láta kanna sem fyrst allar þær sparnaðarleið-
ir hjá ríki, sveitarfélögum og almenningi sem opnuð-
ust með gerð jarðganga. Það eitt myndi auðvelda
honum róðurinn gegn Reykjavíkurvaldinu í þessum
efnum. Við þurfum ekki að geta þess að Austfirðing-
ar og aðrir landsbyggðarbúar eru vel að því komnir
að í þessar framkvæmdir verði ráðist. Þarna er um
það að ræða að tengja saman staðina sem skapa þjóð-
arauðinn og sem dæmi þar um getum við nefnt að
helmingi meiri sjávarafla var landað í þúsund manna
samfélagi á Seyðisfirði fyrstu níu mánuði þessa árs
en í Reykjavík með um tífalt fleiri íbúa. hb
Oddsskarðsvegur
Framkvæmdum seinkar
Framkvæmdir við lagningu
nýs Oddsskarðsvegar upp frá
Eskifirði eru komnar langt á eft-
ir áætlun. Einar Porvarðarson
umdæmisstjóri Vegagerðarinn-
ar, sagði í samtali við blaðið, að
bleytutíðin í sumar hefði gert
það að verkum að lítið sem ekk-
ert var hægt að vinna við vegar-
gerðina í sumar. Hann sagði að
tæki gengju illa í svo blautum
jarðvegi og efnið skriði til þann-
ig að nú væri staðan sú að aðeins
væri búið að vinna um 20% þess
sem áformað hefði verið að gera
á þessu ári en ætlunin hafði ver-
ið að ljúka undirbyggingu þess
kafla sem unnið hefur verið við.
Einar sagði að menn hefðu
gert sér grein fyrir að þessi staða
gæti komið upp og þá vonast til
að hægt yrði að vinna við verkið
nú í haust eftir að frost yrði
komið í jörð en tíðarfar undan-
farinna daga benti þó ekki til að
af því gæti orðið.
Starfsmenn Vegagerðarinnar
hafa að undanförnu unnið við
að endurbæta ræsi í Oddsdal og
í síðustu viku var hafist handa
við að setja rör í Geithúsalæk
og fylla að því. Brúin sem þar
Frá framkvœmdum við Geithúsalœk. Mynd hb
var hefur verið til trafala enda vegna. Einar sagði að nú yrði
gömul og þröng auk þess sem sett fylling í gilið þannig að fyrr-
brekkur voru að henni beggja nefndar brekkur hyrfu. hb
Laufskálinn
Nesgötu 3 Neskaupstað © 71212
Gullfallegar pottahlífar og vogir
Diskamottur, serviettur, pottaleppar
og svuntur með bútasaum
Lítið inn
KAUPFELAGIÐ FRAM
AUGLÝSIR
I' VEFNAÐARVÖRUDEILD:
Vinnubuxur . . kr. 1.189,-
íþróttasokkar, 3 í pakka . . kr. 299.-
Herraskyrtur . . kr. 895.-
Vinnuskyrtur . . kr. 572,-
Telpunærbuxur . . kr. 95.-
Kvennærbuxur og drengjanærbuxur . . . . kr. 119,-
Gammosíur . . kr. 267,-
Nýkomið mikið úrval af kuldaskóm á konur og karla
Einnig skór á börn
Einnig nýkomið apaskinnsefni
í HEIMILISVÖRUDEILD:
TILBOÐ 27. OG 28. OKTÓBER: Matarstell Kaffistell Drykkjarvörur . . . kr. 2.750,- . . . kr. 1.568.- . . . kr. 78.-
Erum búin að fá mikið úrval af leikföngum