Austurland


Austurland - 13.04.1989, Blaðsíða 8

Austurland - 13.04.1989, Blaðsíða 8
Tónspil Mjög ódýrir kæliskápar VISA raðgreiðslur Tónspil Egilsbraut 5 Neskaupstað S 71580 .ekKi bafij hepPn ◄ -Aí-A- Munið getraunanúmer ÞRÓTTAR ■740 Austurland Neskaupstað, 13. apríl Höfn Ágætis vertíðarafli Um 7.700 tonn voru komin á land af vertíðarfiski um síðustu helgi á Höfn í Hornafirði. Ágæt- is afli hefur verið eftir páska og bátar verið að landa 10-15 tonnum eftir nóttina. Hjá Fiskiðjuveri KASK voru á sunnudaginn komin 4.885 tonn á Iand og er það nokkuð minni afli en var á sama tíma í fyrra. Af þeim bátum sem leggja upp hjá KASK var Sigurður Ólafsson með 437 tonn. Hjá Faxeyri hf. voru um 1.100 tonn komin á land um helgina. Tveir bátar, Haukafell og Vísir leggja upp hjá Faxeyri og skiptist aflinn nokkuð jafnt á milli þeirra. Þrír bátar leggja upp að stað- aldri hjá Skinney hf. og um helg- ina var einn þeirra, Steinunn, búinn með kvóta sinn, hafði landað 533 tonnum á vertíðinni. Freyr var þá búinn að landa 484 tonnum og var langt kominn með kvótann og Skinney var komin með 588 tonn. Auk afla þessara báta hafa Þinganesið og Haukafellið lagt upp rúm 20 tonn hvor bátur hjá Skinney hf. Algengt er orðið að bátarnir taki netin upp á laugardögum fyrir helgarfríið á sunnudögum og því er það brátt að verða úr sögunni að draga tveggja og þriggja nátta net. hb Landað úr Lyngey SF-51 á Höfn. Frjálsar íþróttir Austfirðingar í þriðja sæti Lið Austurlandsumdæmis hafnaði í þriðja sæti í skóla- keppni Frjálsíþróttasambands íslands sem fram fór í Reykja- vík á laugardaginn. Einstök úr- slit urðu sem hér segir: Yngrí flokkur - 12 ára og yngri: Sigríður Guðmundsdóttir, 50 m hlaup 7,4 sek 3. sæti, lang- stökk 4,25 m 4. sæti. Arna Rut Einarsdóttir, há- stökk 1,28 m 5. sæti, kúluvarp 6,79 m 2. sæti. Aðalsteinn I. Magnússon, 50 m hlaup 7,8 sek 6. sæti (7,6 sek í undanr.), langstökk 4,04 m 6. sæti. Egill Vignisson, hástökk 1,23 m 3. sæti, kúluvarp 8,53 m 2. sæti. Eldri flokkur - 13 - 14 ára: Ragnhildur Einarsdóttir, há- stökk 1,53 m 2. sæti, kúluvarp 8,40 m 2. sæti. Ásgerður Ingibergsdóttir, 50 m hlaup 7,2 sek 4. sæti (7,1 sek í undanr.), langstökk 4,00 m 7. sæti. Pétur Öm Magnússon, 50 m hlaup 6,6 sek 1. sæti, kúluvarp 9,16 m 5. sæti. Andri Snær Sigurjónsson, hástökk 1,58 m 3. sæti, lang- stökk 5,25 m 1. sæti. Pétur Örn Magnússon Eskifirði varð fyrstur í 50 metra hlaupi. Mynd PE Úrslit í stigakeppni milli fræðsluumdæma: Stig 1. Suðurland...........88 2. Norðurland eystra . . 86 3. Austurland .........79 4. Reykjanes .........73 í. Norðurland Vestra . . 59 6. Vesturland .........55 7. Reykjavík..........34 Seyðisfjörður Ríkisstjórnin standi við heit sín Á fundi sínum þann 31. mars sl. samþykkti Bæjarstjórn Seyð- isfjarðar að skora á ríkisstjórn- ina að gera nú þegar ráðstafanir sem tryggja þau fyrirheit í stjórnarsáttmála að jafna bú- setukostnað á landsbyggðinni með lækkun raforkuverðs ■ og húshitunarkostnaðar. Þá bendir bæjarstjórnin á þann aðstöðumun sem gjaldskrá Pósts og síma skapar milli landsbyggðar og höfuð- borgarsvæðis þar sem landið sé í raun eitt markaðssvæði og op- inberar stofnanir séu flestar í Reykjavík. Þávill bæjarstjórnin beina þeim eindregnu tilmælum til ríkisstjórnar að flutnings- kostnaður og fleira sem stafa af fjarlægð við höfuðborgarsvæðið verði jafnaður með aðgerðum í skattakerfinu. hb Seyðisfjörður Einvígi Monsu og minksins Minkur nokkur gerði sig, Monsa að nafni, brá hart við og Óttarr Magni Jóhannsson heimakominn við Fjarðará á' lagði til atlögu gegn gestinum. fylgdist með aðförum ' hinna Seyðisfirði fyrir stuttu. Heimil- Málalok urðu þau að minkurinn loðnu ferfætlinga og tók þá isköttur einn úr nágrenninu, lagði sneyptur á flótta. meðfylgjandi mynd. hb

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.