Austurland


Austurland - 26.06.1991, Síða 3

Austurland - 26.06.1991, Síða 3
MIÐVIKUDAGUR, 26. JÚNÍ 1991. 3 Helgi Seljan Hugþekk stund með hornfirskum leikurum Ég var á dögunum að lesa ágæta grein séra Baldurs Krist- jánssonar í Morgunblaðinu um þá ótvíræðu mismunun, er fjöl- miðlar sýna hvers kyns menn- ingarstarfsemi - ekki síst leik- starfsemi - eftir því hvort hún fer fram á Stór-Reykjavíkur- svæðinu eða landsbyggðinni. Það var réttmæt ádrepa og um leið alltof sönn; þar sem beint dæmi var tekið af þrautagöngu séra Baldurs sjálfs á milli fjöl- miðla varðandi kynningu á því ágæta og merkilega framtaki Leikfélags Hornafjarðar að flytja leikverk Guðrúnar Ás- mundsdóttur um Kaj Munk og gera það að allra dómi ákaflega vel. Svo vildi til að ég var þá fyrir Eskifjörður Góð rækju- veiði að undanförnu Eskfirsku rækjuveiðibátarn- ir, Guðrún Þorkelsdóttir og Sæljón, hafa aflað ágætlega að undanförnu en þeir hafa verið að veiðum úti fyrir Austurlandi, nánar tiltekið á Rauða torginu og í kantinum út af Héraðsflóa. Á þessum miðum hefur veiðst góð rækja sem unnin er í rækju- verksmiðju Hraðfrystihúss Eskifjarðar hf. Eins og alkunna er hefur verð á rækju á erlendum mörkuðum farið lækkandi að undanförnu og hefur sú þróun gert það að verkum að afkoma veiða og vinnslu hefur versnað til mikilla muna. nokkru búinn að senda DV du- lítinn pistil um áralanga baráttu áhugaleikfélaganna fyrir viður- kenningu sinni, bæði hjá fjöl- miðlum og fjárveitingavaldi, og verður að segja eins og er, að ólíkt gekk glíman við fjárveit- ingavaldið betur. Ég gat mælt þar af sæmilegum kunnugleika þar sem ég hafði um árabil all- mikil afskipti af áhugastarfi leik- félaganna, fyrst sem hinn al- menni þátttakandi mér til mikils gagns og enn meiri gleði og síðar sem stjórnarmaður nokkur ár í Bandalagi íslenskra leikfélaga. Ég sé á öllum áð þessi fjölmiðla- barátta stendur enn á meðan greinilegt er að ýmiss konar gjörningar af allra handa tagi á höfuðborgarsvæðinu fá bæri- lega umfjöllun og oftlega langt umfram alla verðleika. Hins vegar skal út af fyrir sig ekki amast við þeirri umfjöllun ef aðeins mætti nokkurt jafnræði ríkja. Harðast aðgöngu þykir mér jafnan þegar tómlætið eitt gildir um ágæta starfsemi, svo sem séra Baldur greinir glögglega frá, og um leið lýsir það ótrú- legri lítilsvirðingu á því áhuga- starfi sem unnið er vítt um land og oftlega ætti skilið að komast ofar á afrekaskrá menningarat- burða en ýmislegt af því sem hæst er hossað. Fjölmiðlar mættu t. d. gjarnan huga að því að það eru ekki bara íbúar byggðarlagsins og nágranna- byggða sem leggja við 'eyru og augu. Lesenda- og hlustenda- hópurinn er mun stærri. Hinir brottfluttu, vinir og frændlið, vilja gjarnan líka fá að fylgjast með og það er oftlega býsna vænn hópur, sem fjölmiðlar mættu oftar hugsa til einnig - fyrir utan það, að það eru tíð- indi, þegar vel er að verki staðið GRÆNA HORNIÐ Pappír og pappírsvörur Við val á pappírsvörum ber að hafa í huga að með pappírs- notkun göngum við á skóga jarðar og að framleiðsla á pappír er mengandi. Því skulum við velja óbleiktan og klórlausan pappír og nota endurunninn pappír þegar því verður við kom- ið t. d. þegar við kaupum kaffipoka, eldhúsrúllur, klósett- pappír, bleiur, dömubindi, skrifpappír, umslög, stílabækur, Ijósritunar- og tölvupappír. Og auðvitað veljum við egg í eggjabökkum úr endurunnum pappír. af áhugafólki, sem í hreinni aukavinnu leggur þannig sinn skerf til viðhalds þeirri menn- ingu, sem mærð er á torgum sí og æ. En svo vildi svo vel til, að ég fékk að heyra og sjá leiksýningu þeirra Hornfirðinga í Kópa- vogskirkju og ég skildi sárindi séra Baldurs enn betur eftir þá áhrifaríku kvöldstund, sem ég átti með hornfisku leikurunum mér til mikillar ánægju og sálu- bótar um leið. Verkið er einkar vel byggt upp, svo athygli manns öll er vakin frá upphafsatriði þar sem raunar eru sjálf endalokin, þó ekki í þeim trúarlega skiln- ingi sem höfundur greinilega leggur alúð að. Ég man enn hversu fréttin um aftöku Kaj Munk gagntók opinn barnshuga fyrir margt löngu, ein margra ógnarfrétta þess harða og grimma hildarleiks, sem máist ekki úr huga, þó árin líði. Og nálgun þessa voða atburð- ar varð ótrúlega mikil um leið og maður hreifst af kenni- manninum, orðkyngi hans og einurð, en fann einnig vel til samkenndar með efagjörnum, breyskum manni, sem var eins og við öll hin innst inni. Leikdómur á þetta ekki að vera, heldur eingöngu þakk- lætiskveðja til þess góða fólks, sem veitti mér ánægjustund um- hugsunar og alvöru um leið. Leikstjórn Hlínar Agnarsdóttur var svo sem vænta mátti fumlaus og örugg og afar vei gerð fyrir augum mínum og eyrum. Sam- stilling ólíkra aðila og misvanra er með erfiðari verkefnum þeirra sem fást við leiksýningar áhugafólks og oftar en ekki falla leikstjórar í þá gryfu að leggja alúð sína að þeint sem betur kunna og mega á kostnað hinna. Það er eitt aðalsmerkja þess- arar sýningar, hversu samstæð heildin er, þó auðvitað reyni meir á einn en annan, og sumir kunni augljóslega betur til verka en aðrir. En það á víðar við en hjá áhugafólkinu. Þarna voru á ferð bæði þeir sem til þess höfðu lært nokkuð, áhugafólk með ótal þolraunir að baki og allt yfir í nýliða, en sérhver skilaði sínu svo sem best varð á kosið. Ég nefni engin einstök nöfn, þó freistandi væri, þá yrði þetta utan enda, en auðvitað stendur og fellur sýningin með þeirri aðalpersónu, sem ailt snýst um og þar voru glitrandi, góðir hlut- ir gerðir. En fleiri áttu einlæga túlkun, sem snertu þá strengi í brjóstinu, sem tærast titra, þeg- ar best er gert. Má ég af einlægni þakka þessa stund og færa ykkur eystra árn- an góða, einnig hamingjuóskir með 25 ára afmæli félags ykkar. Ekki gátuð þið öllu betur gert afmælisárið eftirminnilegt, áhorfendum jafnt sem þátttak- endum. Og það yljar manni verulega vel að vita enn einu sinni, finna enn eina óræka sönnun þess, að áhugastarfið blómstrar og bar- áttan áður var þess sannarlega virði. Hafið öll heila hugans og hjartans þökk. Helgi Seljan Neskaupstaður Sýning á munum úr starfi eldri borgara Hlutisýningargesta í Breiðabliki. Ljósm. Sveinborg Sveinsdóttir Sunnudaginn 26. maí sl. var efnt til sýningar í Breiðabliki í Neskaupstað á munum sem eldri borgarar höfðu unnið í tómstundastarfi sl. vetrar. Margt fallegra og eigulegra muna var á sýhingunni og kom flestum sýningargestum sannar- lega á óvart hve mörgu er sinnt í tómstundastarfinu og hve miklum árangri það skilar. Starfsdagar í Breiðabliki voru fjórir í viku sl. vetur og sóttu þá að jafnaði um tuttugu manns. Mest eru það konur sem sinna tómstundastarfinu og mun vera mikil áhugi á að auka fjölbreytni þess enn frekar á hausti komanda og freista þess að glæða áhuga karlmannanna einnig. Leið- beinendur í tómstundastarfi aldraðra sl. vetur voru Anna Jónsdóttir, Guðný Sigurðar- dóttirog Helga G. Axelsdóttir. Um 140 manns sóttu sýning- una í Breiðabliki og voru þar á meðal hátt á fjórða tug eldri borgara frá Eskifirði og Fá- skrúðsfirði. Var heimsókn eldri borgaranna frá nágrannabyggð- unum einkar kærkomin. Eldri borgara og félagsmála- ráð Neskaupstaðar önnuðust í sameiningu kaffisölu í sal Breiðabliks á sýningardaginn og var þar fullt út úr dyrum. Vopnafjörður Skólastjóraskipti Nú hefur Hafþór Róbertsson hefur verið ráðinn Guðbrandur látið af störfum skólastjóra Stígur Ágústsson frá Reykja- Vopnafjarðarskóla. í hans stað vík. AB

x

Austurland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.