Austurland - 27.10.1988, Síða 8
Ný skósending
í hverri viku
Skóverslunin
Egilsbraut 21 Neskaupstað s 71288
Opið kl. 13-18 mánudaga - fimmtudaga
föstudaga kl. 10 - 12 og kl. 13 - 18
Askrifendur!
Munið að greiða
áskriftargjöldin
Austurland
Austurland
Neskaupstaður
„Ríkið“ opnað í nóvemberbyrjun
Hér verður „Ríkið“.
„Við stefnun á að geta opnað
áfengisútsöluna þriðjudaginn 8.
nóvember“, sagði Höskuldur
Jónsson forstjóri ÁTVR þegar
AUSTURLAND spurðist fyrir
um gang mála varðandi opnun
áfengisútsölu í Neskaupstað.
Höskuldur sagði að iðnaðar-
menn væru nú þegar byrjaðir að
vinna í húsnæðinu og hillur og
annað sem til þyrfti í innrétting-
ar kæmu austur nú í vikunni.
Áfengisverslunin hefur ráðið
starfsmann í hálft starf til að
hafa umsjón með versluninni
fyrir hönd ÁTVR og er það
Norðfirðingur, Hermann Beck.
Hermann mun jafnframt starfa
í verslun SÚN en sú verslun
verður til húsa í sama húsi og
ÁTVR og er fyrirkomulag
áfengisútsölunnar hið sama og í
Ólafsvík og Hafnarfirði þannig
að samstarf er um starfsmenn.
Það er því útlit fyrir að áfeng-
isverslun verði opnuð í Nes-
kaupstað áður en að þriggja ára
afmæli atkvæðagreiðslu um
opnun hennar verður, en at-
kvæðagreiðslan fór fram í lok
desember 1985. hb
Neskaupstaður
Nýr veghefill
„Þetta eru óvænt útgjöld fyrir
bæinn og erfið því kaupverð nýs
veghefils er svipað mikið og all-
ar gatnagerðarframkvæmdir
bæjarins í sumar kostuðu“,
sagði Ásgeir Magnússon, bæjar-
stjóri í samtali við AUSTUR-
LAND en drif í veghefli bæjar-
ins brotnaði fyrir skömmu og
ekki þótti svara kostnaði að gera
við það. Sendir voru tveir menn
á vegum bæjarins til Englands
að kanna kaup á notuðum hefli
þar og festu þeir kaup á hefli
sem kostar um 3,7 milljónir
hingað kominn.
Ásgeir sagði hefilinn væntan-
legan á næstu vikum en þessi
fjárfesting setti nokkurt strik í
reikninginn hjá bæjarsjóði, þar
sem engin slík fjárfesting hefði
verið á fjárhagsáætlun. hb
Reyðarfjörður
Smábátahöfnin endurbætt
Allir þurfa að nota
ENDURSKINSMERKI!
Að undanförnu hefur verið
unnið við að dýpka smábáta-
höfnina á Reyðarfirði og rýmka
þar til fyrir fleiri bátum.
I samtali við AUSTUR-
LAND sagði Hörður Þórhalls-
son sveitarstjóri að dýpkunar-
framkvæmdunum myndi Ijúka í
byrjun nóvember en ráðgert
væri að þessar framkvæmdir
kostuðu 3-4 milljónir króna.
Þá sagði hann áformað að setja
þarna út flotbryggjur í vetur og
vonast væri til að því verki lyki
fyrir áramót. Eftir það ætti að
vera pláss fyrir 20 - 25 smábáta
í góðri höfn á Reyðarfirði. hb
Neskaupstaður
Tvö innbrot
Brotist var inn á tveimur
stöðu í Neskaupstað aðfaranótt
síðasta laugardags. Nokkrar
skemmdir voru unnar á öðrum
staðnum, versluninni Tónspil og
þaðan var stolið segulbands-
spólum, hljómborði, gítar og
stuttermabolum með hljóm-
sveitamyndum auk ýmissa
smærri hluta. Pétur Hallgríms-
son eigandi Tónspils sagðist
áætla að tjónið væri um 100 þús-
und krónur, en farið var inn
með því að brjóta glugga í úti-
hurð.
Sömu nótt var brotist inn í
skyndibitastaðinn Víkurbitann
og er þetta önnur helgin í röð
sem innbrotsþjófar gera sig
heimakomna þar. Ekki verður
annað séð en svengd hafi verið
meginástæðan fyrir innbrotinu
þar því stolið var einni fötu með
salati og skinkubita. Auk þess
var skiptimynt, um 6000 krónur,
hreinsuð úr kassanum. Sá eða
þeir sem brutust inn í Víkurbit-
ann hafa þurft að vera lipur-
menni hin mestu því farið var
inn um lítinn opnanlegan glugga
á eldhúsi vestanvert á húsinu.
Gluggi þessi er í talsverðri hæð,
svo fyrirhöfnin er nokkur.
Það er athyglisvert að bæði
þessi innbrot eru framin við
mestu umferðargötu bæjarins
og því með ólíkindum að enginn
skuli hafa orðið var við óeðlileg-
ar mannaferðir. Innbrotin voru
óupplýst þegar AUSTUR-
LAND fór í prentun, en unnið
er að rannsókn þeirra. hb
mÉUMFERÐAR
Vráð