Austurland


Austurland - 04.09.1991, Blaðsíða 1

Austurland - 04.09.1991, Blaðsíða 1
Um 1000 manns við nám á vegum framhaldsskólanna á Austurlandi Menntaskólinn á Egilsstöðum. í skólanum verða 220 nemendur í vetur auk nemenda íöldungadeild ogfjarkennslunámi. Ljósm. hb Hin nýja heimavist Verkmenntaskóla Austurlands íNeskaupstað. Ljósm. AB Um þessar mundir eru skólar að hefja starfsemi sína og í til- efni af því hafði AUSTUR- LAND samband við stjórnend- ur þeirra skóla í fjórðungnum sem hafa framhaldsnám innan sinna vébanda í þeim tiigangi að fá upplýsingar um aðsókn að skólunum og hugsanlegar nýj- ungar í starfsemi þeirra. Það kann að vekja verulega athygli að í Ijós kemur að alls munu um 1000 Austfirðingar stunda nám af einhverju tagi á vegum aust- firsku framhaldsskólanna og alls munu tæplega 600 manns stunda fullt nám á framhalds- skólastigi í Austfirðingafjórð- ungi í vetur. Að sögn Helga Ómars Braga- sonar skólameistara Mennta- skólans á Egilsstöðum munu 220 nemendur hefja nám við skólann í haust. Að auki munu síðanámilli 100ogl50nemend- ur leggja stund á nám við öld- ungadeild á Egilsstöðum og við fjarkennsludeild skólans. Þá mun verða starfrækt öldunga- deild á Vopnafirði í samvinnu við heimamenn og er gert ráð fyrir að 40 - 50 nemendur muni sækja hana, en þetta er annað árið sem boðið er upp á nám af þessu tagi á Vopnafirði. Fjarkennsla hófst á vegum Menntaskólans í fyrra í sam- vinnu við Fjarkennslunefnd Menntamálaráðuneytisins og þótti takast vel til. Mikið af því námsefni sem notað er við fjar- kennsluna er samið af kennur- um Menntaskólans. Fyirhuguð kennsla á skóg- ræktarbraut við Menntakólann á Egilsstöðum getur ekki hafist í haust og er ástæðan fyrst og fremst tregða í Menntamála- ráðuneytinu að sögn skóla- meistara. Albert Einarsson skólameist- ari Verkmenntaskóla Austur- lands í Neskaupstað tjáði blað- inu að aðsókn að skólanum væri mjög góð. Munu um 180 manns vera skráðir til náms á fram- haldsskólastigi auk þess sem skólinn mun annast kennslu um 100 nemenda á grunnskólastigi. Munu um 50 nemendanna á framhaldsskólastigi leggja stund á verklegt nám auk þess sem 16 nemendur verða á sjúkraliða- braut en kennsla á henni hófst á síðasta skólaári. Þá mun sjúkraliðabraut einnig verða starfrækt á Seyðisfirði og á Hornafirði í samvinnu við Verk- menntaskólann. Ráðgert var að bjóða upp á stýrimannanám, 1. stig, við Verkmenntaskólann en óvíst er hvort af því getur orðið vegna nemendafæðar. Farskólinn á Austurlandi mun verða starfræktur í nánu samstarfi við Verkmenntaskól- ann eins og verið hefur en um 200 nemendur lögðu stund á nám við hann á skólaárinu 1990 - 1991. Ný heimavist verður tekin í notkun við Verkmenntaskólann nú í haust og tjáði skólameistari blaðinu að öll aðstaða til að taka á móti aðkomunemendum myndi gjörbreytast til batnaðar með tilkomu hennar. Zophanías Torfason skóla- meistari Framhaldsskóla Aust- ur-Skaftafellssýslu sagði að nemendafjöldi í skólanum á haustönn yrði 85. Þá mun skól- inn starfrækja öldungadeild og er gert ráð fyrir að um 40 nem- endur stundi nám í henni. Skól- inn mun bjóða upp á stýri- mannanám, 1. stig, í vetur og eru 20 nemendur skráðir í það nám en alllangt er síðan hægt var að ljúka slíku prófi á suð- austurlandi. í vetur munu 11 nemendur Framhaldsskóla Austur-Skafta- fellssýslu stunda nám á svokall- aðri grunnbraut en þar er um að ræða endurskipulagt fornám. Mun grunnbrautarnámið verða heils vetrar nám og verður lögð áhersla á einstaklingsbundna kennslu. Stefán Jóhannsson nýráðinn skólastjóri Alþýðuskólans á Eiðum sagði að alls væru 112 nemendur skráðir í skólann og þar af 67 á framhaldsskólastigi. Kennsla á Eiðum mun verða með hefðbundnu sniði og eiga nemendur að mæta til skóla 9. september nk. Við Seyðisfjarðarskóla munu hátt í 40 nemendur sinna ýmsu námi á framhaldsskólastigi að sögn Péturs Böðvarssonar skólastjóra. Um 10 nemendur verða í bóklegu hefðbundnu námi, 15 verða í vélavarðanámi og u. þ. b. 10 á sjúkraliðabraut sem er starfrækt í samvinnu við Verkmenntaskóla Austurlands. Þá eru 5 nemendur í sérstakri deild fyrir fatlaða sem komið var á fót við skólann á síðasta skólaári. Sjötti skólinn á Austurlandi sem býður upp á nám á fram- haldsskólastigi er Hússtjórnar- skólinn á Hallormsstað. Að Hinn 22. ágúst sl. samþykktu hluthafafundir í útgerðar- ogfisk- vinnslufyrirtækjunum Þór hf. á Eskifirði og Skerseyri hf. í Hafn- arfirði að fyrirtækin skyldu sam- einuð. Stjóm hins nýja fyrirtækis mun verða í Hafnarfirði en stjómarformaður verður Ingvar Gunnarsson á Eskifirði. Skerseyri hefur eingöngu sinnt saltfiskvinnslu og var fyrir sameininguna stærsti saltfisk- framleiðandi á landinu. Þór hf. hefur hinsvegar bæði fengist við saltfiskverkun og frystingu. sögn Margrétar S. Sigbjörns- dóttur skólastjóra mun starf- semi hans verða með hefð- bundnum hætti í vetur. Gert er ráð fyrir ýmiss konar nám- skeiðahaldi á haustönn en á vor- önn verða hússtjórnarfræði á framhaldsskólastigi kennd. Skólinn getur einungis tekið á móti 22 nemendum á vorönn og lætur nærri að hann sé fullsetinn nú þegar. Eskfirska fyrirtækið var stærsti hluthafinn í Skerseyri fyrirsam- einingu en eftir sameininguna er gert ráð fyrir að velta fyrirtækis- ins verði um 850 milljónir á yfir- standandi ári. Ingvar Gunnarsson tjáði AUSTURLANDI að samein- ing fyrirtækjanna myndi ekki hafa áhrif á starfsmannahald á Eskifirði og í Hafnarfirði en til- gangurinn með sameiningunni hefði fyrst og fremst verið meiri möguleikar til aukinnar hag- kvæmni í rekstri. Um þessar mundir eru austfirskir skólanemar að setjast yfir skrœð- urnar. Ljósm. AB TILBOÐ Á LANGMOEN PARKETI 15% STAÐGREIÐSLUAFSLÁnUR BAKKABÚÐ © 71780 Eskifjörður Þór hf. sameinað hafnfirsku fyrirtæki

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.